Morgunblaðið - 14.02.1982, Blaðsíða 26
26 MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 14. FEBRÚAR 1982
Heimdallur 55 ára:
Fjölbreytt
efni á af-
mælisvöku
UNGIR sjálfsla'dismenn minnasl þcss
í næstu viku, ad 1G. fcbrúar verða 55
ár liðin frá slofnun Ilcimdallar, sam-
laka ungra sjálfstæðismanna í Kcykja-
vík. A afma'lisdai'inn vcrður gcslum
Ixiðið upp á vcilingar í Valhöll, for-
inaður fclagsins ávarpar gesti, og tón-
listarmcnn koma fram. Síðan vcrður
citt og annað á dagskrá alla daga vik-
unnar, uns klykkt vcrður út mcð af-
mælisfagnaði á (ostudagskvöld. Kn
dagskrá afma'lisvikunnar er scm hcr
segir:
Þriðjudagur 16. febrúar. Veit-
ingar í Valhöll í boði stjórnar Heim-
dallar klukkan 20. Þá ávarp for-
'manns félagsins, Árna Sigfússonar.
Næst er klassísk tónlist, þar sem
nemendur úr Tónlistarskóla
Reykjavíkur koma fram. Þá leikur
hljómsveitin Messoforte nokkur lög,
og í kjallarasal verður myndverka-
sýning.
Miðvikudagur 17. febrúar. Um-
ræðukvöld í Valhöll klukkan 20.30,
þar sem fjallað verður um skipu-
lags- og menningarlíf í höfuðborg-
inni. Frjálsar umræður verða um
málefnið, að loknum framsöguer-
indum þeirra Davíðs Oddssonar,
borgarfulltrúa og Gests Ólafssonar,
skipulagsfræðings.
Fimmtudagur 18. febrúar. Is-
lenskt kvikmyndakvöld klukkan
20.30 í Valhöll. Sýndar verða tvær
stuttar kvikmyndir, og Snorri Þór-
isson, kvikmyndagerðarmaður, og
Björn Björnsson, leikmyndagerðar-
maður, ræða íslenska kvikmynda-
gerð.
Föstudagur 19. febrúar. Kvöld-
fagnaður í Þórscafé klukkan 19.
Ræðu kvöldsins flytur Geir H.
Haarde, formaður Sambands ungra
sjálfstæðismanna.
formast Latex/Lystadún dýnan undir þér — og eltir síðan
hverja hreyfingu þína þannig, að hún styður alltaf undir mitti og mjóhrygg.
Latex/Lystadún dýna er sqmsett úr stinnu Lystadún undirlagi
og mjúku Latex yfirlagi.
Þyngstu líkamshlutar bæla Latexlagið niður að stinnu
Lystadúnlaginu. Þannig lagar dýnan sig að líkamanum.
Árangurinn er að hryggsúlan liggur nokkuð bein, hvíldin verður
fullkomnari og þér hættir sfður til eymsla f hrygg. Þau orsakast oft
af röngum rúmdýnum.
L/stadúnverksmiójan Dugguvogi8 Sími84655
l-árus
SigurbjörnNson
<>uðjón
Baldvinsson
Olafur
Björnsson
Sigurdur
Ingimundarson
Kristján
Thorlacius
40 ár frá stofnun Bandalags starfsmanna rfkis og bæja:
32 félög í BSRB með 15.650
félaga innan sinna vébanda
BANDALAG starfsmanna ríkis og
bæja var stofnað 14. fcbrúar árið
1942 og verður 40 ára sögu félags-
ins minnst með opnu húsi og kaffi-
veitingum að Grettisgötu 89 í dag
milli klukkan 14 og 19. Einnig vcrð-
ur opnuð þar sýning í dag, sem á að
lýsa í máli og myndum starfi sam-
taka opinherra starfsmanna og
merkum áföngum.
í BSRB eru 14 ríkisstarfs-
mannafélög með 11.104 félags-
menn og 18 bæjarstarfsmanna-
félög með 4.650 félaga. Fjölmenn-
ustu einstöku félögin innan BSRB
eru Starfsmannafélag ríkisstofn-
ana með 4.029 félagsmenn, Kenn-
arasamband íslands með 2.866 fé-
laga, Starfsmannafélag Reykja-
víkurborgar með 2.299 félaga, Fé-
lag íslenzkra símamanna með
1.218 félaga og Hjúkrunarfélag
íslands með 1.122 félaga. í félög-
um innan BSRB eru 9.224 konur
og 6.530 karlar.
Æðsta stjórn BSRB er banda-
lagsþingið, sem haldið er þriðja
hvert ár, og verður haldið í júní í
sumar. Það sitja um 190 full-
trúar. Stjórn BSRB skipa 11
menn og 7 varamenn.
Fyrsti formaður BSRB var
kjörinn Sigurður Thorlacius,
skólastjóri, og gegndi hann því
starfi þar til hann andaðist í ág-
úst 1945. Lárus Sigurbjörnsson
var formaður 1945—’46 og
1947—’48, Guðjón Baldvinsson
var formaður 1946—’47, en hefur
setið í stjórn og varastjórn BSRB
lengst allra eða í 31 ár. Ólafur
Björnsson varð formaður 1947 og
gegndi því embætti til 1956, en þá
tók Sigurður Ingimundarson við
og var formaður til ársins 1960.
Kristján Thorlacius varð formað-
ur BSRB árið 1960 og hefur hann
því verið formaður BSRB rúm-
lega helming þess tíma, sem lið-
inn er frá stofnun bandalagsins.
Þess má geta að Kristján er bróð-
ir fyrsta formanns BSRB, Sigurð-
ar Thorlacius. Haraldur Stein-
þórsson hóf störf hjá BSRB árið
1962 og er framkvæmdastjóri
bandalagsins.
í samtali við Morgunblaðið
sagði Haraldur Steinþórsson, að í
sögu félagsins væru nokkrir
áfangar og þættir stærri eða eft-
irminnilegri en aðrir. Hann
nefndi að árið 1945 voru ný
launalög samþykkt á Alþingi, en
það hafði verið baráttumál
bandalagsins, en þau höfðu ekki
verið endúrskoðuð síðan 1915. Ár-
ið 1946 voru sett lög um lífeyr-
issjóð og 1954 lög um réttindi og
skyldur opinberra starfsmanna.
Árið 1955 voru fyrrnefnd launa-
lög endurskoðuð. Árið 1962 var
bandalaginu veittur samnings-
réttur eða viðurkennt sem samn-
ingsaðili við fjármálaráðuneyti
og sveitarstjórnir. Árið 1970 var í
fyrsta skipti gerður fullkominn
samningur án þess að leitað væri
til dómstóla. Árið 1973 var samn-
ingsgerð aðskilin þannig að
BSRB gerir aðalkjarasamning, en
félögin sérkjarasamniga. Árið
1976 var verkfallsréttur viður-
kenndur fyrir aðalkjarasamn-
inga, en hins vegar ekki við gerð
sérkjarasamninga og árið 1977
fór BSRB í verkfall í fyrsta
skipti.
Svo nefndir séu þættir, sem
ekki lúta beint að kjarabarátt-
unni, þá má nefna, að árið 1971
voru tekin í notkun orlofshús í
Munaðarnesi og árið 1967 hófst
raunveruleg fræðslustarfsemi á
vegum félagsins.