Morgunblaðið - 14.02.1982, Page 22
22
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 14. FEBRÚAR 1982
Jóhann Jakobsson, efnaverkfræðingur á rannsóknastofu sinni, ásamt syni sínum, Lárusi, sem starfar þar með honum.
Olían er eins og blóðið
segir til um heilsu vélarinnar
Rannsóknir af ýmsu tagi og þörfin fyrir rannsóknastarfsemi hefur med
nútíma lifnaóarháttum og aukinni tækni farið mjög vaxandi á undanförnum
áratugum. Á íslandi hefur nær öll slík starfsemi verið í höndum opinberra
stofnana. Ekki þó alveg. Til er einkarannsóknastofa, Efnarannsókna- og
verkfræðistofan Fjölver sem selur þjónustu sína og hefur gert það í 20 ár,
þótt ekki hafi hennar verið getið í blöðum. Eigandinn er Jóhann Jakobsson
efnaverkfræðingur og hann er svo ákveðinn í að þannig vilji hann haga sínu
starfi, að hann hefur þrisvar sinnum sagt lausum stöðum hjá ríkinu til að
geta starfað sjálfstætt. Hann var á sínum tíma í 16 ár sérfræðingur og síðar
forstöðumaður Iðnaðardeildar Atvinnudeildar HÍ, sem síðar varð Rann-
sóknastofnun iðnaðarins. Var þá farið að langa til þess að breyta til og prófa
eitthvað nýtt. Seinna var hann með störfum við rannsóknastofu sína for
stöðumaður Almannavarna og enn seinna í 3 ár verksmiðjustjóri í Sements-
verksmiðjunni og leigði þá stofuna á meðan. En þegar kom að því að hann
velja a milli, gat hann ekki
stofu, segir hann. Og síðan hefur þar
Jóhann tekur að sér tæknilegar
rannsóknir og prófanir. Frétta-
maður Mbl. lagði leið sína út í Ör-
firisey, þar sem hann hefur rúm-
góða rannsóknastofu. Flutti þang-
að fyrir 3 árum. Hann byrjaði 1.
febrúar 1962 við þröngar aðstæður
í Garðastræti 45. — Fékk húsnæði
hjá þeim öðlingsmanni Sighvati
Einarssyni pípulagningameistara,
segir hann. Og þar var hann með
rannsóknastarfsemi sína í 17 ár.
— Grundvöllur þess að hægt
var að reka slíka rannsóknastofu,
var sá að ég fékk þá almennan
samning við olíufélögin, þar sem
ég tók að mér allar þær prófanir,
sem þau þyrftu að láta gera, út-
skýrir Jóhann. Fyrir þau hefi ég
svo unnið síðan og það orðið
70-80% af umsetningunni. I þessi
20 ár hafa rannsóknir á brennslu-
olíu og smurolíum færzt nær ein-
göngu hingað. Og eftir að verðlag
tók að hækka á olíu á seinni árum,
hefur bætzt við þjónusta við
Landsvirkjun og Rafmagnsveitur
ríkisins vegna olíu sem þeir nota á
spenna og rofa í dreifikerfinu.
Annar þáttur bættist við hjá
litið sig fra sinni sjalfstæðu rannsokna-
verið hans aðalstarf.
okkur þegar farið var að leggja
slitlag á vegi. Síðan hefur Vega-
gerðin þurft á okkar þjónustu að
halda, og hefur það aukizt á síð-
ustu árum, einkum þó að sumar-
lagi. Auk starfa fyrir olíufélögin
og við olíur, leysum við af hendi
alls konar rannsóknastörf, sem
tengd eru kemískum prófunum, og
eru það um 20% af umsetning-
unni.
Hvað er það sem olíufélögin
þurfa að láta gera?
— Allt sem til fellur í landinu í
sambandi við olíustöðvar, dreif-
ingu á olíu innanlands og notkun
hennar. Vandamál koma upp
vegna innflutnings á eldsneyti,
varðandi smurolíu a vélum, vegna
óhreininda í olíu o.fl. Ef slíkur
vandi kemur upp hjá einstakling-
um, snúa þeir sér gjarnan til olíu-
félaganna og verkefnin koma gegn
um þau til mín. Eða þeir koma
beint hingað, ef þeir vita þá um að
þessi þjónusta er til, en hún hefur
aldrei verið auglýst, útskýrir Jó-
hann. Stundum leita þeir til
opinberra rannsóknastofnana,
sem vísa þeim hingað. I vissum
tilfellum vísa ég líka verkefnum,
sem hingað koma til opinberu
rannsóknastofnananna, svo sem
Iðntæknistofnunar og Rannsókna-
stofnunar fiskiðnaðarins, ef það á
betur við eða er hagkvæmara. Ég
hefi frá upphafi haft gott sam-
band við þessar stofnanir, enda
eru þar gamlir kunningjar mínir
frá fyrri árum.
