Morgunblaðið - 11.03.1982, Blaðsíða 23
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 11. MARZ 1982
23
REGNBOGINN hefur hafið sýn-
ingar á sansku myndinni Monte-
negro, sem Bo Jonsson stjórnaði
fyrir Viking Film.
Myndin segir frá Marilyn Jord-
an, sem er bandarísk að uppruna,
en gift sænskum kaupsýslumanni,
en hjónin leika Susan Anspach og
Erland Josephson. Þrátt fyrir
glæsilegan ytri ramma er Marilyn
„mannleg tímasprengja, sem af
leiðindum og tilbreytingarleysi
gæti sprungið þá og þegar", segir í
kynningu kvikmyndahússins. í
myndinni segir svo frá því er Mar-
ilyn verður viðskila við mann sinn
í flugstöðinni; hann heldur til
Brasilíu, en hún fer aftur inn í
Stokkhólmsborg með júgóslavn-
esku fólki, sem hún hittir. Einn
þeirra á vínbar í borginni og þar
dvelur Marilyn yfir áramótin „og
tekur þátt í öllu sem fram fer“.
Jónas Ingimundarson
á tónleikaferð um
Norðurland vestra
JÓNAS Ingimundarson píanóleikari
heldur tónleika á fjórum stöðum á
Norðurlandi vestra næstu daga.
Fyrstu tónleikarnir verða á
Hvammstanga á föstudagskvöld, á
laugardag spilar Jónas á Blöndu-
ósi, á sunnudagskvöld í Varmahlíð
og á mánudagskvöld á Hofsósi.
Háskólatónleikar:
Verk eftir
Villa-Lobos
og Beethoven
ÞRETTÁNDU Háskólatónleikar
vetrarins verða haldnir á morgun,
föstudag 12. mars, í Norræna hús-
inu og í hádeginu eins og venja er
orðin.
Þá verður leikin Fantasie Con-
certante eftir brasilíska tónskáld-
ið Hector Villa-Lobos og Tríó í B-
dúr, op. 11 eftir Ludwig van Beet-
hoven, en eins og verknúmerið
bendir til, er þetta með fyrri verk-
um meistarans, meðan hann er
enn í æskumótun, segir í frétt frá
tónleikanefnd Háskólans.
Flytjendur eru Einar Jóhann-
esson á klarinett, Hafsteinn Guð-
mundsson á fagott og Sveinbjörg
Vilhjálmsdóttir á píanó.
Montenegro í
Regnboganum
Á efnisskránni eru verk eftir
tvo höfunda, Fredrich Chopin og
Modeste Mussorgsky, en eftir
þann fyrrnefnda leikur Jónas tvær
Pólónesur, sex Etýður og Ballöðu í
g-moll, en eftir Mussorgsky leikur
Jónas Myndir á sýningu.
Jónas Ingimundarson lék þessa
efnisskrá fyrir skömmu í Þor-
lákshöfn og Borgarfirði, en síðan
um áramót hefur hann haldið 10
tónleika úti á landi, ýmist einn eða
með öðrum, m.a. Simon Waughan
og Sigríði Eilu Magnúsdóttir í
Borgarnesi, Vík í Mýrdal, Kirkju-
bæjarklaustri og á Akureyri.
Jónas Ingimundarson
Leikendur í ísjakanum.
Akranes:
Leikklúbbur Fjölbrauta-
skólans sýnir ísjakann
LEIKKLUBBUK Fjölbrauta-
skólans á Akranesi frumsýnir
annað kvöld kl. 20.30 leikritið
ísjakann eftir Felix Liitzken-
dorf, undir leikstjórn Sigrúnar
Björnsdóttur.
„ísjakinn" gerist í þriðju heims-
styrjöldinni og fjallar á gaman-
saman hátt um þá aðstöðu sem
skapast er báðir stríðsaðilar mæt-
ast vopniausir á isjaka lengst
norður í hafi. Og hvernig kven-
kyns foringjum beggja liða tekst
að halda uppi hinum stranga her-
aga, segir í frétt frá leikklúbbnum.
ísjakinn er fjórða verkefni
Leikklúbbsins, en áður hefur hann
sýnt einþáttungana Nakinn maður
og annar á kjólfötum og Bónorðið,
gamanleikritið Elsku Rut og á síð-
astliðnu ári sakamálaleikritið
Músagildruna eftir Agöthu
Christie, við góðar undirtektir
bæjarbúa.
Rúmlega 30 nemendur við fjöl-
brautaskólann vinna við sýning-
una en í hlutverkum eru þau Anna
Hermannsdóttir, Ingi Þór Jóns-
son, Helga Braga Jónsdóttir,
Bjarni Sigurðsson, Guðlaugur
Hauksson, Guðfinna Rúnarsdóttir
og Ingimar Garðarsson.
Næstu sýningar á Isjakanum
eru laugardaginn 12. og sunnudag-
inn 13. mars en sýnt er í sal fjöl-
brautaskólans.
Jazz
með Joe
Newman
BANDARÍSKI trompetleik-
arinn Joe Newman hefur
nú dvalið hér í nokkra daga
og verið við kennslu í tón-
listarskóla FIH. Tónleikar
voru með Joe Newman í
Broadway sídastliðinn
mánudag, þar sem fór ekki
framhjá neinum að hér er á
ferðinni toppsvingleikari,
eins og marka mátti á þeim
áhrifum, sem hann hafði á
meðleikara sína, segir í
fréttatilkynningu frá Jazz-
vakningu.
Heimsókn Joe New-
mans mun ljúka með
tvennum tónleikum í
Djúpinu v/Hafnarstræti á
fimmtudagskvöld og
föstudagskvöld. Þar kem-
ur hann fram með tríói
Kristjáns Magnússonar.
Einnig mun bandaríski
gítarleikarinn Paul Weed-
en koma fram þessi kvöld
ásamt tríói. Fyrirhugað er
að þessum tónleikum ljúki
svo með „jam-session“.
Tónleikarnir hefjast
bæði kvöldin kl. 21 og
standa fram til 01.
P1N K FLOYD