Morgunblaðið - 17.03.1981, Blaðsíða 48
28 MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 17. MARZ 1981
• Ray Stewart hefur áður tekið álíka mikilvægar vltaspyrnur. Hér skorar hann sigurmark West Ham á siðustu minútunni gegn Aston
Villa i bikarkeppninni i fyrra. West Ham vann siðan Arsenal i úrslitaleiknum.
West Ham jafnaði með síð-
ustu spyrnu úrslitaleiksins
SÍÐUSTU mínúturnar í úrslitaleik deildarbikarsins i Englandi á
lauKarda^inn verða len^i í minnum hafðar. Sem kunnuKt er,
mættust Liverpool, ensku meistararnir, ok West Ham, handhafar
FA-bikarsins, ok var allt bókstafleKa á suðupunkti síðustu
mínúturnar. Útkoman varð jafntefli, 1 — 1, ok verða liðin því að
reyna með sér á nýjan leik ok fer aukaleikurinn fram á Villa Park
i BirminKham 1. apríl næstkomandi. Eftir venjuleKan leiktíma var
staðan 0—0 ok varð því að framlenKja leikinn. Það fór loks að
draKa til tíðinda þc^ar aðeins tvær minútur voru eftir af síðari
hálfleik framlenKÍnKarinnar. Alan Kennedy fékk þá knöttinn i
KÓðu færi ok sendi þrumufleyK upp i þaknetið hjá West Ilam. Allt
bókstafleKa sprakk, ekki sist þar sem sést hafði til linuvarðarins
með flaKKÍð á lofti. í stað þess að skokka til hans ok ræða málin.
da-mdi dómarinn Clive Thomas umsvifalaust mark. Leikmenn
West Ilam gáfust ekki upp og sóttu af örvæntingu siðustu
andartökin. Clemence varði þrumuskot eitt meistaralega, en á
siðustu sekúndum fékk West Ilam hornspyrnu. Terry McDermott
handlék knöttinn og vitaspyrna varð ekki umflúin. Ray Stewart
skoraði örugglega úr vitinu.
Annars er erfitt að meta gæði
þessa leiks. Fréttaskeyti AP og
Reuter-fréttastofan töldu leik-
inn í heild frekar slakan og
aldrei náð þeim toppi sem geta
liðanna bauð upp á. Hins vegar
voru útvarpsþulir BBC með
kempuna Denis Law í broddi
fylkingar. Er óhætt að segja að
þeir hafi varla haldið vatni yfir
gæðum leiksins. Allt var stór-
kostlegt, frábært dásamlegt, un-
aðslegt og fleira í þeim dúr.
Islendingar verða því að dæma
fyrir sig ef þeir fá að berja
leikinn augum í sjónvarpinu á
næstunni.
Leikurinn hófst annars með
tilheyrandi hefðum og leikmenn
voru kynntir fyrir mikilsmetnu
fólki. Við Liverpool skipaði eftir-
taiinn hópur: Ray Clemence,
Alan Kennedy, Phil Neal, Colin
Irwin, Alan Hansen, Ray Kenn-
edy, Graeme Souness, Terry
McDermott, Sammy Lee, Ken
Dalglish og Steve Heighway. Jim
Case var varamaður og hann
kom inn á í byrjun síðari hálf-
leiks og tók þá stöðu Steve gamla
Heighway. Case fór þá í stöðu
tengiliðs, en Sammy Lee var
færður fram í sóknarhlutverk.
Dave Johnson átti að hefja
leikinn, en veiktist á síðustu
stundu og því var kallað á
Heighway. Þá missti fyrirliðinn,
Phil Thompson, af leiknum
vegna meiðsla. Lið West Ham
skipaði þessi hópur: Phil Parkes,
Ray Stewart, Frank Lampard,
Bill Bonds, Alvin Martin, Geoff
Pike, Jim Neighbour, Alan
Devonshire, Trevor Brooking,
Paul Goddard og David Cross.
Varamaður var Stuart Pearson,
sem lék sinn fyrsta leik í marga
mánuði, en kappinn er nýstaðinn
upp úr sinni fimmtu skurðað-
gerð. Enn var það hnéð sem
angraði hann. Person kom inn á
fyrir Goddard í framlenging-
unni.
Fyrri hálfleikur var tíðindalít-
ill, Liverpool virtist hafa nokkra
yfirburði úti á vellinum, tengi-
liðirnir þar fjórir gegn þremur.
„I hvert skipti sem West Ham-
leikmaður nær knettinum er
hann umsvifalaust umkringdur
3—4 rauðum skyrtum. Leikmenn
Liverpool virðast hreinlega vera
mun fleiri inni á vellinum," sagði
Denis Law um gang mála í
hálfleiknum og eftir því sem á
leikinn leið sannfærðist hann
meir og meir ásamt félögum
sínum, að það lið sem myndi
verða fyrri til að skora, stæði
með pálmann í höndunum. Hálf-
leikurinn var leikur hinna sterku
varna. Oft virtist herslumuninn
vanta til þess að skapa tækifæri
við mörkin, en allt kom fyrir
ekki. Markverðirnir gripu inn í,
varnarmenn ráku lappirnar
fyrir og skölluðu frá á víxl.
