Morgunblaðið - 14.02.1982, Side 45
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 14. FEBRÚAR 1982
45
Sjötug f dag:
Svava Ólafsdótt-
ir - Aftnæliskvedja
Það er næstum því ótrúlegt, að
hún Svava Ólafsdóttir Eskihlíð 26
skuli í dag vera orðin sjötug. Svo
ung er hún enn í anda, glöð og reif,
að beint lægi við að vefengja aldur
hennar, ef hann stæði ekki svart á
hvítu í kirkjubókunum. Á þessum
merkisdegi ævi hennar er mér
bæði ljúft og skylt að flytja henni
hugheilar afmælis- og árnaðar-
óskir mínar og fjölskyldu minnar
með alúðarþökk fyrir kynnin góðu,
samvinnu og samstarf um 11 ára
skeið.
Svava Ólafsdóttir er borinn og
barnfæddur Reykvíkingur og upp-
alin í hjarta bæjarins við Austur-
völl, dóttir Þóru Bjarnadóttur og
Ólafs Kárasonar kaupmanns á
ísafirði. Svava ólst upp hjá Gróu,
móðursystur sinni og Þorvaldi
Þorvarðssyni, prentsmiðjustjóra
og hefur alið allan aldur sinn hér í
Reykjavík, ef undan er skilinn
smátími, er hún dvaldist hjá móð-
ur sinni og stjúpföður norður á
Húsavík.
Snemma kom í ljós að Svava var
prýdd mörgum góðum kostum, er
gerðu hana að eftirsóknarverðum
samferðamanni á lífsveginum.
Gáfuð er hún og glaðvær, listræn
og söngelsk og félagslynd og fórn-
fús með afbrigðum, í fáum orðum
sagt flestum þeim kostum búin
sem eina konu mega prýða.
Hinn 6. júní árið 1931, þá 19 ára
að aldri, giftist Svava Jökli Pét-
urssyni málarameistara, miklum
hæfileika og drengskaparmanni
og stóð sambúð þeirra í tæp 42 ár,
en mann sinn missti Svava 27. maí
árið 1973.
Þau hófu búskap með tvær
hendur tómar, en rík af mann-
kostum og bjartsýnni trú á lífið og
úrkosti þess og með dugnaði,
reglusemi og nýtni blómgaðist
brátt hagur þeirra í farsælu
hjónabandi, þar sem hamingjusól-
in skein í heiði. Lengst af stóð
heimili þeirra í eldri hluta borgar-
innar en um árið 1965—1966 flutt-
ust þau upp í Árbæjarhverfið, þar
sem þau reistu sér fallegt hús að
Fagrabæ 11. Ógleymanlegt verður
okkur vinum Svövu heimili þeirra
hjóna. Þar vitnaði allt jafnt úti
sem inni um reglusemi, snyrti-
mennsku og smekkvísi húsbænd-
anna og listræn viðhorf og hand-
bragð þeirra. Þar ríkti menning-
arlegt andrúmsloft, góðhugur og
Reyðarfjörður:
Sigurjón Olason
formaður Sjálf-
stæðisfélagsins
Reyðarfirði, II. febrúar.
AÐALFIJNIHJR Sjálfstæðisfélagsins
var haldinn 31. janúar, þar sem ný
stjórn var kosin. Formaður er Sigurjón
Olason, meðstjórnendur eru Arnþór
Inirólfsson, Páll Klísson, Markús < Juð
hrandsson og Þorvaldur Aðalsteins-
son.
í kjördæmisráð voru kjörnir
Hilmar Sigurjónsson og Jónas
Jónsson. Skráðir félagsmenn eru nú
34.
— Gréta
AtGLYSINGA
SÍMINN KR:
glaðværð, greiðasemi og gestrisni.
Og þessa alls nutu þeir hinir
mörgu, sem sóttu þau hjónin heim
og áttu með þeim ánægjustund á
fallegu heimili þeirra og hver fór
ekki glaðari í bragði og ríkari í
huga af þeirra fundi. Svo rúmgott
og skilningsríkt var hjarta þeirra.
Og Svövu er það svo eðlislægt að
kæta og gleðja og sjá broslegu og
björtu hliðarnar á tilverunni, en
henni er ekki síður lagið að sætta,
hugga og græða, svo næm er hún á
hagi annarra og kjör.
I þeim efnum brást henni sjald-
an ratvísin að mannlegu hjarta.
