Morgunblaðið - 14.02.1982, Side 1
33. tbl. 69. árg.
SUNNUDAGUR 14. FEBRÚAR 1982
Prentsmiðja Morgunblaðsins.
Bardagar
í Sýrlandi
Damaskus, I 5. rebrúar. VI*.
TVÖ WJSIJND velvopnaðir upp-
reisnarmenn og allt að 400 hermenn
hafa særzt í níu daga hörðum bar
dögum í borginni Hama í Sýrlandi,
miðstöð strangtrúaðra múham-
eðstrúarmanna, samkvsemt áreiðan-
legum sýrlenzkum heimildum.
Bardagarnir héldu áfram í gær
samkvæmt heimildunum og barizt
var hús úr húsi, en herinn réð við
ástandið. Sýrlenzka fréttastofan
segir að borgin verði opnuð aftur á
sunnudaginn.
Samkvæmt heimildunum voru
andstæðingar ríkisstjórnarinnar
„furðu vel vopnaðir" og bæði búnir
gagnskriðdrekavopnum og stór-
skotaliðsvopnum.
Ríkissjónvarpið í Sýrlandi seg-
ir að „tugir glæpamanna" úr
Bræðralagi múhameðstrúar-
manna hafi verið handteknir í
Hama.
Þessar upplýsingar, sem eru
runnar frá sýrlenzku herstjórn-
inni og upplýsingaráðuneytinu,
eru fyrsta staðfestingin á því að
bardagarnir í Hama hafi verið
eitthvað annað og meira en lög-
regluaðgerð gegn Bræðralagi
múhameðstrúarmanna, sem berst
gegn Rússahollri stjórn Hafez
Assad forseta.
Nophia Loren
Sophia vill
njóta lífsins
\cw Vork, 1.1. fförúar. VI*.
LKIKKONAN Sophia Loren hefur
látið hafa það eftir sér, að hún ætli
að fara að „njóta lífsins sem
kona“ og taka upp nýja lífshætti í
þcim tilgangi. Talið er, að stutt sé í
að þau ('arlo l’onti skilji endan-
lcga að skiptum, enda Loren sögð í
tygjum við franskan leikara um
þessar mundir.
„Við hjónin höfum aldrei rætt
um þessa hluti, enda væru þeir
líka ofvaxnir skilningi Pontis,
sagði Sophia Loren í viðtali. „Nú
ætla ég að láta tilfinningarnar
stjórna gerðum mínum og fá það
út úr lífinu sem ég get sem kona.
Ég ætla að reyna nýjan lífsmáta
og mér er alveg sama um afleið-
ingarnar."
Sophia sagði að hjúskapur
þeirra Pontis hefði verið ákaf-
lega sléttur og felldur og að
sama skapi tilfinningalaus. Nú
segist hún ætla að fara að njóta
æskunnar, sem hún hafi farið á
mis við á sínum tíma.
Afturhluti olíuflutningaskipsins „Victory**, sem brotnaði í tvennt í miklu óveðri á Atlantshafi, um 500 km norður af
Azoreyjum. Al’-símamynd.
17 mönnum bjargað
f þyrlu á Atlantshafi
Kalmoulh, UI. fohrúar. Al*.
SAUTJÁN mönnum var í dag bjarg-
að af skut gríska olíuflutningaskips-
ins „Victory“, sem brotnaði, þegar
þeir höfðu verið á reki í rúma 33
tíma í ofsaveðri 500 km norður af
Azoreyjum.
Mönnunum var bjargað t hol-
lenzkri Lynx-þyrlu sem flutti þá um
borð í hollenzka freigátu, sem var í
32 km fjarlægð, og hélt síðan áfram
leit að 15 mönnum sem enn var
saknað af olíuskipinu.
Óttazt er að minnst 12 af 32
manna áhöfn hafi drukknað þegar
björgunarbát þeirra hvolfdi. Þrír
menn aðrir fóru frá borði í nótt
þegar hallinn á skutnum var orðinn
45 gráður. Vonað er að þeir hafi
komizt um borð í einn 17 björgun-
arbáta sem var hent út úr flugvél.
Þar sem hallinn á skutnum var
orðinn svo mikill töluðu mennirnir
um það nokkrum sinnum í talstöð í
nótt að stökkva fyrir borð. Línu var
skotið 12 til 15 sinnum frá tveimur
brezkum kaupskipum, en línurnar
slitnuðu.
Þegar dró úr veðurofsanum undir
morgun voru tvær Lynx-þyrlur
sendar frá tveimur hollenzkum
freigátum til að freista þess að
bjarga mönnunum, en önnur þyrlan
varð að hætta við björgunartilraun-
ina vegna vélarbilunar. Þótt öldu-
hæð væri níu metrar og vindhraði
112 km á klst. tókst að bjarga
mönnunum með hinni þyrlunni um
kl. hálfníu í morgun.
