Morgunblaðið - 12.05.1981, Síða 21
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 12. MAÍ 1981
21
Gjaldeyrisvið-
skipti í lágmarki
BASTILLUNÓTT — Þúsundir manna sungu og dönsuðu á Bastillutorgi í hjarta Parísar í fyrrinótt cftir
sigur Mitterands. Á borðanum stendur: „Burt með Giscard, Sameining.“
Tekst Mitterand enn
að friða kommúnista?
París, 11. mai. AP.
ÝMSIR telja. að Francois Mitter-
and eigi sigur sinn í forsetakosn-
ingunum að þakka kommúnist-
um — eða öllu heldur því hversu
vcl honum hefur tekizt að fá
kommúnista til liðs við sig í
kosningabaráttunni. En nú er
komið að skuldadögunum og ckki
þarf að fara í grafgötur um það.
að kommúnistar vilja hafa nokk-
uð fyrir snúð sinn. George
Marchais, leiðtogi kommúnista,
sem fór svo eftirminnilega hall-
oka í fyrri lotu forsetakosn-
— ásamt kommúnistum — tögl og
hagldir á löggjafarsamkundunni.
Kosningarnar fara að líkindum
fram í lok júní, en jafnvel þótt
Mitterand takist að sannfæra
Marchais um nauðsyn þess að
kommúnistar og jafnaðarmenn
vinni saman, er engan veginn víst,
að flokkar þeirra nái slíkum
árangri í þingkosningum að mögu-
leikar verði á slíku samstarfi.
Þótt stefna kommúnista og
jafnaðarmanna fari saman í sum-
um atriðum er grundvallarágrein-
ingur um mikilvæg mál og ekki er
ástæða til að ætla að betur gangi
að jafna þann ágreining á næstu
vikum en verið hefur. Þessi
ágreiningur er fyrst og fremst á
sviði utanríkis- og öryggismála, en
annað ljón í veginum er stefnan í
efnahags- og atvinnumálum, þar
sem kommúnistar vilja ganga
mjög langt í þjóðnýtingarmálum.
París. 11. maí. AP.
Gjaldeyrisviðskipti á
ííjaldeyrismarkaði í París
voru í látcmarki á mánu-
daRsmorjrun. og er fjár-
málaheimurinn í hálf-
Kerðri hiðstöðu fyrst um
sinn. að sögn heimilda.
Orðrómur um að stjórn Ray-
mond Barres mundi grípa til
róttækra aðgerða til þess að
vernda frankann ef á hann þætti
halla, var komið á kreik fyrir
kosningar. Gengi frankans hefur
verið tiltölulega stöðugt í stjórn-
artíð Barres.
Seðlabankinn franski breytti
ekki gengisskráningu sinni frá
því fyrir helgi.
Hins vegar hækkaði Banda-
ríkjadollar örlítið gagnvart
frankanum á gjaldeyrismörkuð-
um í Evrópu, og hefur dollarinn
ekki verið hærri gagnvart frank-
anum i tæpan áratug. Einnig
hækkaði verð á gulli.
Franska tollgæzlan skipaði
starfsmönnum sínum í dag að
vera sérstaklega á verði gagnvart
hugsanlegum seðlaflutningi úr
landi í kjölfar forsetakosn-
inganna. Einkum var landa-
mæravörðum í Strasbourg við
landamæri V-Þýzkaiands skipað
að leita vel í stórum bílum frá
fjarlægum héruðum.
Stjórnartíð Valéry Giscard d’Estaing:
George Marchais
inganna, hefur hvað eftir annað
lýst því yfir, að hann muni ekki
styðja neina þá jafnaðarmanna-
stjórn, sem kommúnistar fái ekki
ráðherraembætti í.
I kosningabaráttunni vildi Mitt-
erand ekki gefa ákveðnar yfirlýs-
ingar um hugsanlega aðild komm-
únista að ríkisstjórn, næði hann
kjöri. Hann fullyrti aðeins, að
hann yrði aldrei fangi kommún-
ista, um leið og hann kvaðst
mundu skipa stjórn sína mönnum
sem styddu hann í forsetakosning-
unum.
Til þess að stjórna landinu og
hrinda í framkvæmd þeim umbót-
um, sem hann hefur boðað, þarf
Mitterand að tryggja sér meiri-
hlutastuðning á þingi. Eins og
þingið er nú skipað, hafa gaullist-
ar, með Chirac í broddi fylkingar,
og Lýðræðissamband Giscards 90
sæta meirihluta, en búizt er við
því, að innan skamms rjúfi Mitt-
erand þing og boði til nýrra
kosninga í þeirri von að hann fái
Frakkland orðið þriðja
mesta útflutningsríkið
París 11. maí. AP.
VARÉIÍY Giscard d'Estaing
fráfarandi forseti Frakklands
er 55 ára, fæddur 2. febrúar
192G í Kohlenz í Þýzkalandi. en
þar var faðir hans fjármála-
stjóri franska hernámsliðsins
eftir fyrri heimsstyrjöldina.
