Morgunblaðið - 12.05.1981, Qupperneq 40
44
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 12. MAÍ 1981
COSPER
.11- .........
/ 8625
- ■ / (c,piB
Þar eð við erum hér alein, langar mig að segja þér
frá því sem mér liggur svo mjög á hjarta!
ást er...
• •. að kyssa vík-
inginn, svo hann
þegi.
TO ftoo U.S. Pat. Off,—aH riQhts resarved
• t98f Los Angetes Times Syndicate
oftir Konandojl!
Með
mor^unkaífmu
BersýnileKt er. að hér hefur
heimilisþjónninn ekki verið að
verki!
HÖGNI HREKKVÍSI
. mi («cm mm ac snm
Farsælast að þar sé
hver sinn gæfusmiður
Guðmundur Jóhannsson skrif-
ar:
„Því hefur oft skotið upp í huga
mínum að stinga niður penna i
þeim tilgangi að tjá afstöðu mína
til hins margrædda og stóra máls
að lögleiða notkun á bílbeltum. Nú
er ég hef lokið við lestur langrar og
ítarlegrar greinar Inga Bergmanns
í Morgunblaðinu 7. þ.m. um þetta
mál sem ég var og er sammála í
stóru og smáu og er ekki í vafa um,
að margir eru þeir sem vildu
„Lilju“ kveðið hafa. Bæði þessi
grein, svo og skrif Kristins Helga-
sonar fyrr í vetur um sama efni,
eru mjög ítarlegar og hef ég þar
litlu sem engu við að bæta en festi
þessar línur fyrst og fremst á blað
til að færa þessum mönnum þakkir
mínar fyrir að taka mál þetta til
svo gaumgæfilegrar athugunar
sem raun er á, og að óreyndu vil ég
ekki trúa öðru en löggjafinn hugsi
sig rækilega um áður en hann
veitir hér um ræddu frumvarpi
brautargengi.
„Eins hrauð er
annars nauð“
Margur hefur látið þetta mál til
sín taka og mikill áróður hafður
uppi fyrir að lögleiða notkun á
bílbeltum. Borið hefur þó á einum
öðrum fremur, að því er mér
virðist, sem er Ólafur Ólafsson
landlæknir og máli sínu til stuðn-
ings, hefur hann birt ýmsar skýrsl-
ur, sem eflaust eru réttar svo langt
sem þær ná; en hvort þær segja
allan sannleikann, það er ég ekki
eins sannfærður um. Ekki dreg ég í
efa að bæði landlækni og öðrum
þeim, sem stigið hafa hátt í
áróðrinum fyrir lögleiðingunni á
notkun bílbeltanna, gengur gott
eitt til. Ekki ber ég brigður á, að
notkun beltanna myndu í mörgum
tilfellum draga úr eða koma í veg
fyrir slys, en það réttlætir ekki allt
málið og ef þetta frumvarp, sem
fyrir liggur hjá löggjafanum, yrði
samþykkt, þá sannaðist þar, „að
eins brauð er annars nauð“.
Ilæpin stjórnviska
Eins og réttilega kemur fram hjá
Guðmundur Jóhannsson
Inga Bergmann, þá ber ekki öll slys
að með sama hætti og verða ýmsar
hliðar þar uppi á málinu. Ekki hef
ég tölur um hve margir hafa
bjargast út úr bílum á síðustu
stundu, en allmargir munu þeir
vera og hefðu þeir hinir sömu ekki
orðið til frásagnar, ef þeir með
löggjafans aðstoð eða skikkan
hefðu verið tjóðraðir við bílinn í
tortíminguna.
Hin síðasta opinbera aftaka hér
á landi var framkvæmd 1830, en
aftökuheimild úr hegningarlögum
þjóðarinnar er ekki afnumin fyrr
en 1928. Það er því stigið langt
aftur til fortíðarinnar, ef frumvarp
það, sem nú liggur fyrir Alþingi til
að skylda að nota bílbelti, verður
samþykkt, því með því er löggjaf-
inn í raun að kveða dauðadóm yfir
óákveðnum hópi manna, sem hefur
sér það eitt til saka unnið að
hlýðnast „lögum“ landsins. Mér er
ljóst, að hér eru stór orð viðhöfð, en
ég held, að erfitt yrði að skjóta sér
undan þeirri ábyrgð sem lögleið-
ingunni fylgdi. Að ætla að bjarga
einum sem á völina, hvort hann
notar bílbelti eða ekki á kostnað
annars er hæpin stjórnviska og
aðgerðir í skjóli valdsins. Kæru
áhugamenn um umferðarmál:
íhugið mál ykkar betur, áður en þið
setjið frekari þrýsting á löggjafann
til að fá umrætt frumvarp sam-
þykkt.
Verið að egna
menn til lögbrots
Takið upp harðari áróður fyrir
notkun beltanna án þess að það sé
lögþvingað. Ég er þeirrar skoðunar,
að það verði farsætast, að hver og
einn sé sinnar eigin gæfu smiður í
notkun þeirra. Slæm lög eru verri
en engin lög og hræddur er ég um,
að með samþykkt slíks frumvarps,
sem hér um ræðir, væri beinlínis
verið að egna menn til lögbrots og
megum við vart við því, ekki
löghlýðnari þjóð en við erum.“
Held að ég kysi götuna
freinur en gangstéttina
Gömul kona skrifar:
„Velvakandi!
Ég er sammála Jórunni Ólafs-
dóttur frá Sörlastöðum um að
óráðlegt sé að leyfa hjólreiðar á
gangstéttum. Ef það verður leyft,
er vandséð, hvar gangandi vegfar-
endur eiga að halda sig. Eða er
kannski gert ráð fyrir því að allir
fari leiðar sinnar á einhvers konar
ökutækjum. Með því að leyfa
hjólreiðar á gangstéttum yrðu
gangandi fólki allar bjargir bann-
aðar. Ég kem ekki auga á, hvar
maður gæti verið óhultur á eftir.
Ég held samt að ég kysi götuna
fremur en gangstéttina.
Vona að þetta nái
ckki fram að ganga
Svo undarlega vill til, að margir
bílaeigendur Ieggja bílum sínum
uppi á gangstéttum sumra gatna
og þar standa bílarnir heilu og
hálfu dagana, þó að allir viti, að
slíkt er óleyfilegt. Þetta er mikill
farartálmi fyrir gangandi fólk, og
ekki vænkast hagur þeirra, ef
hjólreiðar þar bætast ofan í kaup-
ið. Ég vona því að þetta nái ekki
fram að ganga.
Akureyri, 5. mal.“