Morgunblaðið - 11.03.1982, Page 1
54. tbl. 69. árg.
FIMMTUDAGUR 11. MARZ 1982
Prentsmiðja Morgunblaðsins.
Guatemala:
Órói í kjölfar for-
setakosninganna
(•uatemala (’ity, 10. marz. AP.
LÖGREGLAN í GUATEMALA beitti táragasi og skothvellir heyrðust þegar
mörg hundruð mótmKlendum var bægt frá forsetahöllinni í höfuðborginni í
dag, en fólkið var að mótmæla hugsanlegum svikum í forsetakosningunum í
landinu.
Þrír frambjóðendur í kosning-
unum, sem lutu í lægra haldi fyrir
Guevara hershöfðingja, frambjóð-
anda fráfarandi herforingja-
stjórnar í landinu, voru handtekn-
ir í gær, en látnir lausir úr haldi
stuttu síðar. Frambjóðendurnir
sögðu, að þeir myndu halda áfram
mótmælum sínum gegn fram-
kvæmd kosninganna á sunnudag.
Tiltölulega fátt fólk tók þátt í
mótmælunum í Guatemala í dag
og búizt er við, að þing landsins
velji Guevara í forsetaembættið
þegar það kemur saman. Þingið
verður að skera úr um hver verður
forseti landsins, þar sem enginn
frambjóðenda hlaut hreinan
meirihluta atkvæða.
Frambjóðendurnir þrír, sem
lutu í lægra haldi, hafa krafizt
þess, að nýjar kosningar fari fram
innan 60 daga og halda þeir því
fram, að Guevara og herinn hafi
„stolið" kosningunum. I bréfi sem
frambjóðendurnir sendu fráfar-
andi forseta landsins, Garcia
hershöfðingja, segir, að fjöldi
stuðningsmanna þeirra hafi verið
drepinn eða fangelsaður.
Úrslit kosninganna urðu þau, að
Guevara hlaut 36% atkvæða,
næstur var frambjóðandi öfga-
sinnaðra hægri manna með um
27% atkvæða, frambjóðandi
kristilegra demókrata hlaut 22%
atkvæða, frambjóðandi þjóðernis-
sinna um 10% og aðrir minna.
Ekki hefur verið upplýst hve kosn-
ingaþátttaka var mikil.
Kristilegir demókratar í Vest-
ur-Þýzkalandi hafa lýst óánægju
sinni með það hvernig staðið var
að kosningunum í Guatemala og
sakað stjórnina í landinu um að
reyna að falsa kosningaúrslitin.
Að sögn þessara aðila hlaut fram-
bjóðandi kristilegra demókrata í
Guatemala langbezta útkomu
frambjóðenda.
(Símamynd AP)
Norskt gæzlulid á Sínaískaga
Fyrstu hermennirnir í nýju gæzluliði Sameinuðu þjóðanna á Sínaískaga
komu til Tel Aviv í gær. Á myndinni sést yfirmaður liðsins, norski hers-
höfðinginn Frederick Bull-IIansen, heilsa ísraelskum kollega sínum á
flugvellinum í Tel Aviv. Alls munu 11 þjóðir senda hermenn í gæzluliðið.
Gaddafi í
Vínarborg
Vínarborg, 10. marz. AP.
GADDAFI, þjóðhöfðingi Líbýu,
kom til Vínarborgar í dag, mið-
vikudag, og er það fyrsta
opinbera heimsókn hans til
vestræns ríkis. Fimmtíu Líbýu-
menn fógnuðu Gaddafi ákaft á
flugvellinum og veifuðu spjöld-
um, prýddum myndum af leið-
toganum og hrópuðu slagorð
gegn Bandaríkjamönnum og
með einingu Arabaríkja.
Bruno Kreisky, kanzlari,
og Willibald Pahr, utanríkis-
ráðherra, tóku á móti Gadd-
afi sem sté út úr vélinni með
barn sér við hönd. Börn í
móttökunefndinni færðu
honum blóm, en hundruð
lögreglumanna voru við
flugbrautina, þar sem vélin
lenti og hermenn með vél-
byssur á hverju strái.
Gaddafi verður fjóra daga
í Austurríki. Bandaríkja-
stjórn tilkynnti í dag að hún
hefði lagt bann við innflutn-
ingi olíu frá Líbýu og útflutn-
ingi á tilteknum vörum til
þess lands.
SOVIET/EAST GERMAN MIUTARY EQUIPMENT
OIRIAMBA. NtCARAGUA
%
(Símamynd AP.)
Loftmynd af búoum Sovétmanna í Nicaragua
Þessi mynd sýnir sovézk og austurþýzk hergögn í Diriamba í Nicaragua, að sögn bandaríska utanríkisráðuneytisins,
sem lét blaðamönnum þessa mynd í té í gær. A litlu myndunum til hægri, sem teknar hafa verið út úr aðalmyndinni,
má sjá sovézka fallbyssu, sem notuð er gegn skriðdrekum, og austurþýzka fiutningabíla. Annars staðar má sjá
loftvarnabyssur af sovézkri gerð og raðir hermanna.