Síðasta ár síðari heimsstyrjald-
arinnar gegndi Giscard d’Es-
taing herþjónustu í franskri
skriðdrckasveit, en hóf síðan
nám. og lauk prófi í hagfræði
frá Ecole Polytecnique.
Giscard d’Estaing var kjörinn á
þing 29 ára gamall, og fjórum
árum síðar varð hann aðstoðar
fjármálaráðherra, þar sem hlut-
verk hans var að breyta Frakk-
landi úr bændaþjóðfélagi í iðnríki.
Árin 1962—1966 var hann fjár-
málaráðherra, og tókst honum þá
að koma jöfnuði á fjárlögin í
fyrsta skipti í 40 ár. Vegna
ágreinings við Charles de Gaulle
forseta, sem vildi afnema verð-
lagseftirlit, er komið hafði verið á
árið 1963, sagði Giscard d’Estaing
af sér ráðherraembætti 1966.
Eftir að Georges Pompidou var
kjörinn forseti 1969 tók Giscard
d’Estaing á ný við embætti fjár-
málaráðherra. Þegar Pompidou
lézt í apríl 1974, varð Giscard
d’Estaing forsetaefni Óháða lýð-
veldisflokksins, og í kosningunum
bar hann sigurorð af frambjóð-
anda Jafnaðarmannaflokksins,
Francois Mitterand, sem nú hefur
snúið dæminu við.
Giscard d’Estaing kvæntist
Anne-Aymone de Brantes, dóttur
auðugs iðjuhölds, árið 1952, og
eiga þau tvær dætur og tvo syni.
Fyrst eftir forsetakjörið réyndi
Giscard d’Estaing að vera alþýð-
legur með því að umgangast
alþýðufólk, en ákvað fljótlega að
það hæfði hvorki forsetaembætt-
inu né þjóðinni. Hann notaði völd
sín út í yztu æsar, og hegðan hans
var til þess að andstæðingar hans
gáfu honum viðurnefnið „Giscard
konungur”.
Gagnrýnendur forsetans héldu
því fram að Giscard misbeitti því
mikla valdi, sem stjórnarskráin
felur forsetanum, en þau völd
voru sniðin eftir kröfum de
Gaulle. Sögðu þeir að Giscard
d’Estaing beitti valdi sínu til að
þagga niður í andstæðingum,
ganga framhjá þjóðþinginu, og
koma trúnaðarmönnum sínum í
öll embætti.
Stuðningsmenn hans bentu
hinsvegar á gjörðir Giscards
d’Estaing. Frakkland er orðið
þriðja mesta útflutningsríki
heims, og fjöldi nýrra kjarnorku-
vera hefur dregið mjög úr áhrif-
um hækkandi olíuverðs. Þá segja
stuðningsmennirnir að háþróuð
iðnvæðing landsins á nýjum svið-
um eigi eftir að taka við vinnuafl-
inu frá verr settum iðnaði eins og
spunaiðnaði.
Giscard d'Estaing fer frá Chanonat til Parísar eftir kosningarnar. Forsetinn ekur sjálfur og bilstjóri
hans situr i baksætinu.
Fyrsta verkið
að fara á fætur
Ohatcau fhinon. 11. mat. AP.
FRANCOIS Mitterand var stadd-
ur á hótcli í franska þorpinu
Chateau Chinon í miöhluta
Frakklands þegar fregnir hárust
af sigri hans í forsetakosningun-
um á sunnudagskvöld. Þar með
var 16 ára barátta hans fyrir því
að ná kjöri oröin að veruleika.
„Jæja," sagði hann og brosið
færðist yfir andlitið, „það getur
ekki breytzt úr þessu,” sagði Mitt-
erand þegar liðið var á talningu, og
tölvur spáðu honum sigri.
Hann sýndi þó lítil geðbrigði
miðað við viðbrögð fólksins sem
var samankomið í hótelinu. Fólkið
grét eða hrópaði af gleði. Stuðn-
ingsmaður hrópaði til hans og
spurði hvert yrði hans fyrsta verk
á morgun, þegar hann væri orðinn
Frakklandsforseti. „Fara á fætur,“
sagði hann í alvörutóni, „það er
það fyrsta sem ég geri á hverjum
degi.”
Mitterand kaus að bíða úrslit-
anna í Chateau Chinon, sem verið
hefur heimabær hans frá því
skömmu eftir seinni heimsst.vrj-
öldina, en þar hefur hann þó aldrei
eignast heimili, vegna starfa sinna
í París. En þegar hann kemur til
þorpsins, sem er í kjördæmi hans,
fær hann jafnan herbergi númer
15 á Vieux Morvan-hótelinu,
tveggja manna herbergi og sturtu-
laust, sem kostar andvirði 16
dollara yfir sólarhringinn.