Morgunblaðið - 12.05.1981, Side 30
34
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 12. MAÍ 1981
Kolbeinn á Auðnum:
Hagsmunir fjöldans
Dragnót eða ekki dragnót er
undir fyrirsöKn í Morgunblaðinu
3. apríl síðastliðinn. Þar er greint
frá fundi, sem haldinn var siðast-
liðinn sunnudag og fjallar um
dragnótaveiðar í Faxaflóa. Ég
held að flestir, sem þessi mál
vörðuðu, hafi haldið, þegar síðast
var lokað fyrir dragnót, eftir þá
reynsiu, sem þá var fengin og
reyndar áður mörgum sinnum, þó
sjálfsagt hafi Flóinn aldrei verið
eins gjörþurrkaður eins og síðast,
þegar lokað var, þá hafi flestir
haldið að leyfi fyrir dragnót í
Faxaflóa yrði aldrei tekið á
dagskrá aftur. Ég vil nú benda
þeim á, sem eru ókunnugir þessum
málum, að lesa greinar eftir Jó-
hann J.E. Kúld í Þjóðviljanum 3.
apríl 1980 og einnig grein í sama
blaði 2. apríl 1981. Enginn mun
væna hann um þekkingarleysi eða
hlutdrægni I málflutningi. Þegar
eftir 8—9 ára friðun fyrir dragnót
þá er komið hér sæmilegt fiskirí
og stundað af fjölda báta með
góðum árangri. Og þá vakna
dragnótadraugarnir og þrýsta á
um opnun F'lóans fyrir dragnót.
En nú er farið lymskulegar að því,
nú hét það vísindaleiðangur. Það
var ráðinn (leigður) bátur til
rannsóknanna. Fyrir einhverja
tilviljun æxlaðist það nú svo, að
það var Baldur K.E., eigandi
Ólafur Björnsson útgerðar- og
alþingismaður. Þarna var trollað
með hraða gangandi manns,
froskmenn og kvikmyndavélar
áttu nú að sýna, hvað dragnótin
væri duggunar, pinulítið skaðleg
og reyndar alls ekkert skaðleg, svo
dauða meinlaus, að hún skemmdi
ekki fyrir neinum. Svo fór nú
bátunum að fjölga og siðasta
sumar voru þeir orðnir 5. Að
senda út vísindaleiðangur til að
kanna áhrif dragnótaveiða á fisk-
gegnd í Faxaflóa er nokkurn
veginn álíka skynsamlegt eins og
að senda vísindaleiðangur upp á
Holtavörðuheiði til að vita hvort
það komi snjór þar að vetri til.
Dragnótaelskendur segjast engra
eigin hagsmuna hafa að gæta
fyrir sig, það séu bara hagsmunir
fjöldans, sem þeir berjist fyrir.
Það er upplýst að 5 bátar, 2
flökunarvélar, 100 manns og
dragnótin eru annars vegar, hins
vegar á þriðja hundrað bátar með
á annað þúsund manns. Þessar
veiðar geta ekki farið saman, og
að 5 bátarnir og Í00 mennirnir
skuli ganga fyrir heitir á máli
Ólafs Björnssonar og Guðna Þor-
steinssonar, að vinna fýrir fjöld-
ann.
Það er orðið allmikið mála- og
samningaþras út af Blönduvirkj-
un. Nokkrir hektarar, já margir
tugir hektara munu fara þar undir
vatn, sem bændur vilja að sjálf-
sögðu fá bætur fyrir. Ekki hefur
heyrst um neinar skaðabætur til
þeirra rúmlega 200 bátaeigenda
kringum Flóann, ekki svo mikið
sem að ríkið bjóðist til að kaupa af
þeim bátana. Ég hef heyrt nokkra
bátaeigendur segja, að það sé
ekkert við þessa báta að gera
nema selja þá, en hver vill kaupa?
Ólafur Björnsson kallar alla
báta aðra en dragnótabáta, sport-
báta. Hann veit hvað margir bátar
róa frá Keflavík, þeir eru þó
nokkrir milli 50—100 tonn, 2 bátar
róa hér úr Vogum 20 og 100 tonn.
Þetta kallar hann sportbáta. Ein-
ar Kristinsson segir vel hægt að
veiða í dragnót án þess að aðrir
fiskistofnar séu í hættu, hann á
nefnilega aðra fiökunarvélina.
A síðastliðnu hausti var neta-
bátur í svonefndum Fláskarðs-
krika, sunnan við syðra hraun, það
lóðaði vel vestan við trossurnar
hans, þá kom þar dragnótabátur
og kastaði nótinni ofan í torfuna
og fékk fullt trollið af þorski.
