Morgunblaðið - 17.03.1981, Qupperneq 13
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 17. MARZ 1981
13
Milans del Bosch
Jose Leon Pizarro
Luis Torres Rojas
Jose iKnacio San Martin
fallhlífaherdeild, sem einnig er í
grennd við höfuðborgina, og alltaf
hefur verið álitið, að ef ríkis-
stjórnin ætti að standast alvar-
lega byltingartilraun yrði hún að
geta treyst stuðningi herliðsins í
Madrid og nágrenni skilyrðislaust.
Önnur deild Brunete-herfylkisins
var að vísu að æfingum í 200
mílna fjarlægð, en íhlutun hinnar
deiidarinnar hefði ráðið úrslitum.
En hún lét ekkert á sér kræla
vegna áhrifa konunghollra liðsfor-
ingja, sem störfuðu eftir Díönu-
áætluninni, fortöluhæfileika kon-
ungsins og vegna þess að samsær-
ismönnunum tókst ekki að leggja
undir sig fjölmiðla.
Morssending-
um var hætt vegna
aukins kostnaðar
- segir Hörður Vilhjálmsson fjármálastjóri
Herflokkur undir forystu höf-
uðsmanns hafði skrifstofur rík-
isútvarpsins og sjónvarpsins á
valdi sínu í stuttan tíma um
kvöldið, en þegar útvarpinu var
skipað að leika hergöngulög tók
það næstum því eina klukkustund
að finna réttar hljómplötur. Ríkis-
sjónvarpinu var skipað að halda
áfram flutningi venjulegrar
skemmtidagskrár, en útvarps-
stöðvum í einkaeign, fréttastof-
unni EFE og dagblöðunum var
leyft af óskiljanlegum ástæðum að
skýra frá gangi mála. Við þing-
húsið var urmull af útvarpsbílum
og hvaðanæva að af landinu bár-
ust fréttir um að allt væri með
kyrrum kjörum, að ekkert óvenju-
legt væri á seyði.
Engin meiriháttar mannvirki í
Madrid og nágrenni voru tekin
nema þinghúsið. Ofursti og tveir
vopnaðir borgarar reyndu að
leggja undir sig skrifstofu yfir-
manns hersins í Madrid, Rafael
Allende Salazar hershöfðingja, en
hann miðaði skambyssu sinni á þá
og afhenti þá lögreglunni. Bylting-
in var greinilega runnin út í
sandinn. Herforingjar, sem
kannski hefðu lagzt á sveif með
samsærismönnum ef öðru vísi
hefði staðiö á, afréðu að hafast
ekkert að. Byltingin hafði verið
vonlaus frá upphafi. Það eina sem
yfirvöld óttuðust raunverulega
eftir töku þinghússins var, að
uppreisnarmenn myrtu valda-
mikla stjórnmálamenn á borð við
Suarez, Leopoldo Calvo-Sotelo
verðandi forsætisráðherra, Felipe
Gonzales, leiðtoga sósíalista, eða
Santiago Carrillo, leiðtoga komm-
únista, ef kröfum þeirra yrði ekki
mætt. Byltingin hlaut að fara út
um þúfur vegna þess, að ekki voru
fengnir nógu margir herforingjar
frá herstjórnarumdæmum úti á
landsbyggðinni til að taka þátt i
samsærinu, þar sem óttazt var að
þá mundu fréttir um byltinguna
síast út. Umfram allt mistókst
byltingin vegna þess, að samsær-
ismennirnir voru hollir Juan Carl-
osi konungi, sem þeir töldu einn úr
sínum hópi. Þeir héldu að hann
mundi segja skilið við lýðræðið
þegar skriðdrekarnir væru komnir
út á göturnar.
Milans del Bosch var góður
kunningi Juan Carlos frá dögum
sínum með skriðdrekaherfylkinu
utan við Madrid og hjá honum
togaðist á tryggð við konung og
samsærismenn, þegar konungur-
inn skipaði honum símleiðis frá
Zarzuela-höll að aflétta neyðar-
ástandinu í Valencia og staðfesta
að skipuninni hefði verið fram-
fylgt með telex-skeyti. Del Bosch
taldi augsýnilega að herinn væri
reiðubúinn að gera uppreisn eftir
stjórnarkreppuna í kjölfar afsagn-
ar Suarezar í janúar og eftir
síðustu ólguna í Baskahéruðunum.
En yfirmenn annarra herstjórnar-
umdæma fóru ekki að dæmi hans
og hann sá sér ekki annað fært en
að hlýða skipun konungs. Hann
gerði þó eina lokatilraun. Hann
sagði konunginum, að Tejero
ofursti neitaði að sleppa gíslunum
í þinghúsinu og spurði hvort ekki
væri hægt að koma nokkuð til
móts við Tejero. Því harðneitaði
konungurinn, á sama hátt og hann
hafnaði boði Armada hershöfð-
ingja um að koma til Zarzuela-
hallar að hjálpa konunginum að
bjarga ástandinu.
