Morgunblaðið - 17.03.1981, Page 19
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 17. MARZ 1981
19
Af bolvískum skákmönnum:
I>að munaði ekki
nema V2 stigi
- rætt við Halldór Grétar Einarsson sem varð annar
á skólaskákmóti Norðurlanda 13 til 14 ára 1980
Bolungavík, 7. marz 1981.
HINN mikli skákáhusi Bolvík-
inna hefur vakið ótviræda at-
hygli ekki sizt ve«na þess að úr
hópi skákmanna hér hafa i
seinni tið komið mjög efnilegir
skákmenn. Einn þessara efni-
legu skákmanna er Halldór
Grétar Einarsson, sem þegar
hefur náð jfóðum árangri i
skáklistinni þó hann sé aðeins
15 ára gamall. Á hverjum laug-
ardegi eru hér skákæfingar
fyrir 14 ára og yngri þar sem
Ilalldór leiðbeinir og miðlar af
þekkingu sinni. Fréttaritari
Mbl. leit inn á eina slíka æfingu
fyrir skömmu og ræddi þá við
Halldór Grétar.
Halldór kvaðst ekki hafa byrj-
að að tefla fyrir alvöru fyrr en í
hitteðfyrra en hefði þó lítillega
komið nálægt því áður t.d. unnið
Bolungavíkurskákmótið í 2.
flokki 1977. Hann sagðist fyrst
hafa byrjað að lesa skákbækué
o.þ.h. fyrir um það bil tveim
árum auk þess sem hann byrjaði
að sækja skákæfingar hjá Ung-
mennafélaginu.
„Eg varð svo drengjameistari
1979 og skólameistari í unglinga-
flokki sama ár,“ sagði Halldór.
— Hvernig gekk þér í helg-
armótum Skáksambandsins á
síðasta ári?
„Sæmilega. Ég tók þátt í
helgarmótinu í Keflavík og hafn-
aði í 10. til 11. sæti en varð
efstur í aldursflokkunum 14 ára
og yngri. Síðan tefldi ég í
Borgarnesi og lenti einhvers-
staðar fyrir miðju en þar tókst
mér að ná jafntefli við Friðrik
Ólafsson. Síðast tefldi ég svo hér
í Bolungavík en þar var árangur
ekki til að tala um.“
— Þú tókst þátt í skákmóti í
Svíþjóð fyrir stuttu?
„Já, það var skólaskákmót
Norðurlanda 13 til 14 ára. Þar
hlaut ég 4lÆ vinning af 6 mögu-
legum — ég var með jafn marga
vinninga og Norðmaðurinn Sim-
en Agdestin en hann var hærri í
stigum og hlaut hann því Norð-
urlandameistaratitilinn. Það
munaði ekki nema hálfu stigi, en
þetta var fróðlegt og skemmti-
legt mót.
— Nú er skólaskákmótið og
svo íslandsmótið framundan hjá
þér í vor — hvaða möguleika
telur þú þig eiga þar?
Af sinni einstöku hæversku
færðist Halldór undan að svara
þessari spurningu en sagðist
eiga sér fjölmarga hættulega
keppinauta m.a. Júlíus Sigur-
jónsson, hér í Bolungavík, sem
gerði jafntefli við Margeir Pét-
ursson á helgarmótinu í Borg-
arnesi í fyrra.
Á meðan við Halldór rædd-
umst við hófu efstu mennirnir í
Bolungavíkurmótinu að tefla úr-
slitaskákina, þeir Daði Guð-
mundsson og Róbert Harðarson.
Róbert varð unglingameistari
íslands 1979.
Gunnar.
Halldór Grétar Einarsson (i miðju) leiðbeinir ungum skák-
mönnum.
/ á
Ungir Boivikingar að tafli
Mismunandi verð simtækja:
Takkasímar dýrastir,
kosta 1400 krónur
VERÐ er mjög mismunandi á
hinum ýmsu gerðum símtækja,
sem simnotendur hér á landi eiga
kost á að fá hjá Pósti og sima.
Dýrastir eru svonefndir takka-
simar, sem hafa takka i stað
skifu. Þeir kosta nú 1.400 krónur
og 50 aura. en „venjulegir“ símar
kosta á bilinu 1395,20 til 660,70
Seldi í
Cuxhaven
SKUTTOGARINN Bjarni Herj-
ólfsson seldi 147,3 tonn í Cux-
haven í gær fyrir 1.032 þúsund
krónur, meðalverð á kíló 7 krónur.
í næstu viku er einn íslenzkur
togari skráður með söludag er-
lendis, þ.e. Már frá Óiafsvík, sem
selur í V-Þýzkalandi.
Leiðrétting
I minningargrein um Sal-
óme Guðmundsdóttir frá Bol-
ungarvík hér í blaðinu á laug-
ardaginn, féll niður fæðingar-
ár hennar. Salóme var fædd
árið 1899.
krónur. Verðmismunur þeirra
siðarnefndu fer einkum eftir þvi
hvort þeir eru frá Siemens-fyrir-
tækinu eða frá L.M. Ericsson. en
hið siðarnefnda. sem er sænskt,
er með mun dýrari tæki en hið
fyrrnefnda, sem er vestur-þýskt.
Takkasímarnir eru eingöngu til
frá L.M. Ericsson.
Viktor Ágústsson hjá Pósti og
síma sagði í samtali við Morgun-
blaðið í gær, að takkasímarnir
væru mun dýrari og flóknari tæki
en hinir hefðbundnu skífusímar.
Ekki væri hins vegar um það að
ræða að takkasímar væru tollaðir
hærra en aðrir símar. Þar sem
tollar og gjöld eru hlutfall af
kaupverði, verða þau gjöld hins
vegar hærri eftir því sem símtæk-
ið er dýrara í innkaupum.
Stofnkostnaður við síma er nú
tæplega tvö þúsund krónur, eða
1.994,10 krónur nákvæmlega, ef
valin er dýrasta gerð símtækis.
Flutningsgjald innan sama gjald-
svæðis er nú 767 krónur og 70
aurar, en sé um að ræða flutning
milli gjaldsvæða, kostar hann 849
krónur. Afnotagjald fyrir síma til
einkaafnota er nú 195 krónur og
60 aurar fyrir ársfjórðung, og 43
aura kostar hvert skref umfram
300 á Reykjavíkursvæðinu, en um-
fram 600 í öðrum landshlutum.
U 1 w „ tskiterið nírna. að rignast