Morgunblaðið - 17.03.1981, Page 29
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 17. MARZ 1981
37
Halldór Sigurjónsson
flugvirki - Minning
Fæddur 4. desember 1917.
Dáinn 6. mars 1981.
Ég kom heim úr flugi frá
Luxemburg síðla dags föstudaginn
6. mars sl. Er ég steig á land í
Keflavík, var sagt við mig af
fyrsta manni er ég hitti: „Veistu,
að hann Dóri dó í morgun?"
Nei, ég hafði ekki vitað það, en
nú blasti við mér sá ískaldi
veruleiki, að gamli vinur minn,
Dóri, væri dáinn.
Lengi hafði ég vitað, að hann
barðist hetjulega við langvarandi
veikindi, en einhvern veginn bjóst
ég við, að hann hefði af þennan
mikla uppskurð, eins og alla hina.
En enginn er ódauðlegur, og nú
var komið að honum.
Þetta, að maðurinn, sem hitti
mig fyrst að máli er ég steig á
íslenska grund, taldi þessa fregn
mikilvægasta til frásagnar á þess-
um tíma, sannar það, að Halldór
Sigurjónsson var persóna er menn
vissu vel af innan Flugleiða og
fylgdust með. Og það fór ekki milli
mála, við hvaða Dóra var átt.
Og ekki að furða. Allt hans líf
hafði verið í tengslum við flugið,
— lengstan tíma hjá Loftleiðum,
og svo auðvitað síðustu árin hjá
Flugleiðum.
Þegar svona fregnir berast, að
góður vinur og velgjörðarmaður sé
látinn, þá berast hugsanirnar
ósjálfrátt til góðu áranna, hinna
fyrstu kynna, og svo alla daga til
síðasta viðskilnaðar.
Fyrstu kynni mín af Halldóri
Sigurjónssyni áttu sér stað í
júnímánuði 1945, er ég fékk starf
hjá Loftleiðum sem aðstoðarmað-
ur í flugskýli þeirra, þá í Vatna-
görðum.
Halldór var þá eini útlærði
flugvirkinn hjá Loftleiðum og þar
af leiðandi sjtórnandi tæknilegra
framkvæmda í skýli.
Tók hann mér vel, setti mig í
verk, og var svo þotinn til ein-
hverra annarra framkvæmda, því
að í mörg horn var að líta hjá
honum, þá sem endranær.
Þarna unnu hjá honum nokkrir
aðrir „aðstoðarmenn", allt harð-
duglegir og áhugasamir ungir
menn, en stjórnandinn var Dóri.
Ég varð fljótt var við það, að
allir kölluðu hann Dóra, og það
meira að segja Dóra „speed".
Er ég fór að grennslast eftir því
hvaðan þetta „speed“-nafn kæmi,
var mér tjáð, að honum hefði verið
gefið það „í gamla daga“ hjá
Svifflugfélaginu þar sem hann var
orðaður við mikinn hraða í öllum
sínum gerðum.
Sá ég fljótt, að þetta var orð að
sönnu, maðurinn var alltaf á
spani, allt í öllu og alls staðar.
Erfitt var oft að eiga við
vélarnar í Vatnagörðum, mikið
sjóvolk og kalsavinna. En menn
voru þar ósérhlífnir og allt gekk
vel undir stjórn Dóra.
Fljótt kom að því, að Dóri hafði
þau áhrif á mig, að ég fór að hugsa
til náms í flugvirkjun. Stappaði
hann í mig stálinu, lánaði mér
bækur og smitaði mig af áhuga.
Varð úr, fyrir hans áeggjan, að
ég lagði í langferð til „Spartan"-
skólans í Bandaríkjunum til flug-
virkjanáms, sama skóla og Dóri
hafði lært á. Var það árið 1946.
Ég var ekki eini maðurinn, sem
Dóri hvatti og studdi í þessa átt,
— þeir urðu margir.
Þá, sem ekki treystu sér eða
höfðu ekki tækifæri til þess, að
fara utan til náms, tók hann
sjálfur að sér til kennslu. Urðu
þeir ófáir ungir, áhugasamir
menn, er Dóri tók upp á sína
arma, kenndi þeim bóklega og
verklega flugvirkjun, og fékk þá
viðurkennda fullgilda flugvirkja.
Þetta verk vann hann oft að
mestu í frístundum sínum, sem þá
voru fáar, og algerlega endur-
gjaldslaust. Veit ég, að þeir sem
eiga Dóra að þakka flugvirkjatitil
sinn frá þeim tíma, kunna honum
dýpstu þakkir fyrir.
Ékki var hægt að fá þolinmóð-
ari og þrautseigari kennara en
hann í þessum efnum. Setti hann
þarna grundvöll að menntun
flugvirkja hér heima fyrir þar eð
hingað til hafði aðeins verið hægt
að sækja menntun í þessum efnum
til útlanda. Seinna meir, eins og
flestir vita, var flugvirkjun gerð
að iðn hér á landi og kennd sem
slík, þó enn fari menn utan til þess
náms.
