Morgunblaðið - 11.03.1982, Blaðsíða 10
10
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 11. MARZ 1982
Virkjanir og orkufrekur
iðnaður á Suðurlandi
Eftir Eggert
Haukdal, alþm.
Hér fer á eftir í heild forystugrein
Kggerts Haukdals, alþingi.smanns úr
Suðurlandi, sem sagt er frá í frétt á
baksíðu Morgunblaðsins í dag:
Allt frá því að núverandi ríkis-
stjórn var mynduð í febrúar 1980,
hefur því stöðugt verið haldið á
lofti, að virkjunarframkvæmdum
á Suðurlandi sé að mestu lokið og
farið verði að reisa virkjanir í öðr-
um landshlutum eingöngu.
Segja má, að þessi áróður sé
engan veginn alveg úr lausu lofti
gripinn, þar sem iðnaðarráðherr-
ann hefur sífellt með tilllöguflutn-
ingi á Alþingi og í alls kyns yfir-
lýsingum verið að reyna að tefja
fyrir og spila öllu frá Suðurlandi,
sjálfsagt með það í huga, að á
þann hátt væri hann að þjóna
sérhagsmunum síns eigin kjör-
dæmis.
Nú er það hverjum manni ljóst,
að það þarf að virkja víðar en á
Suðurlandi, m.a. til að tryggja ör-
yggi landskerfisins, en leggja
verður áherslu á þjóðhagslega
hagkvæmni, ekki sýst með tilliti
til ákvarðana um orkufrekan iðn-
að.
Þegar þessi mál eru skoðuð nán-
ar, kemur dálítið annað í ljós en
það, sem virðist vera samkvæmt
einkaóskalista iðnaðarráðherra
eða annarra í núverandi stjórn-
arsamstarfi, sem taka þátt í því að
leggjast á hlut Suðurlands. Þeim
mun ekki takast að stöðva virkj-
anaframkvæmdir á Suðurlandi.
í fyrsta lagi vegna þess, að nú-
verandi orku og iðnaðarráðherra
er síður en svo æviráðinn.
I öðru lagi vegna þess, að rann-
sóknir og annar undirbúningur er
lengst kominn á Þjórsársvæðinu
og hagkvæmnin er þar mest.
í þriðja lagi þetta: Verði farið í
verulega orkunýtingu í orkufrek-
um iðnaði nú í náinni framtíð, en
telja verður nokkuð öruggt að svo
verði, hver svo sem verður við
völd, þá verður verulegur hluti
stóriðjunnar staðsettur hér sunn-
anlands, og því þarf orkan að öðru
jöfnu að vera framleidd hér. Að
þessu leyti helst í hendur staðar-
val iðjuvera og hagkvæmni í
orkuöflun.
Þessum staðhæfingum til árétt-
ingar, vil ég hér vitna í skýrslu
Landsvirkjunar til ríkisstjórnar-
innar frá 14. des. 1981 sem ber
heitið: „Orkuöflunarleiðir í sam-
tengdu landskerfi í framhaldi af
Hrauneyjafossvirkjun." Þar eru
niðurstöður m.a.: „Hagkvæmast
virðist tvímælalaust vera, að
næstu aðgerðir í raforkuöflun
landsmanna verði stíflugerð við
Sultartanga, vatnaveitur til Þór-
isvatns (Kvíslaveita) og stækkun
Þórisvatnsmiðlunar. Þessar að-
gerðir bæta ódýrustu orku sem völ
er á við orkuframleiðslu hins sam-
tengda landskerfis, auk þess sem
þær auka mjög rekstraröryggi á
Þjórsársvæðinu. Jafnframt bjóða
þessar aðgerðir upp á sveigjanleg-
an framkvæmdahraða til aðlögun-
ar markaðsþróunar á hverjum
tíma. Samhliða þessum aðgerðum
eða í beinu framhaldi af þeim, er
nauðsynlegt að auka uppsett afl á
Þjórsársvæðinu. Hér virðist
stækkun Búrfellsvirkjunar vera
mun hagkvæmari kostur en
stækkun Sigöldu og Hrauneyja-
fossvirkjana eins og tilvitnuð lög
gera ráð fyrir. Kemur hér einkum
til, að stækkun Búrfellsvirkjunar
bætir aflmisvægið, sem nú ríkir
milli þessara virkjana og gefur
auk þess aukna orkuvinnslugetu
sem út af fyrir sig getur réttlætt
þá fjárfestingu sem til þarf. Þess
má og geta, að stækkun Búrfells
kostar mjög ámóta upphæð og
stækkanir Sigöldu og Hrauneyja-
fossvirkjana, sem ekki skila auk-
inni orkuvinnslu inn á hið sam-
tengda landskerfi. Landsvirkjun
leggur því eindregið til, að aflað
verði lagaheimildar fyrir stækkun
Búrfellsvirkjunar að afli allt að
140 mw.
