Morgunblaðið - 11.03.1982, Side 2
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 11. MARZ 1982
Eggert Haukdal:
Hjörleifur reyn-
ir „að spila öllu
frá Suðurlandiu
- er ekki „æviráðinn“ sem iðnaðarráðherra
EGGERT Haukdal, alþingis-
maður, segir í forystugrein í ný-
útkomnu tölublaði af Suður
landi, málgagni Sjálfstæðis-
manna í Suðurlandskjördæmi,
að Hjörleifur Guttormsson, iðn-
aðarráðherra, hafi „sífcllt með
tillöguflutningi á Alþingi og í
alls kyns yfirlýsingum verið að
reyna að tefja fyrir og spila öllu
frá Suðurlandi" og á þingmaður-
inn þá við frekari virkjanir og
orkufrekan iðnað á Suðurlandi.
Eggert Haukdal segir í
grein sinni, að þegar orkumál-
in séu skoðuð nánar komi ann-
að í ljós „en það, sem virðist
vera samkvæmt einkaóska-
lista iðnaðarráðherra eða ann-
arra í núverandi stjórnar-
samstarfi, sem taka þátt í því
að leggjast á hlut Suðurlands.
Þeim mun ekki takast að
stöðva virkjanaframkvæmdir
á Suðurlandi." Eggert Hauk-
dal segir að ein af ástæðunum
fyrir því, að ekki muni takast
að stöðva virkjunarfram-
kvæmdir á Suðurlandi sé sú,
að „núverandi orku- og iðnað-
arráðherra er síður en svo
æviráðinn".
Sjá grein Eggerts Hauk-
dals á bls. 10.
LjÓHm. AS.
Brunarústir húss Egils Vilhjálmssonar hf. við Rauðarárstíg hafa nú verið
rifnar og hefjast byggingaframkvæmdir væntanlega innan skamms.
Seðlabankinn:
Sveigjanleg
bindiskylda
ákveðin 4%
BANKASTJÓRN Seðlabankans
hefur ákveðið, að hlutfall heildar-
innstæðna banka og sparisjóða
skuli vera 4% vegna sérstakrar
sveigjanlegrar bindiskyldu." Á síð-
asta ári var bindiskyldan ákveðin
2%, sem var hækkað í 3% 10. júlí
og síðan í 5% í ágústmánuði. Á
aðfangadag var þessi sveigjanlega
bindiskylda felld niður. 26. janúar
var hún ákveðin 3% og síðan 4%
frá og með gærdeginum.
Björn Theódórsson framkvæmdastjóri markaðssviðs Flugleiða:
Fengjum fjölmargar skaðabóta-
kröfur auk verulegs tekjutaps
„VID TRUIJM því hreint ekki að
ráðherrann framkvæmi eitthvað
slíkt. Auk verulegs tekjutaps sem
við yrðum fyrir, og getum nú ekki
reiknað út í snarheitum, þá myndu
aðilar sem verzlað hafa við okkur
áreiðanlega fara í skaðabótamál við
okkur,“ sagði Björn Theódórsson
framkva’mdastjóri markaðssviðs
Flugleiða, er Mbl. spurði hann hvað
það myndi þýða fyrir Flugleiðir, ef
áætlunarleyfi til Amsterdam og
Diisseldorf yrðu tekin af félaginu.
Björn sagði í upphafi að þeir hjá
Flugleiðum hefðu engar tilkynn-
ingar fengið um að slíkt stæði til.
„Við trúum því bara ekki,“ sagði
hann. „Við yrðum fyrir gífurleg-
um álitshnekki erlendis ef þetta
kæmi til, bæði hvað varðar ís-
landsflug og Atlantshafsflug.
Þetta yrði til þess að fólk tryði því
að íslenzka ríkið styddi ekki leng-
ur við bakið á fyrirtækinu, en áður
hefur komið fram að ríkið gerði
það. Það eru mjög strangar reglur
í þessum löndum og við myndum
verða fyrir skaðabótakröfum frá
ýmsum aðilum, ef við getum ekki
staðið við okkar skuldbindingar.