Sovézka fréttastofan Tass vísar því algerlega á bug í dag að mikil og hættuleg hervæðing eigi sér stað í Nicaragua,
en getur í engu ásakana Bandaríkjastjórnar um að Sovétríkin og fylgiríki þeirra standi að hervæðingunni í landinu.
Barentshaf:
Óttast aö þorskstofii-
inn sé að hrynja
Osló, 10. mar8. Frá frétUriUra Mbl.
NORSKIR FISKIFRÆÐINGAR hafa nú komist að þeirri niðurstöðu eftir ítarleg-
ar rannsóknir, að þorskstofninn í Barentshafi eigi á hættu að verða aldauða. Heita
má, að kynþroska þorskur finnist ekki lengur og eru nú Norðmenn og Rússar að
íhuga mjög strangar takmarkanir við veiðinni til að reyna að byggja stofninn upp.
Niðurstöðurnar úr rannsóknar-
leiðöngrum Norðmanna í Barents-
hafi þykja vægast sagt dapurlegar,
enda fannst lítið sem ekkert af ung-
fiski, einkum úr þremur síðustu ár-
göngurium. Ýmsir höfðu þó trúað
því, að árgangurinn frá í fyrra væri
sterkur og gæti orðið grundvöllur
aukins afla, en nú er ljóst, að hann
er einnig mjög fáliðaður.
Um 80% af vertíðaraflanum við
Lófót er úr árganginum frá 1975, en
nú óttast menn, að sá stofn sé brátt
þurrausinn einnig. Vladimir Kam-
entsev, fiskimálaráðherra Sovétríkj-
anna, er í Osló þessa dagana til við-
ræðna við norskan starfsbróður
sinn, Thor Listau, en Norðmenn hafa
mjög reynt að fá Rússa til að auka
möskvastærð í togaravörpum sínum
til að hlífa ungviðinu og skera einnig
veiðina niður.
Norðmönnum er mikið í mun að
vernda þorskinn og á þessu ári verða
þorskveiðar bannaðar í 11 vikur alls.
Þeirri ákvörðun var þó ekki tekið
með þegjandi þögninni af norskum
sjómönnum og um tíma leit út fyrir,
að stjórnin ætlaði að renna á rassinn
með allt saman. Nú, eftir dóms-
dagsspár fiskifræðinganna, þykir
ekki lengur hætta á slíku, miklu
frekar að bannið verði enn aukið.
Nýju Ijósi
varpað á
dauða Moros
Kóm, 10. mars. AP.
DAGBLAÐ í Milano hefur nú varp-
að nýju Ijósi á hvernig dauða Aldo
Moro bar að höndum. Moro var ráð-
inn af dögum 1978. Að því er blaðið
segir stóð Moro í þeirri trú að sleppa
ætti honum, er hann kom sér fyrir í
farangursgeymslu bifreiðar, sem
stóð utan við húsið þar sem honum
var haldið föngnum. Nokkrum mín-
útum síðar var hann allur.
Um leið og hann var kominn
upp í farangursgeymsluna var
lögð yfir hann ábreiða. Síðan var
hann skotinn í hjartastað. Hann
lést ekki við skotið, eins og varð-
maður hans, skæruliðinn Prospero
Gallinari, hafði vonast til. Moro
reyndi að bera hönd fyrir höfuð
sér, en líkami hans var þá tættur
sundur með vélbyssuskothríð.
Ofangreind lýsing er byggð á
frásögnum skæruliðanna Antonio
Savasta og Patricio Peci, sem báð-
ir eru meðlimir Rauðu herdeild-
anna. Savasta var handtekinn 28.
janúar sl. er ítalska lögreglan af-
hjúpaði fylgsni herdeildanna þar
sem James L. Dozier var haldið.
Hefur hann viðurkennt þátttöku í
fjölmörgum morðum og árásum á
vegum herdeildanna. Savasta hef-
ur í yfirheyrslum veitt lögreglunni
margvíslegar upplýsingar.
Að því er hann segir, var ákveð-
ið að ráða Moro af dögum er ljóst
var, að ítalska stjórnin myndi ekki
ganga að kröfum Rauðu herdeild-
anna. Moro var síðan beðinn að
rita erfðaskrá sína. Af „mannúð-
arástæðum“ eins og Savasta
skýrði frá, var honum að því loknu
sagt, að hætt hefði verið við að
drepa hann.
Þá hefur hann skýrt frá því að
Moro hafi alltaf komið fram við
meðlimi herdeildanna með fullri
virðingu og að ágreiningur hafi
ríkt um hvort ráða ætti hann af
dögum. Savasta ásamt 15 öðrum
kemur fyrir rétt á mánudag vegna
ránsins á James L. Dozier.