Morgunblaðið - 14.02.1982, Qupperneq 37
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUUDAGUR 14. FEBRÚAR 1982
37
l»otta kort er úr riti, sem gefið var út af „Efterretningstjeneste" danska hersins í júlí 1980 og fjallar um árásarleiðir Varsjárbandalagsins gegn Danmörku.
Kortið sýnir aðstöðuna við Eystrasalt og ferðir og æfingar á vegum Varsjárbandalagslandanna. Síðastliðið haust efndu Varsjárhandalagslöndin til víðtækustu
æfinga sinna á Eystrasalti til þessa. Á fundinum með Knud Jörgensen kom fram, að mestu landgönguæftngarnar fóru fram á svipuðum slóðum og 1970, en
þar eru staðhættir mjög Ifkir og á Sjálandi.
fram til starfa í hernum, einkum
flotanum. Komi til átaka eða séu
um það gefin sérstök fyrirmæli á
spennutímum, munu herstjórnir
NATO taka að sér að stjórna vörn-
um Færeyja.
Danska herstjórnin í Færeyjum
gegnir þessum skyldum á friðar-
tímum:
— Gæsla á yfirráðasvæði Færeyja
á sjó og landi.
— Gæsla fullveldis með því að
koma í veg fyrir að brotið sé gegn
færeyskum réttindum á sjó eða
landi og dansk-færeyskum hags-
munum.
— Eftirlit með fiskveiðum, gæsla
innan fiskveiðilögsögu Færeyja og
samstarf við slysavarnaþjónustu
landstjórnarinnar.
— Leitar- og neyðarþjónusta.
— Hvers konar aðstoð við stjórn-
völd í Færeyjum.
A stríðstímum eru skyldurnar
þessar:
— Að gera nauðsynlegar ráðstaf-
anir til að verjast hugsanlegri
árás eða annars konar ásókn.
— Flotastjórn siglinga og flota-
stjórn fiskveiða.
Flotinn hefur aðstöðu í Þórs-
höfn á Færeyjum og þar er einnig
ratsjárstöð til eftirlits með flug-
vélum. Þessi stöð er nátengd loft-
vörnum Stóra-Bretlands og nær-
liggjandi svæða. Eitt eftirlitsskip
með þyrlu er ávallt í Færeyjum til
að sinna landhelgisgæslu og einn-
ig eftirlitskútter. Flugvélar létta
af og til undir með skipunum við
eftirlitsstörfin.
Grænland
Grænland er hluti af því svæði,
sem heyrir undir Vestur-
Atlantshafsflotastjórn SACL-
ANTs. A friðartímum fer ég með
æðstu stjórn hermála á Græn-
landi eins og í Færeyjum. 1951
gerðu Bandaríkjamenn og Danir
með sér varnarsamning um Græn-
land. Samkvæmt honum leggja
Bandaríkjamenn til liðsafla til
varnar Grænlandi í samræmi við
nauðsyn hverju sinni. Bandarískir
hermenn eru nú með stöðvar í
Thule og Syðra-Straumfirði — þar
starfa danskir tengslaforingjar,
sem tyggja sambandið milli
Bandaríkjamanna og dönsku her-
stjórnarinnar á Grænlandi.
A friðartímum gegnir her-
stjórnin á Grænlandi þessum
skyldum:
Eftirlit á landi, sjó og í lofti.
Leitar- og björgunarþjónusta. Eft-
irlit með fiskveiðum. Fjarskipti.
Eftirlit með nýtingu náttúruauð-
linda. Aðstoð við vísindaleiðangra
og aðra leiðangra. Miðunarþjón-
usta fyrir skip og flugvélar. Is-
könnun og leiðsögn fyrir skip á
hafíssvæðum. Vöruflutningar. Að-
stoð við almennar siglingar og
einstakar byggðir o. fl. Samstarf
við grænlensk yfirvöld.
Á stríðstímum gegnir her-
stjórnin á Grænlandi þessum
skyldum:
Eftirlit á landi, sjó og í lofti.
