Morgunblaðið - 11.03.1982, Qupperneq 22
22
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 11. MARZ 1982
Fjárlagafrumvarpið í Bretlandi:
Lækkun skatta
og verðbólgu
lxindon, 10. raars. AP.
MISJÖFN VIÐBRÖGÐ urðu í Bretlandi er fjírlagafrumvarpið var lagt fram.
Flest dagblöð og iðnjöfrar hældu frumvarpi fjármálaráðherrans, Sir Geoffrey
Howe, á hvert reipi, en Guardian sagði frumvarpið ekki hafa náð að uppræta
stöðnunina í efnahagi landsins.
Varkárni gætir í frumvarpinu,
sem fylgir í hvívetna stefnu Mar-
gareth Thatcher í baráttunni gegn
verðbólgunni. Sagði Howe frum-
varpið stuðla að efnahagslegum
bata. Ætlunin er að lækka orku-
kostnað iðnaðarins, hvetja til au-
kinnar fjárfestingar og skapa at-
vinnu handa hluta þeirrar 3,1
milljónar atvinnuleysingja í lan-
dinu.
Howe tilkynnti að almennings-
bætur yrðu auknar og skattalæk-
kunar væri að vænta hjá flestum.
Þá sagði hann ennfremur að
stefnt væri að 9% lækkun verð-
bólgu, en hún er sem stendur 12%.
Verð á bensíni, vindlingum og
Austur-þýskir
hermenn flýja
(■öttingen, Vesturl*ýskalandi, 10. mars. AP.
TVKIR austurþýskir landamæra-
verðir flúðu í dag yfir einskis manns
landið á mörkum þýsku ríkjanna
tveggja og komust yfir til Neðra-
Saxlands.
Talsmaður vestur-þýska landa-
mæravarðarins í Göttingen sagði í
dag, að austur-þýsku hermennirn-
ir væru á aldrinum 20 og 21 og að
þeir hafi sagt, að þeir hafi ekki
getað sætt sig við ástandið í
Austur-Þýskalandi, jafnt í stjórn-
málum sem í efnahagsmálum.
Austur-þýsku hermennirnir
voru við eftirlit á landamærunum
þegar þeir ákváðu að fara að dæmi
18 ára gamals landa síns úr Þjóð-
arher alþýðunnar, sem um síðustu
helgi tókst að komast yfir jarð-
sprengjusvæðið og inn í Bæjara-
iand í Vestur-Þýskalandi.
Veður
víða um heim
Akureyri -4 alskýjaó
Reykjavík -2 úrk. í grennd
Ameterdam 8 skýjað
Aþena 14 heiðskírt
Barcelona 14 skýjað
Berlin 10 skýjað
Brussel 11 rigning
Chicago -3 heiðskírt
Oyflinni 9 skýjað
Feneyjar 9 skýjað
Frankfurt 9 rigning
Færeyjar 2 slydda
Genf 11 heiðskírt
Helsinki -1 heiðskírt
Hong Kong 17 skýjað
Jerúsalem 14 rigning
Jóhannesarborg 24 heiðskírt
Kaupmannahöfn 5 heiðskírt
Kairó 19 skýjað
Las Palmas 18 skýjað
Lissabon 15 heiðskírt
London 13 skýjað
Los Angeles 25 rigning
Madrid 14 heiðskírt
Malaga 16 léttskýjað
Mallorca 15 léttskýjað
Mexíkóborg 25 heiðskirt
Miami 23 skýjað
Moskva 0 skýjað
New York 4 skýjað
Nýja Delhí 24 skýjað
Osló 1 skýjað
París 10 skýjað
Perth 26 heiðskírt
Ríó de Janeiró 29 skýjað
Rómaborg 15 heiðakírt
San Francisco 15 rigning
Stokkhólmur 5 heiðskírt
Sydney 22 heiðskírt
Tel Aviv 19 rigning
Tókýó 14 heiðskirt
Vancouver 11 rigning
Vínarborg 9 heiðskírt
áfengi verður hækkað lítillega til
að ná fram tæplega þriggja mill-
jarða punda hækkun vörugjalds.
