Morgunblaðið - 11.03.1982, Síða 25
24
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 11. MARZ 1982
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 11. MARZ 1982
25
fWinrgmnnlbWiíilr
Útgefandi
Framkvæmdastjóri
Ritstjórar
Fulltrúar ritstjóra
Fréttastjórar
Auglýsingastjóri
hf. Árvakur, Reykjavík.
Haraldur Sveinsson.
Matthías Johannessen,
Styrmir Gunnarsson.
Þorbjörn Guömundsson,
Björn Jóhannsson.
Freysteinn Jóhannsson,
Magnús Finnsson,
Sigtryggur Sigtryggsson.
Baldvin Jónsson.
Ritstjórn og skrifstofur: Aöalstræti 6, sími 10100. Auglýsingar: Að-
alstræti 6, sími 22480. Afgreiösla: Skeifunni 19, sími 83033. Áskrift-
argjald 110 kr. á mánuöi innanlands. I lausasölu 7 kr. eintakiö.
Bremsuráðherra
á bætt lífskjör
Þrátt fyrir verulega aukinn sjávarafla frá því að fiskveiðiland-
helgin var færð út í 200 mílur og þrátt fyrir hagstætt verð á
flestum sölumörkuðum okkar sýnir þróun þjóðarframleiðslu og
þjóðartekna, að við Islendingar höfum verið í vörn, ef ekki á beinu
undanhaldi, hin síðari árin. Þjóðarframleiðsla á mann, sem óx um
5,2% árið 1977, óx aðeins um 0,5% á sl. ári, og þjóðartekjur á mann,
sem uxu um 8,1% 1977, vóru að vexti til komnar niður í 0,7% 1981.
Spár standa til minni þjóðarframleiðslu og minni þjóðartekna á
líðandi ári. Það er því brýn þörf á því að snúa vörn í sókn og koma í
gang á ný kröftugum vexti í þjóðarframleiðslu, enda er það forsenda
bættra lífskjara, bæði varðandi einkaneyzlu og samfélagslegrar
þjónustu hverskonar. Þetta var meginþáttur í máli Geirs Hall-
grímssonar, formanns Sjálfstæðisflokksins, er hann mælti fyrir
tillögu 19 sjálfstæðisþingmanna um hagnýtingu orkulinda landsins
til aukis orkuiðnaðar.
Geir vitnaði til samþykktar 54-manna nefndar ASÍ, frá í ágúst sl.,
þar sem segir m.a.: „Aukinn hagvöxtur, sem staðið getur undir
efnalegri framþróun, er ein helzta forsenda verðbólguhjöðnunar og
aukins kaupmáttar. Skipuleggja verður sókn til bættra lífskjara svo
við Islendingar stöndum jafnfætis grannþjóðum hvað lífskjör varð-
ar og að atvinnuvegirnir verði samkeppnisfærir við atvinnuvegi
annarra landa um íslenzkt vinnuafl". Ennfremur vitnaði hann til
samþykktar 72-manna nefndar ASI þar sem segir m.a.: „Teknar
verði upp viðræður við ríkisstjórn um öfluga uppbyggingu atvinnu-
lífsins, þar sem m.a. verði knúið á um ákvarðanir og framtíðar-
stefnumótun varðandi orkufrekan iðnað."
Þessar samþykktir forystumanna í íslenzkri verkalýðshreyfingu
vóru sannarlega ekki að ástæðulausu. Það er einmitt á þessum
vettvangi, sem ríkisstjórnin og sér í lagi orkuráðherra hafa gjör-
samlega brugðizt. „Fyrirhyggjuleysi stjórnvalda í stóriðjumálum
sýnir bezt“, sagði Geir, „að hugur fylgir ekki máli í tillöguflutningi
þeirra um byggingu nýrra orkuvera." „Sannleikurinn er sá að lítið
þýðir að tala digurbarkalega um virkjun fallvatna, ef enginn mark-
aður er fyrir framleiðslu nýrra orkuvera."
