Morgunblaðið - 14.02.1982, Síða 39
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 14. FEBRÚAR 1982
39
Otto Erdland
Minningarorð
Fæddur 6. desember 1907
Iláinn 25. desember 1981
Mér varð tregt um mál, þegar
einn góðvinur minn hringdi til
mín seinnipart sl. jóladags og
sagði mér að vinur okkar Otto
væri dáinn. Ég vissi að vísu að
Otto gekk ekki heill til skógar hin
síðari árin, og auk þess var mér
kunnugt um að hann hafði veikzt
skyndilega nokkrum dögum fyrir
jól og verið lagður í sjúkrahús,
hinsvegar hafði ég vonað að þetta
skyndiáfall myndi líða hjá. En því
miður, kallið var komið, kallið sem
við verðum öll að hlýða fyrr eða
síðar.
Við þessa sorgarfregn varð mér
hugsað til konu hans og fjöl-
skyldu. Við vinir þeirra vissum
allir að fjölskyldan, — dætur
þeirra hjóna og þeirra eiginmenn,
mundu sérstaklega um þessi jól,
ásamt litlu dótturdótturinni, safn-
ast saman að Hegereiterweg 17 í
Hamborg til að fagna afmæli frú
Sigrid en það var einmitt daginn
fyrir andlát Ottos. Það er oft svo
skammt milli sorgar og gleði,
skins og skúra og væntanleg gleði-
stund gwtur breytzt í sorgarstund
fyrr en varir. Með Otto Erdland er
burt kallaður af sjónarsviðinu
mikill íslandsvinur. Hann mun
hafa komið hingað fyrst til ís-
lands laust fyrir eða eftir 1930, í
erindum fyrir fyrirtækið Otto
Erhard í Hamborg en Otto Erd-
land gerðist meðeigandi að því ár-
ið 1937.
Otto eignaðist brátt marga vini
og kunningja hér á landi. Bar þar
margt til. Otto var einstakt glæsi-
menni og hafði auk þess til að
bera mikla persónutöfra, glaðlegt
og hlýtt viðmót, svo að tnenn löð-
uðust að honum og vildu gjarnan
blanda geði við hann, og vildi
hann auk þess hvers manns götu
greiða ef kostur var.
Áður en til íslands kom í fyrsta
sinn, hafði Otto aflað sér stað-
góðrar þekkingar á Norðurlanda-
málunum, eða „skandinavisku"
eins og við gjarnan köllum það
mál sem við getum rætt við alla
Norðurlandabúa á, svo ekki var
um neina tungumálaörðugleika að
ræða, því á þessum árum voru
menn almennt betur mæltir á
Norðurlandamálin, heldur en t.d.
enska eða þýska tungu.
Til Íslands lá'leið hans oft og
mörgum sinnum. Hér í Reykjavík
kynntist Otto sinni ágætu konu,
Sigrid Jacobsen. Er hún islenzk í
móðurætt en faðirinn norskur.
Sigrid hafði starfað við skrifstofu-
störf í Reykjavík um nokkurt
skeið, en kom fyrst til íslands á
vegum föður síns, en hann rak út-
gerð og síldarsöltun á Siglufirði
um árabil.
Otto steig mikið heillaspor er
hann kvæntist Sigrid árið 1938, og
komu þessi ungu glæsilegu hjón
hingað í brúðkaupsferð síðla
sumars sama ár og var vel fagnað
af stórum vinahópi, og minnast
þátttakendur enn þann dag í dag,
eftir 43 ár, þessara kvöldstunda
með þeim hjónum á Hótel Borg.
Svo gjörsamlega hrifu þau alla
Legsteinn er
varanlegt
minnísmerki
Framleiöum ótal
tegundir legsteina.
Allskonar stæröir og
gerðir. Veitum fúslega
upplýsingar og ráðgjöf
um gerð og val
legsteina.
!S S.HELGASON HF
ISTEINSMIÐJA
■ SKEMMUVEGI 48 SlMI 76677
með framkomu sinni og voru þetta
alennt fyrstu kynni margra úr
vinahópi Ottos af konu hans og
vinaböndin treystust.
Rúmu ári eftir að Sigrid og Otto
gengu í hjónaband brauzt síðari
heimsstyrjöldin út og þá fóru örð-
ugir tímar í hönd. En það var eins
og „hulinn verndarkraftur" héldi
verndarhendi sinni yfir þeim
hjónum. Þau voru t.d. nýflutt úr
sínu fyrsta húsnæði í Hamborg
þegar húsakynnin voru lögð í rúst
í loftárás.
