Morgunblaðið - 17.03.1981, Qupperneq 25
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 17. MARZ 1981
33
Halldór Blöndal alþingismaður:
Heildarskattbyrði beinna
skatta stefnir í 14,1%
- var 11% af brúttótekjum til skatts 1977
MORGUNBLAÐIÐ leitaði álits
Halldórs Blöndal. alþing-
ismanns. og Kjartans Jóhanns-
sonar, formanns Alþýðuflokks-
ins, á því samkomulagi fjármál-
aráðherra og Alþýðusambands
Íslands um skattamál, sem Mbl.
hefur skýrt frá. Kjartan Jó-
hannsson kvaðst ekki vilja ræða
þetta mál á þessu stigi, en svar
Halldórs Blöndal fer hér á eftir:
„Lausafregnir af svokölluðum
skattalækkunum ríkisstjórnarinn-
ar bera það með sér að það stóð
aldrei til að lækka skattana nema
MIÐVIKUDAGINN 18. mars
verður síðasta tækifærið til
þess að sjá uppsetningu t>jóð-
leikhússins á DAGS IIRÍÐAR
SPORUM eftir Valgarð Egils-
son, en leikritið var frumsýnt
á Litla sviðinu í bjóðleik-
húskjallaranum snemma í
nóvember sl. Sýningin var
síðar flutt á stóra sviðið
vegna mikillar aðsóknar.
Með hlutverk í leiknum fara
Herdís Þorvaldsdóttir, Rúrik
á pappírnum. Þetta er allt saman
sjónarspil, sem auðvelt er þó að
sjá í gegnum, ef menn hafa í huga,
að markvisst er unnið að því að
auka ríkisumsvifin, sem að sjálf-
sögðu útheimtir meira fé á sama
tíma og þjóðartekjur á mann hafa
verið að minnka nú þriðja árið í
röð.
Ríkisstjórnin gumar af því að
vilja lækka beinu skattana. Ég hef
fyrir framan mig samanburð á
öllum beinum sköttum í hlutfalli
við heildarbrúttótekjur til skatts.
1977 var síðasta heila árið, sem
Haraldsson, Þórir Stein-
grímsson, Flosi Ólafsson, Guð-
björg Þorbjarnardóttir, Árni
Blandon, Helgi Skúlason,
Helga Bachmann, Sigurður
Sigurjónsson, Leifur Hauks-
son, Benedikt Árnason, Er-
lingur Gíslason, Benedikt
Árnason, Guðjón Ingi Sigurðs-
son og Júlíus Brjánsson.
Leikmyndin í DAGS HRÍÐ-
AR SPORUM er eftir Sigurjón
Jóhannsson og Ingvar
Björnsson sér um lýsinguna.
Geir Hallgrímsson var forsætis-
ráðherra. Þá var hlutfallstalan
um það bil 11. Strax á næsta ári,
eftir að skattaaukar vinstri
stjórnarinnar bættust við, var
talan komin upp í 12,7. Hún fór
upp í 13,8 1979, upp í 14,5 til 14,6 á
síðasta ári og nú skilst mér að til
standi að skila 0,4% eða svo
þannig að heildarskattbyrði
beinna skatta verði 14,1% á þessu
ári. Og eru þó ekki öll kurl komin
til grafar. Það er ekki að furða þó
sumir af forystumönnum verka-
lýðshreyfirigarinnar séu stoltir af
ríkisstjórninni sinni. Borið saman
við orð þeirra nú skil ég satt að
segja ekki af hverju þeir voru að
biðja um launahækkanir á sl. ári!
Er ekki launþegum fyrir beztu að
kaupið sé skert sem allra mest —
eða hvað?
í þessu sambandi er nauðsyn-
legt að það komi fram, að til þess
að skattgjaldsvísitalan sé í réttum
takti við launahækkanir á sl. ári
verður hún að vera um 153, en
ríkisstjórnin er núna sögð vilja
fara með hana upp í 151 fyrir
suma. Þetta munar kannski ekki
miklu, en dálagleg smjörklina
samt. Aðrir verða að sætta sig við
skattgjaldsvisitölu 145. Og eignar-
skatturinn hækkar á fjárlögum úr
2,7 milljörðum króna í 6,7 millj-
arða.
Ég vil að lokum leggja áherzlu
á, að vitaskuld er það heildar-
skattbyrðin, sem skiptir máli. Og
ráðstöfunartekjur heimilanna. Við
vitum hvernig vaxtapólitíkin hef-
ur leikið það unga fólk, sem er að
brjótast í því að eignast þak yfir
höfuðið og þær vandræðalegu til-
lögur, sem fyrir liggja um að
greiða fyrir því, rísa ekki undir
nafni. Jafnvel þó nægilegt fé væri
til ráðstöfunar, væri hér einungis
um frestun að ræða en ekki Iausn.
Svokallaðar skattalækkunartillög-
ur ríkisstjórnarinnar leysa þess
vegna engan vanda — þær eru
sýndarmennska á lágu plani.
