Morgunblaðið - 14.02.1982, Page 40
40
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 14. FEBRÚAR 1982
Gallcrí Langbrók er á neóstu
hæó í tumi Landlæknishússins á
Bernhöftstorfu við Amtmannsstíg-
inn. Ilúsið er allt úr viði gert því
menn töluðu ekki mikið um steypu
og styrktarjárn þegar Stefán
(iunnlaugsson bæjarfógeti reisti
sér húsið í Ingólfsbrekku 1838.
I'að er lítið farið að láta á sjá,
húsið. I því hafa starfsemi sína
svokallaðar Langbrækur, félags-
skapur 14 listakvenna, áður voru
þær 12 en tvær hafa bæst í hópinn.
I>ar halda þær smásýningar og
vinna mörg sín verk.
Sýningarsalurinn er ekki stór.
.Varla meira en þrisvar sinnum þrír
metrar, en þar er bjart inni og lítil
gcstabók stendur opin á litlu borði
við einn gluggann. Fjórir höfðu
skrifað í hana þegar Mbl. leit þar
inn árla dags í vikunni. Á þremur
veggjum salarins hangir tauþrykk
Guðrúnar Auðunsdóttur. Ilún
heldur sýningu á verkum sínum í
Langbrók í þetta sinnið.
Inn af sýningarsalnum eru tvö
smærri herbergi full af unnum
og hálfunnum verkum og í öðru
þeirra stendur Guðrún og býður
góðan daginn og sæti með.
Hvað er tauþrykk, Guðrún?
„Tauþrykk á sér mjög langan
aldur í heiminum. Það nær svo
langt aftur að ég þori bara ekki
að segja þér þá sögu. Aðferðirn-
ar eru margar við að vinna tau-
þrykk, tímafrekar og erfiðar.
Ein aðferðin er kölluð silki-
Guðrún Auðunsdóttir í Langbrók: „Það er gaman að vinna við tauþrykk þó það sé erfitt og illa keypt.“
Ljósmynd Mhl. ÓI.K.M.
„Kynskipting
í þessu
eins og öðru“
Spjallað við
Guðrúnu Auðunsdóttur
um tauþrykk o.fl.
þrykk, þó silki sé ekki notað
lengur í eins miklum mæli og áð-
ur. Nælondúkur er strekktur á
ramma og lit, sem við blöndum
eftir vild er hellt á nælonið, eftir
að búið er að einangra það með
lakki eða filmu þannig að út
komi það form sem maður vill.
Síðan er liturinn skafinn fram
og til baka um nælonið, eða
þrykktur í nælonið. Þá er litur-
inn látinn þorna og svo er
straujað yfir en áður en það er
gert er dúkurinn látinn vera í
hita í vissan tíma.“
En textil?
„Textil er vefnaður og tau-
þrykk til samans og yfirleitt allt
sem unnið er úr þræði. Það eru
ekki nema 10 ár síðan textildeild
var stofnuð í Myndlista- og
handíðaskólanum og um 10 ár
eru síðan Textilfélagið var stofn-
að, svo þessi listgrein er ung hér
á landi. Þó var hún stunduð mik-
ið á fyrri öldum, en það hefur
verið stór eyða í greininni síðan
það var.“
Það voru 12 konur sem stofn-
uðu Langbrók og það voru konur
sem stofnuðu Textilfélagið. Hafa
karlar engan áhuga á textil og
tauþrykki?
„Ég veit ekki með áhugann, en
það er staðreynd að einungis
kvenmenn stunda þessa listgrein
hér á íslandi. Það hefur verið
kynskipting í þessu eins og öðru
í þjóðfélaginu. Skýringin á því?
Ætli það sé ekki bara það að
kvenmenn hafa í gegnum tíðina
verið meira með tau á milli
handanna. Erlendis er meira um
að karlmenn snúi sér að tau-
þrykki eða vefnaði. Kannski
þetta séu bara einhverjir for-
dómar í fólki. Það sem kaupir á
annað borð myndlistarverk,
kaupir ekki í eins miklum mæli
textil eins og málverk eða grafík.
Þó finnum við fyrir breytingu á
þessu. Textil og tauþrykk eru
meira kynnt nú en áður. Það
hlýtur að koma að því smám
saman að listgreinin hljóti meiri
viðurkenningu.
Annars er þessi listgrein svo
ung á íslandi eða stutt síðan hún
var endurreist að hún á alla
möguleika fyrir sér.“
Þú lærðir í Danmörku?
„Já, fyrst þar. Ég var hjá
konu, hún heitir Ingemarie
Ostenfeld, og hún var eingöngu í
tauþrykki og taulitun. Það var
afskaplega gott að læra hjá
henni og ég var heppin að lenda
hjá konu sem stundaði þetta ein-
göngu. Þá kom ég hingað til ís-
Listasafn
íslands 1982:
Sjö
sýningar
fyrir-
hugaðar
- starfsemi
námshópa tekin
upp að nýju
Á ÞESSU ári er fyrirhuguð
fjölskrúðug starfsemi í Lista-
safni íslands, þrátt fyrir
þröngan fjárhag, að sögn for-
ráðamanna þess. 1‘annig eru
fyrirhugaðar a.m.k. 7 listsýn-
ingar á árinu og auk þess
verður hafin á ný á vegum
safnsins starfsemi námshópa
fyrir almenning um íslenska
og erlenda myndlist.
Dagana 27. febrúar til 28.
mars verður í forsal safnsins
sýning á grafíkverkum eftir
hinn heimsþekkta danska mál-
ara, Asger Jorn.
20. mars til 18. apríl verður
yfirlitssýning í miðsölum á
verkum Brynjólfs Þórðarsonar
(1896-1938).
3. apríl til 23. maí verður í
forsal sýning á grafík eftir
frummyndum Bertel Thorvald-
sens. Hér er um að ræða gjöf
frá Thorvaldsenssafninu í
Kaupmannahöfn í tilefni af
stofnun Listasafns íslands árið
1884.
24. apríl til 23. maí verður í