Konungurinn átti upphaflega að
flytja sjónvarpsávarp til þjóðar-
innar kl. 9.15 um kvöldið en enn
var ótryggt ástand í aðalstöðvum
Brunete-herfylkisins. Það var ekki
fyrr en kl. 1.15 eftir miðnætti að
hann kom fram í sjónvarpinu
klæddur einkennisbúningi æðsta
yfirmanns heraflans og flutti
harðort, fjögurra mínútna ávarp,
þar sem hann lagði áherzlu á
frelsi, stjórnarskrá Spánar og
lýðræði. Ávarp konungs var al-
mennt talið meistaralegt og eftir
flutning þess leið mesta hættan
hjá, þótt mikil óvissa ríkti um
afstöðu Brunete-herfylkisins fram
á morgun. Konungurinn taldi sig
ekki óhultan i höllinni. Vitað var
að uppreisnarmaðurinn Luis Tor-
res Rojas hershöfðingi hafði kom-
ið í heimsókn til Brunete-herfylk-
isins og verið gat að það léti til
skarar skríða. Konungurinn gaf
fyrirmæli um að lífvörður hans
fengi öflugan liðsauka til að verja
hallarhliðin. En síðasta skref
áætlunar samsærismanna um að
kalla út herlið í öllum herstjórn-
arumdæmum kom aldrei til fram-
kvæmda. Tejero gerði sér grein
fyrir því að leiknum væri lokið þar
sem deildir hersins á landsbyggð-
inni gengu ekki í lið með honum og
hann gafst upp.
Þegar þingmönnunum hafði
verið bjargað úr gíslingu kallaði
Juan Carlos leiðtoga stjórnmála-
flokkanna á sinn fund. Hann benti
þeim á, að þótt hann fagnaði því
að hafa getað orðið að liði ætti það
ekki að þurfa að vera í verkahring
konungsins að skakka leikinn
hvað eftir annað þegar alvarlegt
og viðsjárvert ástand kæmi upp.
Hann sagði að ríkjandi ástand í
landinu væri „viðkvæmt" og var-
aði við því að hörð viðbrögð gegn
samsærismönnum gætu haft öfug
áhrif. Talið er að margir mánuðir
muni líða áður en samsærismenn
verða leiddir fyrir rétt og þeir
verða leiddir fyrir herrétt en ekki
venjulega dómstóla.
Spánverjar hafa litla trú á því
að hættan sé liðin hjá og telja að
konungurinn hafi aðeins fengið
gálgafrest. Næst verði ráðizt til
atlögu gegn konunginum. Nú veit
herinn hvar hann stendur gagn-
vart konunginum, sem getur ekki
lengi gegnt sáttasemjarahlutverki
og miðlað málum milli hersins og
lýðræðislegra stjórnvalda. Stór
hluti hersins kaus að bíða átekta,
mikill hluti háttsettra yfirmanna
hersins er talinn halda tryggð við
Franco. Þeir vilja ekki ráðast gegn
ríkisstjórninni, þeir eru hlutlaus-
ir, haga seglum eftir vindi. Minna
ber á konunghollum yfirmönnum
þrátt fyrir Diönu-áætlunina, þeir
hafa ekki hyllt konunginn eða
stjórnarskrána.
Baskar halda áfram hryðju-
verkum og uppreisn í norðurhér-
uðunum og það var ein ástæðan til
uppreisnarinnar. Glæpir, ungl-
ingaafbrot og eiturlyfjanotkun
hafa aukizt um 30% á Spáni á
fimm árum, verðbólga er 15%,
atvinnuleysi 12% (18% í Baska-
héruðunum og Andalúsíu). Traust
almennings á lögreglunni og Þjóð-
varðliðinu hefur dvínað í kjölfar
uppreisnarinnar og vegna ásakana
á þingi um pyntingar. Á sama hátt
og í hernum sætta margir yfir-
menn lögreglunnar og Þjóðvarð-
liðsins sig ekki við stjórnarskrána
og iíta á störf þingsins sem tíma-
og peningasóun. Lýðræðislegar
umbætur hafa ekki náð til dóm-
kerfisins. Heimastjórnarmál
Baska og annarra hafa ekki verið
leyst (auk Baska hafa Katalóníu-
menn heimastjórn, en 11 önnur
þjóðarbrot hafa hana ekki). Til-
slakanir við Baska valda mestri
óánægju í hernum, Þjóðvarðliðinu
og lögreglunni. „ETA-samtökin
verða kveikja annarrar byltingar,"
sagði ritstjóri nokkur í Madrid
nýlega.