Ekkert gekk upp við mörkin. Það
var West Ham, sem komst næst
því að skora í fyrri hálfleik, það
var á 44. mínútu, sem Frank
Lampard lét gífurlegt þrumu-
skot ríða af af 25 metra færi. En
knötturinn fór nokkrum senti-
metrum framhjá markstönginni
að utanverðu.
West Ham tók mikinn fjör-
kipp í síðari hálfleik og fyrstu 20
mínútur hálfleiksins var liðið
miklu frískara en Liverpool. Þeir
Brooking og Devonshire sýndu
þá skemmtilega takta og West
Ham átti nokkrar sóknarlotur
sem lofuðu góðu. En þær lofuðu
upp í ermarnar, en síðan meidd-
ist Devonshire. Hann fór reynd-
ar ekki út af, en var tekinn að
þreytast og dala. Náði Liverpool
þá hægt og bítandi betri tökum á
leiknum og um miðjan hálfleik-
inn komst Dalglish skyndilega í
gott færi. Phil Parkes var hins
vegar fljótur að hugsa, kastaði
sér fyrir Dalglish og skotið fór í
fæturna á markverðinum.
Nokkrum mínútum síðar slapp
miðherji West Ham, Goddard,
úr gæslunni, komst á auðan sjó,
en brenndi illa af. „Réttlætinu
var fullnægt, Goddard var
greinilega rangstæður," sagði
Denis Law um atvik þetta. Línu-
vörðurinn lét ekkert í sér heyra
eða til sín sjá og gerði dómarinn
því enga athugasemd. Var leik-
urinn nú nokkuð opinn um hríð,
Bonds var eigi fjarri því að skora
hjá Liverpool og Pike bjargaði
West Ham tvívegis með því að
trufla Souness og McDermott
sem voru í ákjósanlegum færum.
En sóknarþungi Liverpool jókst
jafnt og þétt og undir lokin rak-
hver sóknarbylgjan aðra. En inn
vildi knötturinn ekki og kom því
til framlengingar.
„Nú reynir á hvort liðið er í
betri líkamlegri þjálfun," sögðu
fréttamenn BBC er fyrri hálf-
leikur framlengingarinnar hófst.
Og þar virtist sem Liverpool
hefði töluverðan yfirburðavinn-
ing, því liðið hóf þegar stórsókn
og sýndi sína bestu knattspyrnu
til þessa í leiknum. Að vísu átti
Alan Devonshire skalla að marki
Liverpool á fyrstu mínútu auka-
tímans, en síðan hófst alger
einstefna. Alan Kennedy, sem
átti snilldarleik, lék á tvo varn-
armenn og sendi á Jim Case, sem
skaut þrumuskoti í þverslá. Case
átti síðan annað hörkuskot rétt
yfir og Ray Kennedy spyrnti
hörkuskoti rétt framhjá mark-
inu. West Ham náði skyndisókn-
um endrum og eins og voru þær
hættulegar. Þannig varði Clem-
ence snilldarlega skalla frá Dave
Cross. Það hefði þó ekki gilt ef
hann hefði skorað, því dómarinn
kaus að dæma rangstöðu á
leikmann sem kom gangi leiks-
ins ekkert við.
Síðan gerðist það, er rétt
rúmar tvær mínútur voru til
leiksloka, að Alan Kennedy
þrumaði knettinum í netið hjá
West Ham. Línuvörðurinn gaf
til kynna að eitthvað hafi verið
óhreint í pokahorninu hjá Liv-
erpool varðandi markið, en Clive
dómari Thomas virti hann ekki
viðlits og dæmdi mark. Við það
urðu leikmenn West Ham æfir
og helltu sér yfir dómarann.
„Ölive Thomas gerði þarna
skyssu. Það er ekki verjandi að
tala ekki einu sinni við línuvörð-
inn þegar svona mikið er í húfi.
Astæðan fyrir því að línuvörður-
inn gaf merki, er líklegast sú, að
Sammy Lee var rangstæður er
Kennedy skoraði markið. Það
má deila um hvort rangstaðan
hafi haft áhrif á leikinn, en
maðurinn átti hiklaust að ræða
málin við línuvörð sinn,“ sagði
spekingurinn Denis Law. Leik-
menn West Ham fylltust við
þetta örvæntingu og nokkrum
sekúndum síðar var Jim Neigh-
bour bókaður fyrir glannalegt
spark í mótherja.
