Morgunblaðið - 11.03.1982, Qupperneq 12
12
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 11. MARZ 1982
Forystumenn ÍR hafa jafnan starfað
með heill æskunnar að leiðarljósi
íþróttafélag Reykjavíkur
Sjötíu og fimm ár eru í dag liðin frá stofnun íþróttafélags
Reykjavíkur. Félagið var stofnað á Hótel íslandi 11. marz
1907, er um 90 ungir menn komu þar saman til að stofna félag
til eflingar leikfimi og íþróttum. Mikið vatn hefur runnið til
sjávar á þeim 75 árum sem liðin eru frá stofnun IR, en óhætt er að
fullyrða, að fá félög eiga jafn auðuga og litríka sögu og ÍR. Félagið
hefur að ýmsu leyti verið leiðandi afl á íþróttasviðinu, og ýmsir
frambærilegustu íþróttamenn þjóðarinnar á hverjum tíma, hafa
verið innan vébanda þess. Þ>ótt félagið eigi ekki mikilli velgengni að
fagna á íþróttaaviðinu í dag, ef frjálsíþróttamenn og yngri hand-
knattleiksmennirnir eru undanskildir, þá njóta milli 800 og 1.000
einstaklingar tilsagnar í íþróttum í deildum félagsins í viku hverri,
flest ungt og djarft æskufólk, og dugnaður þess og áhugi er til
marks um, að betri tíð sé í vændum.
Andreas
J. Bertelsen
Aðalhvatamaður stofnunar ÍR
var Andreas J. Bertelsen, norskur
maður er flutti til íslands í byrjun
aldarinnar. Hann kemst svo að
orði í aldarfjórðungsminningar-
riti ÍR: „Þegar ég kom til Reykja-
víkur 1906, komst ég að raun um,
að æskan hér á íslandi þekkti lítið
til fimleika, útiíþrótta, aga og
gagnsemi íþrótta yfirleitt; mér
fannst svo eðlilegt og sjálfsagt, að
reyna að vekja áhuga hjá unga
fólkinu fyrir fimleikum og öðrum
íþróttum".
„Saga ÍR verður ekki rituð svo,
að Norðmannsins Andreas J.Bert-
elsen verði ekki minnst," segir
Haraldur Johannessen, formaður
ÍR um árabil og aðal driffjöðrin í
starfi félagsins í áratugi, í aldar-
fjórðungsritinu. „Hann er formað-
ur fyrstu fjögur árin. Hann er
kennari og leiðbeinandi fyrstu og
erfiðustu árin. Hann er „potturinn
og pannan" í félagsskapnum.
Hann berst af alefli fyrir þessum
hvítvoðung sínum. Uppvaxtarárin
eru oft erfið, og svo var hér. En
hann hefur sjáifur sagt, að hann
hafi á fyrstu árunum haft sér við
hlið, svo stælta, ósérhlífna og öt-
ula menn, að hið erfiða starf for-
mannsins hafi orðið sér ánægja,
sérstaklega þega fram í sótti, og
hann sá áhuga og viljafestu
þeirra, sem með honum unnu í
stjórn og þeirra, sem sóttu æf-
ingar. Hann stóð aldrei einn. Góð-
ir, ungir menn stóðu með honum
og unnu af kappi að ná settu
marki".
Haraldur Johannessen segir svo
á öðrum stað í sama riti: „Aldar-
fjórðungsafmæli Iþróttafélags
Reykjavíkur ætti að vera hátíðlegt
haldið um land allt. Með stofnun
þess, 11. marz 1907, er stigið svo
stórt spor í áttina til heilbrigði,
hreysti og yfirleitt til karl-
mennsku og drenglyndis, að fáar
félagsstofnanir geta mælt sig eftir
þessum mælikvarða betur en IR.
Það hefir haft því láni að fagna
frá byrjun, að hafa haft þá menn í
stjórn sinni, sem hiklaust hafa
þorað að halda fram stefnu félags-
ins í hvívetna."
Þessi ummæli sýna betur en
flest annað, að IR-ingar voru upp-
litsdjarfir áður fyrri, og þeir
höfðu efni á því, félag þeirra var í
forystu á ýmsum sviðum, forystu-
menn þess gegndu hlutverki
brautryðjendanna, og höfðu þá
jafnan heill æskufólksins að leið-
arljósi. Þannig varð félagið fyrst
til að hefja æfingar og stofna til
keppna í frjálsíþróttum, það flutti
inn fyrstu frjálsíþróttaáhöldin,
sem hér voru notuð, það var m.a.
stofnað til þess að efla áhuga á
fimleikum, og var árangur félags-
ins á því sviði glæsilegur, það lét
þýða og gaf út fyrstu knattspyrnu-
reglurnar, sem út komu hér á
landi, það réðst í útgáfu íþrótta-
blaðs, fyrsta íþróttablaðsins hér á
landi, þegar forráðamönnum fé-
lagsins þótti bæjarblöðin um of
treg til að skrifa um íþróttir, það
varð fyrst félaga til að eignast eig-
ið íþróttahús, það fór fyrst félaga
með keppnishópa út á land og
einnig til útlanda, það stofnaði og
rak á sínum tíma Tívolí hér á
landi, og það kom upp fyrstu
skíðalyftu á Islandi. Þannig væri
hægt að telja lengi.
