Morgunblaðið - 12.05.1981, Side 47
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 12. MAI 1981
25
landsmótsins
boltanum í átt að marki.
nar í netinu eftir fast skot
im.
Guðmundur
skoraði
fyrsta markið
I>AÐ kom í hlut Guðmundar
Torfasonar Fram. að skora
fyrsta mark íslandsmótsins í
kr.attspyrnu að þossu sinni.
Mark Guðmundar kom á elleftu
mínútu fyrri hálflciks. Leik-
mönnum ÍBV tókst ekki að
hreinsa nægilega vel frá marki
sínu og holtinn hrökk fyrir fætur
Guðmundar sem var inni i miðj-
um vitateig. Guðmundur kom
aðvífandi á fullri ferð, tók bolt-
ann viðstöðulaust ok skoraði með
þrumuskoti. óverjandi fyrir Pál
Pálmason markvörð ÍBV.
• Guðmundur Torfason.
Maður
leiksins
FRAMARAR hafa tekið upp á
þeirri nýbreytni að velja mann
leiksins. eftir alla leiki Fram í
fslandsmótinu. I>að er þri^Kja
manna dómnefnd sem velur við-
komandi. í leikslok fær svo við-
komandi viðurkenningu. Að
þessu sinni var það Guðmundur
Torfason sem varð fyrir valinu.
Ilann fékk b<)k ojí hlómvönd í
verðlaun.
Ásdís og Árni urðu
bikarmeistarar SKÍ
SÍÐASTA hikarmót Skíðasamhands
íslands fór fram á ísafirði um
síðustu heliíi. SiífurvoKarar í hik-
arkeppninni árið 1981 urðu þau
Ásdís Alfreðsdóttir Iteykjavík i
kvennaflokki hlaut 150 stit; otr Árni
l>ór Árnason Reykjavík í karla-
flokki hlaut 150 stitt.
Roð tíu efstu varð þessi:
Konur: stig
Ásdis Aifreðsdóttir R
Bikarmeistari SKl ’81 150
Nanna la'ifsdóttir A 140
Ásta Ásmundsdóttir A 115
Hrefna Magnúsdóttir A 106
Tinna Traustadóttir R 64
Halldóra Björnsdóttir R 58
Guðrún Björnsdóttir R 46
Dýrleif A. Guðnuindsd. R 39
Sigrún Þórólfsdóttir í 37
Kristín Simonardóttir D 30
Karlar: stig
Arni Þór Árnason R
Bikarmeistari SKÍ ’81 150
Guðnuindur Jóhannsson Í 120
Björn Víkingsson A 90
Einar V. Kristjánsson í 88
Haukur Jóhannsson A 81
Elías Bjarnason A 80
\ralþór Þorgeirsson A 55
Helgi Geirharðsson R 50
Ólafur Harðarson A 50
Bjarni Bjarnason A 41
Eyjamaóurinn
skoraói gegn IBV
FRAM OG ÍBV skildu jöfn á Meiavellinum á laugardaginn í fyrsta
leik íslandsmótsins í knattspyrnu. Bæði lið skoruðu eitt mark og í?átu
bæði lið eftir atvikum vel við unað. Lítið var um færi í leiknum og ef
fyrri hluti fyrri hálfleiks er undanskilinn var einnig lítið um
frambærilega knattspyrnu. Það var Guðmundur Torfason, Eyjamaður
i liði Fram, sem skoraði fyrsta mark íslandsmótsins að þessu sinni,
hann skoraði einnig í fyrsta leik mótsins í fýrra. Og Guðmundur gerði
gott betur, var kjörinn maður leiksins af hlutlausri dómnefnd, en
Framarar munu standa að slíku vali í öllum leikjum sínum í sumar.
Staðan í hálfleik var 1—0 fyrir Fram.
Það voru lengst af malartaktar í
leik þessum, en framan af honum
náðu Framarar þó nokkrum sinn-
um góðum fléttum. Ein slík endaði
með marki á 11. mínútu. Atgang-
urinn hófst með góðri sókn Péturs
Ormslevs og Guðmundar Steins-
sonar niður vinstri vænginn og
björguðu Eyjamenn naumlega í
horn er Guðmundur renndi knett-
inum fyrir markið. Guðmundur
tók hornspyrnuna og sendi vel
fyrir markið, Eyjamenn skölluðu
frá, en ekki nógu langt, því
Guðmundur Torfason var á vakki
við vítateigslínuna og hann þrum-
aði knettinum til baka, óverjandi
fyrir Pál Pálmason markvörð ÍBV.