Og ennfremur segir Landsvirkj-
un: A núverandi orkuveitusvæði
Landsvirkjunar er Sultartanga-
virkjun fullundirbúin og rann-
Eggert Haukdal
sóknir á stækkun Búrfellsvirkjun-
ar langt komnar. í þessar virkjan-
ir væri hægt að ráðast með litlum
fyrirvara, en tímasetning næstu
framkvæmda á Þjórsársvæðinu
eftir áðurnefndar aðgerðir þar,
hlýtur að ráðast af því, hve ört
markaður fyrir iðnaðarorku vex á
næstu árum, og hvar hann yrði
staðsettur. Einnig er á það að
benda, að á Þjórsársvæðinu er
fjöldi hagkvæmra virkjunarkosta
sem eftir er að hagnýta og má því
reikna með áframhaldandi fram-
kvæmdum þar næstu áratugi.
Augljós hagkvæmni er í því fólgin,
að þessar framkvæmdir séu sem
samfelldastar þannig, að sú að-
stæða sem smám saman hefur
verið að myndast þar nýtist sem
best.
Nú nýlega hefur verið óskað eft-
ir upplýsingum frá Landsvirkjun
um það, hvenær Sultartangavirkj-
un geti verið komin í gagnið. Svar
hennar er, að fyrsta vélarsam-
stæðan geti verið tilbúin til gagn-
setningar 1985 og önnur 1986, ef
ákvörðun um byggingu virkjunar-
innar allrar verður tekin fyrir
apríllok í vor.
Sú orka, sem fæst úr Sultar-
tangavirkjun fullbúinni, gerir ekki
meira en að fullnægja orkuþörf
fyrir helmingsstækkun álversins í
Straumsvík eða fyrir nýtt álver af
hagkvæmri stærð.
Orka Blönduvirkjunar mundi þá
fyrst og fremst samsvara aukn-
ingu almennrar orkunotkunar í
landskerfinu, auk þess sem stað-
setningin styrkir og eykur öryggi
þess.
Gerður hefur verið samningur
við norska stór fyrirtækið Árdal-
Sundal um alhliða rannsókn á ál-
framleiðslu á íslandi og í gangi
eru viðræður við erlenda aðila,
sem knúið geta á snögg viðbrögð,
óháð þrefinu við ísal.
I tillögu ríkisstjórnarinnar til
þingsályktunar um virkjunar-
framkvæmdir og orkunýtingu,
sem nú liggur fyrir Alþingi og
væntanlega verður afgreidd á
þessu þingi er m.a. gert ráð fyrir
staðsetningu stóriðjuvers á Suður-
landi. Það hníga því flest rök að
því, að haldið verði samfellt áfram
virkjunarframkvæmdum á Þjórs-
ársvæðinu næstu áratugi og við
þær framkvæmdir verður lögð
áhersla á að orkan verði notuð í
héraðinu í stórauknum mæli til
stærri og smærri iðnaðar og það á
hóflegu verði.
MhOBORG
fasteignasalan i Nýja bióhúsinu Reykjavik
Símar 25590,21682
Vilhelm Ingimundaraon,
heima 30986.
Byggingarlóö
Arnarnesi
1.490 fm við Blikanes 29. Til-
búið aö hluta.
Furugrund Kóp.
2ja herb. ibúð, 60 fm. Fæst í
skiptum fyrir 3ja tii 4ra herb.
íbúð. Má vera risíbúö.
Baldursgata
3ja herb., ca. 80 fm.
Kaldakinn Hafnarf.
3ja herb. íbúð i risi. Gott útsýni.
Laufás Garðabæ
3ja herb. íbúð í risi. Samþykkt
og laus nú þegar.
Breiöholt
4ra herb. íbúð, ca. 110 fm.
Þvottahús á hæðinni. Bílskúrs-
réttur.
Hjallabraut Hafnarf.
5 herb. íbúð, 130 fm á 1. hæð.
Tvennar svalir. Þvottahús í
íbúðinni.
Þverbrekka Kóp.
6 herb. íbúð, 120 fm nettó.
Þvottahús í íbúðinni.
Raðhús Seljahverfi
240 fm meö 2 íbúöum og sér
inngangi.
Einbýlishús Kóp.
Eitt af þessum heimilislegu hús-
um, sem er hæð og hátt og
bjart ris auk 50 fm kjallara.
Grunnflötur ^ca. 120 fm. Hús,
sem gæti veriö 2 íbúðir fyrir
samhentar fjölskyldur. Óhindr-
að útsýni í rólegu hverfi.
