Morgunblaðið - 14.02.1982, Qupperneq 21
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 14. FEBRÚAR 1982
21
„Lómur hefur sig til nugs", æting frá 1917. Fuglar voru Lennart Segerstrále
ætíd hugstæðir.
Gömul mynd. Olíumálverk af fiskimönnum í finnska skerjagarðinum.
Hluti af freskunni „Við lífsfljótið" frá árinu 1963.
Þrír ættliðir listmálara: Hanna Frosterus, Lennart og Ulf Segerstrále.
„Kristur". Vatnslitamynd frá árinu 1953.
dapurlegu samtímaviðburðir í
heiminum. Þar er að finna nýja
myndbyggingu og þann hug-
myndalega grundvöll sem átti
eftir að einkenna list hans æ síð-
an.“
Eftir síðari heimsstyrjöldina
hófst tímabil stóru freskanna í
list Segerstrále. Hann málaði
altarisfreskur í kirkjur um allt
Finnland og víða í Svíþjóð. I
kringum 1960 málaði hann
fresku í Sviss og 1964 málaði
hann freskuna i Saurbæ á
Hvalfjarðarströnd að frum-
kvæði séra Sigurjóns Guðjóns-
son, en Loftur Bjarnason í Hval
hf. kostaði verkið og gaf kirkj-
unni.
Lennart Segerstrále var mjög
trúaður og kemur það fram í
verkum hans, enda þótt þar megi
jafnmikið sjá af veraldlegum og
trúarlegum myndefnum.
Sjálfur vitnaði hann iðulega í
Jaques Maritain í þessu sam-
bandi, en hann sagði einhverju
sinni: „Það er ekki áríðandi fyrir
kristinn listamann að skapa
kristilega list, það er meira áríð-
andi fyrir hann að vera kristinn
og skapa góða list.“
Þrír ættlidir listmálara
„Arið 1980 var haldin sýning á
listaverkum eftir þrjá ættliði
Segerstrále-ættarinnar, sem öll
voru miklir listamenn. Það voru
þau Hanna Frosterus-Seger-
strále (1867—1946), sonur henn-
ar Lennart og sonur hans Ulf
Segerstrále (1916—1944). Þessi
sýning vakti mikla athygli enda
ekki algengt að slíkt listfengi
gangi í erfðir í þrjár kynslóðir.
Hanne Frosterus lærði í París
á níunda tug síðustu aldar og
varð þá fyrir miklum áhrifum af
natúralismanum. Á æskuárum
sínum hafði hún einhvern tíma
látið í ljós þá ósk sína að fá að
vera listmálari, húsmóðir og
eignast tíu börn. Henni tókst það
allt, nema hvað börn hennar
urðu ekki fleiri en átta. í mynd-
um sínum lýsir hún fyrst og
fremst mannlífi innan veggja
heimilisins.
Sonarsonur hennar Ulf Seg-
erstrále sem dó fyrir aldur fram
í lok stríðsins, málaði hins vegar
mest myndir í natúralískum
anda af smágerðum fyrirbærum
í náttúrunni, sem og af fólki.
Þekktastur þessara þriggja
ættliða listmálara af Seger-
strále-ættinni varð þó Lennart
og ég hef kynnst því á ferðum
mínum með þessa dagskrá, sem
ég hef gert um hann, að hann á
ekki aðeins erindi til Finna eða
Norðurlandabúa, sem þekkja
þann grundvöll naíð sem hann
byggir á í myndverkum sínum.
Þegar ég sýndi dagskrána í
Sviss fyrir nokkrum árum, voru
meðal annarra viðstaddir all-
margir Afríkubúar sem varla
höfðu heyrt minnst á listamann-
inn áður. Þeir urðu engu að síður
djúpt snortnir af íist hans og
sögu.
Eg var vitanlega mjög ánægð-
ur með þessar viðtökur bæði
vegna þess að mér virtist að
dagskráin hefði heppnast vel hjá
mér og ekki síður fyrir hönd
móðurafa míns sáluga."
— SIB
Valur Gíslason
manns eða málefnis? Mér er nær
að halda, að hann gæti ekki einu
sinni strítt starfsbróður sínum af
því að honum væri dálitið í nöp við
hann. Ég heyrði Poul Reumert
einu sinni segja þá sögu, að sig
hafi langað til þess að ná sér
dálítið niðri á einum kollega sín-
um við Konunglega leikhúsið,
enda sagðist hann hafa talið hann
litinn leikara. Við skulum segja,
að hann hafi heitið Hansen.