Þetta var Baldur K.E., eigandi
Ólafur Björnsson útgerðar- og
alþingismaður. Svo þegar komið
var í land þá var 90% skarkoli,
10% þorskur, ekkert fór fram hjá
vigtinni. Ekki sáu netabátsmenn
neina vísindamenn né kvikmynda-
vélar við þessa athöfn, en þeir
sögðust hafa viljað gefa hlutinn
sinn til að þeir hefðu getað
kvikmyndað, þegar þeir á Baldri
losuðu nótina. Einhverntíma var
nú samt talað um of mikinn þorsk
í aflanum og þá var bátum vísað
norður fyrir hraun, þar voru
netabátarnir, höfðu þar helst frið,
en þar með var líka sá friður
búinn, dragnótabátarnir skörkuðu
með trollið yfir netin og stór-
skemmdu og eyðilögðu. Ég er nú
ekki frá því, að einhverjir hafi
hvíslað þessu að sjávarútvegsráð-
uneytinu. Því er haldið fram að
það megi veiða skarkola dýpra á
haustin, þegar kolinn gengur út úr
flóum og fjörðum. Það var ein stór
rúsína í pylsuendanum, þegar var
verið að þrýsta á um opnun
Faxaflóa og við ættum ekki að
vera að ala upp kola, til að láta
Bretann hirða hann, þegar hann
gengi út, það væri eins gott að við
nýttum hann sjálfir, heldur en að
vera að ala hann upp fyrir helvítis
Tjallann. Ólafur Björnsson segir
hinsvegar, að þá sé kolinn orðinn
svo horaður og verðlaus. Þetta
getur maður nú sagt, að séu rök
eða hitt þó heldur. Kannski hann
hafi farið rannsóknartúra með
Guðna Þorsteinssyni til að fitu-
mæla kolann. ólafur Björnsson
segir, að ekki fáist í dragnótina,
nema stærsta ýsa, sem sjómenn
kalla graðýsu, það séu svo stórir
möskvar í nótinni. Ef svo væri þá
fengist enginn koli í þá nót, hann
er það smár, það séu bara línu- og
færamenn, sem drepi smáfiskinn.
Hilmar Biering:
Hverfur
Fríkirkjan
í Reykjavík?
Þegar spurt er hvort Fríkirkjan
í Reykjavík sé að hverfa dettur
sjálfsagt einhverjum í hug að hér
væri um að ræða verkefni fyrir
húsfriðunarnefnd því vissulega
væri það sjónarsviptir að þessi
fallega kirkja við Reykjavíkur-
tjörn hyrfi og setti ekki lengur
svip á bæinn.
En það er ekki húsið sem er að
hverfa heldur söfnuðurinn sem er
smátt og smátt að hverfa í fjöld-
ann og þótt tölur séu leiðinlegur
rökstuðningur þá finnst mér samt
rétt að nota einmitt þennan rök-
stuðning sem grundvöll fyrir
spurningunni. Ef litið er til
tveggja þrjátíu ára tímabila þá
kemur eftirfarandi í ljós:
Árið 1920 voru íbúar Reykjavík-
ur 17.450 og í Fríkirkjusöfnuðin-
um 5.806 safnaðarmeðlimir eða
33,3% af bæjarbúum, það er að
segja, þriðji hver bæjarbúi var í
söfnuðinum.
Árið 1950 voru bæjarbúar 55.980
en í söfnuðinum voru þá 7294 eða
13,0%.
Árið 1980 voru íbúar Reykjavík-
ur 83.449 og í söfnuðinum voru
5.777 safnaðarmeðlimir eða 6,9%
en það þýðir að nú er ekki einu
sinni sjöundi hver Reykvíkingur í
Fríkirkjusöfnuðinum.
Kirkjusókn og safnaðarstarf í
Fríkirkjunni er hvorki lakara né
betra en í öðrum kirkjum í
höfuðborginni og hér er því ekki í
raun um trúmál né trúaráhuga að
ræða en ef til vill má aftur leita,
þótt ótrúlegt kunni að virðast, í
hagskýrslur til þess að finna
skýringu á fækkuninni í Frí-
kirkjusöfnuðinum.
