Morgunblaðið - 12.05.1981, Qupperneq 37
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 12. MAI 1981
41
fclk f
fréttum
+ Spænsku konungshjónin voru
fyrir skömmu í heimsókn í Vati-
kaninu og er þessi mynd tekin er
Jóhannes Páll páfi tók á móti
konungshjónunum. — Juan Car-
los kyssir á hönd páfans. Sofia
drottning ber dýrindis höfuð-
búnað sem siður er frá fornu fari
að kaþólskar drottningar beri.
Sinatra
fer til
S-Afríku
+ Dægurlagasöngvarinn
bandaríski, Frank Sinatra, til-
kynnti fyrir skömmu í Los
Angeles, að hann mundi fara í
söngferð til S-Afríku í júlí-
mánuði næstkomandi. Það var
tekið sérstaklega fram af Sin-
atra sjálfum, að hann muni
ekki leyfa, að neinu kynþátta-
misrétti verði beitt. Hans
skemmtanir séu öilum opnar
án tillits til hörundslitar
o.s.frv. Það heitir í Sólborg,
sem söngvarinn frægi ætlar að
skemmta ein fimm, sex kvöld.
„t>rœlaveldiö“
endurminning-
ar Speers
+ Þetta er Albert Speer,
fyrrum vígbúnaðarráðherra
á tímum nazista í stjórn
Hitlers. Speer hefur skrifað
endurminningar sínar. Kom
þriðja bindið út fyrir
skömmu. Fyrri bindin komu
út árin 1969 og 1975. Speer
var dæmdur til fangelsisvist-
ar við Núrnberg-réttarhöldin
og sat í 20 ár í Spandau-
fangelsinu í Berlín, þar sem
Rudolf Hess situr enn.
Fyrsta bindi endurminn-
inganna bar heitið „Endur-
minningar", annað bindi
„Fangelsisdagbók" og bindið
sem nú er nýlega komið út
heitir í lauslegri þýðingu
„Þrælaveldið". Er það um
500 blaðsíðna bók. Hefur
henni, sem og hinum tveim
fyrri, verið vel tekið, hún
talin ekki gefa hinum tveim
neitt eftir, en þær urðu
metsölubækur á sínum tíma.
Þessi bók Speers fjallar
ekki aðeins um starf hans
sem vígbúnaðarmálaráð-
herra Hitlers-Þýskalands frá
1942 til stríðsloka, heldur er
þar og fjallað um Heinrich
Himmler, yfirmann SS, og
ráðagerðir hans um hlutverk
SS að lokinni heimsstyrjöld-
inni. Hér hefur Speer fengið
að vinna úr gögnum, sem
féllu Bandamönnum í hend-
ur og fjalla um þetta, en
skjöl þessi eru varðveitt í
safni í borginni Koblenz.
Albert Speer, sem var
arkitekt að menntun, segir
frá því á einum stað í hinni
nýju bók, að Himmler hafi
viljað sýna sér sérstakan
heiður og' gera hann að
heiðurshershöfðingj a
SS-sveitanna. — Þessu hafi
hann kurteislega hafnað.
Hann bætir við: „Þetta hefði
getað kostað mig líf mitt við
réttarhöldin í Núrnberg, á
sínum tíma“.
í „Old Bailey“
+ Teiknari einn í London, Júlía
Quenzler, tók með sér blokk og
blýant í hinn fræga sakadóm þar í
borg „Old Bailey" er þar var tekið
fyrir mál kvennamorðingjans Peter
Sutcliffe. Teiknaði hún þessa vett-
vangsteikningu af réttarsalnum. —
Fremst t.v. á teikningunni má sjá
hvar ógæfumaðurinn, sem bresk
blöð kalla „Yorkshire Ripper" situr
í sakborningastúkunni. — Maður-
inn með hárkolluna, sem heldur á
skjalinu, er saksóknarinn að flytja
sóknarræðu sína. Hann heitir Sir
Michael Havers. — í baksýn má svo
sjá hvar dómarinn í málinu, Bore-
ham, hlýðir á sóknarræðuna, í
dómarastúku „Old Bailey-saka-
dómsins".
Rýmingarsala
á barnafatnaði
Til að rýma fyrir nýjum vörum seljum við á
stórlækkuðu verði talsvert af barnafatnaði.
Verslunin Sigrún,
Alfheimum 4. Sími 35920.
Koparkranar fyrir vatn, gufu og
olíu, ávallt fyrirliggjandi.
VALD. POULSENf
Suðurlandsbraut 10,
sími 86499.
Peglers
MORGUNBLAOIÐMOR
MORGUNBLAÐIÐM O R
MORGUÞ/^LAÐIÐMQfc
MORGU'y
////
MORGl/£
WOMORGUNBLAÐlO
^QMORGUNBLAÐIÐ
RGUNBLAÐIÐ
^NBLAÐIÐ
LAÐIO
Blað-
burðar-
fólk
óskast
Úthverfi
Smálönd
M OíM
M<
Mf/
MORGUtöS
MORGUNBL^------
MORGUNBLAOiW'///J5W^fAOÍ1
Hringiö í síma
35408
MORGUNBLAÐIÐMOv
fNBLAÐIOMí
JlmOIO
IBLAOIO
^LAÐIÐ
/4BLAOIÐ
/0NBLAOIO
■UNBLAÐIÐ
/iGUNBLAÐIO
IGUNBLAÐIÐ