Morgunblaðið - 17.03.1981, Qupperneq 3
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 17. MARZ 1981
3
Guðný Í.S. stórskemmdist
af eldi í ísaf jarðardjúpi
Stýrishúsið var illa útjeikið eftir eldinn.
Myndirnar tók Úlfar Ágústsson.
Mótorbáturinn Orri frá ísafirði kemur inn til ísafjarðar með
Guðnýju ÍS eftir hrunann.
var á þeim slóðum sem Guðný
var og erfitt um athafnir, var
afráðið að m.b. Orri frá ísa-
firði tæki Guðnýju í tog og
drægi hana til móts við Flosa.
Bátarnir hittust í mynni Isa-
fjarðardjúps. Þar fóru slökkvi-
liðsmenn um borð og tókst
þeim að ráða niðurlögum elds-
ins fljótlega, enda mest brunn-
ið sem brunnið gat aftan í
skipinu. Þilfarshús, þar sem
m.a. er balageymsla, slapp þó
alveg og var enn frost á
lóðunum þegar landmennirnir
tóku þær upp um ellefuleytið í
morgun. Engin slys urðu á
mönnum, en á Guðnýju er 5
manna áhöfn. Guðný, sem er
75 lesta stálbátur, var upphaf-
lega smíðuð í Vestur-Þýska-
landi 1957, en síðan hefur verið
sett á hana ‘þilfarshús og
hvalbakur. Hún þykir afbragðs
sjóskip og mundi þykja mikil
eftirsjá í henni ef hún hyrfi úr
ísfirska bátaflotanum.
Eigandi Guðnýjar er Búða-
nes hf. og framkvæmdastjóri
Sigurður Sveinsson. Skipstjóri
á Guðnýju er Jón Pétursson.
Úlfar
ísafirdi. 16. mars.
ÚM ÞRJÚLEYTIÐ í nótt kom
upp eldur í vélarrúmi m.b.
Guðnýjar ÍS 266, þar sem hún
var á leið í línuróður. Eldur-
inn var í forþjöppu aðalvélar,
og tókst skipverjum að ráða
við eldinn með dufti, að þeir
héldu. En skömmu síðar gaus
eldur upp víðar í vélarrúm-
inu, svo ekki varð við neitt
ráðið.
Breiddist eldurinn út um
brú bátsins, bestikk og káetu
og brann þar allt, sem brunnið
gat. Skipverjum tókst að gera
vart við sig og komu fljótlega
að bátar til aðstoðar. M.b.
Flosi frá Bolungarvík var ný-
lagður af stað í róður, sneri
hann þegar við og sótti
slökkviliðsmenn til Bolungar-
víkur og fór til móts við
bátinn. Þar sem töluverð kvika
William McQuillan, hinn nýi
sendiherra Breta á íslandi.
Nýr sendiherra
Breta á íslandi
SKIPAÐUR hefur verið nyr
sendiherra Stóra-Bretlands á Is-
landi. Hann heitir William
McQuiIlan, fæddur í Midlothian í
Skotlandi, og menntaður i Kon-
unglega Menntaskólanum i Edin-
borg, Edinborgarháskóla og við
Yaleháskóla i Bandaríkjunum.
McQuillan hóf störf í bresku
utanríkisþjónustunni árið 1965, og
hefur meðal annars starfað í
ráðuneyti er fór með málefni
Suður-Rhodesíu, í skrifstofu er sér
um samskipti Samveldislandanna,
hann hefur verið í Lusaka í
Zambíu, í Santiago í Chile og
Guatemala City í Guatemala.
McQuillan er fimmtugur að
aldri, kvæntur og þriggja barna
faðir. Hann tekur við embætti af
Kenneth East, sem lengi hefur
verið sendiherra bresku krúnunn-
ar hér á íslandi, en lætur nú af
störfum í utanríkisþjónustunni.
Ingólfur í Útsýn
sæmdur spænskri orðu
INGÓLFUR Guðbrandsson, for-
stjóri Útsýnar, heíur verið sæmd-
ur spænskri orðu fyrir framúr-
Ingólfur Guðbrandsson
skarandi störf i þágu ferðamála.