Hagstofa íslands gaf út skýrslu
um manntal á íslandi sem fram
fór 2. desember 1940 og í stað þess
að finna þar þurrar tölur bregður
nú svo við að þegar skipta á
þjóðinni í „trúfélög" eins og venju-
lega í hagskýrslum þá segir svo
orðrétt: „1940 voru 3 fríkirkju-
söfnuðir á landinu, einn í Reykja-
vík og grennd, annar í Hafnarfirði
og Garðahreppi og hinn þriðji í
Suður-Múlasýslu. Þar sem frí-
kirkjan greinir ekkert á við þjóð-
kirkjuna í trúarefnum eru þessir
söfnuðir taldir með þjóðkirkj-
unni.“ Hér líkur tilvitnun í skýrslu
Hagstofunnar en- á þessu sama
ári, 1940, nánar tiltekið í október
eru fjögur ný prestaköll auglýst
laus til umsóknar hér í Reykjavík
samkvæmt samþykkt frá Alþingi.
Með þessum nýju prestaköllum
hefst skipting Reykjavíkur í
prestaköll eftir búsetu í borginni.
í vaxandi borg er þetta eðlileg
þróun og þegar þess er gætt að
fjölgun borgarbúa byggist aðal-
lega á flutningi fólks víðsvegar að
af landinu til Reykjavíkur og að
þetta sama fólk hafi tilheyrt
þjóðkirkjunni hvert í sinni heima-
hyggð er ekki nema eðlilegt að
fólkið haldi áfram að tilheyra
þjóðkirkjunni og stækkun byggð-
arinnar í Reykjavík leiðir einnig
af sér að fríkirkjufólk sem flyst úr
nágrenni Fríkirkjunnar flytjist í
hin nýju prestaköll sem nær eru
heimili þeirra. Fleiri skýringar
mætti telja fram eins og til dæmis
þær að börn óski þess að fermast
með skólasystkinum sínum og
nágrönnum fremur en að fara oft
um langan veg til fermingarundir-
Hilmar Biering
búnings og ekki aðeins eðlilegt
heldur æskilegt að fólk festi rætur
í umhverfi sínu.
Eins og áður er vitnað til greinir
Fríkirkjuna ekkert á við Þjóð-
kirkjuna i trúarefnum og í þriðju
grein laga fríkirkjusafnaðarins
segir svo orðrétt: „Guðsþjónustur
og aðrar kirkjulegar athafnir fara
fram samkvæmt helgisiðabók ís-
lensku þjóðkirkjunnar."
Við verðum að fara aftur allt til
ársins 1899 til þess að finna
ástæðuna fyrir því að Fríkirkjan
varð til. Dr. Jón Helgason, biskup,
segir svo frá að á því ári hafi verið
samþykkt lög um dagsverk, offur
og lausamannsgjald til prests og
um ljóstolla og lausamannsgjald
til kirkju en sérstaklega 4 kr.
offrið varð þess valdandi að all-
mikið brot úr söfnuðinum sagði
sig úr dómkirkjunni og 19. nóv-
ember 1899 var stofnaður Hinn
lútherski kristilegi fríkirkjusöfn-
uður.
Það er ekki úr vegi að geta þess
að þetta sama ár 1899, stofnaði
séra Friðrik Friðriksson KFUM og
K sem hverjum þeim sem kynnst
hefur mun ávallt þykja vænt um.
En saga KFUM og Fríkirkjunnar
er ekkert frekar samofin þeirri
kirkju en sögu Þjóðkirkjunnar.
Fríkirkjan í Reykjavík fékk
viðurkenningu réttra stjórnvalda
að því tilskyldu að söfnaðurinn
kæmi sér upp sómasamlegu guðs-
þjónustuhúsi eins og það var
orðað. Um sumarið 1902 var unnið
að kirkjubyggingu handa frí-
kirkjusöfnuðinum í Reykjavík og
var byggingin langt komin í árslok
en 22. febrúar 1903 var Fríkirkjan
hátíðlega vígð.
Þess er getið í samtíma heimild-
um að þegar Fríkirkjan var vígð
hafi flestir í Fríkirkjusöfnuðinum
verið tómthúsmenn og fátækar
fjölskyldur, aðeins nokkrir iðnað-
armenn, allvel efnum búnir, en
engir ríkismenn og engir embætt-
ismenn.
Þrátt fyrir samsetningu safnað-
arins eða ef til vill vegna hennar
reyndist kirkjan of lítil og 1905
var kirkjan stækkuð og enn varð
að stækka kirkjuna árið 1924. Þess
má þó geta varðandi stærð kirkj-
unnar að þegar Eimskipafélag
íslands var stofnað árið 1914 átti
stofnfundurinn að fara fram í
Iönaðarmannahúsinu í Reykjavík
en fundarstaðurinn reyndist of
lítill þegar fundur átti að hefjast
og var því fundarstaðurinn fluttur
úr Iðnó í Fríkirkjuna þar sem
einnig var haldinn framhalds-
stofnfundur Eimskipafélagsins.
