Morgunblaðið - 14.02.1982, Síða 44
44
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 14. FEBRÚAR 1982
í húsi listmálara
MorKunblaöið/ÓI.K.M.
Steinþór Sigurðsson býr í
stórskemmtilegu húsi við Fossa-
götu. Hann segir að þar sé kyrr-
látt — eins og í sveitinni.
En flugvöllurinn?
Það er ekkert ónæði af honum.
Þær fljúga ekki hér yfir, flugvél-
arnar, við erum ekki í fluglínu
sem þeir kalla. Þetta er gott
hverfi og notalegt. Eins og lítið
þorp í miðri Reykjavík.
Og Vatnsmýrin.
Já, Vatnsmýrin er skemmtileg
á sumrum og vorin. Það er meira
varp hér en nokkurn grunar. Ég
legg til að Vatnsmýrinni verði
breytt í votlendisgarð. Þá yrðu
grafin hér sýki og mýrin vernd-
uð, svo fuglarnir hefðu frið og í
framhaldi af þessu mætti leggja
göngustíga og brýr. Það má
aldrei slétta mýrina og gera
hana véltæka fyrir sláttuvélar
bæjarins. Þá væri friður fugl-
anna úti.
Steinþór á sér vinnustofu í
litlum bílskúr.
Við keyptum þetta hús fyrir
einum tíu árúm, segir hann: og
þá var starfrækt hér bílaverk-
stæði, svo það var í rauninni
hægur vandi að búa sér úr því
vinnustofu. Þetta er ágætt
vinnupláss, en mætti vera helm-
ingi stærra.
Hvernig fer skammdegið í þig
Steinþór, og málverkið?
Ja, ég vinn nú lítið við mál-
verkið þessar vikurnar — en það
,er ekki útaf skammdeginu í
sjálfu sér. Ég er fastráðinn við
Leikfélag Reykjavíkur, svo vet-
urnir fara mestan part í leikhús-
ið. A sumrin hef ég fremur tíma
fyrir málverkið. Þó koma eyður í
þetta á veturna, eins og gengur,
og þá hef ég góðan frið hér á
vinnustofunni. Ég skipti mér
sem sagt milli leikhússins og
málverksins og af því náttúru-
lega er ég ekki afkastamikill
málari.
Steinþór krossleggur fætur og
kveikir sér í sígarettu. Maður
kominn undir fimmtugt, þrekinn
og breiðleitur, góðlegur og hlær
inní sig. Næst ætlar hann að
segja lítillega frá námsárunum.
Eg var fimm ár við nám í
listaháskólanum í Stokkhólmi.
Þegar ég loksins útskrifaðist fór
ég á flakk; keypti mér mótorhjól
og keyrði um Evrópu. Endaði svo
fyrir rest suður á Spáni og þar
kom ég mér fyrir í Barcelona og
stundaði nám þar hátt á annað
ár. Ég lifði eins og blómi í eggi,
en einn dag ber svo við að ég fæ
fréttir af saltskipi á austur-
strönd Spánar á leið til íslands.
Þá ákvað ég að það væri tími til
kominn að halda heim. Ég sím-
aði til Kola & salts, sem þá hét,
og fékk leyfi til að fara heim
með þessu skipi með allt mitt
hafurtask. Alkominn heim byrj-
aði ég svo kennslu í Handíða-
skólanum. Nokkru síðar gerist
Gunnar Hansson skólastjóri við
skólann og hann fékk mig fljót-
lega til að vinna með sér fyrir
Leikfélagið. Síðan hef ég verið
þar meira og minna viðloðandi.
Steinþór sprettur uppúr sæti
sínu, grípur til pensilsins og fer
að dedúa við mynd eina stóra.
Ég hvíli alltaf þessar myndir
mínar, segir hann og tínir útúr
sér orðin: Já og helst lengi. Svo
kem ég að þeim aftur og sé þær
með augum ókunnugs manns.
Nei, það skiptir mig engu máli
hvaða tíma sólarhrings ég vinn
að mynd — en ég verð að fá að
klára hana í dagsbirtu. Það verð
ég að fá að gera.
Hann leggur frá sér pensilinn
og sest á ný.
Já, ég kann þessari skiptingu
vel — milli leikhússins og mál-
verksins. Ætli það séu ekki ein
tuttugu ár sem ég hef verið hjá
Leikfélaginu. Það á vel við mig
að starfa innan um fólk og vinn-
an hjá Leikfélagi Reykjavíkur
krefst mikillar samvinnu, þver-
öfugt við málverkið þar sem
maður er einræðisherra.
Þessi mynd þarna, Steinþór?
Já. Þetta er óljós minning um
nokkuð sem ég upplifði eitt sinn
inná öræfum. Úr alfaraleið heitir
hún. Ég reyni að koma þarna til
skila minningu úr öræfaferð —
en alls ekki að kortleggja lands-
lagið. Það sátu einhver hughrif í
mér úr þessari ferð og þau reyni
ég að setja á mynd. Þessar
myndir mínar eru yfirleitt áhrif
frá því sem ég hef upplifað og
frá umhverfinu. Einhver sagði
að þær væru ljóðrænar — en útí
þá sálma kæri ég mig ekki að
fara. Eini mælikvarðinn í mynd-
list er hvort mynd sé góð eða
vond. Manni finnst þær ýmist
góðar eða vondar. Það er allt og
sumt og þarf í rauninni ekki
neinar fræðilegar ritgerðir.
