Morgunblaðið - 14.02.1982, Síða 7
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 14. FEBRÚAR 1982
HUGVEKJA
eftir séra Ólaf Skúlason dómprófast
Einn dag velur kirkjan
okkur til þess að minna sér-
staklega á Biblíuna, og kallar
því daginn Biblíudaginn. Á
þetta sína hliðstæðu í því, að
einn sunnudagur er kallaður
bænadagur kirkjunnar, enda
þótt ekki þurfi að taka það
fram, að bænin er ekki tak-
mörkuð við einn sunnudag,
ekki að heldur neinn sérstakan
dag, heldur en bænaiðjan
hverjum degi ætluð. Svo mun
það einnig vera, hvað Biblíuna
sjálfa áhrærir, enda þótt einn
dagur kirkjuársins beri heiti
hennar. Allir dagar eiga að
vera dagar Biblíunnar, ekkert
síður en bænarinnar, þar sem
Biblíuna þarf að lesa, hugleiða
efni hennar og tengja hvoru
tveggja bæninni.
Og þessi annar sunnudagur í
níuviknaföstu, þegar lestur
Passíusálmanna er rétt kom-
Biblíudagurinn:
Bók
inn af stað, er dagur Biblíunn-
ar. Það er eðlilegt að svo sé,
þegar litið er til guðspjalls
dagsins. Það fjallar um sáð-
manninn, sem dreifði sæðinu
með hendi sinni víðs vegar,
unz allt var komið þar yfir,
sem hann hafði gengið. En
hann virðist harla kærulaus,
þessi sáðmaður, þar sem hann
gætir þess ekki nógu vandlega,
hvar sæðið hans fellur, og þess
vegna er það útilokað, að hann
nái þeim bezta árangri, sem
hugsanlegur er. Jafnvel borg-
arbúi, að maður tali nú ekki
um meðal bónda, gæti því
kennt honum margt. Þar væri
hægt að benda á samsetningu
gróðurmoldar, fjalla um ýmiss
konar efni, sem þar þurfa að
vera til staðar, til þess að vöxt-
ur sæðisins verði sem bezt
tryggður, og það er þá ekki sízt
nauðsynlegt að huga að áburði,
og hvernig bezt sé að blanda
honum við gróðurmoldina, áð-
ur en sæðið fellur.
En nú fer vitanlega ekki
milli mála, að sæðið í dæmi-
sögunni er Guðs orð, og þá för-
um við nærri um það, hver
muni hinn margvíslegi jarð-
vegur, sem þetta orð Guðs fell-
ur í. Þar hljótum við að þekkja
okkur sjálf. Hversu oft höfum
við ekki verið eins og þyrnum
þakin jörð, þegar orð Guðs
hefur verið boðað okkur? Eða
mætti kannski finna í huga
okkar líkingu við hörku göt-
unnar, sem gerir sáðkorninu
ómögulegt að spíra og skjóta
rótum? Og þekkjum við þá
kannski líka frá einhverjum
stundum, að við höfum verið
eins og sá jarðvegur, sem bezt
tryggir ávöxt með margföldun
útsæðis, þegar allt það er til
staðar, sem bezt tryggir
árangur?
Nei, lánsöm erum við, að sá
sem sæðinu dreifir er ekki
vandlátur, heldur gefur öllum
hið sama tækifæri. Þakklát
megum við vera, að hann velur
ekki aðeins þá úr, sem mestar
líkur finnast hjá um góðan
ávöxt og þar með um góðan
árangur. Hætt er við, að þá
mundu mörg okkar verða af-
skipt, sem í dag höfum nóg
tækifæri til þess að taka í móti
og vonandi þá einnig, einhvern
tímann eða á vissum stundum,
að verða svo næm fyrir hinu
rétta samspili bænar og lest-
urs, að líkja megi við þann
jarðveg, sem skilaði mótteknu
jafnvel hundraðföldu.
En snúum okkur aftur að
bókinni, þar sem sæðið hefur
verið blaðfest og varðveitt.
Gömul er hún, og ná rætur
jafnvel miklu lengra aftur,
heldur en til þeirra einstakl-
inga, sem fyrst eru nafn-
greindir til sögunnar. Með
vissum rétti má segja það, að
orð Guðs, sem Biblían varð-
veitir, sé jafngamalt mannin-
um sjálfum sem hugsandi ein-
staklingi, þar sem maðurinn
hlaut að fara að leita tilgangs
með lífi sínu, um leið og hann
fór að reyna að gera sér grein
fyrir sjálfum sér, og þá leitaði
hugur hans til upphafs, og þar
tók hann til við að gera sér
grein fyrir Guði. Vissulega var
Og nú er ný Biblíuþýðing kom-
in út og hefur verið kynnt. I
3ja hefti Kirkjuritsins 1981,
sem Prestafélag íslands gefur
út, er merk grein eftir dr. Þóri
Kr. Þórðarson, þar sem hann
veitir lesanda margvíslega
hjálp til undirbúnings þess, að
árangur fylgi þegar Biblían er
skoðuð og lesin. Hún er nefni-
lega ekki auðveld, og það er
hægt að misstíga sig til fót-
brots á síðum hennar, ef
fyllsta aðgæzla er ekki viðhöfð
og að því hugað, hvert stefnt
er. Og um leið og ég bendi á
þessa grein prófessorsins, þá
harma ég það, að umræður ha-
fa ekki verið meiri um þessa
Biblíu-þýðingu og þessa tíundu
útgáfu ritningarinnar á ís-
lenzku en raun ber vitni. Von-
andi er, að því valdi frekar
virðing fyrir Biblíunni og
þeim, sem þar hafa fjallað um,
Guðs og manns
sú mynd ófullkomin í upphafi,
rétt eins og sköpunarfrásagan
upplýsir í undurfögru ljóði
sínu á upphafssíðum þessarar
miklu bókar, þar sem það hef-
ur löngu síðar verið skráð, sem
fyrr hefur verið kveðið um í
kyrrð kvöldsins og einn varð-
veitt til að segja öðrum.