Við búum nú við skilyrði, sem gera eiga aukna stóriðju hér á landi
mögulega. Við höfum öðlast ómetanlega reynslu í byggingu og starf-
rækslu virkjana og orkuvera. Við höfum tollfrjálsan aðgang að
Evrópumarkaði EBE og EFTA fyrir orkufrekar afurðir. Samkeppn-
isstaða okkar í orkufrekum iðnaði hefur og batnað með hækkandi
orkuverði erlendis, sem leitt hefur til samdráttar í orkuiðnaði þar,
bæði í Evrópu og Japan. Hækkað orkuverð til ÍSAL væri líklega
þegar í höfn, ef orkuráðherra hefði ekki vægt sagt klúðrað vinnu-
brögðum þar að lútandi.
Það er stefna Sjálfstæðisflokksins að orkuverin verði alfarið í
eigu íslendinga, en það fari eftir hagsmunamati hverju sinni, fjár-
hagsgetu og áhættu, hvort og í hvaða mæli íslenzk eignaraðild telst
æskileg í upphafi, við tilurð áhætturekstrar í stóriðju, en þannig
verði um hnúta búið, að Islendingar geti eignast slík fyrirtæki,
þegar þeim býður við að horfa. í þessu sambandi er rétt að gera sér
grein fyrir því, að fyrsti áfangi nýrrar álbræðslu, sem yrði á stærð
við Straumsvíkurverksmiðjuna, ásamt tilheyrandi höfn og aðstöðu,
kostar nálægt því sem nemur öllum erlendum skuldum landsins í
dag, eða um 1 milljarð Bandaríkjadala.
Við þurfum að skapa 2000 ný atvinnutækifæri árlega í næstu
framtíð, ef tryggja á framtíðaratvinnuöryggi. Við þurfum að auka
svo þjóðarframleiðslu og þjóðartekjur að rísi undir sambærilegum
lífskjörum hér á landi og í nágrannaríkjum. Ekkert skiptir eins
sköpum um kjör launþega í landinu í fyrirsjáanlegri framtíð og
hyggileg hagnýting orkulinda landsins. Flækjufótur íslenzkra orku-
og stóriðjumála, sem illu heilli ræður ríkjum í iðnaðarráðuneyti,
hefur með tvískinnungi og sofandahætti drepið þessu stóra hags-
munamáli á dreif — og seinkað verulega almennum lífskjarabótum,
sem stefna átti að. Þessvegna er meir en mál til komið að taka þessi
mál úr höndum þessa ráðherra, sem telur það meginhlutverk sitt að
standa á bremsum gagnvart framþróun í þjóðfélaginu — svo eitt-
hvað fari að gerazt!
Gagnkvæmni
í menningarsamskiptum
Nú er unnið að kennsluþáttum í dönsku fyrir íslenzka sjónvarpið,
sem er góðra gjalda vert, og vonandi skilar árangri sem erfiði.
Hinsvegar verður sú spurning ásæknari meðjiverju ári norrænn-
ar samvinnu, sem flest er jákvætt um, hvort meiri gagnkvæmni sé
ekki æskileg í norrænum menningarsamskiptum. Er t.a.m. ekki
tímabært að frændþjóðir okkar austan Atlantsála fái aðgang að
kennsluþáttum í íslenzkri tungu, þó ekki væri nema tii að auka þeim
sýn til uppruna eigin þjóðtungna.
íslenzkar bókmenntir eiga og að njóta sama réttar við sam nor-
rænt mat og skandinavískar, þ.e. að vera metnar á frummáli, og þeir
einir að kveða upp úrskurð í því mati, sem kunna skil á þjóðtungun-
um öllum.
Uppreisnarmenn í EI Salvador heimta vegaskatt af bflum sem fara um þjóðveginn I 40 km fjarlægð frá höfuð-
borginni. Myndin er tekin rétt fyrir síðustu helgi.
Jose Napoleon Duarte forseti á kosningafundi í El Salvador.
Forseti E1 Salvador:
ííeUr Jlork Srme0
Erlendir fjölmiðlar hafa blásið
ástandið í landinu óeðlilega upp
JOSE NAPOLEON DUARTE, forseti herforingjastjórnar E1 Salvador sagði í
viðtali við New York Times um helgina, að ástandið í Mið-Ameríku hefði verið
blásið upp í óeðlilegar hæðir I alþjóðlegum fjölmiðlum. Hann sagði að þessi
alþjóðlega athygli gerði það eitt að valda smáþjóðum tjóni, og kvaðst þar eiga við
bæði Nicaragua og E1 Salvador.