Flestir fjölmiðlanna voru á því
að frumvarpið væri skref í rétta
átt. Guardian skar sig þó nokkuð
úr og sagði atvinnuleysingjana
eiga betra skilið en þetta. Sakaði
blaðið ríkisstjórnina um linkind í
afstöðu hennar til hinnar grjót-
hörðu stefnu Thatcher. Verka-
mannaflokkurinn og verkalýðs-
hreyfingin hafa kennt stefnu
Thatcher um ófarir í efnahags-
málum. Talsmaður verkalýðsfél-
aganna sagði að frumvarpið
myndi ekki fækka atvinnuleysing-
jum í landinu.
Sovézkar þjálfunarbúðir í Nicaragua
Bandaríska utanríkisráðuneytið birti í gær þessa mynd frá Nicaragua. Að sögn talsmanns ráðuneytisins, sem
útskýrir myndina, má á henni sjá þjálfunarbúðir og svæði Sovétmanna, skála og verkstæði fyrir farartæki
þeirra. (Sím»mynd AP)
CIA skipuleggur undirróð-
ursaðgerðir í Nicaragua
Washinglon, 10. marH. AP.
KKAGAN Bandaríkjaforseti hefur
að sögn Washington Post fallist á
tillögur bandarísku leyniþjónustunn-
ar, CIA, um undirróðursstarfsemi
gegn Nicaragua. Segir ennfremur,
að leyniþjónustan sé að undirbúa
stofnun hjálparsveita í Mið-Amer
íku. Talsmaður Hvíta hússins bar
þessar fregnir til baka.
Eftir því sem segir í blaðinu
hefur Reagan Bandaríkjaforseti
hætt við áform sín um að beita
hervaldi gegn Nicaraguamönnum.
Er haft eftir háttsettum embætt-
ismönnum, að annað Mið-Amerík-
uríki sé notað sem stjórn- og
birgðastöð skæruliða í nágranna-
ríkinu El Salvador.
Blaðið segir áætlunina enn-
fremur miða að því að stofna
hjálparsveit 500 manna, sem eigi
að gera út frá bækistöð á landa-
mærum Honduras og Nicaragua.
Eiga meðlimir þessarar sveitar að
einbeita sér að því að sprengja
brýr og orkuver í Nicaragua í loft
upp. Þannig er ætlunin að veikja
efnahag landsins og skapa óein-
ingu innan stjórnar Sandinista í
landinu.
Þessari sérþjálfuðu sveit er ætl-
uð 19 milljóna Bandaríkjadala
fjárveiting. Talið er að nokkrir
mánuðir muni líða þar til þjálfun
hermannanna verður lokið og
sveitin getur tekið til starfa.
Næstæðsti maður leyniþjónust-
unnar, Robert Inman, bar þessar
upplýsingar Washington Post til
baka og sagðist ekki kannast við,
að verið væri að undirbúa ein-
hvers konar undirróðursaðgerðir
gegn stjórnvöldum í Nicaragua.
Að auki lagði hann áherslu á að 19
milljóna dollara fjárveiting væru
ekki neinir stórfjármunir og það-
an af síður að sú upphæð dygði til
að koma upp herafla í einhverri
mynd.
Stjórnvöld í Nicaragua hafa á
sama tíma harðlega mótmælt
ferðum bandarískra njósnaflug-
véla í lofthelgi landsins. Að sögn
utanríkisráðuneytisins í Nicar-
agua er brot þetta á ioftferðalög-
unum aðeins til þess að dýpka enn
gjánna, sem þegar ríkir í sam-
skiptum þjóðanna.
Vilji hjá Aröbum að
sættast við Egypta?
Manama, Kahrein, 10. marz. AP.
í AP-FRÉTTUM frá Bahrein í dag sagði að ýmislegt benti til þess að Líbýa,
SuðurJemen, Alsír og Frelsissamtök Palestínumanna vildu vinna að því að
taka á ný upp stjórnmálatengsl við Kgypta sem undanfara þess að samskipt-
um milli þessara aðila yrði smám saman komið í eðlilegt horf.
