Morgunblaðið - 17.03.1981, Qupperneq 41
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 17. MARZ 1981
21
Ásgeir skoraði
pr jú mörk
- en varö að fara útaf vegna
meidsla sem hann hlaut í leiknum
ÁSGEIR SÍKurvinsson var held-
ur betur í essinu sinu er Stand-
ard Liege gersigraði Berchem
7—1 í belgisku deildarkeppn-
inni i knattspyrnu um helgina.
Ásgeir skoraði þrívegis i leikn-
um og átti frábæran leik.
Standard skaust með sigri sin-
um upp fyrir Lokeren og i
þriðja sæti deildarinnar. Loker-
en átti að mæta Beerschot á
heimavelli sínum. en leiknum
var frestað vcgna rigningar og
völlurinn var eitt forarsvað.
Mbl. ræddi við Ásgeir i gær-
kvöldi og innti hann eftir gangi
leiksins og svo hvernig Evrópu-
leikurinn gegn FC Köín legðist
í leikmenn Standard, en liðin
mætast annað kvöld i Köln.
— Við lékum allvel gegn
Berchem. Og þessi stóri sigur er
ágætt veganesti í leikinn gegn
Köln. En sá leikur verður erfið-
ur. Þjóðverjarnir eru ekkert auð-
veldir á heimavelli. Staðan í
hálfleik gegn Berchem var 1—0.
Eg skoraði markið úr auka-
spyrnu. Tahamata renndi bolt-
anum til mín og ég sendi hann í
netið. í síðari hálfleik gekk
okkur öllu betur og röðuðum á
þá mörkum. Ég skoraði annað
mark mitt úr vítaspyrnu og
síðasta markið skoraði ég með
því að bruna í gegn um vörnina
og skoraði með föstu skoti rétt
utan vítateigsins. Ég varð svo að
fara útaf vegna þess að ég fékk
slæmt spark í utanverðan kálf-
ann. Ég er stokkbólginn, en
vonast til þess að verða orðinn
góður fyrir leikinn á miðviku-
dag. Ég hef verið í meðferð hjá
lækni liðsins. Við leggjum af
stað eftir æfinguna í fyrramálið.
Förum í langferðabíl til Kölnar
en þangað er um þriggja tíma
akstur. Þar verður svo leikið á
miðvikudagskvöld. Leikurinn
leggst vel í leikmenn Standard.
Við erum óheppnir að því leyti
að fyrirliði okkar og landsliðs-
maður, Gerets, er í leikbanni. En
á móti kemur að Cullmann og
Engels eru í leikbanni hjá FC
Köln. Ég sá Köln leika í sjón-
varpinu um helgina og þeir
sýndu ekkert sérstakt. Vonandi
tekst okkur að sigra þá. 1—1
jafntefli myndi nægja okkur,
sagði Ásgeir.
Úrslit leikja í Belgíu um helg-
ina urðu þessi: Anderlecht — Lierse 6-2
Waterschei — RacingWdm 0—2
Waregem — Winterslag 1-1
Ghent — Bruges 2-0
Standard — Berchem 7-1
Beringen — FC Liege 1-1
Lokeren — Beerschot frestað
FC Brugge — Kortryk 2-0
Antwerp — Beveren 2-1
— ÞR.
Ljósm. Wirarinn Kaxnarsson
• Sigurvegarar i opnum flokki karla i íslandsmótinu i Judó sem fram fór um síðustu helgi i
íþróttahúsi Kennaraskóla íslands. Lengst til vinstri er þjálfari Ármanns, þá kemur sigurvegarinn
Bjarni Friðriksson Ármanni, Sigurður Hauksson varð í öðru sæti, þá Kolbeinn Gíslason Ármanni, og
ómar Sigurðsson UMFK.
Bjarni Friðriksson sigraði
JUDÓMAÐURINN snjajli.
Bjarni Ág. Friðriksson, Ár-
manni. varð íslandsmeistari í
PÉTUR Pétursson missti af
mikilli markahátíð félaga sinna
hjá Feyenoord, er Wageningen
sótti liðið heim. Pétur sat í
áhorfendastæðunum ásamt
fimm félögum sinum úr byrjun-
arliði Fcyenoord, allir meiddir,
og horfðu þeir á varaliðið
bursta Wageningen. Pétur
tognaði í lærvöðva á æfingu.
Lokatölurnar urðu 6—0 fyrir
Feyenoord og enn var það
Vestur Þjóðverjinn Jupp Kacz-
or sem sýndi snilldartakta.
Hann skoraði tvívegis og þeir
Karel Bowens, Wim Van Till,
Richard Budding og Pierre
Vermeulen komust einnig á
blað. Úrslit i öðrum leikjum
urðu þessi:
Utrecht — GAE Deventer 1—1
Willem 2. — Roda JC 2—2
Feyenoord — Wageningen 6—0
FC Tvente — Nac Breda 2—2
Maastricht — PSV Eindh. 0—2
Ajax — Excelsior 7—2
opnum flokki á meistaramóti
íslands um helgina. Þeir sem
komust í úrslit úr riðlinum
Nijmegen — Groningen 1—1
Pec Zwolle — Den Haag 4—2
AZ’67 Alkmaar — Sparta 3—2
Alkmaar hélt áfram sigur-
göngu sinni, en að þessu sinni
munaði aðeins hársbreidd að
liðið tapaði stigi. Sparta jafnaði
tvívegis eftir að Pier Tol og Kurt
Welzl höfðu skorað fyrir Alk-
maar, Geert Meyer og Wout
Holverda skoruðu, en það var
ekki fyrr en á síðustu sekúndum
leiksins, að Hugo Hovenkamp
skoraði sigurmarkið.