Annars minna viðskipti forystu
ASI og ríkisstjórnarinnar mig á
prútt. Ríkisstjórnin byrjar á því
að hóta skattahækkunum og
bregður sér í gervi gyðingsins í
skriflabúðinni. ASI-forystan fær
hana til að slá örlítið af — og þá
eiga allir að vera ánægðir. En eftir
sem áður eru skattarnir hærri en
þegar ríkisstjórnin settist að völd-
um. Boðuð skattalög ríkisstjórnar-
innar eru því lög um hækkun
skatta en ekki lækkun ofan á
kaupmáttarskerðinguna, sem
menn eru að reyna að sætta sig
við.“
Norskir kennaranemar í heimsókn
Hér á landi er nú staddur 120 manna hópur kennaranema írá
Noregi, og var þessi mynd tekin af nokkrum í hópnum í
Kennaraháskólanum í gær. Norðmennirnir munu ferðast um,
heimsækja skóla og kynna sér ýmislegt í islensku mennta- og
skólakerfi.
I.josm.: Ragnar Axeltwon.
Síðasta sýning á
Dags hríðar sporum
Jóhann Hjartarson sigraði
á „reyklausa“ skákmótinu
íslandsmeistarinn. Jóhann
Iljartarson, sigraði nokkuð ör-
ugglega á „reyklausa skákmót-
inu“ á þriðjudagskvöldið. Hann
tapaði ekki skák á mótinu og
fékk 10 vinninga af 11 möguleg-
um.
í 2.-4. sæti urðu Elvar Guð-
mundsson, Helgi Ólafsson og Jón
L. Árnason með 9 vinninga.
Tefldar voru 11 umferðir eftir
Monrad-kerfinu.
Að mótinu stóðu reykinga-
varnanefnd og fleiri aðilar, sem
berjast gegn reykingum. Kepp-
endur voru 112 talsins og þótti
mótið takast með ágætum. Á
myndinni má sjá sigurvegarann,
Jóhann Hjartarson, fyrir miðri
mynd í einni skáka sinna.
Listamennirnir Helga Ingólfsdóttir semballeikari og
Manuela Wiesler flautuleikari héldu tónleika í Útskála-
kirkju í Garði sl. sunnudag á vegum Tónlistarfélags
Gerðahrepps. Um 60 manns sóttu tónleikana og var
gerður góður rómur að leik þeirra.
Ljósm. Arnór.
smáauglýsingar — smáauglýsingar — smáauglýsingar — smáauglýsingar
Kvennadeild Rauða
kross íslands
Konur athugið
Okkur vantar sjálfboöaliöa tll
starfa fyrlr delldlna. Uppl. f
símum 34703, 37951 og 14909.
Hilmar Foss
lögg. skjalaþýö. og dóml. Hafn-
arstrætl 11 — 14824. Freyju-
götu 37 — 12105.
Löggiltur skjalaþýðandi
danska.
Bodll Sahn, Lækjargötu 10. sími
10245.
IOOF = Rb. 4 1303178'/4 — 9 II.
IOOFEOB 1P = 1623178VÍ
□ Edda 59813177 — 1.
Krossínn
Biblíulestur í kvöld kl. 20.30 aö
Auöbrekku 34, Kópavogi. Gunn-
ar Þorsteinsson talar. Rætt
veröur um Ljóöaljóöln. Allir
hjartanlega velkomnir.
KFUK
Amtmannsstíg 2B
Aöaldeildarfundur í kvöld kl.
20.30. Söng- og vltnisburöar-
stund. Fjölbreytt efni. Kafflsopi.
Allar konur velkomnar.
Nefndin.
Aðalfundur KFUK
og sumarstarfsins
veröur haldinn þriöjudaginn 24.
marz kl. 20.00.
Stjórnin.
Fíladelfía
Almennur Blblfulestur kl. 20.30.
Ræöumaöur: Einar J. Gíslason
Guöfræöideild Háskólans kemur
(heimsókn.
Stórsvigsmót Ármanns
Punktamót
Stórsvigsmót Ármanns í ungl-
ingaflokkum sem frestaö var 1.
marz fer fram sunnudaginn 22.
marz í Bláfjc m. Keppni hefst
kl. 12.
Þátttökutilkynningar berist til
Jóhönnu Guöbjörnsdóttir fyrlr
fimmtudagskvöld, sími 82504.
Mótstjórn.
FERÐAFÉLAG
ÍSLANDS
ÖLDUGÖTU 3
SlMAR 11798 og 19533.
Myndakvöld
Feröatélag íslands heldur
myndakvöld aö Hótel Heklu.
Rauöarárstíg 18, miövikudaginn
18. marz, kl. 20.30 stundvíslega.
1. Sýndar myndir úr gönguferö j
frá Ofeigsfiröi í Hraundal og frá
Hornströndum (Ingólfsfjörö.
Nokkrir feröafélagar, sem tóku
myndir á þessum slóöum sýna.
2. Jón Gunnarsson sýnlr myndir
frá ýmsum stööum.
Allir velkomnir meöan húsrúm
leyflr. Veitingar í hléi.
Feröafélag íslands.
Árshátíð Fram
verður haldlnn í Félagsheimili
Rafveitunnar v/Elliöaár, laugar-
daginn 21. marz 1981 kl. 19.30.
Miöasala í Sportvöruverzlun Ing-
ólfs Óskarssonar, og Lúllabúö.
Handknattleiksdeild.
Sálarrannsóknarfélag
íslands
Jerry Steinberg frá Kanada
heldur kvöldnámskeiö miöviku-
daglnn og föstudaginn 19. og
23. þ.m. í draumráöningum,
draumtækni og sjálfskönnun.
Uppl. í síma 18130 frá kl.
13—17.
Stjórnin.
Fimir fætur
Dansæfing í Hreyfilshúsinu
sunnud 22. marz ’81 kl. 21.00.