í viðtalinu lagði Duarte áherzlu á,
að sigraði flokkur hans, Kristilegir
demókratar, í kosningunum sem
eiga að fara fram í landinu þann 28.
marz nk. myndi stjórn þeirra verða
„lögleg" og gæti þar af leiðandi
snúið sér heilshugar að
mannréttindamálum. Duarte kvaðst
sannfærður um að hann myndi
verða forseti landsins og þjóðarin-
nar, ekki einvörðungu herforing-
jastjórnar þeirrar sem nú situr.
Duarte vísaði mjög eindregið á
bug öllum samningaviðræðum við
vinstrisinnaða uppreisnarmenn, og
sagði að slíkt væri ekki vænlegt til
að binda endi á bardagana í lan-
dinu. Hann kvaðst mundu hvetja
skæruliða frá E1 Salvador sem væru
utan lands til að snúa heim og taka
þátt í að byggja upp lýðræði í lan-
dinu. En hann kvaðst ekki mundu
ætla þeim neitt rúm í ríkisstjórn
sinni og hann bætti því við að hann
myndi heldur ekki setja nein völd í
hendur öfgasinna til hægri.
Forsetinn sagði að uppreisnar-
menn fengju stuðning frá Kúbu, Ni-
caragua og Sovétríkjunum, einnig
frá Frelsissamtökum Palestínu-
manna og Grenada. Þá sagði forse-
tinn að bæði Carter fyrrv. Banda-
ríkjaforseti og Reagan Bandaríkja-
forseti hefðu gert sér grein fyrir
vandanum. Hann sagðist ekki gera
lítið úr því sem við væri að etja, en
hins vegar væri engin sanngirni né
réttsýni í því hvernig erlendir
fjölmiðlar blésu málið upp. Um
ágreining þann sem upp hefur
komið vegna 80 milljón dollara her-
naðaraðstoðar Bandaríkjanna sagði
forsetinn, að sama máli gilti um
það. Almenningur gerði sér ekki
ljóst að með því að hafa uppi gagn-
rýni á aðstoð Bandaríkjamanna
væri verið að leggja kommúnískum
öflum lið.
Þá sagði forsetinn að uppreisnar-
menn í landinu hefðu fengið 600
tonn af vopnum og hergögnum er-
lendis frá og hann sagði sér það
mikið gremjuefni að vinstrimenn
vildu ekki taka þátt í kosningunum.
„Ekki geta þeir haldið því fram að
þeir vilji ekki snúa heim vegna þess
að þeir verði drepnir. Ég kom aftur
og það voru gerðar þrjár tilraunir
til að ráða mig af dögum, daginn
sem ég sneri heim 1979 eftir að hafa
verið í sjö ára útlegð."
Hann sagði að skoðanakönnun
sem hefði verið gerð af fyrirtæki frá
Guatemala í janúar sýndi að hann
væri vinsælasti maður þjóðarinnar
og hefðu 85 prósent spurðra verið á
þeirri skoðun. Hann sagði að í an-
narri skoðanakönnun hefði komið
fram að flokkur hans, Kristilegir
demókratar, nyti stuðnings 56%
þeirra sem kváðust ætla að greiða
atkvæði í kosningunum. í öðru sæti
með 21% á bak við sig var Roberto
D’Aubuisson, forsvarsmaður
Repúblikanska sambandsflokksins
sem er langt til hægri. Talið er að sá
flokkur hafi að minnsta kosti tvíve-
gis reynt að koma Duartestjórninni
frá völdum. Duarte sagði að færi
D’Aubuisson með sigur af hólmi
myndi verða „algert einræði í lan-
dinu og fólkið vissi það og herinn
gerði sér grein fyrir því og myndi
ekki sætta sig við það“.
Duarte vék sér undan að svara
beinlínis þegar hann var spurður
hvort hann héldi að ef hann yrði
lýðræðislega kjörinn forseti myndi
honum takast að hafa hemil á her-
num. „Þessi ríkisstjórn er afsprengi
samnings milli hersins og Kri-
stilega demókrataflokksins og
grundvöllur valdsins byggist á her-
num. Ef valdið kemur frá fólkinu,
með atkvæðum fólksins er þar með
komin upp algerlega ný staða."