Engu að síður hefur staða Mið-
flokkasambandsins eflzt eftir
árásina á þinghúsið. Sósíalistum
og kommúnistum hefur verið sýnt
fram á, hvaða afleiðingar það
getur haft að hindra störf stjórn-
arinnar til að knýja fram nýjar
kosningar. Auðveldara verður að
fá óánægða menn í Miðflokkasam-
bandinu til að sýna hlýðni. Hóf-
samir heimastjórnarmenn í
Baska-héruðunum eru hræddir,
þvi að þeir vita að heimastjórn
verður afnumin ef herinn tekur
völdin. Stjórnin fær átyllu til að
hreinsa til í hernum og Þjóðvarð-
liðinu, sem hún hefur vanrækt til
þessa. En það getur reynzt erfitt,
þar sem þessu liði er beitt gegn
hryðjuverkamönnum Baska. Og
trú manna á lýðræðinu á Spáni
hefur beðið hnekki, innanlands og
utan, m.a. í Brússel, þar sem
fjallað hefur verið um aðild Spán-
ar að EBE, og aðildin getur
dregizt vegna efasemda um lýð-
ræði Spánar.
„VIÐ IIÖFUM boðist til að senda
á fjarrita fréttir i Gufunes og
teljum að þar ljúki hlutverki
okkar. Fjárhagsörðugleikar
Rikisútvarpsins eru nógir samt.“
sagði Hörður Vilhjálmsson, fjár-
málastjóri Rikisútvarpsins i sam-
tali við blaðamann Mbl. þegar
hann var spurður af hverju
Rikisútvarpið hefði hætt frétta-
sendingum á morsi en slíkt hefur
verið tíðkað mörg undanfarin ár.
Sjómenn hafa látið í ljósi mikla
óánægju með þessa ákvörðun og
segja það alveg undir hælinn lagt
hvort þeir nái stuttbylgjuútsend-
ingum frá Gufunesi.
„Vegna kostnaðar við þessar
morssendingar hefur verið ágrein-
ingur um þetta mál frá árinu 1979.
Um alllangt skeið hafði verið sent
út á fjórum sendum frá Gufunesi,
fjórum sinnum á sólarhring. Síðan
gerðist það, að gjald fyrir mors-
sendingar hækkaði nokkuð ört og
snögglega að okkur fannst, þannig
að Ríkisútvarpið sá sér ekki kleift
að greiða þann umtalsverða við-
bótarkostnað, sem varð á þessum
sendingum. Þá' ýtti það undir þá
ákvörðun að senda fréttir út á
stuttbylgjum, að settur hafði verið
upp nýr stuttbylgjusendir í Gufu-
nesi. Hann sendir út með mjög
mikilli orku og við höfum haft
spurnir af því, að sendingar frá
Ríkisútvarpinu hafi náðst vel á
Suðurskautslandinu. Nú eru dag-
lega sendar fréttir frá þessum
stuttbylgjusendi frá kl. 18.30 til kl.
20. Við höfum boðist til að senda
fréttaágrip í Gufunes til útsend-
ingar. Þar teljum við okkar hlut-
verki lokið, því við eigum nóg með
að standa undir rekstri á eigin
dreifikerfi, þó við borgum ekki
fyrir þessar morssendingar," sagði
Hörður.
Hve mikið hafið þið þurft að
greiða fyrir þessar útsendingar?
„Fyrstu níu mánuði ársins 1980
greiddum við 3 milljónir gkróna
fyrir þessar útsendingar. Okkur
sýnist eðlilegt, að útgerðir þeirra
skipa, sem njóta útsendinga greiði
þessa reikninga. Það er mun
ódýrara fyrir okkur að senda
fréttaágrip á stuttbylgjum," sagði
Hörður Vilhjálmsson.
SVÆÐISFUNDUR
Kaupfélögin á Suðurlandi halda svæðis-
fund með stjómarformanni og forstjóra
Sambandsins í félagsheimilinu Hvoli,
Hvolsvelli, laugardaginn 21. mars 1981
kl. 13.00 — 20.00.
Fundarefni:
1. Viðfangsefni Sambandsins.
Frummælandi: Erlendur Einarsson, for-
stjóri.
2. Samvinna kaupfélaganna og tengsl við
Sambandið.
Frummælandi: Oddur Sigurbergsson
kaupfélagsstjóri.
3. Stefnuskrá samvinnuhreyfingarinnar.
Frummælandi: Valur Amþórsson, stjómar-
formaður Sambandsins.
4. Tengsl félagsmanna við kaupfélögin.
Frummælandi: Einar Þorsteinsson ráðu-
nautur.
5. önnur mál — almennar umræður.
Félagsmenn kaupfélaganna eru hvattír tíl að
koma á fundinn.
Kaupfélag Árnesinga
Kaupfélag Rangæinga
Kaupfélag Skaftfellinga
Kaupfélag Vestmannaeyja