— Hluti af þjónustunni við
olíufélögin eru prófanir á flug-
vélaeldsneyti, bætir Jóhann við.
Það verður að margprófa eftir
gildandi reglum áður en það er
tekið í notkun eftir uppskipun, úr
stöð eða eftir flutninga milli
staða, hvar sem er á landinu. Og
ég hefi ágæta aðstöðu til að ann-
ast það og veita þá þjónustu.
Með árunum hefur þörfin fyrir
þessa þjónustu, sem hér er veitt,
aukizt mikið. Olían hefur orðið
dýrari, og menn hafa í vaxandi
mæli notað olíurannsóknir sem lið
í fyrirbyggjandi viðhaldi véla. Ef
olían er í góðu ástandi eftir ein-
hvern tíma, þá er vélin í lagi.
Olían er eins og blóðið í líkaman-
um, sem getur gefið til kynna að
ekki sé allt með felldu.
Geturðu nefnt dæmi?
Skyndiprófun í skipum BÚR
— Enginn hefur gengið lengra í
að fylgjast meö olíunni en Bæjar-
útgerð Reykjavíkur. í 10 ár hafa
þeir varla látið skip fara út án
þess að gera skyndiprófun á olí-
unni. Ef eitthvað er að, þá kippa
þeir því í lag áður en skipið fer. í
sambandi við viðhald skipa og til
að fyrirbyggja tjón kemur slíkt að
verulegu gagni. Annars hefðu þeir
ekki haldið því áfram. Ýmsir fleiri
hafa farið inn á þessa braut með
Stuöningsmenn Sigurðar E.
Guömundssonar borgarfulltrúa
minna á aö prófkjör Alþýðuflokksins í Reykjavík vegna kom-
andi borgarstjórnarkosninga, fer fram nú um helgina í lönó og
Sigtúni viö Suöurlandsbraut.
Á laugardag er opið kl. 1—6
og sunnudag kl. 10—7.
Áhugamenn og velunnarar eru hvattir til þátttöku.
Kosningaskrifstofan er í Glæsibæ, símar 82782 og 82784.
Stuðningsmenn.
skip sín, en enginn eins reglulega
og BÚR. Ég veit raunar fleiri
dæmi um það, að hægt hefur verið
að koma í veg fyrir verulegt tjón
með því að finna á þennan hátt
gallana. Rannsókn á olíunni segir
mikið til um ástand allra véla.
En hvað þá með olíu á bílvélum?
— Lítil olía er á vélinni í bif-
reið, þannig að eðlilegt er að
skipta um olíu reglulega. Um
ástand vélarinnar gegnir öðru
máli. Þar gæfi olíurannsókn mik-
ilvægar upplýsingar, hliðstætt því
sem er um stærri vélar.
Við göngum um rannsóknastof-
una, sem er stór og rúmgóð. Jó-
hann vinnur nær allar rannsókn-
irnar sjálfur, með aðeins einum
aðstoðarmanni, Lárusi Jóhanns-
syni. Hann hefur smám saman
verið að koma upp góðum tækja-
búnaði. — Minn tækjabúnaður er
kannski ekki fullkominn saman-
borið við þær rannsóknastofur,
þar sem sjálfvirknin er meiri. En
ég hefi ekki rekizt á að að þær
tölur, sem héðan koma, hafi ekki
verið eins réttar, segir Jóhann.
Hér er það nákvæmnin og sam-
vizkusemin sem gildir. Fyrir þann
sem selur sína þjónustu á frjáls-
um markaði, er aðalatriðið að
senda aldrei frá sér rangar tölur
— sem ekki hefur raunar komið
fyrir hér enn. Ef eitthvað er, sem
vafi geti leikið á, þá verður bara
að endurtaka prófunina þótt það
kosti tíma og fyrirhöfn.
Hvernig er verðið hér á svona
sérunninni þjónustu?
— Sennilega er þessi þjónusta
hvergi í heiminum ódýrari en hér.
Síðustu tölur, sem ég hef, sýna að
við erum hér um 50% fyrir neðan
erlendar rannsóknastofur. Til
dæmis hefi ég spurnir af því að
fyrirtæki í Noregi tekur 5000 doll-
ara fyrir að þjónusta skip á þenn-
an hátt yfir árið fyrir utan send-
ingarkostnað. Jú, ég gæti tekið
slíkt verk á ársgrundvelll fyrir um
helming af þessari upphæð, en ég
hefi aldrei verið beðinn um það.