Við höfum ráðið fólk og stillt upp
flugvélum, þannig að við yrðum
bæði fyrir beinu tapi og skaða-
bótakröfum," sagði hann.
Björn ítrekaði í lokin, að Flug-
leiðir hefðu ekki fengið neinar til-
kynningar frá hinu opinbera í
þessa átt. Hann sagði einnig, að
stjórnarfundur yrði hjá Flugleið-
um í dag og þetta mál yrði áreið-
anlega til umfjöllunar þar.
Strætisvagnastjórar bidjast
undan akstri Ikarusvagna
Hlíf samþykkir
ÍSAL-samninga
AD FENGNIJM nokkrum breyting-
um á samningsdrögum verkamanna
í Hlíf við ÍSAL í gær voru samnings-
drögin samþykkt á félagsfundi með
123 atkvæðum gegn %, einn seðill
var ógildur.
Breytingar voru þær helstar að
verkamenn halda óbreyttu vakta-
álagi, 36,2%, út samningstímabil-
ið, eða til 1. október nk. Einnig var
þak á bónus- og launaauka afnum-
ið.
ALLIR fastráðnu bflstjórarnir á
leið 8 hjá Strætisvögnum
Reykjavíkur, 3 talsins, og einn
af þremur aflcysingamönnum,
hafa beðist undan því að aka
Ikarusvögnum í starfl sínu með
skriflegri beiðni til SVR, en Ei-
ríkur Asgeirsson forstjóri SVR
kvaðst verjast allra frétta um
málið þar til hann hefði skilað
borgarráði greinargerð um það.
Morgunblaðið ræddi í
gærkvöldi við Gunnar Guð-
jónsson eftirlitsmann hjá SVR
og staðfesti hann að það væri
rétt að þessir fjórir menn
hefðu beðist undan því að aka
Ikarusvögnum, „en það virðist
Sinfóníutón-
leikar í kvöld
FJÓRTÁNDU áskriftartónleikar
Sinfóníuhljómsveitar Islands á
þessu starfsári verða í kvöld í Há-
skólabíói. Efnisskráin er sem hér
segir: Rachmaninoff: píanókonsert
nr. 2. Tschaikofsky: Sinfónía nr. 4.
Hljómsveitarstjóri er Vladimar
Fedoseyev og einleikari Rudolf
Kerer, báðir frá Sovétríkjunum.
Hafa þeir fengið einkar lofsam-
lega dóma gagnrýnenda.
vera nokkuð stór hluti af
mannskapnum sem fellir sig
ekki við Ikarusvagnana". Að-
spurður um hvort það væri
vegna stærðar vagnanna svar-
aði Gunnar að svo væri ekki,
en Ikarusvagnarnir taka 68
farþega á móti 87 farþegum í
Volvovögnum af nýjustu gerð.
Hins vegar sagði Gunnar að
það væru ekki margar leiðir
sem Ikarusvagarnir gætu ann-
að án þess að vandræði sköp-
uðust á mestu annatímunum á
hverjum degi.
Fleiri salmonellutegundir
hafa fundist f verslunum
Skorið er undir skelina þar sem garnirnar liggja og þar eru tekin sýnis-
horn. Hægt er að vera smitberi í hálft ár. i.jóxmynd Mbi.: Kratjín
„ÞAD IIAFA fundist aðrar salm-
onella-tegundir en „salmonella
paralhypi-B tegundin“ í verslunum
hér í borginni og þær eru ekki
bara í þeim skjaldbökum sem talið
er að hafi verið fluttar ólöglega inn
í landið í haust, heldur einnig eldri
skjaldbökum.“
Þetta sagði Eggert Gunnarsson
dýralæknir og sérfræðingur í
gerla- og ’ ónæmisfræði, þegar
Morgunblaðið hitti hann að máli á
rannsóknastofu Háskólans á Keld-
um í gærdag, en hann hefur verið
að rannsaka skjaldbökur þær sem
þangað hafa borist. Um 80 til 90
skjaldbökur hafa nú borist til
rannsóknastofunnar á Keldum og
er talið, að þær hafi í sér tauga-
veikibróður (salmonella para-
thypi-B). Hefur á annan tug fólks
veikst af þessum taugaveikibróður
og berast daglega fregnir af nýj-
um veikindatilfellum. Skjaldbökur
þær sem borist hafa til Eggerts
voru fluttar ólöglega inn til lands-
ins, en um 200 til 400 vatna-
skjaldbökur hafa verið fluttar með
þeim hætti til landsins frá því sl.
