Morgunblaðið - 14.02.1982, Qupperneq 27
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 14. FEBRÚAR 1982 2 7
Katrín Fjeldsted:
Hef mesta reynslu
af heilbrigðismál-
um og kvennapólitík
Ragnar Júlíusson
í FRAMHALDI af niðurstöðu fund-
ar Fulltrúaráðs sjálfstæðisfélag-
anna í Reykjavík í fvrrakvöld um
skipan framboðslista fyrir borgar
stjórnarkosningarnar í vor, sneri
Mbl. sér til Katrínar Fjeldsted, sem
skipar ellefta sæti listans og þar
með baráttusætið, og þeirra þriggja
sem skipa þrjú næstu sæti þar fvrir
neðan, en nokkrar umræður urðu á
fundinum um ellefta sætið. Samtal-
ið við Katrínu birtist annars staðar
Jóna Gróa Sigurðardóttir
hér á síðunni, en hér fara á eftir
svör hinna þriggja við spurningunni
um afstöðu þeirra til niðurstöðu
fundarins um skipan framboðslist-
ans.
Ragnar Júlíusson:
„Ég var í ellefta sæti listans
samkvæmt úrslitum í prófkjöri.
Kjörnefnd bauð mér 12. sætið og
ég samþykkti það. Meira hef ég
ekki um það að segja."
Margrét S. Einarsdóttir
Jóna (íróa Sigurðardóttir:
„Eins og fram hefur komið í
frásögn Mbl. af fundinum, þá
sætti ég mig fullkomlega við mitt
sæti og hlíti niðurstöðum kjör-
nefndar, eins og ég lýsti yfir á
fundinum."
Margrét S. Einarsdóttir:
„Ég tel að ég hafi látið skoðun
mína ótvírætt í ljós á fundinum
og ég get því einungis endurtekið
það sem ég hef áður sagt. Séu
menn óánægðir með störf kjör-
nefndar, þá er eðlilegt að það
komi fram, en að fenginni niður-
stöðu, þegar fundurinn er búinn
að samþykkja listann, tel ég jafn
eðlilegt að fólk standi saman um
þann lista. Það er mál númer
eitt.“
„ÞAÐ ERl' ekki liðnar nema 19
klukkustundir síðan framboð mitt
var ákveðið og ég er varla reiðu-
búin að ræða það í smáatriðum.
Mér er sýnt mikið traust og ég ætla
að standa undir því,“ sagði Katrín
Fjeldsted, er blaðamaður innti
hana eftir því hvernig henni litist á
að vera í 11. sætinu, baráttusætinu
Katrín Fjeldsted
á lista Sjálfstæðisflokksins til borg-
arstjórnarkosninganna í Keykjavík
í vor.
Hver er reynsla þín af pólitík?
„Hvað er átt við með pólitík?
Hafa ekki flest okkar störf póli-
tíska þýðingu? I hefðbundnum
skilningi orðsins tók ég þátt í
stjórnmálastarfi í menntaskóla
og háskóla. Ég var í prófkjöri
Sjálfstæðisflokksins til borgar-
stjórnarkosninga fyrir rúmum
áratug. Eftir margra ára dvöl er-
lendis var ég í stöðu aðstoðar-
borgarlæknis um skeið og er nú
yfirlæknir Heilsugæzlustöðvar-
innar í Fossvogi. Þessi störf
krefjast verulegrar þátttöku í
stjórnun, en þau gefa manni líka
innsýn í mörg vandamál fólks.“
Á hvaða málaflokka ætlar þú
að leggja áherzlu?
„Ég held ég hafi áhuga á flestu,
sem lýtur að velferð borgarbúa,
en hef þó mesta reynslu og þekk-
ingu á heilbrigðismálum og
kvennapólitík. Auðvitað hef ég
áhuga á mörgu þótt sérþekking sé
ekki fyrir hendi og má þar nefna
umhverfismál, skipulagsmál,
uppeldismál og málefni lista,"
sagði Katrín.
Stöndum saman að
fenginni niðurstöðu
— segir Margrét Einarsdóttir
Gurevich vann
maraþonskák og
er nú einn efstur
SF 750 þurrljósritunarvél
DMITRI (iurevich hefur nú foryst-
una á Reykjavíkurskákmótinu og er
eini keppandinn sem hefur unnið all-
ar þrjár skákir sínar. Þessi frábæra
byrjun hins rúmlega tvítuga Banda-
ríkjamanns, sem fluttist frá Sovét-
ríkjunum fyrir tveimur árum, gekk
þó ekki átakalaust fyrir sig, því skák
hans við Elvar (iuðmundsson fór
hvorki meira né minna en fjórum
sinnum í bið. Hcnni lauk síðan í gær,
þegar biðskákir frá fyrstu þremur
umferðunum voru hreinsaðar upp
með sigri Gurevich.
