Morgunblaðið - 12.05.1981, Qupperneq 48
26 MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 12. MAÍ1981
Hutchison skoraði bæði mörkin
- jafntefli í 100. úrslitaleiknum
ÞRÁTT FYRIR að leikið væri í 120 mínútur í 100. úrslitaleiknum í
ensku bikarkeppninni í knattspyrnu á laugardag. tókst ekki að ná
fram úrslitum í leiknum. Lið Tottenham og Manchester City skildu
jöfn. 1 — 1. Man. City hafði forystuna í hálfleik, 1—0. Það var Tommy
Ilutchison sem skoraði markið á 30. mínútu leiksins, með glæsilegum
skalla. Hutchison átti eftir að koma mikið við sögu í leiknum, þvi að
aðeins átta mínútum fyrir leikslok reyndi hann að koma í veg fyrir
þrumuskot frá Glenn Hoddle en tókst ekki betur til en svo að boltinn
fór í öxlina á honum. breytti stefnu og fór i netið. Hefði boltinn ekki
breytt stefnu af Hutchison er talið fullvist að Corrigan markvörður
City hefði varið skotið örugglega. Liðin verða því að reyna með sér
aftur á Wembley og munu þau mætast þar næstkomandi fimmtudags-
kvöld.
Baráttuleikur
Leikur Tottenham og Man. City
á laugardag þótti ekki vera mjög
vel leikinn. Að sögn fréttaskeyta
og þula BBC, einkenndi mikil
bnrátta og taugaspenna leikinn,
frá upphafi. Og svo þreyttir voru
leikmenn beggja liða orðnir er til
framlengingar kom að í sjálfri
framlengingunni féllu þeir unn-
vörpum niður á leikvanginn með
krampa, eða sinadrátt í fótum.
Framkvæmdastjórar beggja
liða höfðu lofað góðri knattspyrnu
í leiknum. En leikmenn liðanna
náðu aldrei réttum takti í leik
sinn. Sér í lagi voru hinir sterku
miðvallarleikmenn Tottenham,
þeir Richardo Villa, Osvaldo Ar-
diles og Glenn Hoddle, slegnir út
af laginu. Þeim tókst aldrei að ná
tökum á miðju vallarins.
Gerry Gow, Paul Power og
Steve MacKenzie hjá City börðust
eins og ljón og gáfu þeim aldrei
frið til þess að byggja upp sóknar-
Tottenham - Man. City
1—1
lotur á miðjunni. Leikmönnum
Tottenham tókst því ekki að ná
sér verulega á strik í leiknum.
Man. City átti mun meira í fyrri
hálfleiknum og átti svo sannar-
lega skilið að hafa forystuna í
hálfleik.
Elsti maöur-
inn skoraði
Það var elsti leikmaðurinn á
vellinum sem skoraði fyrsta mark-
ið. Tommy Hutchison, 33 ára
gamall, skoraði á 30. mínútu
ieiksins. Það var bakvörðurinn,
Ray Ranson, sem átti heiðurinn af
markinu. Hann braust upp hægri
kantinn og gaf vel fyrir markið.
Glæsileg sending hans var svo til
beint á höfuðið á Hutchison. Hann
lét tækifærið sér ekki úr greipum
ganga og skallaði af miklu öryggi í
markið, af 8 metra færi.
Lið City átti mun meira í
leiknum og sótti oft stíft í fyrri
hálfleiknum. Á fyrstu fjórum
mínútum leiksins fékk City fjórar
hornspyrnur. Fyrsta markskotið
sem Tottenham átti kom á 9.
mínútu. Glenn Hoddle átti gott
skot en beint á Corrigan, mark-
vörð City. Corrigan varði mjög vel
á 25. mínútu. Tony Galvin komst
óvaldaður inn í vítateig og skaut
góðu skoti. Corrigan sýndi glæsi-
leg tilþrif þar sem hann sló
boltann rétt yfir þverslána.