Að segja sögu Fríkirkjunnar og
fríkirkjusafnaðarins verður ekki
gert í einni blaðagrein og helst
ekki í einni bók því þá yrðu
óhjákvæmilega að verða sögulok
en það er einmitt tilgangur þess-
arar greinar að vekja fólk til
umhugsunar um að ekki megi
verða sögulok fríkirkjusafnaðar-
ins í neinni framtíð. Saga Frí-
kirkjunnar má ekki heyra sögunni
til.
Hér að framan hafa verið leidd
rök að þvi að ef til vill sé
Fríkirkjan í Reykjavík að hverfa
vegna þess að safnaðarfólki fer
fækkandi og einhver kann að
spyrja hvort það sé ekki eðlilegt
því nú sé ekki lengur um ljóstoll
eða lausamannsgjöld til kirkjunn-
ar að ræða, fátækar fjölskyldur
séu orðnar fáar og iðnaðarmenn
orðnir ríkismenn.
Við Islendingar lifum enn eftir
opinberum tilskipunum og þótt
skipt hafi verið um nöfn á tollum
og gjöldum þá berum við enn og
munum bera þessar byrðar. En
ekkert bannar okkur að iðka trú
okkar í frjálsri kirkju sem ekkert
greinir á við þjóðkirkjuna í trúar-
efnum.
Eitthvað finnst manni nú skjóta
skökku við, dragnótin veiðir ekki
nema stærstu ýsu, og þá togarar
auðvitað ekki heldur, því það er
sama möskvastærð, en svo heyrir
maður að verið er að friða svæði
víðsvegar kring um landið vegna
smáfisks. Enginn skipstjóri fer að
kasta trolii þar sem allur fiskur
fer í gegnúm það, og þó svo
slysalega vildi til að einhverjir
tittir lentu nú ípokanum þá er það
eign ríkisins. Ég býst nú við að
flestum sjómönnum þyki ríkið
ganga það nærri buddunni sinni,
að þeir séu ekki mjög ginkeyptir
fyrir því að kútta og ísa smáfisk
fyrir ríkið. Ég veit af einum
manni, sem væri líklegur til þess.
Hann átti í einhverjum útistöðum
við Vegagerðina út af snjómokstri
á Hellisheiði. Hann var spurður:
„Hvernig er snjórinn á Hellisheiði
núna?“ Hann svaraði því ekki, en
daginn eftir kom hann upp á
Vegamálaskrifstofu berandi poka
á baki sér fullan af snjó; hann
hvolfdi úr pokanum á gólfið og
sagði: „Svona er snjórinn á Hellis-
heiði núna,“ og labbaði út með
tóman pokann. Ef þessi maður
hefði nú verið sjómaður, gæti
hann hafa komið með poka af
smáfiski, hvolft úr honum við
fætur fjármálaráðherra og sagt:
„Þetta er hlutur þinn úr aflanum í
dag,“ það er að segja ef þessi
maður hefur einhverntíma verið
til.
Ég er nú orðinn svo gamall, að
ég býst ekki við að renna öngli í
sjó úr þessu svo ég hef ekki
persónulegra hagsmuna að gæta,
en ég get þó ekki látið fram hjá
mér fara að mig hryllir við því
skelfilega slysi, sem af því hlytist,
ef Faxaflói yrði opnaður fyrir
dragnót.
25. apríl 1981.
Kolbcinn á Auðnum.
Furðuteningur
til sölu hér
ÞESSI teningur gefur yfir 3
miiljarða möguieika á litasam-
setningum. betta er gesta-
þraut, sem farið hefur eins og
logi yfir akur erlendis og m.a.
var skrifuð um þennan tening
stór og mikil grein í banda-
ríska tímaritið Scientific Am-
erican og á forsíðu hlaðsins
birt mynd af honum. Ennfrem-
ur var hans getið í fleiri
blöðum.
I áðurnefndri grein segir að
áður hafi slík gestaþraut ekki
náð jafnmikilli útbreiðslu og
þessi teningur. í greininni segir
að teningurinn sé ekki aðeins
snjöll hugmynd að gestaþraut,
heldur og mjög snjöll hönnun og
það tók höfund greinarinnar í
Scientific American hálfan
mánuð að leysa þrautina.
Teningurinn mun vera gam-
all, því að franskur sendiráðs-
maður hefur sagt að hann muni
eftir að hafa séð slíkan tening í
Istanbul 1920 og síðar í Mar-
seilles 1936. Voru þeir gerðir úr
tré. Árið 1976 fékk svo japansk-
ur maður teninginn skráðan á
einkaleyfi í Japan. Þessi tening-
ur er nú kominn til Islands og er
seldur hjá Magna á Laugavegi
15.