Morgunblaðið - 17.03.1981, Qupperneq 42
22
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 17. MARZ 1981
Stenmark hefur aðeins sjö
stiga forskot á Phil Mahre
PIIIL MAHRE frá Bandaríkjun-
um virðist nú stefna að þvi að
sÍKra í heimsbikarkeppninni á
skíðum í ár. Hann sÍKraði um
síðustu helKÍ í svÍKkeppni í Fur-
ano í Japan en skíðakónKurinn
InKemar Stenmark varð i þriðja
sæti. Stenmark varð líka í þriðja
sæti í stórsvÍKskeppninni sem
fram fór á iauKardag.
Staðan í heimsbikarkeppninni
er nú þessi:
1. InRemar Stenmark, Svíþjóð 260
2. Phil Mahre, USA 253
3. Alexander Zhirov, Sovét. 147
4. Peter Muller, Sviss 140
5. Steve Mahre, USA 137
Úrslitin í sviginu urðu þessi:
1. Phil Mahre, USA 1:36,97
2. Bojan Krizaj, Júgósl. 1:37,21
3. Ingem. Stenmark, Svíþj. 1:37,46
4. Alexander Zhirov, Sovét. 1:37,84
5. Andreas Wenzel, Licht. 1:38,13
6. Steve Mahre, USA 1:38,29
Úrslitin í stórsviginu urðu þessi:
1. Alexander Zhirov, Sovét. 3:00,41
2. Gerhard Jáger, Austurr. 3:01,54
3. Ingem. Stenmark, Svíþj. 3:01,63
4. Joel Gaspoz, Sviss 3:01,94
5. Leonard Stock, Austurr. 3:01,94
Naumur sigur hjá HK
í BYRJUN leiks bórs og HK
fyrir norðan á sunnudaginn í 2.
deild leit ekki út fyrir að Þórsar-
ar yrðu gestunum crfið hindrun.
HK tók leikinn strax i sínar
hendur og var staðan orðin 5:0
þeim í hag eftir 10 mín. beir voru
þ«» heppnir að fara með sigur af
hólmi (25:23) þegar upþ var
staðið. Staðan i hálfleik var 15:11
fyrir IIK.
Þórsarar skoruðu sitt fyrsta
mark á 10. mín. en yfirburðir HK
voru algerir og upp úr miðjum
hálfleiknum var staðan orðin 10:2.
Þórsarar skorðuðu sitt þriðja
mark á 19. mínútu og eftir það
tóku þeir mikinn kipp og söxuðu á
forskot HK. Staðan í leikhléi var
eins og áður sagði 15:11.
í seinni hálfleik var HK mest-
alian tímann 3—5 mörk yfir, en
síðustu 10 mínúturnar ógnuðu
Þórsarar sigrinum þó verulega og
voru óheppnir að ná ekki öðru
stiginu úr þessari viðureign. Mun-
urinn var orðinn 1 mark er 2 mín.
voru eftir, 23:24. Þórsarar fengu
síðan boitann er u.þ.b. 1 mín. var
eftir og höfðu möguleika á að
jafna. Þeir misstu boltann er
örfáar sekúndur voru til leiksloka,
Ragnar Ólafsson brunaði fram og
skoraði 25. markið fyrir HK og
innsigiaði sigurinn.
Mörk Þórs: Árni Stefánsson,
Benedikt Guðmundsson og Sigurð-
ur Sigurðsson skoruðu 4 mörk
hver, Sigurður Pálsson 3 (3v),
Rúnar Steingrímsson 3, Sigtrygg-
ur Guðlaugsson 2 (lv), Árni Gunn-
arsson 2 og Oddur Halldórsson 1.
Mörk HK: Ragnar Óiafsson 11
(6v), Hallvarður Sigurðsson 7,
Hilmar Sigurgíslason 3, Berg-
sveinn Þórarinsson og Kristinn
Ólafsson 2 hvor.
Gunnar Kjartansson og nafni
hans Jóhannsson dæmdu leikinn,
voru ekki sannfærandi.
—sor
Stenmark er nú að missa forystuna i heimsbikarnum.
íslandsmótið í handknattleik:
Staðaní
2. deild
STAÐAN í íslandsmótinu í 2. deild karla er nú
þessi:
Breiðablik 12 8 1 3 252:245 17
KA 11 8 0 3 233:205 16
ÍR 11 5 4 2 244:209 14
HK 12 6 2 4 247:217 14
Afturelding 13 7 0 6 263:268 14
Týr 9 5 0 4 168:162 10
Ármann 13 3 2 8 252:269 8
Þór Ak 13 0 1 12 258:332 1
Skíðagönguskóli Morgunblaðsins
• Það er best að æfa hliðarrennsli í hliðarbrekkum. Hafið gott bil á milli skíðanna. Þið komist best frá hliðarrennsli með því að setja
skíðin í plóg-stöðu.
• Reynið að þversetja skíðin með því að snúa hnjám að brekkunni. Leggið þungann eins og þið mögulega getið á þann fót sem er neðar
í brekkunni.
• Það kemur mjög oft fyrir á skíðum að við verðum að breyta um aðferðir. í keppni er það gert með skautasveiflum.
• Skautasveiflan er þannig framkvæmd að þið látið ykkur renna inn í beygjuna með þyngdina á ytra skíði, lyftið innra skíðinu og
setjið það í hina nýju stefnu, jafnfram því að spyrna vel í.