City átti stangar-
skot og gat gert
út um leikinn
Tottenham sótti heldur í sig
veðrið í síðari hálfleiknum. Á 56.
mínútu átti Garth Crooks hörku-
skot sem smaug framhjá stöng-
inni. En aðeins þremur mínútum
síðar gat Man. City gert út um
leikinn. Steve MacKenzie fékk
mjðg gott marktækifæri. En taug-
ar hans voru ekki í lagi. Hann
misnotaði tækifæri sitt og skaut í
stöngina. Þar fór eitt besta mark-
tækifæri leiksins forgörðum.
Um miðjan síðari hálfleik var
Richardo Villa tekinn út af hjá
Tottenham og táningurinn Garry
Brooke kom inná. Þessi skipting
hleypti lífi í lið Tottenham. Og
loks þegar 10 mínútur voru til
leiksloka jafnaði Tottenham leik-
inn, 1—1.
Ardiles náði boltanum og brun-
aði upp að marki City. Gow
hindraði hann gróflega rétt utan
við vítateig og réttilega var dæmd
aukaspyrna. Ardiles tók spyrnuna
rétt fimm metrum utan við víta-
teiginn. Ardiles renndi boltanum
til Steve Perryman sem lagði upp
gott skot fyrir Glenn Hoddle.
• Markvörður Manchest-
er City, Joe Corrigan, átti
snilldarleik og varði oft
meistaralega.
Hoddle kom á fullri ferð og skaut
af um 25 metra færi. Þrumuskot
hans fór í Hutchison sem var ekki
í varnarvegg City og af honum í
markið. Þrátt fyrir mikla baráttu
tókst hvorugu liðinu að knýja
fram sigur í leiknum. Lið City átti
mun meira í framlengíngunni en
Tottenham varðist vel.
Bæði liðin léku 4-3-3
Bæði liðin beittu leikaðferðinni
4-3-3. Liðin voru skipuð eftirtöld-
um leikmönnum.
Tottenham (4-3-3): Milija Alek-
sic, Chris Hughton, Paul Miller,
Graham Roberts, Steve Perry-
man, Richardo Villa, Osvaldo Ar-
diles, Glenn Hoddle, Steve Archi-
bald, Garth Crooks, Tony Galvin,
Garry Brooké.
Manchester City (4-3-3); Joe
Corrigan, Ray Ranson, Nicky
Reid, Tommy Caton, Bobby
McDonald, Paul Power, Gerry
Gow, Steve MacKenzie, Dave
Bennett, Kevin Reeves, Tommy
Hutchison, Tony Henry. Dómari:
Keith Hackett.
Besti leikmaður Man. City var
markvörður liðsins, Joe Corrigan,
sem varði hvað eftir annað mjög
vel. Þá átti Tommy Hutchison
góðan leik og Ransom. I liði
Tottenham lék Ardiles mjög vel,
Hughton og Garry Brooke áttu og
góðan leik.
300 milljónir
horfðu á leikinn í
sjónvarpsútsendingu
Mikil viðhöfn var í sambandi við
þennan úrslitaleik sem var sá 100.
í röðinni. Uppselt var á Wembley
og verð miða á svartamarkaðinum
fyrir utan völlinn var um 60 til 80
pund í stæði. Talið er að um 300
milljónir manna um allan heim
hafi fylgst með leiknum í beinni
sjónvarpsútsendingu. Tekjur af
aðgangseyri að leiknum námu
703.215 þúsund sterlingspunda.
Eða 10.500 milljónir íslenskra
króna. Góður skildingur það. Og
reiknað er með annarri eins
summu í kassann á fimmtudags-
kvöldið. — ÞR.
• Tommy Hutchison, elsti leikmaðurinn sem tók þátt í
leiknum, 33 ára. Tommy skoraði fyrst á 30. mínútu með
skalla fyrir lið sitt, City, en aðeins átta mínútum fyrir
leikslok skoraði hann svo sjálfsmark.
Fimleikadeild
Námskeið í fimleikum fyrir byrjendur, stúlkur og
drengi, verður haldið í íþróttahúsi Breiðholtsskóla
og hefst í dag, 12. maí. Kennsla hefst daglega kl.
18. Innritun á staðnum.
Leiðbeinandi Vigfús Helgason íþróttakennari.
Stjórnin
• Argentínumaðurinn Ardiles átti bestan leik af leikmönnum Tottenham. Hér
er Ardiles á fullri ferð með boltann.