Og á síðustu andartökunum
sótti West Ham af krafti, Dev-
onshire var á ferðinni rétt fyrir
utan vítateig Liverpool og var
þar skellt flötum. Leikmenn Liv-
erpool röðuðu sér í umfangs-
mikinn varnarvegg, en hann
reyndist þó ekki nógu þéttur er
til kom og þrumufleygur Ray
Stewart þaut eins og byssukúla í
gegn og stefndi knötturinn efst í
markhornið, en Ray Clemence
stökk eins og köttur og bjargaði
snilldarlega í horn. Mikill darr-
aðardans upphófst í vítateig
Liverpool í kjölfar hornspyrn-
unnar, knötturinn hrökk í
þverslána, síðan út í teig, aftur
inn að markinu og þar slæmdi
Terry McDermott hendinni til
hans með þeim afleiðingum, að
West Ham fékk víti. Og leiktím-
inn var þrotinn, varla tími til að
framkvæma spyrnuna. Skotinn
skotharði, Ray Stewart, fékk það
erfiða hlutverk að reyna að jafna
og það gerði hann af miklu
öryggi, þrumuskot hans var ger-
samlega óverjandi. „Það var í
raun og veru mjög gott að svona
skyldi fara, því þetta var einn af
þessum leikjum þar sem hvorugt
liðið á skilið að tapa. Þetta var
stórkostlegur endir á stórkost-
legum leik,“ sögðu fréttaþulir
BBC allir sem einn og verðum
við að taka það gott og gilt,
a.m.k. þangað til annað kemur í
Ijós ...
Knatt-
spyrnu-
úrslit
England, 3. deild:
Blackpool — Plymouth 1—0
Brentford — Carlisle 1—1
Fulham — Gillingh. 3—2
Hull — Chesterfield 0—0
Portsmouth — Newport 0—0
Sheffield Utd. — Charlton3—2
Swindon — Millwall 0—0
Walsall — Oxford 0—3
England, 4. deild:
Bournem. — Darlington 3—3
Bradford — Mansfield 0—2
Hartlepool — Wimbledon 2—3
Rochdale — Aldershot 0—2
York — Lincoln 1—0
Skotiand, úrvalsdeild:
Celtic — St. Mirren 7—0
Hearts — Rangers 2—1
Kilmarnock — Aberdeen 1—0
Morton — Airdrie 0—1
Partick Th. — Dundee Utd. 0—2
Celtic hefur nú fjögurra
stiga forystu á Aberdeen og 8
stiga forystu á Rangers, sem
eru í þriðja sætinu. Er staða
liðsins því geysilega sterk um
þessar mundir. Celtic hefur 42
stig, Aberdeen 38 stig og
Rangers 34 stig.
Ítalía:
Ascoli — Pistoise 0—0
Bolognia — Udinese 1—0
Como — Avellino 2—0
Fiorentina — Brescia 1—0
Napólí — Cagliari 2—0
Perugia — Catanzarro 0—0
Roma — Inter 1—0
Torino — Juventus 0—2
Juventus og Roma hafa nú
bæði hlotið 29 stig og deila þau
efsta sætinu. Napólí hefur 28
stig. Meistarar síðasta árs,
Inter, hafa dalað nokkuð að
undanförnu og liðið er nú í
fjórða sætinu með 24 stig.
Spánn:
Salamanca — Barcelona 2—1
Zaragoza — Hercules 1—1
Real Madrid — R. Betis 4—2
Valladolid — R. Sociedad 0—0
Almeria — Las Palmas 0—1
Atl. Bilbao — Osasuna 1—1
Sevilla — Valencia 1—0
Murcia — Gijon 2—1
Espanol — Ati. Madrid 2—0
Þrátt fyrir ósigur um helg-
ina, hefur Atletico Madrid
fjögurra stiga forystu, 39 stig,
Barcelona hefur 35 stig í öðru
sæti og hefur ekki unnið leik
síðan miðherja liðsins, Quini,
var rænt fyrir rúmum hálfum
mánuði. Ekkert hefur til hans
spurst og enginn veit neitt. í
þriðja sætinu er síðan Real
Sociedad með 34 stig.
Víkingur
í bikarslag
gegn KA
BOÐIÐ verður upp á hand-
knattleik á hinum ýmsu
vÍKstöðvum í kvöld. Á Akur-
eyri mætast kiukkan 20.00
lið KA og Víkings og er
leikurinn liður í hikar-
keppni HSÍ. I Laugardals-
höllinni leika lið Ármanns
ok UMFA. Hefst sá leikur
klukkan 20.00 ok er deildar-
leikur. Þá hefur Mbl. fregn-
að að Týr og UBK eigi að
leiða saman hcsta sína i
stórmikilvægum leik i topp-
baráttu 2. deildar í Vcst-
mannaeyjum. Þvi miður
tókst þó ekki að fá það
staðfest.