Sigurlás var á ferðinni við mark
Fram 3 mínútum síðar, en skaut
yfir. Færið gat þó varla talist af
betra taginu, satt best að segja
var það bæði þröngt og erfitt. En
tveimur mínútum síðar sluppu
Eyjamenn þegar þeir hefðu ekki
átt að gera svo. Guðmundur
Steinsson brunaði þá upp vinstri
kantinn og sendi fyrir markið þar
sem Pétur Ormslev var í dauða-
færi. En á markteig ÍBV var hann
sparkaður gróflega niður og Páll
var síðan fljótur að góma knött-
inn. Ekkert dæmt, en nokkrum
mínútum síðar varð Pétur að
yfirgefa leikvöllinn vegna meiðsla
sem hann hlaut í rimmu þessari.
Reyndar voru Eyjamenn í grófara
lagi framan af leiknum, en drógu
nokkuð í land eftir að Guðmundur
Erlingsson hafði verið bókaður
fyrir að stjaka við nafna sínum
Steinssyni.
En við að missa Pétur út af
fjaraði sóknarleikur Fram út. Síð-
ari hálfleikur var mjög jafn fram-
an af og sókn ÍBV þyngdist jafnt
og þétt, uns hún gaf af sér
jöfnunarmarkið. Þá fékk ÍBV á 90
sekúndna kafla tvö dauðafæri, þau
einu sem liðið fékk í leiknum. Það
síðara nýttist og féll annað stigið
þar með í hlut liðsins. Fyrra færið
kom á 60. mínútu og kom það svo
skyndilega, að erfitt var að átta
sig á aðdragandanum. En skyndi-
lega stóð Viðar Elíasson með
knöttinn fyrir miðju marki og
markvörðinn einan í veginum. Svo
illa vildi til, að Viðar hitti ekki
knöttinn er hann hugðist senda
hann á sinn stað. En það kom ekki
að sök, vörn Fram hafði eitthvað
riðlast við þetta og hafði ekki náð
saman nokkrum andartökum síð-
ar, er Ingólfur Sveinsson, nýliði
IBV frá Vopnafirði, fékk knöttinn
í góðu færi. Marteinn Geirsson
varði skot Ingólfs á marklínu, en
knötturinn hrökk út til Kára
Þorleifssonar sem gerði færinu
betri skil, 1—1.
Framarar sóttu mikið undir
lokin, en færi voru fá eða engin,
enda enginn broddur lengur í
framlínunni. Oft náði liðið þokka-
lega saman úti á vellinum, en svo
þegar að síðustu sendingu fyrir
markið kom, hættu menn að
vanda sig og því fóru Eyjamenn
létt með að halda fengnum hlut.
Aðeins einu sinni má segja mark
IBV hafa sloppið fyrir horn, en
það var þegar heldur óvænt fyrir-
gjöf frá Marteini utan af kanti var
Fram — ÍBV
1—1
hrifin af vindinum þannig að
knötturinn hafnaði ofan á þver-
slánni.
Lið Fram var ekki sannfærandi
í leik þessum, þó leyndist ekki að
það ætti að geta betur er búið er
að pússa hina mörgu nýju leik-
menn liðsins saman. Vörnin var
yfirleitt þétt með Martein og
Sighvat sem sterkustu menn. Mið-
vallarleikmennirnir Ársæll, Ágúst
og Albert náðu aldrei afgerandi
tökum á þeim vallarhluta, en
gerðu góða hluti annað slagið.
Guðmundur Torfason komst vel
frá leiknum, en mætti stilla skapið
örlítið. Þá átti Guðmundur
Steinsson góða spretti, einkum í
fyrri hálfleik.
Lið ÍBV er nokkuð óþekkt stærð
og erfitt að gera sér grein fyrir
hvernig liðið mun standa sig.
Leikmenn liðsins eru sem oftar
ákaflega sterkir líkamlega, en á
laugardaginn sýndi liðið litla
knattspyrnu. Það kemur kannski
er farið verður að leika á grasi.
Ómar Jóhannsson bar nokkuð af í
liðinu, leikmaður sem alltaf virtist
hugsa áður en hann framkvæmdi
hlutina. Þegar IBV náði bestu
samleiksköflum sínum, kom Ómar
næstum alltaf meira og minna við
sögu. Að öðru leyti voru leikmenn
liðsins afar jafnir.
I stuttu máli:
Islandsmótið 1. deild: Fram —
ÍBV 1-1 (1-0)
Mark Fram: Guðmundur Torfason
(11. mín.)
Mark ÍBV: Kári Þorleifsson (61.
min.)
Áminningar: Guðmundur Erlings-
son ÍBV
Dómari: Hreiðar Jónsson. —gg.