Reumert sagðist einu sinni hafa
hitt hann að morgni dags í leikh-
úsinu og þá sagt við hann: „Það
var skrítið, herra Hansen, en mig
var að dreyma yður í nótt.“ „Það
er merkilegt," sagði Hansen.
„Hvað dreymdi yður?“ „Jú,“ sagði
Reumert, „mér fannst ég vera dá-
inn og vera kominn að Gullna
hliðinu til Sánkti Péturs og ætlaði
inn. En hann vildi ekki hleypa mér
inn, þar væri ekkert pláss fyrir
leikara. En ég grátbað hann um að
lofa mér þó ekki væri nema að
kíkja rétt sem snöggvast inn fyrir.
Það féllst Sánkti Pétur loksins á.
En þegar ég gægist inn fyrir,
hvern sé ég þá nema yður, herra
Hansen. Og þá segi ég auðvitað við
Sánkti Pétur: „Þér sögðust ekki
hafa neitt pláss fyrir leikara. En
þarna sé ég herra Hansen." Þá
segir Sánkti Pétur: „Herra Ha-
nsen. Hann var aldrei neinn leik-
ari.“
Valur Gíslason er áreiðanlega
nógu gamansamur til þess að geta
hafa sagt þetta, en hefði hann
haldið, að hann særði með því
kollega sinn, held ég, að hann
hefði látið það ósagt. Þannig mað-
ur er Valur Gíslason. Þetta veit
auðvitað enginn betur en kona
hans. Og það er ég líka handviss
um, að ef hann væri ekki einmitt
svona maður, þá hefði hann ekki
eignazt jafngóða og merkiléga
konu og Laufeyju Árnadóttur.
Ef ég reyni að gera mér grein
fyrir því, i hverju galdur listar
Vals Gíslasonar er fólginn, kemur
mér í hug atvik úr sögu málara-
listarinnar. Picasso hélt einu sinni
endur fyrir löngu sýningu í New
York. Það var á hinu svo kallaða
bláa tímabili hans, allt abstrakt,
og hann hafði alltaf bláan gítar
einhvers staðar á myndinni. Sum-
ir gagnrýnendur sögðu sýninguna
vera hneyksli. Aðrir sögðu, að
þarna væri á ferðinni málari, sem
yrði talinn mesti málari aldarinn-
ar. Af þessu tilefni sendi ungt
skáld þessa vísu til New York
Times:
Thuy say you play Iht* blut* títi it «•» r.
Why don’l you play ihinijs as iht*y art*?
And I rt*ply: Thinj’s as lht*y an*.
art* t han^t'd upon Iht* lilut* ^uilar.
Hliðstætt á við um Val Gísla-
son. Með bláum gítar snilldarinn-
ar í brjósti sínu breytir hann
sjálfum sér á leiksviðinu í það,
sem hann vill sýna okkur, án þess
þó nokkurn tíma að hætta að vera
Valur Gíslason.
Ég sagði áðan, að Valur Gísla-
son væri ekki aðeins mikill lista-
maður, hann væri einnig mikill
maður. Mig langar að endingu til
að bæta því við, að mér hefur allt-
af fundizt Valur Gíslason vera
einn fárra íslendinga, sem með
sanni væri hægt að nefna fyrir-
mann, höfðingja, hann vera eins
og brezkur aðalsmaður, eins og
þeir gerast beztir, heldri maður í
beztu merkingu þess orðs. Það er
gaman að hafa fengið að kynnast
slíkum manni, og ekki aðeins gam-
an, heldur einnig lærdómsríkt.
Ég veit, að ekki aðeins við, sem
hér erum í kvöld, þökkum Val
Gíslasyni fyrir list hans og fyrir
kynnin af honum.
Það gerir öll þjóðin. Með þeim
orðum langar mig til þess að biðja
ykkur að lyfta glösum og skála
fyrir Val og Laufeyju.“
OPIÐ í DAG FRÁ 14—18
Nýja línan
frá HAFA
nú einnig fáanleg í hvítu
Nýtísku HAFA baöinnréttingar í baöherbergið
yöar.
Mjög fjölbreytt úrval. Afgreiöum samdægurs.
Einnig nýkomnar sauna-hurðir.
VALD. POULSEN?
SUDURLANDSBRAUT10
sími 86499