Morgunblaðið - 11.03.1982, Page 11
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 11. MARZ 1982
11
Um kosningar og
afstöðu himintungla
Eftir Atla Eyjólfs-
son, formann Vöku
Stjörnufræðingar hafa talsvert
rætt þar undanfarið hvort afstaða
reikistjarnanna setji jörðina í
hættu þessa dagana. Hafa sumir
jafnvel orðið til þess að spá heims-
endi nú þann 10. mars. Hvað sem
reikistjörnunum og heimsendi líð-
ur, þá eru kosningar í háskólanum
þann 11. mars, og ekki held ég að
nokkur búist við því að alheims-
spilið komi í veg fyrir það að þessu
sinni.
Kosningar við háskólann eru
þetta árið um margt merkilegri en
oft áður. Nú hefur starfað meiri-
hlutasamsteypa stúdenta, Vaka og
umbótasinnar, og vinstri menn
orðið að láta sér lynda minnihlut-
ann. Segja má að vinstri menn
1.000 bóka-
titlar í
Hljóð-
bókasafni
Borgarbóka-
safnsins
Á ÞESSU ári eru liðin 7 ár síðan sam-
starf Hlindrafélagsins og Borgarbóka-
safnsins hófst um framleiðslu og dreif-
ingu hljóðbóka. Nú eru í safninu h.u.b.
1000 bókatitlar í þremur eintökum
hver. Allar bækur eru lesnar inn I
sjálfboðavinnu og hljóðritaðar í
Hljóðbókagerð Blindrafélagsins að
llamrahlíð 17. Nú er verulegur skortur
á innlesurum og væri vel þegið að les-
arar sem gætu gefið sér tíma settu sig í
samband við Hljóðbókagerðina í síma
33301.
A lánþegaskrá Hljóðbókasafnsins
voru um síðustu áramót 478 ein-
staklingar en auk þess lánar safnið
bækur til 46 sjúkrastofnana, vist-
heimila og bókasafna. Safnið býr við
stöðugan bókaskort, þar sem fjölgun
bóka helst ekki í hendur við fjölgun
lánþega. Þess má geta að á síðasta
ári voru útlán 20.000, og höfðu þá
aukist um 36% frá árinu áður.
Fram að þessu hefur safnið staðið
opið öllum þeim sem ekki hafa getað
lesið prentaðar bækur vegna sjón-
skerðingar eða af öðrum ástæðum.
Við bókaútlán eru tveir starfsmenn
en vegna þess álags sem nú hvílir á
Hljóðbókasafninu hefur verið gripið
til þess ráðs, að hætta að taka á móti
nýjum lánþegum. Undantekning cr
þó ennþá gerð með fólk sem hefur
svo litla sjón, að hún mælist 6/60 eða
minna. Þessi ráðstöfun kemur því
einkum niður á gömlu fólki sem sæk-
ist eftir þessari þjónustu. Þar sem
nú orðið er alkunn þörf þess hóps
sem nýtur þjónustu Hljóðbókasafns-
ins, er óþarft að lýsa því álagi sem
fylgir því fyrir starfsmenn að neita
fólki um þjónustu næstum daglega.
Nú liggur frumvarp fyrir Alþingi
um Blindrabókasafn Islands. Flestir
er til málanna þekkja eru sammála
um nauðsyn þess að þetta frumvarp
verði að lögum.
Hljóðbókasafn Borgarbókasafns-
ins og Blindrafélagsins, Hólmgarði
34, s. 86922.
Hljóðbókagerð Blindrafélagsins,
samtök Blindra og sjónskertra á ís-
landi, Hamrahlíð 17, s. 33301.
(FrétUtilkynninf;)
Stykkishólmur:
Karlakór Reykja-
víkur með söng-
skemmtun
Slykkwhólmi, 9. m*rz.
KARLAKÓR Reykjavikur var hér á
ferð um helgina og söng í félags-
heimilinu við góða aðsókn og prýði-
legar undirtektir. Varð kórinn að
syngja mörg aukalög. Stjórnandi
kórsins er Páll P. Pálsson.
Kréttaritari.
hafi legið í dvala þetta árið, ef
undan eru skilin nokkur sorgleg
dreifirit, sem stefnt var gegn
mannréttindum og menntun. Ekki
gróskumikið starf hjá byltingar-
sinnum, enda allt komið í hnút hjá
þeim.
Uppbygging Vöku
Meirihlutinn í Stúdentaráði
hefur hins vegar snúið sér að upp-
byggingu hagsmunamála stúd-
enta. Þar hefur forysta Vöku verið
augljós, en ekki verður gert lítið
úr því nýja fólki sem valdist til
starfa við Félagsstofnun stúdenta.
Allir málaflokkar hafa verið unnir
upp úr niðurlægingunni, sem
vinstri menn náðu að koma mál-
um í, og enn er uppbyggingin í
fullum gangi. Andstæðingar okkar
Atli Eyjólfsson.
reyna eftir bestu getu þessa dag-
ana fyrir kosningar að kasta rýrð
á árangur okkar, en hann er ótví-
ræður og verður ekki hrakinn.
Mikilvægi skynsamrar
stefnu
Þegar reikistjörnurnar haga
ferðum sínum þannig að allar
leggjast þær sömu megin sólar,
þykir mörgum það merkisviðburð-
ur, þó svo að úr því verði enginn
heimsendir. Þegar stúdentar
koma saman til þess að móta
stefnu sína og vinna samkvæmt
henni, þá þykir okkur í Vöku það
mikilvægt, því sennilega hefur
stefna stúdenta meiri áhrif á
þróun menntakerfisins. Vaka hef-
ur verið leiðandi í umræðunni um
menntamálin. Þar hefur þótt gilda
meira raunhæf viðhorf og skyn-
semi, en byltingarfrasar og þoku-
kenndar hugmyndir.
Þessi litli pistill birtist vænt-
anlega um svipað leyti og reiki-
stjörnurnar eru undir minnsta
horni frá sólu. Væntanlega hefur
sú samþjöppun litlar afleiðingar í
för með sér. En það er einnig kosið
í háskólanum um svipað leyti, það
getur haft viðtækari áhrif en
margan grunar.
Fjöldi ferða-
manna aukist
FJÖLDI ferðamanna hefur aukist
nokkuð frá því í fyrra, samkvæmt
tölum frá Útlendingaeftirlitinu.
Frá síðustu áramótum til feb-
rúarloka komu hingað til lands
6.467 íslendingar og 4.567 útlend-
ingar eða samtals 11.034 ferða-
menn. Á sama tíma í fyrra komu
hingað 5.350 íslendingar og 3.865
útlendingar eða 9.215.
í febrúar sl. komu hingað 3.205
íslendingar og 1.975 útlendingar
eða samtals 5.180, en 4.276 komu á
sama tíma í fyrra, 2.402 Islend-
ingar og 1.874 útlendingar.
Flestir hinna útlendu ferða-
manna hafa komið frá Bandaríkj-
unum eða 776, 215 komu frá Bret-
landi, frá Danmörku komu 241,
190 frá Noregi og 138 frá Svíþjóð.
MFÉ
Nei, ekki beinlínis veröhrun, en hvaöa orö lýsir betur
nyjasta verðinu á Skoda?
frá 63.000 kr.
Hann Halli svarar í símann eöa tekur á móti ykkur meö allar upplýsingar á reiðum
höndum og býður jafnvel upp á kaffibolla
JÖFUR hf
Nýbýlavegi 2 - Kópavogi - Simi 42600