Ajax sýndi stórkostlegar
framfarir undir stjórn híns nýja
þjálfara, Aad De Mos, og var
vörn Excelsior tætt í sundur
hvað eftir annað. Sören Lerby
(2), Willem Kieft (2), Tchieu La
Ling (2) og Dick Schoenaker
skoruðu mörkin, en Pattinama
og Ridderhof svöruðu fyrir Rott-
erdam-liðið.
Alkmaar hefur nú 43 stig,
Feyenoord 34 stig og Utrecht 31
stig. Síðan er langt í næstu lið.
voru þeir Ómar Sigurðsson úr
Keflavík, Sigurður Hauksson,
Bjarni Friðriksson og Kolbeinn
Gíslason. Bjarni sigraði ómar í
harðri en snarpri viðureign, og
Sigurður og Kolbeinn háðu
hörkuglímu sem var mjög jöfn.
Dómarar dæmdu Sigurði þó
sigur. Ilann meiddist i glím-
unni og treysti sér ekki í
úrslitaglímuna gegn Bjarna.
Bjarni stóð því uppi sem sigur-
vegari. Urslit í öðrum flokkum
urðu þessi:
60 kg flokkur:
Baldur Baldursson Akureyri
Ágúst Egilsson UMF'K
71 kg flokkur:
Hi'lmar Bjarnason Ármanni
Magnús Jónsson Ármanni
73 kg flokkur:
Kristján Valdimársson
Magnús Hauksson
Kvennaflokkar
60 kg flokkur:
Kristín Hassing Ármanni
Inga Karlsdóttir Ármanni
62,5 kg flokkur:
Margrét Þráinsdóttir Ármanni
Guðríður Júlíusdóttir Ármanni
- ÞR.
6 fastamenn í stúkunni
Atli skoraði með þrumufleyg!
Atli Eðvaldsson skoraði glæsi-
legt mark fyrir Borussia Dort-
mund, er liðið sigraði Bayer
Leverkusen 5—3 í þýsku deild-
arkeppninni í knattspyrnu um
helgina. Þrumuskot Átla hafn-
aði efst í markhorninu. glæsi-
mark og tíunda mark Atla á
þessu keppnistimabili þrátt
fyrir að hann hafi misst úr um
tvo mánuði vegna fótbrotsins
rétt fyrir áramótin. Annars var
það Manfred Burgsmuller sem
stal senunni. hann lék á als oddi
og skoraði þrívegis. Atli skor-
aði annað mark liðsins, en á
síðustu mínútunni skoraði Hub-
er fimmta markið. Bruckmann
og Vöge (2) svöruðu fyrir
Leverkusen. Urslit leikja urðu
sem hér segir:
Mönchengl. — 1860 Munchen 3—2
B. Uerdingen — Ilamburger 0—3
Bayern — Stuttgart 1 — 1
B. Dortmund — B. Leverkusen 5—3
F. DUsseldorf — A. Bielefeldt 3—1
Kaiserslautern — NUrnberg 3—1
Frankfurt — Bochum 2—2
Schalke 04 — Karisruhe 1—0
Köln — Duisburg 1—0
Hamburger SV náði þriggja
stiga forystu í deildinni með
sigri sínum gegn Bayer Uerding-
en. Miðherjinn sterki Horst
Hrubesch var óstöðvandi, skor-
aði tvívegis og átti allan heiður-
inn af þriðja markinu sem Ivan
Buljan skoraði. Á sama tíma átti
Bayern í hinu mesta basli með
lið Stuttgart þrátt fyrir að leikið
væri í Múnchen. Paul Breitner
jafnaði fyrir Bayern eftir að
Kurt Allgower hafði náð foryst-
unni. Bæði mörkin voru skoruð í
fyrri hálfleik.
Kaiserslautern vann góðan
sigur gegn Núrnberg, enda skor-
aði liðið strax á 40. sekúndu
leiksins. Var þar á ferðinni
Svíinn Benny Wendt. Geye og
Funk bættú mörkum við, en
Oberacher svaraði fyrir Núrn-
berg. Frankfurt gerði ekki betur
en að ná jafntefli gegn Bochum.
Frankfurt náði tvívegis forystu í
leiknum, Bum Kun Cha og Bruno
Pezzey skoruðu, en Franz Pinck-
all jafnaði tvívegis fyrir Boch-
um.
Rainer Bonhof skoraði sigur-
mark Kölnar gegn Duisburg í
leiðinlegum rigningarleik og í
3—1 sigri Borussia Mönchen-
gladbach gegn 1860 Múnchen,
skoraði Lothar Matthaus tvíveg-
is og Wilfried Hannes þriðja
markið, en Rúmeninn Nastase
svaraði fyrir 1860. Fortuna
Dússeldorf vann öruggan sigur
gegn botnliðinu Armenia Biele-
feldt og er nú komið af mesta
hættusvæðinu. Schmitz, Seel og
Klaus Allofs skoruðu mörk liðs-
ins, en Krobbach svaraði fyrir
Bielefeldt. Loks má geta þess, að
Júrgen Dzoni skoraði sigurmark
Schalke 04 gegn Karlsruhe beint
úr aukaspyrnu skömmu fyrir
leikslok.
Hamburger SV er sem fyrr
segir efst í deildinni, hefur 38
stig að 24 leikjum loknum. Bay-
ern er í öðru sæti með 35 stig,
einnig eftir 24 leiki. Stuttgart og
Frankfurt hafa bæði 29 stig, en
fyrrnefnda liðið hefur leikið 23
leiki, það síðarnefnda 24 leiki.
Borussia Dortmund er í sjöunda
sæti sem stendur með 25 stig.
Munurinn á 3.-7. sætunum er
því ekki mikill og á Dortmund
því enn góða möguleika á því að
hreppa ÚEFA-sæti.