Gott dæmi þess, hversu erfið
þessi skák var, er að Elvar féll á
tíma í 125. leik, einum leik áður en
hann náði fimmtu tímamörkunum!
Þá hafði skákin staðið í tólf og
hálfa klukkustund og lengst af ver-
ið jafnteflisleg, en Elvar lék af sér
í 106. leik og eftir það var ekki
hægt að halda taflinu.
Þegar Elvar hafði lokið þessari
skák, varð hann síðan að taka til
við biðskák við Kogan, sem eins og
Gurevich er landflótta Rússi, bú-
settur í Bandaríkjunum. Þeirri
skák lauk með jafntefli.
í fjórðu umferð tefla þeir saman
í toppbaráttunni, Gurevich og
Bozidar Ivanovic, núverandi
skákmeistari Júgóslavíu. Ivanovic
átti einnig tvær biðskákir, aðra við
Kaiszauri frá Svíþjóð, sem lauk
með jafntefli eftir hátt á annað
hundrað leiki og í hinni vann hann
Magnús Sólmundarson. Viðureign
þessara tveggja maraþonskák-
manna verður án efa skemmtileg,
ef þeir hafa þá náð að hvíla sig
eftir að hafa teflt sjö klukkutíma
daglega.
Lokin á skák Gurevich pg Elvars
voru afar skemmtileg. í þessari
stöðu hafði Bandaríkjamaðurinn
hvítt og átti leik:
Svart: Elvar Guðmundsson
Stöðumynd I
Hvítt: Gurevich (Bandar.)
124. Kb6! — Hxe5, 125. Bc6+ og hér
féll Elvar á tíma er hann var að
leita að leið til að stöðva hvíta peð-
ið. Vart þarf að taka fram, að eng-
in slík leið fyrirfinnst í stöðunni.
I þriðju umferðinni á fimmtu-
daginn gerðist það að Jónas P. Er-
lingsson var svo óheppinn að falla
í gildru gegn Kogan í byrjuninni
sem kostaði hann peð.
Svart: Jónas P. Erlingsson
Hvítt: Kogan (Bandar.)
Síðasti leikur Jónasar var 9. —
Rb8-d7?
10. Rxc6! — Bxc6, 11. exd5 — exd5,
12. cxd5 — Bb7, 13. d6 - Bxg2, 14.
dxe7 — Dxe7. Nú hefur hvítur unn-
ið peð, enda vann hann skákina um
síðir, þrátt fyrir að Jónas berðist
eins og ljón.
Þessi skák er reyndar sérlega
gott dæmi um það hversu lítil
byrjanaþekking háir mörgum ís-
lensku þátttakendanna á mótinu.
Ef þeir sleppa hins vegar óskadd-
aðir út í miðtaflið, standa þeir sig
hins vegar oftast vel, þó við ofur-
efli sé að etja.
- ■ ■ ------------
fyrir allan venjulegan pappír...
Sú smæstaíheimi!
SF 750 Ijósritar á allan venjulegan pappír
og flestan óvenjulegan, þykkan sem
þunnan, krómaðan, hvítan, litaðan, teikni,
glærur, eða þitt eigið bréfsefni.
Hámarks framköllunargæði og sérstak-
lega einföld í notkun.
Innbyggð örtölva tryggir fullkomið eftirlit
með viðhaldi og aðgerð.
Sérstaklega ódýr í viðhaldi og rekstri.
SF 750 hentar hvaða fyrirtæki sem er, —
stóru sem smáu, vegna hentugleika og
smæðar sinnar.
SF750
STÆRÐ: 43X42 CM
HÆÐ: 28 CM
AÐEINS 32 KG.
STÆRÐIR PAPPÍRS:
Frá A6 — B4
ÞYNGD PAPPÍRS:
Frá 60—160 g
FJÖLDI EINTAKA:
10 st. á mínútu.
Kannið verð og
greiðsluskilmála.
SF 750 — EIN AF FJÖLMÖRGUM FRÁ SHARP.
ifiSk. HLJÓMTÆKJADEILD
KARNABÆR
HVERFISGÖTU 103 SÍMI 17244
r *»f