haust.
Fólk var að koma á rannsókna-
Rætt við Eggert
Gunnarsson á
Keldum
stofuna í allan gærdag með
skjaldbökur, en Eggert ræktar úr
þeim taugaveikibróðurinn og at-
hugar þannig hvort þær hafi sýk-
ilinn og séu smitberar. Til að finna
sýkilinn sker Eggert undir skel-
ina, eftir að hafa deytt skjaldbök-
urnar, þar sem garnirnar liggja og
tekur þaðan sýnishorn.
„Það er aðeins forræktun sem ég
geri, en allar þær skjaldbökur sem
ég hef ræktað hingað til,“ sagði
Eggert, „hafa verið grunsamlegar.
Þær sendi ég til frekari rannsókna
til Guðna Alfreðssonar á líffræði-
stofnun Háskólans, en hann sér
um endanlega greiningu."
Hvernig lýsa einkennin sér hafi
maður fengið taugaveikibróður-
inn?
„Það er hár hiti, uppköst og
niðurgangur í nokkra daga. Það
endurtekur sig aftur og aftur og
fólk getur verið smitberar löngu
eftir að það er orðið frískt. Veik-
indin geta varað allt frá nokkrum
dögum upp í þrjár vikur, en hægt
er að vera smitberi í allt að hálft
ár. Fólk getur líka smitað án þess
að vera veikt. Ekki er hægt að
smitast nema við snertingu. Þetta
er óþverra sýkill, en fólk kemst
yfirleitt yfir sjúkdóminn. Fólk
sem vinnur við matvælafram-
leiðslu þarf að gæta fyllsta hrein-
lætis, því komist sýkillinn í mat,
fjölgar honum mjög hratt.
Við erum nokkurn veginn vissir
um að það sé um þennan tauga-
veikibróður að ræða, en rannsókn-
in á eftir að fara um mörg þrep
áður en við getum sagt það með
hundrað prósent vissu. Það eru
1800 til 2000 tegundir til af salm-
onellasýklinum.
Sýkillinn getur borist í matvæii
á margvíslegan hátt. Sem dæmi
má nefna, að krakkar sem hafa
þessar skjaldbökur, hafa kannski
hellt úr fiskabúrinu sínu í eld-
húsvaskinn til'að hreinsa það og
síðan hefur vaskurinn vitanlega
verið notaður við matargerð og
þannig hefur sýkillinn komist í
matinn."
Hvernig komst upp um sýkilinn
í skjaldbökunum?
„Það var barn í Árbænum sem
veiktist og heilsugæslulækni þar
grunaði hvað var að og um leið
hvaðan það kæmi, eða frá skjald-
bökum, sem barnið átti. Þá var
farið að leita víðar í þeim búðum
sem selja þessi dýr og það fundust
fleiri tilfelli.
Hér hefur streymt inn fólk með
skjaldbökur, enda sjálfsagt að losa
sig við þetta og fólkið ætti að hafa
samband við heimilislækni sinn ef
minnsti grunur er á smitun,“ sagði
Eggert og bætti því við, að þetta
sýndi betur en margt annað hvers
vegna fólki er ekki leyft að flytja
inn dýr leyfislaust.