Kannski þar hafi verið værð-
arsöngur móður yfir barni
sínu eða öldungur skilað sem
arfi í hendur hinum ungu, þar
til jöngu síðar, að það var fest
í skráðu letri?
Þær voru því furðulegar
skammdegisumræðurnar um
sköpun og trú í fyrra. Og engin
furða, þótt maður spyrji sjálf-
an sig um árangur fermingar-
fræðslunnar, þegar fáfræðin
kom þar svo átakanlega í ljós.
Þar var svo margt, sem
hryggði, af því að sumir virt-
ust álíta, að við einhvern lest-
ur í rúnum vísindanna, hefðu
þeir öðlazt þann sannleika, að
hann útilokaði trúna, og þeim
var svo aftur svarað af öðrum,
sem vildu taka hvern stafkrók
og túlka hann þannig, að þar
hefði Guð sjálfur lesið skrifara
sínum fyrir og því mætti þar
við engu hrófla og taka öllu
sem jafnþýðingarmiklu, aðeins
ef það fyndist á síðum hinnar
helgu bókar.
En Guð starfar ekki þannig,
og fátt segir okkur það einmitt
greinilegar en bókin hans
sjálfs. Þar er ekki allt eins,
þótt fjallað sé um sömu at-
burði. Þar er ekki allt eins,
þótt fjallað sé um sömu at-
burði. Þar er ekki allt jafnt,
ekki einu sinni allt fagurt og
til eftirbreytni. Og þessu er
einfaldlega þann veg farið, af
því að Guð lætur sæði sitt falla
víðar en þar, sem uppskeran er
tryggð fyrirfram, og fyrir það
höfum við von, öll, en ekki að-
eins þeir, sem búa yfir hundr-
aðföldum gróðurmætti. Opin-
berun Guðs er ekki stein-
runnin, hún er stöðug verð-
andi, alltaf að fæðast, alltaf að
þroskast, af því að við erum að
breytast, og við erum kerið,
sem djásnið varðveitir.
Meðal annars vegna hins
framanskráða er nauðsynlegt
að endurskoða þýðingu á ritum
Biblíunnar og framsetningu.
heldur en áhugaleysi á Guðs
orði.
Og nú er dagur Biblíunnar
og aðalfundur elzta íslenzka
félagsins, Biblíufélagsins og er
hann öHurr. opinn eins og fé
lagið er sjálft. En allt starf
þess miðar að því að gera Bibl-
íuna handgengna sem allra
flestum og veita um leið skýr-
ingar og leiðsögn. Og það væri
óskandi, að sem flestir þægju
slíkt og margir Biblíudagar
fylgdu. Hér er ekki fjallað um
löngu liðna viðburði, heldur
sýnir bókin okkur hin lifandi
Guð að starfi og í hinni hæstu
opinberun sonarins sjálfs. En
hún sýnir okkur líka manninn,
sköpun Guðs. Ekki aðeins
manninn í árdaga eða fyrir
öldum, heldur manninn eins og
hann er í dag, með dyggð sinni
eða brestum, með hörku sinni
eða kærleika, með trú sinni
eða sjálfselsku.
Ný Biblíu-þýðing'kemur með
ný orð, og það er eðlilegt og
nauðsynlegt, tímarnir breytast
og málið með. En eitt er þó
óbreytanlegt, og það er Orðið,
sem við fögnum ekki aðeins á
helgum jólum, heldur allt árið,
því Orðið er Jesús. Hann er
óbreytanlegur, af því að kær-
leikurinn breytist ekki, af því
að Guð er hinn sami frá eilífð
til eilífðar. Vegna hans er
Biblían til, en ekki hann vegna
hennar. Opinberunin felst þess
vegna aldrei í bókstaf, hún er í
andanum, sem sveigist til sam-
ræmis við allt það, sem lifir, og
til samræmis við skilning
kynslóðanna.
Sáðmaðurinn var ekki
hirðulaus, hann var kærleiks-
ríkur, svo að allir gætu fengið,
en ekki aðeins hinir „beztu“.