Oft varð manni hugsað til
þeirra hjóna á stríðsárunum, og
það voru því gleðifregnir sem
maður fékk að stríði loknu er bréf
barst frá þeim um það að þau
væru ósködduð, á lífi, og hefði
þeim fæðzt dóttir þ. 25.9. 1942,
sem hlaut hið rammíslenzka nafn
Gudrun.
Yngri dóttir þeirra er Solveig,
fædd 12.2. 1946. Báðar eru dætur
þeirra giftar. Gudrun er barna-
læknir, búsett í Völklingen, en
Solveig er búsett í Sviss og eiga
þau eina dóttur, Solveigu að nafni.
Það lætur að líkum að heim-
sóknir til þeirra Erdlandshjóna
yrðu all tíðar er leið lá um Ham-
borg, og er talað af reynslu er sagt
er að oft mun lykkja hafa verið
lögð á leið sína til þess að geta
heimsótt þau og njóta gestrisni
þeirra og glaðlegs viðmóts, enda
framkoma þeirra öll slík að það
var eins og þeim væri stór greiði
gjörður með heimsókninni.
Að stríði loknu fór mikið ann-
ríki í hönd fyrir Otto, en það var
að byggja fyrirtækið upp að nýju
og fetaði hann þar dyggilega í
fótspor stofnanda og fyrsta eig-
anda fyrirtækisins, Otto Erhard,
en hann var að stríði loknu orðinn
háaldraður, en hafði þurft að
b.vggja fyrirtækið aftur upp frá
grunni að lokinni heimsstyrjöld-
inni fyrri, en sleitulaust var unnið
og aldrei kvartað, enda naut fyrir-
tækið vaxandi virðingar og vel-
gengni fyrir áreiðanlegheit. Loks
kom að því að Otto Erdland var
sæmdur riddarakrossi hinnar ís-
lenzku fálkaorðu fyrir hjálpsemi
við Islendinga en það skeði ekki
fyrr en árið 1977 og má sannar-
lega segja að það hafi verið ára-
tugum seinna en efni stóðu til.
Það er svo margs að minnast að
leiðarlokum. Samfylgdar og
gönguferða í Fagraskógi í Svarta-
skógi, dvalar í Sylt, heimsóknar til
Saarbrúcken og ekki síst allra
heimsóknanna til Hamborgar á
þeirra fagra heimili þar. Fyrir allt
þetta vildi ég þakka fyrir hönd
okkar hjóna. Við vinir Ottos sökn-
um hans sárt, en gott er að hugsa
sér að hann muni verða mættur til
að taka á móti manni að lokinni
ferð yfir móðuna miklu eins og
hann ávallt gjörði er komið var til
Hamborgar hvort heldur var með
skipi, járnbraut eða flugvél. Mót-
tökurnar brugðust aldrei.
Sárastur harmur er kveðinn að
eiginkonu Ottos svo og dætrum
þeirra og fjölskyldum. Fjarlægðin
hindraði okkur, vini hans á ís-
landi, í að geta þrýst hendur
þeirra og vottað þeim þannig sam-
úð okkar, en þá hefðu öll orð verið
óþörf, því að hið milda mál þagn-
arinnar segir oft meira ásamt
hlýju handtaki en nokkur orð fá
gjört, en þeim öllum sendum við
okkar innilegustu samúðarkveðj-
ur.
Jón Björnsson
VEGNA mistaka sem urðu er þessi
minningargrein birtist í blaðinu, er
hún birt hér aftur í dag. Biður blaðið
hlutaðeigandi afsökunar á mistök-
unum.
MALLORKA
perla Miðjarðarhafsins
Þar hafa margir íslendingar dvalið og notið veður-
blíðunnar og landslagsins.
Alltaf eru menn að uppgötva eitthvað nýtt og
skemmtilegt á Mallorka.
Atlantik býður upp á einn glæsilegasta gististað á
Mallorka, íbúðahótelið ROYAL PLAYA DE PALMA,
sem íslendingum líkar svo vel við.
Oll aðstaða, jafnt úti sem inni, er upp á það besta,
verslanir, veitingastaðir og skemmtistaðir í næsta
nágrenni.
Leitið upplýsinga á skrifstofunni og fáið nýja
litprentaðan bækling.
17. ágúst-
22 dagar
27. júlí —
22 dagar
7. september —
22 dagar_____
28. september-
29 dagar
FERÐASKRIFSTOFA, Iðnaðarhúsinu, Hallveigarstíg 1, Símar: 28388 og 28580.