íbúðareigendur
Höfum fjársterka kaupendur
að 2ja—3ja og 4ra herb. íbúö-
um. Eignaskipti á 2ja—3ja og
3ja—4ra herb., öruggustu
möguleikarnir í dag.
Guömundur Þöróarson, hdl.
,U (,I.VSIMi\SIV|l\N KR: éTX
22480
85788
ö FASTEIGNASALAN
ASkálafell
Súluhólar
Einstaklingsíbúö á jaröhæö.
Snyrtileg íbúö, ca. 35 fm. Verö
380 þús.
Dvergabakki
2ja herb. íbúð á 1. hæð. Suöur-
svalir. Aukaherb. í kjallara.
Laus 1. júní.
Austurbrún
2ja herb. íbúð á 9. hæð. Suður-
svalir. Möguleiki á skiptum á
3ja—4ra herb. vestan Elliöaár.
Meistaravellir
3ja herb. nýleg og vönduð
endaíbúð á 2. hæð. Suður sval-
ir.
Kríuhólar
3ja herb. 90 fm íbúð á 6. hæð.
Suðursvalir. Mikið útsýni.
Holtsgata
3ja herb. ósamþ. kjallaraíbúð.
Hagstætt verö.
Jörfabakki
4ra herb. 110 fm íbúð á 1. hæð.
Suður svalir.
Kaplaskjólsvegur
4ra herb. íbúð á 1. hæð. Mögu-
leiki á 2—3 íbúðum á jaröhæö
aö auki. Suður svalir.
Miðsvæðis
4ra herb. íbúð á 1. hæð með
sér inng. Allt nýtt og endurnýj-
að. Járnvariö timburhús.
Mávahlíð
118 fm efrihæö 4ra herb. Mikið
endurnýjuð eign. Rúmgóður
bílskúr.
Leifsgata
5 herb. kjallaraíbúö með sér
inng. Verð 550 þús.
Hraunbrún Hf.
Eldra einbýlishús, sem er kjall-
ari, hæð og ris. Eign með mikla
möguleika. Verð 980 þús. Laus
1. júní.
FASTEIGNASALAN
^Skálafell
Bolholt 6, 4. hæð.
Sölustjóri: Valur Magnússon
Viðskiptafræöingur: Brynjóifur Bjarkan
Starfsmannafélög
athugið
Feröakynning og kvikmyndasýning
frá Sikiley og Ítalíu
í ráöstefnusal Loftleiöahótelsins
fimmtudag 11. marz
kl. 20.30 og kl. 21.30
Aðgangur ókeypis og öllum heimill, en starfs-
mannafélögum er sérstaklega bent á, að eftir
sýningarnar mun starfsfólk Utsýnar veita upp-
lýsingar um sumarleyfisferðir fyrir hópa.
Feröaskrifstofan
UTSÝN
Austurstræti 17,
símar 20100 og 26611.
Hafnarfjörður —
Öldutún
Nýkomin til sölu falleg 3ja herb. íbúð á 1. hæö í
fjölbýlishúsi. Parketgólf og ný eldhúsinnrétting.
Árni Gunnlaugsson hrl.,
Austurgötu 10, Hafnarfirði,
sími 50764.
Snorri Sigfús Birgisson
Tónverk frumflutt
eftir Snorra Sig-
fús Birgisson í NH
TÖNLEIKAK verða haldnir í Norræna
húsinu föstudaginn 12. marz og hefjast
þcir klukkan 20.30. Flutt verður
sænsk-íslenzk nútímatónlist.
í fréttatilkynningu frá Norræna
húsinu segir m.a.:
Frumflutt verður verkið Oratori-
um fyrir messósópran, klarinett og
píanó eftir Snorra Sigfús Birgisson,
en það var sérstaklega pantað af
sænska útvarpinu fyrir þessa tón-
leika. Flytjendur verksins eru
sænskir, Kerstin Stáhl, söngkona,
Kjell-Inge Stevensson, klarinettu-
leikari og Mats Persson, píanóleik-
ari.
Þá verður einnig frumflutt verk
fyrir einleiksbásúnu eftir sænska
tónskáldið Torsten Nilsson. Er það
Jörgen Johannsson, sem leikur það
verk. Önnur verk á efnisskránni eru
eftir Bo Nilsson, Anders Eliasson og
Sven-David Sandström. Eftir hlé
verður flutt elektróniskt verk, Vint-
erminnen. I því verki taka þátt auk
fyrrgreindra Bengt-Emil Johnson,
Ake Parmerud og Göran Rydberg.
Flestir af þeim tónlistarmönnum,
sem koma fram á þessum tónleikum
hafa starfað saman í hópnum Harp-
ans kraft, en hann hefur starfað síð-
an 1970. Harpans kraft hefur átt
mikinn þátt í að kynna nýja sænska
tónlist.