Morgunblaðið - 11.03.1982, Blaðsíða 3
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 11. MARZ 1982
3
Sjónvarp
á laugardaginn:
Utsendingin
frá Wembley
hefst með 25
mín. „upphitun“
VIÐ BYRJUM útsendinguna frá Wembley með
25 mínútna „upphitun“, sagdi Bjarni Felixson
íþróttafréttamaður sjónvarpsins í gær, þegar
Mbl. spurðist fyrir um fyrirkomulag beinu út-
sendingarinnar frá úrslitaleik Liverpool og Tott-
enham nk. laugardag.
Að sögn Bjarna hefst útsending íslenzka
sjónvarpsins klukkan 14.30 og verða fyrst
sýndir kaflar úr völdum leikjum Liverpool og
Tottenham. Klukkan 14.55 hefst svo bein út-
sending frá Wembley og mun Brian Moore
þulur ITV-sjónvarpsstöðvarinnar lýsa leikn-
um fyrir íslendinga. Varð Bjarni að semja
sérstaklega um þá lýsingu við ITV.
Sjónvarpið hefur afnot af gervihnetti til kl.
17 og ef til framlengingar kemur verða fyrstu
15 mínútur hennar sýndar. — Við reynum svo
að fá viðbótarmínútur til að geta sýnt seinni
hluta framlengingarinnar ef til hennar kem-
ur, sagði Bjarni.
Gífurlegur áhugi er meðal íþróttaáhuga-
manna á þessari útsendingu og hefur blaðið
fregnað um mörg tilvik þess að menn ætli að
hópast saman til að horfa á leikinn og skapa
þannig sérstaka stemmningu.
Liverpool vann deildarbik-
arkeppnina í fyrra. Hér hamp-
ar fyrirliði liðsins bikarnum.
I-----------------------
Plötur Jóhanns Helgason-
ar á markað í Englandi,
Ástralíu og Norðurlöndum
HIJÓMPLÖTUÍrTGÁFAN Steinar hf.
hefur gengið frá saniningum um út-
gáfu á hljómplötum með Jóhanni
Helgasyni í Knglandi, Ástralíu og á
Norðurlöndunum. Hér er um að ræða
útgáfu á tveggja laga plötu með titil-
laginu „Take Your Time“, sem síðan
er fyrirhugað að fylgja eftir með
breiðplötu, en á henni verður va ntan
lega blandað efni af síðustu plötu Jó-
hanns, „Tass“, svo og ný lög, sem
hann vinnur að um þessar mundir.
Steinar Berg, forstjóri Steina hf.,
sagði í samtali við Morgunblaðið, að
allir samningsaðilar hefðu sýnt
þessu máli mikinn áhuga og virtust
þeir hafa mikla trú á Jóhanni, bæði
sem lagahöfundi og flytjanda. I
Englandi er það hljómplötufyrir-
tækið „Spectra" sem gefur út plötur
Jóhanns og er tveggja laga platan
væntanleg á markað þar um næstu
mánaðamót. í Skandinavíu er það
ABBA-veldið, „Polar-Music" sem
gefur út „Take Your Time“ og er
Jóhann Helgason tónlistarmaður
platan væntanleg á markað þar í
apríl nk. Steinar Berg sagði, að bor-
ist hefðu tvö tilboð frá Ástralíu og
væri nú verið að ganga frá samning-
um við annað þeirra, en platan kem-
ur þar væntanlega út um mánaða-
mótin apríl-maí.
Steinar Berg sagði ennfremur, að
það væri greinilegt að lagið „Take
Your Time“ hefði vakið mikla at-
hygli og önnur lög á plötum Jóhanns
yrðu því væntanlega í svipuðum stíl
enda ætti sú tónlistarstefna hvað
mestu gengi að fagna á hljóm-
plötumarkaðinum um þessar mund-
ir.
Steinar Berg sat nýlega ráðstefnu
hljómplötuútgefenda í Cannes í
Frakklandi og sagði hann að árang-
urinn af þeirri för væri þegar farinn
að koma í ljós svo og árangurinn af
kynningarstarfi Steina hf. á undan-
förnum misserum, því að auk útgáfu
á plötum Jóhanns Helgasonar væri
nú í undirbúningi útgáfa á plötum
með Mezzoforte og söngflokknum
„Þú og ég“, sem ætlaðar eru fyrir
erlendan markað. Steinar sagði að
auk þess væri ýmislegt fleira á döf-
inni og hefðu til dæmis borist fyrir-
spurnir erlendis frá um hljómsveit-
irnar „Bara-flokkinn“ og „Start".
CITROÉN^ GSA PALLAS
FRONSK FEGURÐ AÐ UTAN SEM INNAN
Örfáum bílum óráöstafað á ótrúlega hagstæðu verði
¥*« ICr. 127 aOOO (9en953)
Þetta er sama verð og viö sömdum um viö verksmiöjúna í október 1981.
■
• CITROÉN* dregur ekki magann — Hin sjálfvirka hæöarstilling sér um sömu fjarlægð frá jöröu, óháö
hleðslu auk þess þrjár hæöarstillingar. Ómetanlegt í snjó og ófærö. • Vökvafjöörunin (aöeins á
CITROÉN^) skapar eiginleika og öryggi, sem enginn annar bíll getur boöiö upp á, t.d. þó hvellspringi á
miklum hraöa er þaö hættulaust, enda má þá keyra bílinn á 3 hjólum. • Framhjóladrif eins og
á öllum CITROÉN^-bílum síöan 1936. • Sænskar skýrslur sanna aö CITROÉN^ er einn af 4
endingarbestu bílum þar í landi.
Komiö — Reynsluakiö
— Sannfærist
CITROÉN *