Morgunblaðið - 17.03.1981, Blaðsíða 22

Morgunblaðið - 17.03.1981, Blaðsíða 22
30 MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 17. MARZ 1981 Ef ldur seiður til höf uðs Gísla Súrssyni - Kvikmyndun „Útlagans64 hafin / Leikstjóri og höfundur handrits: Ájfúst Guómundsson. Seiðkarlinn Þorgrímur nef „Við erum hér á fyrsta degi kvikmyndunarinnar, en alls ger- um við ráð fyrir átta dögum til myndatöku í vetrarveðri," sagði Ágúst, er hann gaf sér tíma til að spjalla við okkur á meðan gert var stutt hlé á myndatökunni. „Siðan verður eiginlega frí frá myndatöku fram í maí,“ sagði Ágúst ennfremur, „en þá verða tekin nokkur inniatriði. Megin- hluti kvimyndunarinnar fer síðan fram í sumar, en stefnt er að því að frumsýning geti orðið snemma á næsta ári.“ Ágúst sagði, að það atriði sem unnið var að í Krýsuvík, væri Um helgina var byrjað að kvikmynda Gísla sögu Súrssonar, eða „Útlagann" eins og myndin mun að öllum líkindum nefnast. Það er fyrirtækið ísfilm hf. sem að kvikmynduninni stendur, en fyrsta kvikmynd þess var Land og synir, sem enn er verið að sýna við mikla aðsókn. Morgunblaðsmenn voru á ferð í Krýsuvík á sunnudaginn, þar sem fyrstu mynda- tökurnar fóru fram, og Ágúst Guð- mundsson leikstjóri skýrði fyrir blaða- mönnum það sem um var að vera. Grein: Anders Hansen Myndir: Kristján Einarsson seiður sá er seiðkarlinn Þorgrím- ur nef á Nefsstöðum í Haukadal í Dýrafirði efldi gegn banamanni Þorgríms goða. Sá var Gísli Súrsson, sem raunar kemur ekki í ljós fyrr en síðar. Atgangurinn við seið Þorgríms var all tilkomumikill, og auðvelt að láta hugann reika aftur til tíundu aldar, er atburðir sem þessir voru trúlega algengari en nú er. „Við vitum raunverulega lítið um hvernig svona seiður var efldur," sagði Ágúst, „en við byggjum á frásögninni í sögunni sjálfri, og svo á því sem vitað er um svipaða hluti hjá frumstæð- um þjóðum. Áskell Másson fann þennan „rythma" eða takt sem við notum, og síðan er farið með óskiljanlega þulu, sem gerð var sérstaklega fyrir þetta tækifæri! Það þótti annars varla við hæfi á þessum tíma að karlar efldu seið, heldur voru það einkum konur er við slíkt fengust. í og með af þeim sökum látum við Þorgrím nef klæðast kvenfatnaði, eins og til að undirstrika þessa skoðun. En í Gíslasögu er sagt að seiðurinn hafi verið efldur með öllum þeim krafti er Þorgrími var möguleg- ur, eða með „ergi og skelmisskap" svo notað sé orðalag sögunnar sjálfrar." Saumastofa fyrir myndina „Nei, það er ekki svo auðvelt að Þorgrímur nef seiðir seið sinn með miklum tilþrifum. Hann stendur á palli þöktum nauts- og hrosshúðum yfir bullandi hvernum. borgrím leikur Björn Einarsson rafmagnstæknifræðingur, en aðstoðarmanninn, sem er til vinstri, leikur Hilmar Hauksson. fá lánaða búninga í þessa mynd frá öðrum, til dæmis úr kvik- myndun Snorra Sturlusonar," segir Ágúst. „Ástæða þess er sú, að mikill munur er á búningum þeim er hér voru notaðir á tíundu öld, og svo á þeim er Sturlungar klæddust á 13. öld, er evrópskra áhrifa í klæðaburði gætti mun meir en fyrr á öldum. Það hefur því verið mikil vinna í gerð búninganna, og má til dæmis nefna, að við höfum haft saumastofu í gangi frá áramót- um, þar sem fjórar konur vinna að gerð búninganna. Þá hafa sex manns unnið að leikmyndagerð, svo margt er á döfinni annað en kvikmyndatakan ein. Varðandi búningana er hins vegar rétt að taka það fram, að þeir búningar er sjást hér við seiðinn eru alls ekki dæmigerðir fyrir þá búninga sem fólk í myndinni mun klæð- ast.“ Séð yfir kvosina þar sem seiðurinn var magnaður af Þorgrimi nef og hyski hans. Það var undarleg tilfinning að ganga yfir fjallsöxlina og sjá skyndilega og heyra galdrahyski fremja fjölkynngi sína, líkt og að sjá aftur í fortíðina um nokkrar aldir. Sigurður Sverrir Pálsson kvikmyndatökumaður gerir klárt fyrir næstu upptöku. Seiðkonur og karlar biða átekta. Sjá hér hve illan endi... Ur Gísla sögu Súrssonar Seiðkarlinum Þorgrími nefi er svo lýst í Gísla sögu Súrssonar: „Maður hét Þorgrímr ok var kallaðr nef. Hann bjó á Nefsstöðum fyrir innan Haukadalsá. Ilann var fullr af gerningum ok fjölkynngi ok var seiðskratti, sem mestr mátti verða.“ Seið þeim. er Þorgrímur seiddi til höfuðs Gísla, er hins vegar svo lýst í sögunni: „Þat er næst til tíðenda, að Börkr kaupir at Þorgrími nef, at hann seiddi seið, at þeim manni yrði ekki at björg, er Þorgrím (goða) hefði vegit, þó at menn vildi duga honum. Oxi níu vetra gamall var honum gefinn til þess. Nú flytr Þorgrimr fram seiðinn ok veitir sér umbúð eftir venju sinni ok gerir sér hjall, ok fremr hann þetta fjölkynngiliga með allri ergi ok skclmisskap.1* Þorgrímur nef átti sér systur, Auðbjörgu að nafni, og var hún ekki síður fjölkunnug en hann. Svoíeild lýsing er í Gísla sögu á gjörningum eí hún framdi: „Kerling fær ekki sofnat um tóttina, svá var henni bimbult. Veðr var kalt úti ok logn ok heiðríkt. Hon gengr nökkurum sinnum andsælis um húsin ok viðrar í allar ættir ok setr upp nasarnar. En við þessa hennar meðferð þá tók veðrit að skipast, ok hleypr snæskriða á bæ Bergs, ok fá þar tólf menn bana. ok sér enn merki jarðfallsins í dag.“ Varla var von til þess að menn létu slíkt galdrahyski afskiptalaust, en segir svo frá því hver endalok systkinanna urðu: „En er Börkr frétti þessi fákynstr, þá ferr hann upp á Annmarkastaði ok lætr taka Auðbjörgu ok ferr með hana út á Saltnes ok berr hana grjóti í hel. Ok er þetta er liðit, ferr Gísli heiman ok kemr á Nefsstaði ok tekr Þorgrím nef höndum ok færir á Saltnes, ok er dreginn belgr á höfuð honum ok er barðr grjóti til bana ok er kasaðr hjá systur sinni, á hryggnum milli Haukadals ok Meðaldals.“

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.