Morgunblaðið - 17.03.1981, Blaðsíða 36

Morgunblaðið - 17.03.1981, Blaðsíða 36
44 MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 17. MARZ 1981 COSPER VitiA þér ekki að þaA er ekki siAaAra manna háttur aA standa glápandi á fólk? Með morgnnkaffinu 0»f þegar liA Tottcnham ok Leeds gerAu jafntefli, var ég skyndileKa orAin 2 miiljónum ríkari. kallfauskur! HÖGNI HREKKVÍSI „fmtM 0 L'bfiM mtiH 'I Ún >!" Og hvers vegna skyldi flugið vera undanskilið? Kristinn skrifar: „Velvakandi: I dálkum þínum hinn 7. þ.m. birtust skrif um flugmál, sem mér fannst einkennast af helzt til miklum anda einokunar og hagsmunum þess aðila, sem til þessa hefur haft allar flugsam- göngur á hendi fyrir íslendinga. Mér fannst einnig stinga nokkuð í stúf málflutningur þessa verkamanns, þegar hann ákallar ASÍ og Verkamanna- sambandið til hjálpar, og segir, að „gerð sé aðför að verkalýðs- félögum og atvinnuöryggi í land- inu“ ef erlendum flugfélögum sé leyft að bjóða upp á betri kjör en Flugleiðir virðast geta! Og það er óþarft að vitna til ummæla 'einhvers af núverandi forsvarsmönnum Flugleiða í þessu máli. Forsvarsmenn þess félags virðast helzt vilja koma á samkeppnishömlum í flugi, svo að landsmenn eigi engra kosta völ í þeim efnum. Ég veit ekki til þess, að verkamenn eigi mikið á hættu, þótt aðrir fljúgi hingað til lands samhliða Flugleiðum. Þeir verkamenn, sem vinna við flug- starfsemi á Keflavíkurflugvelli, en þangað koma allar erlendar vélar, myndu einskis í missa, eða aðrir þeir, sem tilheyra verka- lýðsfélögum. Það þarf að af- greiða allar flugvélar og ferma og afferma, og slík vinna er öll í höndum Flugleiða sjálfra. Svo er einokunaraðstöðu Flugleiða fyrir að þakka (eða kenna). Þeir einu, sem hugsanlega gætu misst spón úr aski sínum, ef svo ólíklega vill til, að Flugl- eiðir hættu að sinna farþegafl- ugi sínu til Norðurlanda eða Englands, vegna leiguflugferða erlendra flugvéla (sem auðvitað er fjarstæða) eru flugmenn. — En Jæir eru ekki innan vébanda ASÍ eða Verkamannasambands- ins — eða hvað? Sannleikurinn er sá, að ef eitthvað er, þá er það til mikilla hagsbóta fyrir alla landsmenn, ekki sízt þá er lægri laun hafa, svo og lífeyrisþega, að til skuli vera hér aðilar, svo sem innlend- ar ferðaskrifstofur, sem hafa dug og þor til þess að láta reyna á það, hvort aðeins einum aðila á að haldast uppi að einoka þær samgöngur, sem við höfum nú einar, þ.e.a.s. flugið. Ég sem hefi verið verkamaður og sjómaður mestan hluta ævi minnar fagna þvi framtaki, sem ferðaskrifstofur sýna með því að semja við aðra en þann aðila, sem augsýnilega er ekki sam- keppnisfær um hagstæð kjör á ferðum til og frá landinu. — Að þessu hlaut að koma. — Hver og einn getur litið í eigin barm, hvort hann myndi ekki taka lægsta tilboði. Þjóðernisrembingur og föður- landsást kemur þar hvergi við sögu. Islendingar ættu umfram allt að standa saman um sam- keppni á öllum sviðum viðskipta. Hún er neytendum hagstæðust. Og hvers vegna skyldi flugið vera undanskilið? Þá gengju mörg fyrir- tækin betur Snorri Jónsson skrifar: „Undrandi varð ég við lestur Morgunblaðsins 24. febrúar þegar ég las greinina um sóðaskap á vinnustað Jósafats Hinrikssonar. Ég var svo heppinn að vera spíssari (kyndari) á togaranum Neptúnusi þegar Jósafat kom þangað til starfa og var ég undir hans góðu stjórn í rúm tvö ár. Ég fullyrði að vélarrúm skipsins og allt annað, sem honum við kom um borð var til mikillar fyrir- myndar hvar sem á var litið, hvort sem var fyrir framan eða á bakvið dælur og mótora því hann var ekki fyrir augað. Hann vildi hafa allt hreint hjá sér og vann hann mikið að því sjálfur og dró ekkert af sér. Jósafat var sivinnandi og færi betur ef allir væru eins, sem vinna hjá öðrum, þá gengju mörg fyrir- tækin betur í dag. Skil ég ekki skrif fréttamanns Þjóðviljans, sem er að skíta út vinnustað Jósafats Hinrikssonar, öðruvísi en öfundsýki af því að hann hefur komið sér svo vel Snorri Jónsson áfram með dugnaði sínum og reglusemi í hvívetna ásamt sínu þekkta áræði. Mér þótti vænt um að Lúðvik Jósefsson skyldi fara til Jósafats þar sem hann er búinn að þekkja hann í tugi ára. Ég vona og bið að vinur minn Jósafat eigi áfram eftir að verða landi og þjóð til gæfu og farsældar eins og hann hefur verið hingað til. Að síðustu óska ég honum til hamingju með fyrirtækið og að það megi blómstra í framtíðinni." Þeir munu falla einn af öðrum V.S. skrifar: „Kæri Velvakandi. Þó að 12.000 af íbúum höfuð- borgarinnar hafi skrifað sig á undirskriftalista og mótmælt þannig skrefa-skattinum marg- umtalaða, er ekki að sjá að simamálaráðherra hafi skilið ábendinguna eða tekið tillit til þeirra, sem þar rituðu nöfn sín, enda eru þeir þingmenn, sem sitja á Alþingi á atkvæðum landsbyggðarinnar, hræddir við atkvæðatap. Eitt er þó víst, að á bak við þessar 12.000 undirskriftir eru a.m.k. önnur 12.000 til viðbótar, sem ekki fengu tækifæri til að skrifa sig á þessa lista vegna veikinda eða af öðrum ástæðum. Allt þetta fólk, og þar á meðal ég sjálfur, mun svo sannarlega hugsa til þeirra sem ætla að svíkja Reykvíkinga og nágranna þeirra þegar þar að kemur. í næstu kosningum munu þeir sjá sæng sína upp reidda og þeir munu falla einn af öðrum. Virðingarfyllst."

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.