Að sjálfsögðu þyrfti maður þá að
búa sig út til þess að hafa slíka
þjónustu, því ekki er hægt að
kaupa dýr tæki fyrir eitt og eitt
skip eða upp á von og óvon. Úr því
þetta þykir borga sig fyrir erlend
skipafélög, ætti það sama að gilda
hér. Ég hefi stundum velt því fyrir
mér, hvenær íslendingar ætli að
fara að taka þessi verk og ýmis
önnur inn í landið og láta Islend-
- inga njóta atvinnunnar.
Viðtal við Jóhann
Jakobsson, efna-
verkfræðing, sem
rekur einu einka-
rannsóknastofuna,
sem selur þjónustu
sína
Láta skipafélögin vinna svona
verkefni erlendis?
— Já, skipafélögin virðast trúa
því að svona þjónusta hljóti að
vera betri í útlöndum, svarar Jó-
hann. Þar kemur kannski til þetta
landlæga útlendingadekur. Ef sér-
fræðingurinn heitir erlendu nafni
eða stofnunin heitir útlendu nafni,
þá á allt að vera í lagi. Ég hefi
komið á stórar rannsóknastofnan-
ir, þar sem búnaður var yfir-
gripsmeiri en hér, en aldrei rekizt
á það að tölurnar þaðan séu áreið-
anlegri. A þessum stóru stöðum
vinna kannski tugir manna, ekki
allir sérfræðingar. Sumir geta
verið mjög öruggir, en aðrir klúðr-
arar eins og gengur.
Þú segir að ekki hafi á þessum
20 árum komið fyrir að röng út-
koma úr prófunum færi út af
þinni stofu. Hefur það verið ve-
fengt og reynt á það?
— Já, fyrir 15 árum var ég til
dæmis búinn að gera prófun á
flugvélaeldsneyti, sem varnarliðið
notar á sínar vélar. Þeir höfðu
gert sömu prófun á rannsókna-
stofu hersins á Vellinum og út-
koman var ekki sú sama og mín.
Ég taldi eldsneytið í lagi eða inn-
an leyfðra marka, en þeir að það
væri utan markanna. Ég var kall-
aður suður eftir, og við fórum yfir
allt verkið saman. Prófanirnar
voru margendurteknar, og alltaf
kom út mín tala. Á meðan höfðu
þeir lokað til öryggis öllu sínu
kerfi. Ég var ákaflega ánægður
með sjálfan mig, ekki sízt af því að
þeir hafa mun dýrari og betri bún-
að.
Fyrir nokkrum árum kom það
líka fyrir við mælingar hjá mér,
að vissir eiginleikar í olíu féllu
utan þeirra marka, sem eðlilegt
mátti telja. Þá voru sendir hingað
tveir menn frá viðkomandi fyrir-
tæki, erlendis, til að athuga hvort
þetta gæti staðizt. Þeir settust
hérna sinn hvoru megin við mig,
meðan ég gerði mínar mælingar.
Og sannfærðust um að þær væru
réttar, þrátt fyrir einfaldari tæki
en á stóru rannsóknastofunum.
Unnið þegar þörf krefur
í spjalli okkar kemur fram að
tilraunir hafa nokkrum sinnum
verið gerðar til að reka einkarann-
sóknastofur, en engin enzt jafn
lengi og efnarannsóknastofan
Fjölver, sem nú er sú eina í einka-
eign sem selur þjónustu sína. —
En mér sýnist þessi starfsemi orð-
in svo föst í atvinnulífinu, að hún
hljóti að halda áfram að vaxa
fremur en minnka, segir hann.
— Jú, það var annasamt, eink-
um meðan ég var einn, segir hann.
En þetta er sjálfstætt og frjálst
starf. Sá sem vill starfa sjálfstætt
og hafa af því lífsafkomu á allt
sitt undir því að sinna því vel og
störf eins og þetta krefjast þess að
þeim sé sinnt þegar þörf er fyrir
þau. Þjónustuna verður að inna af
hendi um hæl. Flugvél eða skip
hafa ekki efni á að bíða eftir því
að vita hvort allt sé í lagi. Of dýrt
að tefja þau. Fólk eins og ég, sem
hefur sitt lifibrauð af því sem það
afkastar, það verður að sinna sínu
starfi og sinna því þegar þörf er á.
Já, ég geri það. Eftir að ég fékk
aðstoðarmann, er það raunar
miklu hægara.
— Ég er hæstánægður með
þetta svona, segir Jóhann í lokin.
Enginn mundi geta fengið mig til
að gera annað — nema ef það væri
að koma stálbræðslu af stað. Ég er
nefnilega einn af stálbræðslu-
mönnum. En það er önnur saga.
Fréttamaður treystir því ekki.
Og kveður í snatri áður en Jóhann
er kominn í gang með að lýsa
nauðsyn þess að íslendingar komi
sér upp stálbræðslu og spari ...
_ E.Pá.
J