Varnir grænslensks yfirráðasvæð-
is. Flotastjórn siglinga og fisk-
veiða. Nýting skipa og flugvéla í
einkaeign. Samræming á nýtingu
fjarskiptatækja.
Herstjórnin á Grænlandi hefur
aðsetur í Grönnedal, sem er í suð-
vestur hluta Grænlands. Hún
ræður yfir tveimur eftirlitsskipum
búnum þyrlum og þremur eftir-
litskútterum. Á sumrin fær hún
einnig til ráðstöfunar 4 sérsmíð-
um mælingaskip. Ein flugvél af
gerðinni C—130 Hercules er ávallt
á Grænlandi og er heimavöllur
hennar í Syðra-Straumfirði. Vélin
sinnir einkum ískönnun, landhelg-
isgæslu og birgðaflutningum.
Sleðaflokkurinn SIRIUS hefur
aðsetur í Daneborg á austurströnd
Grænlands. I flokknum eru 6
hundaeyki, auk þess ræður hann
yfir vélbátum. Sleðaflokkurinn
heldur uppi gæslu í óbyggðum á
norðaustur og norður hluta Græn-
lands. Við störf sín nýtur hann
stuðnings frá Station Nord, þar
sem nokkrir hermenn eru allan
ársins hring og halda opinni
flugbraut.
Eins og af þessu má sjá er ekki
mikill liðsafli undir herstjórninni
á Grænlandi, síst af öllu, ef tekið
er mið af því, hve gífurlega stórt
landið er. Hlutfallslega eru Danir
þó á friðartímum virkari í gæslu á
Norður-Atlantshafssvæðinu
sjálfu en margar aðrar aðildar-
þjóðir NATO. Með þessu starfi
stuðla Danir að upplýsingaöflun
um ferðir frá Varsjárbandalags-
löndunum á þessum slóðum.
Lokaorð
Með hliðsjón af þeirri ógn, sem
að okkur steðjar, hef ég leitast við
að draga saman höfuðþættina í
dönskum varnarmálum og lýst
því, hvernig við reynum að leysa
þau verkefni, sem á okkur hvíla.
Ég tel, að fyrir Dani hafi sam-
starfið innan Atlantshafsbanda-
lagsins þróast í þá átt, að sam-
vinnan um lausn einstakra verk-
efna verði sífellt mikilvægari. í
suðri hefur samvinna Dana og
Þjóðverja um varnir Slesvíkur og
Holtsetalands, Jótlands, eyjanna
og siglingaleiðanna haft það í för
með sér, að bandamenn okkar
skerast vafalaust í leikin, verði
Danmörku ógnað. Á sama hátt
hefur samvinna Dana og Banda-
ríkjamanna styrkt öryggið á norð-
urslóðum. Samstarfið í varnar-
málum á Norður-Atlantshafi er
sér í iagi mikilvægt, og fyrir Danj
skiptir Island sköpum, þegar hug-
að er að daglegu starfi á Græn-
landi og samgöngum við það.
Dugi viðbúnaður okkar ekki til
að koma í veg fyrir styrjöld og
aukist spennan á þessu sameigin-
lega svæði okkar, ræður úrslitum,
hvort okkur tekst að flytja liðs-
auka á vettvang. Við þær aðstæð-
ur gegnir ísland lykilhlutverki
ekki síst til að halda opnum sigl-
ingaleiðunum frá Norður-Amer-
íku til Norður-Evrópu — og jafn-
framt til Færeyja og Grænlands.
Varnir í Suður-Danmörku
skipta á hinn bóginn sköpum fyrir
varnir víglínunnar í Mið-Evrópu,
fyrir varnir Suður-Noregs og fyrir
varnir hinna mikilvægu siglinga-
leiða um suðurhluta Norðursjávar
og Ermasund.
Bæði eru lönd okkar því mjög
mikilvæg fyrir varnir Atlants-
hafsbandalagsríkjanna, þegar lit-
ið er til lokunar „sundanna"
(GIUK-hliðsins og út úr Eystra-
saltinu), án þess að loka þeim
verður lífæð NATO, leiðin yfir
Atlantshafið, ekki varin.