Kirkju breytt í
íþróttahús
Það var árið 1929 að ÍR réðst í
það, að koma sér upp sínu eigin
fimleikahúsi. Tildrög þess máls
voru þau, að eftir að kaþólska trú-
boðið hafði byggt nýja kirkju sína
á Landakotstúninu, datt formanni
félagsins í hug, að ekki væri
óhugsandi að hægt væri að fá
gömlu kirkjuna, sem leggja átti
niður, fyrir lítið verð. Það var því
snúið sér til biskups kaþólska trú-
boðsins með þessa málaleitun og
voru undirtektir hans góðar. Tók-
ust strax samningar, steyptur var
grunnur undir húsið nokkru vest-
ar en það stóð, og það síðan flutt í
heilu lagi og sett á grunninn.
Segja má, að það hafi verið menn
með mikla framtíðarsýn, menn
sem voru á undan sinni samtíð,
sem réðust í þessar miklu fram-
kvæmdir. Tilkoma hússins mark-
aði algjör tímamót i starfi ÍR, og
þar hafa bækistöðvar þess verið
allt fram á þennan dag, rúmri
hálfri öld síðar, þótt starfsemi fé-
lagsins fari nú fram á mörgum
stöðum í höfuðborginni. Þar hafa Nýja skíðalyftan, sem liggur upp á Skarðemýrarfjall.
margir af mestu afreksmönnum Lj6sm.: Ágúsc Björnsson.
Uppdráttur að skíðalandi ÍR. Hæðarmunur frá lyftuhúsi og upp á Skarðsmýrarfjall eru um 290 metrar, og hægt að ná
rúmra tveggja kflómetra braut þar á milli.
þjóðarinnar hlotið sína tilsögn, og
húsið á mikla sögu.
Þá keypti félagið Kolviðarhól í
Ölfushreppi í apríl 1938 og þar
efra fór fram öflugt skíðastarf.
Félagið seldi Reykjavíkurborg
Kolviðarhólsjörðina í september
1955, en skömmu seinna var hafist
handa við að byggja skíðaskála í
Hamragili, sem er í næsta ná-
grenni, og þar er nú skíðasvaeði
IR, á eigin landi, sem félagið eign-
aðist í nóvember 1938. Svæðið er
austan og norðan Kolviðarhóls-
jarðarinnar, afmarkast af línu úr
hæsta tindi Reykjafjalls í vörðu á
Skarðsmýrarfjalli, þaðan í
Sleggju og þaðan til baka í
Reykjafjall. í skíðalandi ÍR eru nú
sex skíðalyftur, þar af ein við
stökkpall, sem er á svæðinu, heild-
arlengd þeirra er tæpir tveir kíló-
metrar. Tvær lyftur liggja nær
samfellt úr botni Hamragils og
upp á tind Skarðsmýrarfjalls,
hæðarmunur er 290 metrar og
hægt er að ná 2,2 km skíðabraut
þar á milli. Stór skíðaskáli er í
Hamragili, einnig mikið lyftuhús
með hreinlætisaðstöðu o.fl. fyrir
skíðagesti. Er þarna risin upp
glæsileg aðstaða og möguleikar til
skíðaiðkunar miklir. Tekur svæðið
t.d. Bláfjallasvæðinu fram að
ýmsu leyti. Verður uppbyggingu
þar efra haldið áfram.
Æskunni fylgt eftir
Þótt IR haslaði sér völl í Vestur-
bænum í upphafi, þá hefur starf-
semin fyrir löngu sprengt utan af
sér þá aðstöðu, sem félagið hefur
haft í þessum l)orgarhluta. Þá hef-
ur byggðarþróunin fært æskufólk-
ið í austurátt, og lifandi íþróttafé-
lag verður að fylgja æskunni eftir.
Þess vegna námu ÍR-ingar land í í
Breiðholti fyrir röskum áratug, og
hófu þar margvíslegt íþróttastarf.
Það var þó ekki fyrr en í desember
1979 að borgaryfirvöld úthlutuðu
félaginu sérstöku framtíðarsvæði
í þessum borgarhluta, á skjólgóðu
svæði í svokallaðri Suður-Mjódd.
Svæðið var afhent félaginu vorið
1980 og hófust þar þá þegar fram-
kvæmdir við íþróttavöll. Var
knattspyrnuvöllur næstum til-
búinn til notkunar síðastliðið vor,
er borgaryfirvöld sögðust þurfa
leggja ræsi fyrir yfirborðsvatn
undir völlinn, og er það verk loks á
lokastigi, þannig að hægt verður
að taka völlinn í notkun fyrst á
vori komanda. Á þessu svæði verð-
ur reist stórt íþróttahús með fé-
lagsaðstöðu, þar verða gras- og
malarvellir auk aðstöðu til frjáls-
íþróttaiðkunar. Þarna verður
framtíðaraðstaða félagsins og
þungamiðjan í starfi þess, svæðið
er sett í miðri glæsilegri byggð
þar sem þúsundir þróttfullra
unglingá er að finna, þar er