Morgunblaðið - 14.02.1982, Blaðsíða 41
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 14. FEBRÚAR 1982
41
lands og fór þegar í Myndlista-
og handíðaskólann, í Textildeild-
ina, sem þá var nýstofnuð. Þá
var hún Þorbjörg Þórðardóttir
nýkomin frá námi í Svíþjóð í
þessari grein og kom með nýj-
ustu aðferðir þaðan. Heppin
þar.“
Út af hverju tauþrykk en ekki
eitthvað annað?
Æi. Það hefur komið af sjálfu
sér eins og hvað annað. Það er
gaman að vinna við tauþrykk þó
það sé erfitt og illa keypt. Það er
sennilega eina skýringin að frá-
töldum þessum stóru sem erfitt
er að útskýra og enginn skilur."
Allar myndirnar eru af fatn-
aði.
„Já, það er þessi áhugi á ein-
földum grunnsniðum fatnaðar.
Einfaldur, þægilegur fatnaður,
góður fyrir skrokkinn og hlýr.
Ekki þessar öfgar sem eru í nú-
tíma klæðnaðinum. í tauþrykk-
inu er fatnaðurinn aðeins orðinn
form og litir. Ég kann vel við
það.“
Og þú gerir meira en tau-
þrykk.
„Ég sauma líka. Ég er að
sauma núna tveggja metra stóra
kápu nákvæmlega eins og þá
sem var á sýningu ASÍ fyrir ári
síðan. Það er hvít kápa á hvítum
fleti. Aðrar vinnuaðferðir en
sömu mótíf. Þessi kápa fer á
sýningu á Akureyri í næsta
mánuði. Svo finnst mér afskap-
lega gaman að vinna í leikhúsi
við leikmyndagerð. Þegar ég
vinn við tauþrykk er ég ein, sem
er mjög gott, en svo þykir mér
líka afskaplega þægilegt að
vinna í hópvinnu í leikhúsi. Það
er spennandi og gott fyrir mig að
vinna með fólki að einhverju
takmarki."
— ai.
aðalsölum safnsins sýning á
uppstillingum í íslenskri
myndlist á 20. öld.
A Listahátíð í Reykjavík,
dagana 5. til 30. júní, verður í
Listasafninu sýning á málverk-
um og grafík eftir kínverska
listmálarann Walasse Ting.
Ting starfar að jafnaði í New
York, en verk hans hafa verið
sýnd víða um heim. Verkin eru
„fígúratív" og mjög litrík.
3. júlí til 15. september verður
í öllum sölum safnsins sýning á
íslenskum landslagsmyndum í
eigu þess. Með því móti gefst
erlendum ferðamönnum kostur
á að sjá í hnotskurn þróun ís-
lensks landslagsmálverks á 20.
öld.
2. til 31. október verður svo í
aðalsölum Listasafnsins yfir-
litssýning á verkum Jóns Þor-
leifssonar (1891 — 1961).
Starfsemi námshópa fyrir al-
menning hefst 11. febrúar
næstkomandi, en þá mun Hörð-
ur Ágústsson listmálari hefja
röð fyrirlestra um íslenska
myndlist á 20. öld. Mun hann
taka ákveðið tímabil fyrir í
hverjum fyrirlestri, en þeir
verða fjórir alls. Starfi hópsins
lýkur 4. mars.
Þann 11. mars hefur Guð-
björg Kristjánsdóttir listfræð-
ingur röð fjögurra fyrirlestra
um hræringar í myndlist eftir
1945, einkum erlendri.
Ef góð þátttaka verður í þess-
um tveimur námshópum verður
væntanlega framhald á þessari
fræðslustarfsemi að hausti.
EF ÞAÐ ER
FRÉTTNÆMT
ÞÁ ER ÞAÐ í
MORGUNBLAÐENU
Opió prófkjör Alþýóuflokksins um helgina
Kosiö í Sigtúni og lönó
laugard. kl. 13—18
sunnud. kl. 10—19
Sjöfn Sigurbjörnsdóttir hefur starfaö af
miklum krafti og dugnaði í borgarstjórn
Reykjavíkur.
Gerum sigur hennar sem stærstan í próf-
kjörinu.
Stuðningsmenn.
Upplýsingasímar
74431 og 73621
Er gamla eldhúsinnréttingin farin að gefa
sig? — eöa vantar þig jafnvel innrétt-
ingar í nýja húsiö?
— Kalmar innrétting er rétta svariö.
Fjölbreytni, hagkvæmni og stílhreint útlit
sitja í fyrirrúmi hjá okkur.
Lítiö viö í sýningarsal okkar í Skeifunni 8
eöa hringiö eftir bæklingi.
Reynið þjónustuna.
kalmar
innréttingar hf
SKEIFUNNI8, SIMI82011.