Arin líða, og Dóri er útnefndur
yfirflugvirki Loftleiða, sem hann í
rauninni var alltaf frá upphafi.
Umsvifin hjá Loftleiðum urðu
meiri og meiri, og starf yfirflug-
virkja því umsvifameira um leið.
Vélum fjöigar, þær verða
stærri, millilandaflug hefst. Dóri
verður annar tveggja fyrstu flug-
vélstjóra á Skymaster-vél Loft-
leiða.
Því starfi gegnir hann ekki lengi
— það samræmist ekki yfirflug-
virkjastöðu hans svo og kennslu-
störfum.
Nú voru það ekki lengur ein-
göngu flugvirkjar, er nutu kennslu
hans, heldur allur fjöldi áhafna, er
fjölgaði með ári hverju.
Flugmenn, flugvélstjórar, flug-
virkjar og flugfreyjur sóttu öll
námskeið hjá Dóra í tækni- og
öryggismálum allt til ársins 1972.
En nokkrum árum fyrir þann
tíma fór heilsu Dóra mjög að
hnigna. Fór nú máski að segja til
sín sá tími er hann lagði nótt við
dag í köldum flugskýlum, eða
undir beru lofti við að lagfæra
það, er aflaga fór í vélum Loft-
leiða.
Eldmóður hans í því starfi
hleypti þá líka kjark í okkur hina
flugvirkjana, undirmenn hans —
svo við vöktum líka í kulda og
trekk við mótorskipti og annað, er
gera þurfti við, en enginn hafði við
Dóra í uthaldi og snerpu, þó yngri
væri.
Já, eftir þessi erfiðu ár fór
heilsan að bila hjá honum, svo
hann varð að draga sig meira og
meira í hlé í flugvirkjastarfinu.
Kom að því, að hann lét af starfi
yfirflugvirkja Loftleiða.
En það var ekki til þess að
leggja árar í bát. Nei. — Þótt
heilsan gæfi sig, þá var eldmóður
andans og starfsviljinn enn fyrir
hendi.
Tók hann nú við deild þeirri hjá
Loftleiðum, síðar Flugleiðum, er
sá um allar flughandbækur félags-
ins, svo og prentsmiðju þess.
Minning:
Fæddur 9. maí 1917.
Dáinn 8. september 1980.
Fráfalls vinar míns Páls Leví
óðalsbónda að Heggstöðum, Ytri-
Torfustaðahreppi, V.-Hún. hef ég
því miður ekki haft tækifæri til að
minnast fyrr en nú fáeinum fá-
tæklegum línum.
Ævistarf Páls Leví var allt
helgað landbúnaði, hann var virt-
ur bændahöfðingi og forystumað-
ur í sveit sinni. Páll var einn hinn
þýðingarmesti maður sinnar sam-
tíðar í íslenzkri bændastétt. Per-
sónuleiki hans var slíkur, sterkur
og sérkennilegur. Páll var gleð-
skaparmaður mikill og hrókur alls
fagnaðar i félagsskap, sem honum
líkaði, ekki var hægt að hugsa sér
skemmtilegri félaga og nágranna,
þjóðlegur og gerði sér engan
mannamun. Margir leituðu til
hans um eitt og annað. Páll Leví
var hinn prúðasti, reglusamasti,
hreinskilnasti maður sem ég hef
þekkt.
Undirritaður flutti að Söndum
1960, tókst þá fljótt með okkur
vinátta og samgangur, enginn
hefir verið mér meiri stoð og
velgerðarmaður, mér ekki vanda-
bundinn, en einmitt Páll Leví.
Veitti hann deild þessari forstöðu
til dauðadags.
Árið 1968 var hann skipaður í
Rannsóknanefnd flugslysa og
gegndi því starfi æ síðan. Oft voru
rannsóknir slysanna gerðar við
erfiðar aðstæður, en aldrei hlífði
Dóri sér, hvernig sem heilsunni
leið. Hugurinn bar hann hálfa
leið, sem ætíð.
Þetta er máski í stórum drátt-
um starfssaga Halldórs Sigur-
jónssonar, en alls ekki sagan öll.
Utan þess sem hér hefur verið
nefnt, átti hann aðrar hliðar, sem
ekki síður verður að minnast á.
Hann var listfengur mjög, svo
maður segi ekki listamaður. Allt
lék í höndum hans, teikniblýantur,
pensill eða smáverkfæri við mód-
elsmíðar eða kastflugugerð.
Hann hannaði í upphafi merki
Loftleiða og útfærði hin ýmsu
afbrigði þess er notuð voru við
einkennisfatnað félagsins — húfu-
merki, barmmerki o.fl.
Ytri málning véla Loftleiða
(Trimm) var eftir hans fyrirsögn,
svo og margt fleira er smekkvísi
þurfti til að útfæra.