Með þessu vænta viðkomandi Akhbar-blaðið í Bahrein. Hann
stjórnvöld að takist að færa Eg- sagði að meðan Sadat var á lífi
ypta af „áhrifasvæði Bandaríkja- hefði slíkt verið óhugsandi, en
Mubarak eftirmaður hans hefði
sýnt ýmis merki þess að hann ætl-
aði sér hvorki að feta í fótspor
Nassers né Sadats. Mohieddin er
manna-. Það var Al-Khaleej
Mohieddin, egypskur áhrifamaður
á fyrstu stjórnarárum Nassers,
sem sagði þetta í samtali við
„Timburhneyksli“
í Sovétríkjunum
Heilu Sovétlýðveldin uppiskroppa með timbur vegna brasks nokkurra embættismanna
Moxkvu, id. mars. ap. „Heilu Sovétlýðveldin
RÚMLEGA 70 sovéskir embættismenn hafa nýlega fengið þunga fangels-
isdóma fyrir að hafa þegið mútur, misnotað eigur ríkisins og dregið sér fé
úr opinberum sjóðum. Frá þessu skýrir í dag sovéska blaðið Literaturna-
ya Gazetta og kemur þar fram, að rannsóknin á þessu hneykslismáli hafi
hafist á árinu 1980.
Mennirnir voru dæmdir í
fangelsi í sjö til fjórtán ár og í
blaðinu voru nokkrir þeirra
nefndir á nafn, þar á meðal Lev
S. Golikov, aðstoðardeildarstjóri
í ráðuneyti, sem hefur timbur-
iðnaðinn á sinni könnu. Fjölda-
margir háttsettir menn eru tald-
ir riðnir við þetta mál, menn
sem hafa aðstöðu í ríkisfyrir-
tækjum, opinberum nefndum og
öðrum samtökum.
I Literaturnaya Gazetta sagði,
að á árinu 1975 hafi hópur emb-
ættismanna í Uzbekistan farið
að bera fé á embættismenn í
Moskvu og víðar í Sovétríkjun-
um til að komast yfir timbur,
sem þeir seldu síðan aftur með
góðum hagnaði.
voru
uppiskroppa með timbur og það
kom fyrir ekki þó að mörg ráðu-
neyti legðust á eitt með að út-
vega það. Embættismönnunum,
mútuþegunum, sem báru ábyrgð
á þessu, stóð hins vegar svo
hjartanlega á sama um það. Þeir
voru önnum kafnir við að maka
sinn eiginn krók,“ sagði í frétt
blaðsins.
í fréttinni sagði einnig, að
mestu þrjótarnir væru ekki emb-
ættismennirnir í Uzbekistan,
heldur „skaðræðisflugurnar" í
háu stöðunum, sem létu múta
sér.
einn úr hópnum „Frjálsir foringj-
ar“ sem stóðu að því að koma Far-
ouk Egyptalandskonungi frá völd-
um 1952. Hann sagðist vera
hlynntur því að Egyptar tækju
upp nánari tengsl við Sovétríkin,
þrátt fyrir ýmsa vankanta sem því
fylgdu. Mohieddin sagði að hann
hefði orðið þessa áskynja í samtöl-
um við Gaddafi leiðtoga Líbýu, svo
og forsvarsmenn í Alsír og Suð-
ur-Jemen.
Annar þekktur andstæðingur
Sadats, blaðamaðurinn Heikal, lét
að því liggja í viðtali nýlega að
Egyptar myndu snúa sér frá ísra-
elum eftir 25. apríl nk. þegar Sinai
kemst öll undir þeirra stjórn.
Fækkun starfs-
liðs hjá Times
London, 10. marz. AP.
LEIÐTOGAR skrifstofufólks hjá
stórblaðinu Times í London hafa rit-
að undir samkomulag við eigendur
blaðsins, þar sem gert er ráð fyrir að
fækkað verði um 200 manns í
starfsliði blaðsins á þessu sviði.
Að sögn útgefenda er þetta sam-
komulag, sem undirritað var í
gærkvöldi, mikilvægt skref í þá
átt að tryggja áframhaldandi út-
gáfu blaðsins. Samkomulagið kom
í kjölfar yfirlýsingar Rupert
Murdochs útgefanda þess efnis, að
hann mundi hætta útgáfu blaðsins
ef ekki næðist samkomulag um að
fækka störfum við blaðið um alls
600.