Duarte ítrekaði í samtalinu að
lögum og reglu yrði komið á í lan-
dinu jafnskjótt og lögmæt ríkisst-
jórn sæti að völdum. Hann minntist
á að ríkisstjórn hans hefði komizt
til áhrifa með valdbeitingu og hann
sagði að hver einasti borgari, hvort
sem hann væri til hægri eða vinstri,
vildi semja um að fá sinn skerf af
valdinu. „En eftir kosningarnar
munu þessir aðilar ekki eiga neitt
tilkall til valds," sagði hann.
Duarte kvaðst ekki vita nákvæm-
lega hve mikið af vopnum erlendis
frá hefði verið komið inn í landið.
Hann sagði að ljóst væri að ríkisst-
jórn Sandinista í Nicaragua væri
ógnun við E1 Salvador, en engu að
síður vildi stjórn E1 Salvador hafa
friðsamleg skipti við hana sem
aðrar þjóðir.
Samvinnunefnd um skipulagsmál á Suðurnesjum:
Félagsmálaráðherra fer á svig
við skipulagsstjórn ríkisins
SVAVAR Gestsson, félagsmála-
ráðherra, hefur gefið út reglur,
dagsettar 8. mars sl., fyrir sam-
vinnunefnd um skipulagsmál á
Suðurnesjum og byggjast þær á
3. grein skipulagslaga, þar sem
segir, að ráðherra geti ákveðið,
að slík samvinnunefnd verði
skipuð til að gera tillögur um
skipulag, ef svo hagar til, að
skipulag í einu sveitarfélagi er,
að dómi skipulagsstjórnar ríkis-
ins, svo háð skipulagi nærliggj-
andi sveitarfélaga, að nauðsyn
beri til þess að gera að einhverju
leyti sameiginlegt skipulag fyrir
þessi sveitarfélög. Jafnframt
segir í þessari lagagrein, að
félagsmálaráðherra setji sam-
vinnuncfndinni starfsreglur og
ákveði kjörtíma hennar, að
fengnum tillögum skipulags-
stjórnar ríkisins. Af samtölum
við fulltrúa í skipulagsstjórn
ríkisins í gær mátti ráða, að hún
hefði ekki gert tillögur um þess-
ar reglur til félagsmálaráðherra.
Og virtist eins og upplýsingar
blaðsins kæmu þeim á óvart, því
að skipulagsstjórn hefur viljað,
að eldri samvinnunefnd starfaði
áfram. Ekki tókst að ná í skipu-
lagsstjóra ríkisins og bera þetta
mál undir hann.
Eins og fram ke/nur í frétt á
baksíðu Morgunblaðsins i dag,
segist Ólafur Jóhannesson, utan-
ríkisráðherra, hræddur um að
reglur félagsmálaráðherra séu
markleysa. Samkvæmt lögum 106
17. desember 1954 og reglugerð
um stjórnarráð íslands frá því í
desember 1969 falla skipulagsmál
á varnarsvæðunum, það er að
segja þeim svæðum, sem varnar-
liðið á Keflavíkurflugvelli hefur
til afnota, undir utanríkisráð-
herra.
Allt frá 1968 hefur verið starf-
andi samvinnunefnd um skipu-
lagsmál Keflavikur, Njarðvíkur
og Keflavíkurflugvallar. Var hún
upphaflega stofnuð með reglu-
gerð á því ári. Að tillögum henn-
ar var staðfest aðalskipulag fyrir
umrædd sveitarfélög og flugvall-
arsvæðið 2. nóvember 1973. Hinn
22. febrúar 1978 gaf félagsmála-
ráðuneytið út reglur fyrir sam-
vinnunefnd þessara sömu aðila,
skyldi hún vinna að endurskoðun
að gildandi skipulagi. í nefndinni
frá 1978 er Aðalsteinn Júlíusson,
vitamálastjóri, formaður. Þar
eiga einnig sæti tveir fulltrúar
frá hverjum þessara aðila: Kefla-
vík, Njarðvík og varnarmáladeild
utanríkisráðuneytisins. Segir í
þessum reglum: „Hlutverk full-
trúa varnarmáladeildar skal
jafnframt vera að ræða við full-
trúa varnarliðsins um nauðsyn-
legar skipulagsbreytingar á varn-
arsvæðum Keflavíkurflugvallar,
og afla samþykkis þess fyrir til-
lögum nefndarinnar." I hinum
nýju reglum, sem Svavar Gests-
son hefur gefið út segir á hinn
bóginn: „Hlutverk fulltrúa varn-
armáladeildar skal vera að gæta
skipulagshagsmuna Keflavíkur-
flugvallar og afla samþykkis
utanríkisráðherra fyrir tillögum
nefndarinnar."