Stóran hlut átti hann einnig í að
hanna merki Air Bahama til
notkunar á einkennisbúningi þess
félags.
Þegar árin liðu, og Dóra gafst
meira tækifæri til frístundaiðk-
ana, þá var af nógu af taka, því
áhugamálin voru mörg.
Hann smíðaði fjöldann allan af
Hörð lífsbarátta bóndans
kenndi Páli að meta þarflega
hluti. Hann hafði rótgróna fyrir-
litningu á iðjuleysi, leti og laus-
ung, en bar virðingu fyrir hvers
konar þarflegu starfi.
Páll Leví var bjartsýnn, því að
hann trúði, að hin sanna, fagra og
góða mundi sigra. Strangheiðar-
legur var hann, vildi gera öllum
rétt, hreinn og beinn, réttsýnn og
gæddur jafnvægi í dómum. Um-
burðarlyndur.
Dauðinn er ekki refsing fyrir
synd, heldur lögmál er allir verða
að lúta. Engill dauðans leiðir
látna vininn inn um hlið á vegg,
sem byrgir yfirleitt jarðneskri
líkamssjón sýn yfir til annarrar
tilveru, til heimkynna þeirra sem
horfnir eru venjulegum augum
jarðneskum sýnum.
Sjálfs mín vegna hefði ég kosið
að hafa Pál Leví lengur á þessu
jarðneska tilverustigi, svo var
hann tryggur vinur og góður
nágranni.
Éitt er áreiðanlegt að hugur
framliðinna vina dvelst hjá okkur,
hugsanir þeirra streyma til okkar,
hugsanir yfirfullar af ástúð og
innileika og vermdar gömlum
stórum flugmódelum, fjarstýrð-
um. Þóttu módel hans með af-
brigðum góð og fullkomin. Sótti
margur áhugamaðurinn tilsögn til
hans í þeim efnum.
Kastflugum gerði hann mikið af
að framleiða, aðallega fyrir vini
sína. Þóttu þær með afbrigðum
vandaðar, um það getur margur
laxveiðimaðurinn borið.
Hann stoppaði upp fugla. Tók
námskeið í því og varð sér úti um
amerísk réttindi í þeirri grein,
aðeins sem tómstundagamni.
Ljósmyndari var hann góður og
eru ljósmyndir hans frá fyrri tíma
bestu heimildarmyndir frá tímum
Loftleiða.
Þegar á allt er litið má sjá, að
hugur Halldórs Sigurjónssonar
beindist alla tíð að fluginu í
hinum ýmsu myndum, hvort held-
ur var í aðalstarfi eða frístunda-
starfi.
Hann lagði stóran skerf til
flugmála Islands, og það á mörg-
um sviðum. Veit ég, að allir þeir
sem hér þekkja til, eru mér
sammála.
Vil ég svo að endingu kveðja
góðan vin, velgjörðarmann og fé-
laga, með kærri þökk fyrir allt.
Votta ég konu hans, Halldóru
Elíasdóttur, svo og börnum þeirra,
Kristni og Önnu, mína dýpstu
samúð við fráfall góðs eiginmanns
og föður. Svo og öðrum vanda-
mönnum og vinum með missi góðs
drengs. Baldur Bjarnasen
minninum frá samverustundun-
um.
Það er staðreynd og alveg örugg
vitneskja að ósýnilegir vinir frá
öðru tilverustigi geta nálgast
okkur og að samband við þá er
mögulegt.
Minningin um vin minn mun
ávallt standa mér fyrir hugskots-
sjónum sem bezta dæmi um sann-
an íslenzkan bændahöfðingja, sem
unni búi sínu, landi sínu og þjóð.
Páll Leví var jarðsunginn 17.
september sl. frá Melstaðarkirkju
í Miðfirði, að viðstöddu miklu
fjölmenni.
Ég votta eiginkonu, sonunum
tveimur og öðrum ástvinum
dýpstu samúð, og biö þeim allrar
blessunar.
Guð blessi minningu Páls á
Heggstöðum.
Sigfús Jónsson,
Söndum. Miðfirði.
Pdll Leví
óðalsbóndi
Orlofstöflurnar
einföld og ódýr lausn
Þaö er oft snúiö aö sklpuleggja orlofstima starfsf ólksins og et.v. erfltt aö gera öllum til
hæfis.
Orlofstöflurnar eru elnföld og þægileg lausn, jafnt fyrir stjórnendur sem starfsfólk.
Taflan auöveldar ekkl elnungis skipulagnlngu og samræmingu orlofstimabllanna,
heldur gefur hún öllum starfsmönnum möguleika á aöráöa ortofstima sinum án þess
aö rekast á vlö hagsmuni annarra.
Orlotstaflan nær yfir timablllö mai til
april og slnnir þvi jatnt sumar- sem
vetrarfrium. Alllr Islensklr frfdagar eru
merktir sérstaklega.
GÍSLI J. JOHNSSEN HF.
Srmójuvegi 8 - Sfmi 73111