Morgunblaðið - 17.03.1981, Síða 15
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 17. MARZ 1981
15
ýmsum hliðum. Fyrst eru nem-
endur látnir skoða landamæri
Evrópuríkja á mismunandi tím-
um og velta fyrir sér hvers vegna
breytingar verða á þeim og hvað
verður um fólkið sem býr þar
sem landamæri eru færð til. Það
leiðir hugann að því hvað felist í
hugtakinu „þjóð“. Óhætt er að
fullyrða að nær alls staðar þar
sem landamærum hefur verið
breytt hafi það orðið vegna
einhvers konar ófriðar. Heims-
styrjöldin síðari setur enn mark
sitt á Evrópu og er því erfitt að
fjalla um Evrópu nú á dögum án
þess að gera þeim atburðum
einhver skil. í kaflanum er því.
stutt lýsing á aðdraganda þessa
hildarleiks og einnig helstu við-
burðum hans. í tengslum við þá
lýsingu er fjallað um hernám
Islands. Því næst er fjallað um
ýmis atriði er tengjast styrjald-
arátökum. Reynt er að vekja
nemendur til umhugsunar bæði
um þær hörmungar og hina
miklu eyðileggingu sem slík átök
valda oftast. Þetta er viðkvæmt
og vandmeðfarið viðfangsefni,
einkum ef miðað er við aldur og
þroska nemenda. Sú leið hefur
verið farin að draga upp marg-
víslegar myndir af hernaðarátök-
um og gefa þannig tilefni til
fjölbreytilegra umræðna og verk-
efna í tengslum við viðfangsefn-
ið. Á bls. 59—61 er fjallað um
hvernig fjölmiðlar greina frá
stríði og hvers kyns ofbeldi, en
þrátt fyrir þá viðurstyggð sem
slíkum atburðum fylgir er ótrú-
lega algengt að dregnar séu upp
eins konar glansmyndir af þeim.
Hér gefst tilefni til að láta
nemendur kynna sér bókmenntir
þar sem lýst er hernaðarátökum.
I lok kaflans eru skoðuð landa-
mæri Evrópu nú á tímum og í
tengslum við það er aftur vikið
að Póllandi og endurreisninni
þar eftir síðari heimsstyrjöldina.
Kaflinn um Varsjá er eðlilegt
framhald af því sem hér hefur
verið rakið. Verulegur hluti borg-
arinnar var lagður í rúst í
styrjöldinni og síðar var hún að
miklu leyti endurreist í sinni
upprunalegu mynd.“
Með öðrum orðum: Efninu er
ætlað að vekja nemendur til um-
hugsunar um hörmungar stríðs-
átaka og lái það höfundum hver
sem vill. Því miður gefur saga
Póllands mörg tilefni til að leiða
hugann að því efni. Hins vegar er
ljóst að ekki verður öllum 11 ára
börnum ætlað að brjóta slík við-
fangsefni til mergjar og gera sér
grein fyrir sögulegum rökum.
Þroski nemenda setur því að
sjálfsögðu nokkrar skorður hverju
unnt er að gera skil. Með hliðsjón
af þessu er það látið í sjálfsvald
kennara hvort þeir fjalla rækilega
um þessi viðfangsefni með nem-
endum sínum og vil ég bæta því
við, sérstaklega að gefnu tilefni í
grein Eiðs Guðnasonar, að til þess
treystum við kennurum fullkom-
lega.
Óhlutdrægni og
ólík viðhorf
Eiður gagnrýnir frásögn bókar-
innar af aðdraganda að valdatöku
Hitlers í Þýskalandi og mun ég
leita aftur til sagnfræðinga um að
athuga þessa lýsingu með hliðsjón
af þessum efasemdum. Vart þarf
að taka fram að þessi kafli var
eins og allt annað efni bókarinnar
borinn undir ýmsa sérfræðinga
áður en hún kom út.
Þá gagnrýnir Eiður hvernig
komist er að orði þegar lýst er
ólíkum viðhorfum Islendinga til
bandaríska varnarliðsins. Ég get
upplýst það sérstaklega að að-
standendur þessarar bókar hafa
ólíkar skoðanir á veru bandarísks
herliðs á íslandi. Því lögðu þeir sig
sérstaklega fram við að setja
lýsingu á þessu viðkvæma máli
fram á óhlutdrægan hátt og sætt-
ust menn á þá framsetningu sem
birtist í bókinni. Það er nú ljóst að
þrátt fyrir góðan vilja hefur þetta
ekki tekist, a.m.k. hlýtur svo að
vera ef fleiri geta tekið undir
sjónarmið Eiðs Guðnasonar.
Eiður spyr hvaða erindi þetta
efni eigi inn í þetta námsefni. Að
þessu er vikið í kennsluleiðbein-
ingum sbr. tilvitnun hér á undan.
Þar eru settar fram tillögur um
hvernig fara skuli með þetta efni
og segir m.a. á bls. 66:
„Nauðsynlegt er að vara kenn-
ara við að gera of mikið úr þessu
verkefni þar sem það er óneitan-
lega eitt af viðkvæmari málum
þjóðarinnar og takmarkað hve 11
ára nemendur geta fjallað um
það. Hins vegar er rétt að kynna
nemendum þessi mál svo að þeir
fái tækifæri til að átta sig á því
að þarna er á ferðinni deilumál
sem snertir bæði tilfinningaleg
og pólitísk viðhorf manna.
Flókin viðfangsefni
Þá langar mig að fara nokkrum
orðum um þann þátt í gagnrýni
Eiðs Guðnasonar sem ég álít að
eigi við nokkur rök að styðjast.