Athyglisverður árangur
í langstökki í Kópavogi
UNGUR og efnilegur Snæfellingur. Kristján Ilarðarson, er keppir
fyrir UBK náði athyglisverðum árangri í langstökki á Vormóti
Kópavogs í frjálsíþróttum á laugardag. Kristján stökk 7,15 metra og
átti tvö önnur stökk yfir sjö metra. og öll stökkin hans voru yfir 6.85
metra. Margir höfðu búist við auðveldum sigri Jóns Oddssonar. KR.
sem einbeitt hefur sér að frjálsíþróttum frá þvi um áramót. Jón
virkaði þungur á atrennuhrautinni, en stökk samt 7.14 metra í síðasta
stökki. og sjö slétta í næstsiðasta. Gaman verður að fylgjast með
þessum íþróttamönnum í sumar, þvi þótt mcðvindur hafi verið of
mikill. þá gefur þessi árangur þeirra á fyrsta móti sumarsins góðar
vonir. Kristján cr ungur að árum. aðeins 17 ára gamall, og Jón hefur
öðru hverju sýnt að hann getur náð langt í þessari íþróttagrein, en
hingað til hefur hann verið það liðtækur í ýmsum öðrum
iþróttagreinum. að hann hefur ekki sinnt frjálsiþróttunum af alvöru.
Vonandi verður breyting þar á. því hann gæti eflaust náð langt í
þessari íþróttagrein.
Árangurinn á Kópavogsmótinu bar það annars með sér, að hér var
um fyrsta mót sumarsins að ra-ða. Ýmsir settu þó persónulcgt met í
sinni fyrstu keppni i ár, og hörkukcppni var i ýmsum greinum.
Ilrcinn Ilalldórsson KR hcfur náð sér ótrúlega eftir uppskurð. sem
gerður var á olnboga kasthandarinnar. fyrir tveimur mánuðum i dag.
varpaði jafnan um 18—18.50 metra, en gcrði því miður köst sín öll
ógild. En litum annars á úrslitin:
Karlar:
200 m hlaup:
1. Hjörtur Gíslason, KR 23,2
2. Guðni Tómasson, Á 23,7
3. Jónas Egilsson, ÍR 24,3
400 m hlaup:
1. Egill Eiðsson, UÍA 52,1
2. Jónas E'gilsson, ÍR 55,2
3. Sigurður Haraídsson, FH 56,4
1000 m hlaup:
1. Gunnar P. Jóakimsson, ÍR2:37,5
2. Magnús Haraldsson, FH 2:45,8
3. Lúðvík Björgvinss., UBK 2:47,1
4. Gunnar Birgisson, ÍR 2:52,8
5. Einar Sigurðsson, UBK 2:58,5
Langstökk:
1. Kristján Harðarson, UBK 7,15
2. Jón Oddsson, KR 7,14
3. Stefán Þ. Stefánsson, ÍR 6,66
4. Helgi Hauksson, UBK 6,38
Ilástökk:
1. Stefán Þ. Stefánsson.ÍR 1,90
2. Jón Oddsson, KR 1,85
3. Hafliði Maggason, ÍR 1,80
4. Helgi Hauksson, UBK 1,80
5. Sigurður Einarsson, Á 1,80
Kúluvarp:
1. Helgi Helgason, USAH 13,65
2. Óskar Thorarensen, KR 12,64
Sveinar:
100 m hlaup:
1. Gunnar H. Kristjánss., KR 12,2
2. Guðmundur Sigfússon, ÍR 12,5
3. Hreiðar Gíslason, FH 12,7
1000 m hlaup:
1. Ólafur Sverrisson, ÍR 2:57,4
2. Viggó Þ. Þórisson, FH 2:57,6
3. Már Mixa, ÍR 3:00,0
4. Kristinn Álexanderss., ÍR 3:01,2
Konur:
200 m hlaup:
1. Geirlaug Geirlaugsd., Á 26,3
2. Helga Halldórsdóttir, KR 27,1
3. Thelma Björnsdóttir, Á 27,1
4. Hrönn Guðmundsd., UBK 27,8
400 m hlaup:
1. Hrönn Guðmundsd., UBK 61,1
2. Guðrún Karlsdóttir, UBK 62,0
3. Aðalbjörg Hafst.d., HSK 63,7
4. Berglind Erlendsd., UBK 64,0
1000 m hlaup:
1. Guðrún Karlsdóttir, UBK 3:20,8
2. Linda B. Ólafsdóttir, FH 3:39,5
Langstökk:
1. Bryndís Hólm, ÍR 5,54
2. Jóna B. Grétarsd., Á 5,41
3. Hulda Laxdal, USÚ 5,13
4. Helga Halldórsdóttir, KR 5,06
Hástökk:
1. María Guðnadóttir, HSH 1,65
2. Sigríður Valgeirsd., ÍR 1,55
Kúluvarp:
1. Guðrún Ingólfsdóttir, KR 12,63
2. Helga Halldórsdóttir, KR 8,20