Þeim hjónum varð þriggja sona
auðið, sem allir eru á lífi, hinir
gjörvulegustu menn, en þeir eru:
Ingólfur, málarameistari, Garðar
bankagjaldkeri og Stefán Gunnar
kennari. Auk drengjanna þriggja
fæddist þeim meybarn sem kom
andvana og aldrei fékk litið dags-
ins ljós. Kynni okkar Svövu hóf-
ust, er ég kom í ársbyrjun 1971 til
starfa í Árbæjarsöfnuði og ég
hafði ekki lengi dvalist í Árbæn-
um, er mér varð það ljóst, að
Svava og Jökull voru aðaldrif-
fjaðrirnar í öllu félagslífi hverf-
isbúa og vart hægt að hugsa sér
samkomuhald og gleðistundir án
þeirra því að alls staðar voru þau
hrókar alls fagnaðar, glettin, gam-
ansöm og skemmtu með gaman-
málum. Svövu var svo einstaklega
lagið að hýrga, gleðja og kæta með
græskulausu gamni og kímni.
En Svava sá einnig og ekki síður
alvarlegri hliðar lífsins og allan
þarfan og góðan félagsskap studdi
hún með ráðum og dáð. Og það
munar um mannkostakonur á
borð við Svövu þar sem þær veita
lið.
Árbæjarsöfnuður átti í henni og
þeim hjónum báðum einlæga
hollvini, sem bezt kom í ljós er
undirbúin var bygging safnaðar-
heimilisins. Þar reyndust þau hin-
ir traustustu liðsmenn í hvívetna
og hvöttu með ráðum og dáð til
framkvæmda.
Það fór ekki hjá því að svo fé-
lagslynd og ósérhlífin kona sem
Svava er lenti í ýmsum félags-
störfum. Þegar Kvenfélag Árbæj-
arsóknar var stofnað árið 1968 var
hún óðar komin í nefndarstörf og
stjórn og formaður félagsins var
hún um skeið og dreif starfið
áfram með dugnaði sínum og
krafti og smitandi áhuga. Og þeg-
ar eiginkonur málarameistara
stofnuðu með sér félagsskap var
Svava kjörin formaður og var svo
lengi. Ófáar eru þær ráðstefnurn-
ar, sem Svava sótti fyrir hönd þess
félags bæði hér heima og erlendis
og marga vini eignaðist hún í öðr-
um löndum eftir þessar ferðir.
Svava hefur ævinlega haft mik-
ið yndi af tónlist og fögrum söng
og sjálf hefur hún um langt árabil
sungið með kórum hér í borginni.
Óhætt er því að fullyrða að Svövu
þurfti aldrei að leiðast af verk-
efnaskorti. Eitt vekur aðdáun,
hversu mörgu hún komst yfir að
sinna. Svo virtist sem Svava hefði
alltaf tíma fyrir alla og fjölþætt-
um störfum sínum gegndi hún
með sama lifandi áhuganum og
glaða og góða huganum.
Ég og fjölskylda mín eigurri
Svövu ótalmargt gott að þakka frá
liðnum samvistarárum, sem ég
minnist nú með miklu þakklæti.
Ég þakka Guði mínum fyrir að
hafa eignast hana að samstarfs-
manni og vini og bið hann að
blessa henni ókomin æviár. Svo
ung er Svava enn í anda, að ekki á
hér við að tala um ævikvöld. Og
því segi ég: Megi síðari hluti ungl-
ingsáranna þinna Svava, verða þér
bjartur og heiðríkur í ætt við birt-
una og gróandann eins og líf þitt
hefur verið fram að þessu.
Lifðu heil
Guðmundur Þorsteinsson
baðinnréttingar
í öllum málum
og gerðum
**í***' !
Eigum fyrirliggjandi
sturtuklefa og hurðir fyrir
sturtubotna.
Ofnþurrkaður furupanill og
furubitar í loft á lager til
afgreiðslu strax.
sýningarsalur
Höfum opnað nýjan sýningarsal
þar sem við sýnum: eldhúsinnrétt-
ingar, klæðaskápa, baðinnrétt-
ingar o.ffl.
Hagstætt verð. Leitið tilboða.
Góðir
greiðsluskilmálar
og stuttur
afgreiðslufrestur.
Heimsækið okkur
í sýningasal okkar.
Tréval hf. "=»
Nýbýlavegi 4, Kópavogi, sími 40800.