Morgunblaðið - 14.02.1982, Side 18
18
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 14. FEBRÚAR 1982
HANN ER KOMINN
FORD FIESTA ‘82
Eftír langt hlé getum við nú aftur boðið
viðskiptavinum okkar Ford Fiesta til kaups.
Ford Fiesta er rúmgóður og lipur
Qölsl^idubíll með framhjóladrifi
og eyðslugrannri 1100 cc. vél.
Eyðsla aðeins 6.01. pr. 100 km
miðað við 90 km/klst
1982 árgerðin af Ford Fiesta er búin
ýmsum endurbótum frá fyrri árgerðum.
Par má td. nefna mýkri og lengri
ijöðrun, stærri og betur bólstruð sæti,
nýjasterka höggvara, pústkerfi
með tvöfaldri normal endingu.
Verð: Fiesta 1100 L... .kr. 112.000.00
Fiesta 1100 GL . .kr. 121.000.00
FORD FIESTA
ÞÝZKUR GÆÐABÍLL
Sveinn Egi/sson hf.
SKEIFUNNI 17 SÍMI 85100
Munið bflasýninguna í dag
opiðfrákl. 10-17.
Hólaskóli 100 ára:
Gamlir
nemendur
ætla að gefa
skólanum
sundlaug
í TILEFNI 100 ára afmælis
Hólaskóla á þessu ári hafa
nokkrir af eldri búfræðingum
frá Hólaskóla tekið sig saman
um að efna til sameiginlegrar
gjafar til skólans.
Framkvæmdanefnd hefur ver-
ið mynduð og mun hún á næst-
unni leita til allra Hólamanna
sem á lífi eru og næst til með
ósk um þátttöku í gjöfinni.
Hugmyndin er að gefa skólan-
um sundlaug og er verið að kanna
það mál í samráði við skólastjóra
og tæknimenn, sem unnið hafa að
hitaveitunni á Hólum og endur-
bótum á staðnum. Tilboða hefur
verið leitað og bendir allt til þess
að koma megi upp góðri sundlaug
og tilheyrandi aðstöðu við íþrótta-
húsið á Hólum fyrir um það bil
500—600 þúsund krónur.
Nefndin hefur þegar opnað
sparisjóðsreikning í Búnaðar-
bankanum á Sauðárkróki. Reikn-
ingsnúmerið er 11000.
Bráðlega verða gíróseðiar stíl-
aðir á þennan reikning sendir til
allra „gamalla" Hólamanna. En
þar sem ætla má að ekki náist til
allra m.a. vegna breyttra heimil-
isfanga, væntir nefndin þess að
þeir sem ekki fá seðla næstu vik-
urnar og leggja vilja nokkuð til
gjafarinnar leggi það inn á nefnd-
an reikning, en það er hægt að
gera í hvaða banka sem er.
Aðrir sem hafa áhuga á að
heiðra Hólastað í tilefni afmælis-
ins geta að sjálfsögðu einnig kom-
ið framlögum til sundlaugasjóðs-
ins á sama hátt.
Ætlun er að varðveita nöfn
allra gefenda í sérstakri bók á
Hólum. Þess má geta að fyrirtæk-
ið Fjölhönnun, sem séð hefur um
hitaveituna á Hólum, hefur ákveð-
ið að gefa alla vinnu við tækni-
legan undirbúning málsins og
veitir það hverskonar ráðgjöf í
þessu sambandi ókeypis.
í framkvæmdanefndinni eru:
Gísli Pálsson, bóndi á Hofi í
Vatnsdal, sem er formaður, Ásgeir
Bjarnason, bóndi í Ásgarði, for-
maður Búnaðarfélags íslands,
Guðmundur Jóhannsson, bókari,
Hjaltabakka 14, Reykjavík, Jónas
Jónsson, búnaðarmálastjóri, og
Stefán H. Sigfússon, landgræðslu-
fulltrúi, Sogavegi 36, Reykjavík.
Hitaveita var lögð að Hólum á
síðastliðnu ári og er gnægð af
heitu vatni, sem ekki nýtist. Það
væri vissulega ánægjulegt ef þar
yrði komin vel búin sundlaug, gjöf
frá „gömlum Hólamönnum" þegar
100 ára afmælis skólans verður
minnst 4. júlí á"komandi sumri, en
að því er stefnt. (Frónalilkynninc)
WELEDA
Þú getur treyat Weleda. Hreinar jurtasnyrtivörur,
sem standa at sór alla samkeppni. Weleda lotion,
Weleda hreinsimjólk, Weleda nætur- og dagkrem,
Weleda gigtar- og slitolíur, Weleda hár- og baöolíur,
Weleda tannkrem og munnskol, Weleda sjampó og
sápur. Fegrunarsnyrtivörur, meö græöandi eigin-
leika, fyrir alla fjölskylduna, barniö, pabba og
mömmu.
Snyrtivöruhorn Þumalínu, Leifsg. 32, a. 12136.
Póstsendum.
ÞUMALÍNA