Annað hvort finnst manni mynd
góð eða vond.
Þú ert ekki pólitískur í þínum
myndum?
Nei, áróður á lítið erindi í
myndir. Ég hef í sjálfu sér ekk-
ert á móti pólitík, en það er með
pólitíkina eins og landslagið, að
það verður engin mynd listaverk
aðeins af því hún sýnir landslag.
Það er hægt að hugsa sér að póli-
tísk mynd sé listaverk, mikil lif-
andis ósköp, en ég lít svo á að
það séu lögmál myndlistarlegs
eðlis að gera mynd að listaverki,
en ekki hvort það sé í henni póli-
tískur áróður eða landslag eða
eitthvað annað. Það eru til svo-
kallaðir naívistar meðal málara,
fullorðin börn, og þeir geta gert
tæra myndlist af brjóstvitinu
einu saman og hjartans ein-
lægni, en á hinn bóginn getur
djúpvitur hugsjónamaður í póli-
tík ekki gert góða mynd, nema
hann sé jafnframt listamaður.
Að lokum Steinþór Sigurðs-
son: Hvað finnst þér um það sem
er nú að gerast í myndlistinni?
Þær hræringar sem eru í
myndlistinni í dag einkennast af
hömluleysi og það er í sjálfu sér
ágætt. Það er allt betra en stöðn-
un. Ég hef nú gaman af ýmsu
sem ungir myndlistamenn eru að
gera — en mér þykir verst hvað
þessir performansar þeirra eru
oft andskoti leiðinlegir!
Lágmarksverð
á loðnu og
loðnuhrognum
VERÐLAGSRAÐ sjávarútvegsins
hefur ákveðið eftirfarandi lágmarks-
verð á loðnu og loðnuhrognum frá 1.
janúar til loka vetrarloðnuvertíðar
1982:
Fersk loðna til frystingar; undir
55 stk. í kg kr. 2,20 hvert kíló en 55
stk. o.fl. í kg kr. 1,80 hvert kíló.
Fersk loðna til beitu, beitufryst-
ingar og skepnufóðurs; ein króna
kílóið. Loðnuhrogn til fyrstingar;
fimm krónur kílóið.
Nýr forseti
í Costa Rica
San Jnsc. ('osla Kica. Al*.
LUIS Aiberto Monge, leiðtogi
stjórnarandstöðuflokks Costa Rica,
bar nýlega sigurorð af fjórum fram-
bjóðendum til forsetakjörs, þ.á m.
frambjóðanda stjórnarflokks lands-
ins, Kafael Calderon, og verður þar
með næsti forseti Costa Rica. Hann
tekur við í maímánuði. Monge bíður
það viðamikla verk að reyna að
forða landi sínu frá allsherjar gjald-
þroti, en gjaldmiðill landsins hefur
verið felldur um mörg hundruð pró-
sent á skömmum tíma og verðbólg-
an hefur aukizt mjög hröðum skref-
um.
Monge er 56 ára og var fram-
bjóðandi Þjóðfrelsisflokksins í
kosningunum. Hann kom fram í
sjónvarpi eftir að ljóst var að
hann hafði sigrað og hvatti landa
sína til að fylkja sér að baki nýj-
um forseta og kvaðst mundu
leggja hart að sér til að leiða land-
ið út úr öllum þeim ógöngum sem
það er nú í. Lækkandi kaffiverð á
heimsmarkaði og hækkandi 'olíu-
verð hefur átt sinn þátt í efna-
hagsvanda landsins og erlendar
lántökur síðustu árin hafa verið
langt umfram það sem Costa Rica
getur staðið við.
Calde, 32ja ára og fyrrverandi
utanríkisráðherra Sameiningar-
flokksins, sem er við stjórn í land-
inu, er sambræðsla fjögurra
flokka undir forystu fráfarandi
forseta, Rodrigo Odio Carazo.
Samkvæmt stjórnarskránni situr
forseti aðeins í eitt fjögurra ára
kjörtímabil.
Thorpe fram-
kvæmdastjóri
hjá Amnesty
l.nndon. Al*.
JEREMY Thorpe, fyrrverandi
formaður Frjálslynda flokksins í
Bretlandi, var í dag skipaður for-
stjóri Bretlandsdeildar Amnesty
International. Fjörutíu og tveir
sóttu um starfið. Thorpe tekur við
því í næsta mánuði og hefur um
eitt þúsund sterlingspund á mán-
uði í laun. í Bretlandsdeild Amn-
esty International eru um sautján
þúsund félagar. Formaður Amn-
esty International í London, Roger
Brioettet, kunngerði þetta og
sagði að Thorpe væri mjög ánægð-
ur að hafa fengið starfið, sem er
hið fyrsta sem hann tekst á hend-
ur síðan hann var sýknaður í um-
töluðum réttarhöldum eins og ít-
arlega var frá sagt á sínum tíma.
Verðlaun veitt
fyrir uppskrift-
ir með silungi
BÚNAÐARFÉLAG íslands hefur
veitt Kristínu Gestsdóttur verð-
laun úr Framleiðnisjóði landbún-
aðarins fyrir bók hennar „220
gómsætir sjávarréttir", sem Bóka-
útgáfan Örn og Örlygur hf. gaf út.
Verðlaunin voru veitt fyrir upp-
skriftir og leiðsögn um matreiðslu
á silungi.