Hér er um að raeða riddaraorðu,
sem ferðamálaráðuneyti Spánar
veitir í nafni Juan Carlos kon-
ungs, ásamt heiðursnafnbót, en á
spænsku nefnist orðan „La Med-
alla al Merito Turistico“.
Afhending orðunnar fer fram
við hátíðlega athöfn á Costa del
Sol innan skamms, og af því
tilefni verður hóf haldið til heið-
urs Ingólfi Guðbrandssyni. Hátíð
þessi verður síðan endurtekin í
Reykjavík í lok aprílmánaðar, og
verður hún í tengslum við Spán-
arkynningu, sem stendur í viku-
tíma. Eru ýmsir forvígismenn í
ferðamálum og útflutningi vænt-
anlegir frá Spáni vegna kynn-
ingarvikunnar. Þá verða í hópnum
listamenn, sem munu kynna
spænska menningu, en fram-
kvæmd Spánarvikunnar annast
José A. Vera, forstjóri Viajes
Marsans, stærstu ferðaskrifstofu
Spánar.
Jón Helgason endurkjörinn
formaður Einingar á Akureyri
Akureyri, 16. mars 1981.
AÐALFÚNDUR Verkalýðsfé-
lagsins Einingar var haldinn á
sunnudaginn. Þar var lýst stjórn-
arkjöri, og er stjórnin þannig
skipuð: Formaður Jón Helgason.
varaformaður Sævar Frímanns-
son, ritari Úlfhildur Rögnvalds-
dóttir, gjaldkeri Unnur Björns-
dóttir og meðstjórnendur ólöf V.
Jónasdóttir, Þórarinn Þorbjarn-
arson og Guðmundur Sæmunds-
son.
í varastjórn eru Aðalheiður
Þorleifsdóttir, Matthildur Sigur-
jónsdóttir, Stefán Jónmundsson,
Geirþrúður Brynjólfsdóttir og
Guðlaug Jóhannsdóttir.
í Einingu eru nú 3128 félagar,
2057 konur og 1161 karl. Félögum
fjölgaði um 364 á síðasta ári.
Rekstrarafgangur hjá sjóðum fé-
lagsins var 9005 krónur, og aðal-
fundurinn samþykkti að auka
greiðslur úr sjúkrasjóði til félags-
manna. Ennfremur var samþykkt
að styrkja byggingu endurhæf-
ingarstöðvar Sjálfsbjargar með 60
þúsund krónum, kaupa hlutabréf í
Alþýðubankanum hf. fyrir 20 þús-
und krónur og leggja 50 þúsund
krónur í byggingarsjóð félagsins.
Félagið greiddi 588.660 krónur í
bætur til félagsmanna á síðasta
ári.
- Sv.P.
¥
í ró og næði
heima
>
og á þeim tíma dagsins sem hentar þér,
getur þú æft þig með vaxtarmótar
anum. Milljónir manna, konur og
karlar nota vaxtarmótarann til að
> ná eðlilegri þyngd og til að
viðhalda líkamshreysti sinni
í ró og næði heima.
fegrar og grennir líkamann •• Árangurinn er
skjótur og áhrifaríkur • • Æfingum með tœkinu
má haga eftir því hvaöa líkamshluta menn vilja grenna
eða styrkja. • • Vaxtarmótarinn mótar allan líkamann. arma,
brjóst, mitti, kviðvóðva, mjaðmir og fætur. • • islenskar
þýðingar á æfingakerfinu fylgja hverju tæki. • • Hurðarhúnn
nægir sem festing fyrir vaxtarmótarann • • Reyndu þetta
einfalda og hentuga nýja tæki til aö ná aftur þinni fyrri
líkamsfegurð og lipurö í hreyfingum ••14 daga skilafrestur
þ.e. ef þú ert ekki ánægður með árangurinn eftir 14 daga getur
þú skilaö því og fengið fullnaðargreiðslu.
Aðeins
5-10 nriín.
, ælingar á dag
til að grenna.
^ styrkia og ^
'legra líkanranrv
l________!
Borgarprent
Sendið mér: □ .
Nafn
stk vaxtarmotari kr 99 00 * póstkostn
Heimilisf.
Pöntunarsími 44440 ,
Póstverslunin Heimaval Box 39. Kópavogi
I* ■■■