Morgunblaðið - 11.03.1982, Page 5
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 11. MARZ 1982
5
„Viljum berjast fyrir
aukanámslánum vegna
fyrsíu barneignar
„MEÐAL haráttumála Vöku-
manna verða lánamál stúdenta.
Leggjum við á það áherslu, að allir
námsmenn geti stundað nám án
tillits til efnahags," sagði Gunnar
Jóhann Birgisson, fyrsti maður á
lista Vöku til Stúdentaráðs.
„I framhaldi af þessu leggur
Vaka áherslu á að hér sé um lán
að ræða, en hafnar hvers kyns
óraunhæfum hugmyndum
vinstrimanna um námslaun, þar
sem námslaunastefnan leiðir til
enn frekari fjðldatakmarkana.
Vaka setur ennfremur fram þá
kröfu, að námsmenn eigi að fá
aukalán vegna fyrstu barneign-
ar. Vaka er eina fylkingin, sem
setur fram þessa kröfu,“ sagði
Gunnar Jóhann.
„í sambandi við Félagsstofnun
stúdenta, þá viljum við benda á
þann árangur, sem meirihlutinn
í Stúdentaráði náði í vetur og
munum við leggja áherslu á að
haldið verði áfram á sömu braut.
Grundvallaratriðin i því efni er
að reka Félagsstofnunina á sem
hagkvæmastan hátt og ávallt
reyna að finna nýjar leiðir til að
komast til móts við þarfir stúd-
enta. Meðal annars verði reynt
að finna möguleika til að nýta
mötuneyti stúdenta allan ársins
hring en góð afkoma þess skilar
sér í lækkuðu vöruverði stúdent-
um til handa.
Ef við náum kjöri, stefnum við
að því að unnið verið ötullega að
því að útvega fjármagn til bygg-
ingar barnaheimilis en eins og
stúdentar vita þá strandaði
— «6211* Gunnar Jó-
hann Birgisson fyrsíi
maður á lista Vöku
til Stúdentaráðs
fyrirhuguð barnaheimilisbygg-
ing á afstöðu borgarstjórnar.
Búið er að taka ákvörðun um
byggingu hjónagarða en það var
gert í vetur. Telur Vaka að þeim
framkvæmdum beri að hraða.“
í þessum kosningum leggur
Vaka áherslu á að sýna fram á
þann árangur, sem meírihluti
Stúdentaráðs náði í vetur. Meðal
annars var gert stórátak í
rekstri Félagsstófnunarinnar.
Þegar vinstri meirihlutinn var í
meirihluta í Stúdentaráði var
rekstur Félagsstofnunarinnar
látinn reka á reiðanuíT,. Vinstri
menn höfðu meðal annars ekki
rænu á því að halda bókhald síð-
ustu tvö árin, sem þeir voru við
stjórn. Þetta olli stúdentum
óhætanlegu tjóni þar sem fjár-
veitingavaldið tók ekkert mark á
fjárbeiðni Félagsstofnunar, því
enginn vissi hver fjárþörfin var.
Við Vökumenn leggjum nú
árangur starfa okkar í Stúdenta-
ráði undir dóm síúdenía og erum
við bjartsýnir á að þeir veiti
okkur brautargengi, til að starfa
áfram að þeirri uppbyggingu,
sem þegar er hafin,“ sagði Gunn-
ar Jóhann Birgisson, efsti maður
á A-iistanum til Stúdentaráðs.
Útsýn með
ókeypis kvik-
myndasýningu
UM SÍÐUSTU helgi var Sikileyjar
kynning á vegum Ferðaskrifstofunnar
Útsýnar ba-ði í blómasal Loftleiða og
skemmtistaðnum Broadway við hús-
fylli í öll skiptin. Sýndar voru kvik-
myndir frá Sikiley og Ítalíu í Broad-
way sem vöktu mikla athygli. -
Vegna fjölda áskorana frá þeim,
sem ekki komust að á Broadway,
efnir Útsýn til ókeypis kvikmynda-
svningar í ráðstefnusal Loftleiða í
kvöld, fimnitod. 11. marz, kl. 20.30
og verður sýningin enáuriekin kl.