Þyrlan var í stöðugum ferðum
milli „Victory" og freigátunnar í
einn og hálfan tíma þar til síðustu
mönnunum hafði verið bjargað.
Læknir var um borð í þyrlunni.
Talsmaður ensku strandgæzlunn-
ar í Falmouth sagði: „Fyrri áfanga
björgunarinnar er lokið og 17 af 32
áhafnarmeðlimum hefur verið
bjargað. í síðari áfanga verða 17
björgunarbátar á svæðinu kannaðir
til að athuga hvort fleiri komust lífs
af. Siðan verður gerð lokaleit á
svæðinu."
Hollenzku freigáturnar „van
Speyk“ og „Callenberg" sigldu með
skipbrotsmennina til Azoreyja.
Orrustan við Litla-Stórhorn:
Segir Custer hafa framið
sjálfsmorð með liði sínu
Orlando, Klorida, l.'l. D'brúar. Al*.
SÚ KENNINd, að George Custer
hershöfðingi og hermenn hans hafi
ráðið sér bana fremur en að falla í
hendur indíánum við Litla-Stórhorn
hefur skotið upp kollinum á ráðstefnu
réttarlækna í Florida í Bandaríkjun-
um.
Jerry Spencer, sjúkdómafræð-
ingur hjá bandaríska sjóhernum,
hélt því fram á ráðstefnunni, að
Custer hershöfðingi og 224 af
mönnum hans úr Sjöundu riddara-
liðsdeildinni hafi stytt sér aldur
fremur en falla í hendur ofurefli
liðs Sioux- og Cheyenne-indíána.
Spencer hvatti til, að lík hermann-
anna yrðu grafin upp, því að
„beinagrindurnar munu segja
okkur alla söguna“.
Kenning Spencers er byggð á
arfsögnum indiána og á bók, sem
fjallar um þessa sögufrægu orrustu
og heitir „Geymdu sjálfum þér síð-
ustu kúluna", eftir dr. Thomas
Marquis. Spencer hefur farið fram
á, að grafir hermannanna verði
teknar upp, en hefur enn ekki feng-
ið til þess tilskilin leyfi.
Til þessa hefur sagnfræðingum
komið saman um, að Custer og
menn hans hafi fallið fyrir indíán-
um í fyrirsátrinu við Litla-Stór-
horn 24. júní 1876, og ekki allfjarri
eru þeir flestir grafnir. Custer
sjálfur er þó grafinn í West Point í
New York.
E1 Salvador:
Hart
barist
San Salvador, 13. fi brúar. Al*.
MIKLIR bardagar geisuðu í gær,
fóstudag, milli sljórnarhersins og
uppreisnarmanna í El Salvador í Us-
ulutan-héraði í suðausturhluta
landsins þar sem skæruliðar hafa
mikið látið að sér kveða að undan-
fórnu.
Haft er eftir talsmönnum hers-
ins, að fjöldamargir skæruliðar
hafi fallið í síðustu sókninni á
hendur uppreisnarmönnum en í
henni hafa tekið þátt hermenn
sérstaklega þjálfaðir í skæruhern-
aði. Allur runnagróður umhverfis
Usulutan-borg hefur verið
brenndur til ösku til að skæruliðar
geti ekki skýlt sér í honum þegar
þeir gera árásir á borgina en þeir
eru taldir hvað liðflestir í þessum
landshluta.
Mannréttindasamtökin í E1
Salvador telja, að 32.000 manns
hafi fallið í manndrápunum, sem
hafa staðið linnulaust í 27 mánuði
eða síðan herforingjastjórnin tók
völdin í sínar hendur með bylt-
ingu. Að þeirra sögn bera báðir
aðilar ábyrgð á morðunum en þó
einkum stjórnarherinn.
Tilkynnt var í Bandaríkjunum í
gær, að 250.000 dollurum yrði var-
ið til að þjálfa stjórnarhermenn í
Guatemala svo fremi stjórnvöld
bæti orðstír sinn í mannréttinda-
málum. Bandarískir þingmenn eru
ekki allir á því að Guatemala-
stjórn verðskuldi stuðning þeirra
og er búist við mikilli andstöðu við
hann á þingi.
Powell látin
IU-\crl> llill.s. 13. febrúar. \l*.
ELEANOR Powell, einhver skærasta
dansstjaman í Hollywood á árum áður,
er látin úr krabbameini 69 ára að aldri.
Ilún lék í mörgum kunnum söngleikja-
myndum eins og t.d. „Kosalie",
„Honolulu", „Lady Be Good" og
„Born to Dance“.
Powell var hvað frægust á fimmta
áratugnum en lagði leik og dans á
hilluna 1943 þegar hún giftist leikar-
anum Glenn Ford, sem þá var farinn
að geta sér gott orð. Þau áttu einn
son saman en skildu árið 1959. Hún
tók þá upp þráðinn aftur þar sem frá
var horfið í stuttan tíma en hafði
ekkert komið fram opinberlega í tvo
áratugi.
George Custer hershöfðingi.