Pólland er kommúnistaríki og
þar ríkir flokkseinræði. Um þessi
mál er ekki fjallað sérstaklega í
bókinni. Ekki er heldur gerð
ítarleg grein fyrir sambandi Pól-
lands og Sovétríkjanna, né heldur
fjallað að ráði um samskipti ríkis
og kirkju. Þessir þættir þóttu of
flóknir fyrir 11 ára börn. Við
töldum að stjórnmálafræðileg við-
fangsefni ættu betur erindi við
nemendur síðar, t.d. á unglinga-
stigi. Megináhersla var því lögð á
að búa efnið þannig úr garði að
það varpaði ljósi á ýmsa land-
fræðilega og félagslega þætti. Þar
má nefna gerð og hlutverk hafna,
hafnarskilyrði, landslag, gróður-
far, landbúnað að fornu og nýju,
hráefni, iðnað, byggð, daglegt líf
fólksins og menningu og loks áhrif
heimsstyrjaldarinnar síðari á
pólskt þjóðlíf. Efninu var ætlað
það hlutverk að efla skilning
barna á þessum þáttum.
Ég get hins vegar fallist á, að til
greina hefði komið að víkja að
stjórnarfari og stjórnmálastöðu
Póllands þótt þetta hefði ekki
verið gert að aðalviðfangsefni í
námsefninu. Þörf er á slíku efni í
ljósi þeirrar þróunar sem orðið
hefur í Póllandi áð undanförnu, en
hana sáu höfundar ekki fyrir
þegar bókin var skrifuð 1977. Nú á
tímum úreltist námsefnið hratt.
Það fé sem fæst til þessarar
starfsemi hér á landi hrekkur
skammt. Enn eru notaðar bækur
við kennslu hér á landi sem
samdar voru á fyrstu áratugum
þessarar aldar.
I grein sinni gefur Eiður Guðna-
son ýmislegt í skyn án þess að
segja það hreint út. Hann laetur í
veðri vaka að námsefnið Á ferð
um Evrópu: Pólland sé samið í
áróðursskyni — eins og til að
þóknast pólskum valdhöfum. Und-
ir slíkum áburði er erfitt að sitja.
Þetta námsefni er samið með
fullri virðingu fyrir pólsku þjóð-
inni. Það er ekki markmið þess að
innræta pólitísk viðhorf, hvorki
skoðanir pólskra valdhafa né Eiðs
Guðnasonar.
Lokaorð
í grein sinni kallar Eiður
Guðnason það vanrækslusynd sína
að hafa ekki gert mikið af því að
kynna sér námsefni barna sinna
og kveðst munu fylgjast betur með
í framtíðinni og hvetur foreldra og
forráðamenn barna til að gera hið
sama. Undir þá hvatningu vil ég
taka. Á undanförnum árum hafa
samskipti heimila og skóla aukist
verulega. Samstarf og skoðana-
skipti foreldra, kennara og náms-
efnishöfunda eru fjöregg allrar
endurskoðunar og nýmæla í skóla-
starfi. Á þeim grundvelli vill
undirritaður ræða við Eið Guðna-
son og aðra foreldra en ekki á
grundveili getsaka og dylgna.
11. mars 1981,
Ingvar Sigurgeirsson
námsstjóri
Svo einfalt,
svo vandað
og sómir sér hvar sem er.
SELKO fataskápar.
Þú kaupir þá í einingum fyrir hagstætt verð, setur þá
saman sjálfur og getur endalaust breytt eftir þörfum.
Komdu og líttu á SELKO fataskápana, þeir eru vandaðir,
vel hannaðir og heimilisprýði, hvernig sem á þá er litið.
Hringið eða skrifið eftir frekari upplýsingum. _
Ég óska eftir að fá ókeypis myndalista yfir SELKO skápana
Nafn:
Heimili:
Sími:
SELKO
SIGURÐUR
ELÍASSON HF.
AUÐBREKKU 52,
KÓPAVOGI, SÍMI 41380
EFÞAÐERFRÉTT-
NÆMTÞÁERÞAÐÍ
MORGUNBLAÐINU
Al GLYSINGA-
SÍ.MINN ER:
22480
ALLK VERÐA BRÚMR A
23.5
1.6
4.8
25.8
GISTISTAOIR: 18 d 21 d 14 d 21 d 21 d 18d
HÓTEL HAWAII Ibú8ir:2 í íbúð 5.950 5.990 5480 5990 6.290 5 990
1 svefnherbergi 3 i (búð 5.450 5490 5.140 5.490 5.780 5.580
Pr. mann 4 í íbúð 5.250 5.290 4.970 5.290 5.530 5330
DON MIGUEL: Pr. mann Isvefnh. 2 í íbúö 6.600 6.650 5930 6.670 6.950 6.650
3 í íbúö 5950 5.900 5.440 5.950 6.250 5.950
4 í íbúö 5.500 5.500 5.200 5.570 5850 5.700
HÓTEL RÓSAMAR Pr. mann fullt fæði í eins manns herb. 7.450 7.700 6.900 8.150 8.450 7.600
Pr. mann f 2ja manna herb. 6.990 7 180 6.550 7600 7.900 7.200
HÓTEL BRITANNIA: fullt fæði í eins manns herb 6.860 7.000 6 350 7.320 7.500 7.100
Pr. mann í 2ja manna herb. 6.400 6 480 6.000 6.770 6.950 6.700
BARNAAFSLATTUR: í ibúð:
2- 6 ára
7-11 ára
12-15 ára
1.500
1.300
1.100
Staðfestingargjald er kr. 800 á mann
öll verð eru áætluð og miðast við gengi 1. febrúar 1981.
Verð eru háð breytingum á gengi og eldsneytisveröi.
sól, sandur og sjór
FERÐA
H!l MIDSTODIIM
AÐALSTRÆTI9 S.11255-12940