21.30.
Jafnframt verður ferðaþjónusta
Útsýnar starfrækt í anddyri ráð-
stefnusalar á undan og eftir mynda-
sýningunni. Aðgangur er ókeypis og
öllum heimill.
(Kréttalilkynning)
Kosninga-
Kosid í dag til Stúdenta- og Háskólaráðs
KOSNINGAR til Stúdenta- og Há-
skólaráðs fara fram í dag milli
klukkan 9—18 á eftirtöldum stöð-
um:
Hliðarsal
stofnunar
1. kjördeild:
2. kjördeild:
3. kjördeild:
4. kjördeild:
Lögberg:
5. kjördeild:
6. kjördeild:
Félags-
stúdenta:
Guðfræðideild,
félagsvísindadeild,
jarðfræðiskor.
Viðskiptadeild.
1. ár tannlæknadeild,
1. ár læknisfræði,
lyfjafræði,
sjúkraþjálfun.
Heimspekideild.
Lagadeild,
verkfræði- og
raunvísindad.hús.
Verkfræði- og
raunvísindadeild
(nema líffræði- og
jarðfræðiskor).
Grensásvegur 12:
7. kjördeild: Líffræðiskor,
2. ár læknisfræði,
2. ár tannlæknadeild.
Landspítalinn
(Hjúkrunarskóli):
8. kjördeild: Hjúkrunarfræði,
3. -6. ár læknisfræði,
3.-6. ár tannlæknadeild.
Eftirtalið fólk er í fimm efstu
sætum listanna:
A-listi Vöku — Stúdentaráð:
1. Gunnar Jóhann Birgisson
(lagadeild).
2. Lína G. Atladóttir
(viðskiptadeild).
3. Anton Pjetur Þorsteinsson
(læknadeild).
4. Óskar Sverrisson
(viðskiptafræði).
5. Guðbjörg Sigurgeirsdóttir
(læknadeild).
Háskólaráð:
1. Martha Eiríksdóttir
(viðskiptadeild).
2. Baldvin Einarsson
(lagadeild).
B-listi vinstri manna
— Stúdentaráð:
1. Halldór Birgisson
(lagadeild).
2. Birna Baldursdóttir
(líffræði).
3. G. Pétur Matthíasson
(alm.bókm.).
4. Margrét Guðmundsdóttir
(sagnfræði).
5. Kristján Ari Arason
(sálfræði).
Háskólaráð:
1. Guðvarður Már Gunnlaugsson
(ísl.).
2. Halldóra Þorvarðardóttir
(guðfræðideild).
C-listi félags umbótasinnaðra
stúdenta — Stúdentaráð:
1. Bergþór Skúlason
(tölvufræði).
2. Elín M. Lýðsdóttir
(tölvufræði).
3. Aðalsteinn Steinþórsson
(tölvufræði).
4. Elsa B. Friðfinnsdóttir
(hjúkrunarfræði).
5. Ólafur Ólafsson
(viðskiptafræði).
Háskólaráð:
1. Þórmundur Bergsson
(heimspekideild).
2. Matthías Guðmundsson
(viðskiptafræði).
skrifstofa
Vöku opin
allan
daginn
Kosningaskrifstofa
Vöku er að Skólavörðustíg
12. Sími er 22465. Skrif-
stofan er opin allan kosn-
ingadaginn. Kosninga-
fagnaður A-listans verður
svo í Óðali í kvöld frá
klukkan 9—2.
RICHARD
CLAYDERMAN í NÝJU LJOSI
Tráumereien Tónar um
ástina
FÁLKIN N
HLJÓMPLÖTUDEILD
Suðurlandsbraut 8. Sími 84670.
Laugavegi 24. Sími 18670.
Austurveri. Sími 33360.
FÆST í HLJÓMPLÖTUVERZLUNUM UM LAND ALLT.