Kortið er úr ritinu Gll'K hliðið og sýnir DEW-línuna svonefndu, sem er ratsjárkeðja frá Kanada um Gramland,
ísland og Færeyjar til Hjaltlandseyja. Myndin er einfölduð og sýnir aðeins tvær af fjórum ratsjárstöðvum á
Grænlandi.
Hæstiréttur:
Ógildi
kosninga
í Geithellna-
hreppi
staðfest
SÍÐASTLIÐINN þriðjudag féll
dómur í Hæstarétti þar sem
staðfest var ógilding kosninga í
Geithelinahreppi í Múlasýslu 25.
júní 1978 og var þar með endir
bundinn á fjögurra ára þrætu í
hreppnum. Dómur Hæstaréttar
er merkilegur að því leyti, að
mál verða ekki tekin undan
dómstólum nema gegn skýrri
lagaheimild og var þannig
hrundið liðlega aldargamalli
venju um, að sveitarstjórnar-
kosningar séu endanlega úr
skurðaðar af stjórnvöldum; það
er að skjóta megi úrskurði ráð-
uneytisins undir dómstóla. Hér
var um prófmál að ræða.
F'orsaga málsins er sú, að 10.
júní 1978 fóru fram kosningar í
Geithellnahreppi og voru þær
kærðar til félagsmálaráðuneyt-
isins. I september 1978 úrskurð-
aði ráðuneytið kosninguna
ógilda. Að nýju. var kosið til
hreppsnefndar og sýslunefndar
10. júní 1979.
Aðaláfrýjendur reistu kröfu
sína um ógildingu kosninganna
25. júní 1978 á þrenns konar
annmörkum. í fyrsta lagi, að
oddviti hafi rofið pakka þann
með kjörseðlum sem kom frá
prentsmiðju í Reykjavík. í öðru
lagi, að kjörseðill hafi verið úr
svo þunnu efni, að sjá mátti í
gegnum hann þó tvíbrotinn væri.
Þetta hafi valdið því, að eigi hafi
verið tryggt að kosning hafi ver-
ið leynileg og í þriðja lagi reistu
aðaláfrýjendur kröfu sína um
ógildingu, að sami kjörseðillinn
hafi verið notaður til kosningar
hreppsnefndar og sýslunefndar
og svo úr garði gerður, að ekki
hafi verið skilmerkilega greint,
að um sjálfstætt kjör hafi verið
að ræða til hreppsnefndar ann-
ars vegar og sýslunefndar hins
vegar. Gagnáfrýjendur kröfðust
þess, að viðurkennt yrði með
dómi gildi hreppsnefndarkosn-
inganna 10. júní 1978 og að úr-
skurður félagsmálaráðuneytis-
ins frá 5. september 1978 yrði
felldur úr gildi og jafnframt að
felldur verði úr gildi úrskurður
ráðuneytisins frá 3. ágúst þess
efnis, að kosningarnar 10. júní
1979 eigi að standa óhaggaðar.
Hæstiréttur úrskurðaði varð-
andi þessi atriði, að hvað fyrsta
lið áhræri, þá hafi eigi verið sýnt
fram á, að um misferli með
pakkann hafi verið að ræða. Um
annan lið úrskurðaði Hæstirétt-
ur, að kjörseðill hafi eigi verið
svo úr garði gerður, sem lög
áskilja. Og varðandi þriðja lið
úrskurðaði Hæstiréttur, að ekki
hafi verið skilið greinilega á
kjörseðlinum milli frambjóð-
enda til hreppsnefndar og sýslu-
nefndar. Hæstiréttur staðfesti á
þessum forsendum niðurstöðu
héraðsdóms um, að kosningin 25.
júní 1978 skyldi ógild.
Lögmaður aðaláfrýjenda var
Haraldur Blöndal, hrl., en lög-
maður gagnaðila var Baldur
Guðlaugsson, hrl.
Jllorpnnlilntiiíi
AIGLYSINGA
SÍMINX ER:
22480