Okkur er fengið sáðkornið í
bók Guðs, þannig kynnumst
við honum og okkur sjálfum
um leið. Biblíudagurinn er því
ekki síður dagur mannsins,
ekki hins steinrunna manns,
heldur mannsins, sem í dag
gengur um götur, breyskur en
þó með von, harður, en þó þess
umkominn að taka á móti sæð-
inu, svo að ávöxtur þess verði
sýnilegur. Trúin vex nærð af
anda Guðs, sú næring felst í
bókinni hans í samfélagi kirkj-
unnar.
MATVÖRUBÚÐ
TIL LEIGU
Matvörubúö í góöu hverfi í Reykjavík til leigu, góö
velta, miklir framtíðarmöguleikar. Mjög góö bíla-
stæöi. Tilboö sendist Morgunblaöinu fyrir 18 þ.m.,
merkt: „Góö sala — gott hverfi — 8372“.
Dýralæknir
Viötalstímar daglega eftir umtali.
Helga Finnsdóttir, dýralæknir,
Skipasundi 15,
sími 37107.
Verðlækkun
á veióarfærum
Viö bjóðum nú verulega verölækkun á útgerö-
arvörum frá COTESI í Portúgal, svo sem botn-
vörpuneti til afgreiöslu beint úr Tollvöru-
geymslu, tilbúnum botnvörpum og hlutum í
þær, blýteinum fyrir þorskanet, bólfæraefni,
landfestatógi o.fl.
Símar 13480 — 15953.
HF.
GENGI VERÐBRÉFA 14. FEBRÚAR 1982
VERÐTRYGGÐ SPARISKÍRTEINI Sölugengi pr. kr. 100.-
RÍKISSJÓÐS:
1970 1. flokkur 7.537.49
1970 2. flokkur 6.053,36
1971 1. flokkur 5.332,33
1972 1. flokkur 4.667,11
1972 2. flokkur 3.961,07
1973 1. flokkur A 2.907,95
1973 2. flokkur 2.678.46
1974 1. flokkur 1.849,12
1975 1. flokkur 1.515,89
1975 2. flokkur 1.141,84
1976 1. flokkur 1.081,87
1976 2. flokkur 869,23
1977 1. flokkur 807,33
1977 2. flokkur 675,99
1978 1. flokkur 550,90
1978 2. flokkur 434,79
1979 1. flokkur 367.64
1979 2. flokkur 285.27
1980 1. flokkur 215,70
1980 2. flokkur 170,12
1981 1. flokkur 149,27
1981 2. flokkur 111,80
tryanin*..«m»risk»rteina umfram verö- Iryg^^!! «3.2-6%.
VERDTRYGGÐ
HAPPDRÆTTISLÁN
RÍKISSJÓÐS
Innlausnarverd
Sedlabankans
m.v. 1 árs tímabil frá:
05.02. 1982 5.835,90
25.01. 1982 4.490,55
25.01. 1982 2.578,29
10.01. 1982 1.456,40
25.01. 1982 1.098,93
10.03. 1982 1.046.64
25.01. 1982 836.35
25.03. 1982 780.59
VEÐSKULDABRÉF
ÓVERÐTRYGGÐ:
Sölugengi m.v. nafnvexti
(HLV)
12% 14% 16% 18% 20% 40%
1 ár 68 69 70 72 73 82
2 ár 57 59 60 62 63 77
3 ár 49 51 53 54 56 73
4 ár 43 45 47 49 51 71
5 ár 38 40 42 44 46 68
VEDSKULDABRÉF
MEÐ LANSK JARAVÍSITOLU:
A — 1972 2.672,19 Sölugengi m.v. nafnvexti Avöxtun
B — 1973 2,178.83 2*/a% (HLV) umfram
C — 1973 1.853,02 1 afb./ári 2 afb./ári verðtr.
D — 1974 1.571,33 1 ár 95.79 96.85 7%
E — 1974 1.074,85 2 ár 93,83 94,86 7%
F — 1974 1.074.85 3 ár 91,95 92,96 7%
G — 1975 712,98 4 ár 90.15 91,14 7%
H — 1976 679,38 5 ár 88.43 89,40 7%
I — 1976 516,91 6 ar 86.13 87.13 7%%
J — 1977 480.98 7 ár 84.49 85.47 7V«%
Ofanskráð gengi er m.v. 5% ávöxtun 8 ar 82.14 83.15 7Va%
p.á. umfram verðtryggingu auk vinn- 9 ar 80,58 81,57 7 V?%
ingsvonar. Happdrættisbréfin eru gef- 10 ár 77,38 78.42 8%
in út á handhafa. 15 ár 70.48 71.42 8%
TÖKUM OFANSKRÁÐ VERÐBRÉF í UMBOOSSÖLU
mbiKniMMNiM ísumim ma
VERÐBRÉFAMARKAÐUR, LÆKJARGÖTU 12 R.
lönaöarbankahúsinu. Sími 28566.
Opið alla virka daga frá kl. 9.30—16.