í nóvember 1981 fór samvinnu-
nefndin frá 1978 fram á það, að
starfstími hennar yrði fram-
lengdur út þetta ár. Samkvæmt
heimildum Morgunblaðsins telur
nefndin sig hafa lokið störfum en
þurfi tíma til að ganga frá forms-
atriðum. Tilmælum nefndarinnar
um framlengingu á umboði sínu
svaraði Svavar Gestsson ekki, en
í reglunum frá 8. mars sl. stend-
ur, að reglurnar frá 22. febrúar
1978 séu felldar úr gildi.
í nýju samvinnunefndina um
skipulagsmál á Suðurnesjum
skulu sveitarstjórnir Keflavíkur,
Njarðvíkur, Hafnahrepps, Mið-
neshrepps og Gerðahrepps og
varnarmáladeild utanríkisráðu-
neytisins hver um sig skipa tvo
fulltrúa, skipulagsstjórn ríkisins
skipar formann. Um verkefni
hinnar nýju nefndar segir svo:
„Hlutverk nefndarinnar er að
vinna að samræmingu og endur-
skoðun á skipulagi þess svæðis,
sem tekur yfir umrædd sveitar-
félög og flugvallarsvæðið, eftir
því sem þurfa þykir."
Sérfróðir menn í skipulagsmál-
um létu orð falla um það í við-
ræðum við Morgunblaðið um
þessi mál í gær, að ætti hin nýja
nefnd að ná til Suðurnesja sýnd-
ist þeim eðlilegt, að þar ættu
einnig sæti fulltrúar Grindavíkur
og Voga. Þá kom einnig fram hjá
þeim, að ekki hefðu verið dregin
til baka tilmæli frá skipulags-
stjóra ríkisins dagsett 16. nóv-
ember 1981 um að samvinnu-
nefndin frá 1978 fengi að halda
áfram störfum, lægi sú ósk enn á
borði Svavars Gestssonar, félags-
málaráðherra, þótt hinar nýju
reglur hefðu verið settar.
Uppkast listamannsins Hans Lynge af lág-
mynd til minningar um Eirík rauða, sem sett
verður upp í Bröttuhlíð í sumar.
Minnismerki um Eirík
rauða í Bröttuhlíð
ÍBÚAK í Bröttuhlíð á Grænlandi hafa
ákveðið að láta gera minnismerki um Kirík
rauða í Bröttuhlíð öðru nafni Qassiarsuk.
Eyrirhugað er að það verði komið upp í
sumar er þess verður minnst, að eitt þúsund
ár eru liðin frá komu Eiríks rauða til Græn-
lands. Grænlenzka listamanninum Hans
Lynge hefur verið falið að vinna minnis-
merkið og hefur hann þegar haflst handa
um verkið. Til að standa straum af kostnaði
við verk þetta hefur verið sett á laggirnar
landssöfnun meðal Grænlendinga.
Listamaðurinn hefur ákveðið að fella
lágmynd úr bronsi inn í stein einn mik-
inn, sem fluttur verður úr fjöruborðinu í
Bröttuhlíð upp á land. Minnismerkið á að
sýna Eirtk rauða i stafni skips síns. I
annarri hendi heldur hann á lensu en í
hinni á blómvendi og segir í Grænlands-
póstinum, að vöndurinn eigi að minna á
blóm þau er bárust með Eiriki og fylgd-
arliði hans frá íslandi og enn blómstra og
dafna í Suður-Grænlandi.
Iðnaðarráðherra um reykvísk orkufyrirtæki:
„Að því er unnið að
átta sig á, hvernig
rétt sé að útfæra...“
Birgir ísleifur Gunnarsson (S)
gerði að umræðuefni í Sameinuðu
þingi, er fyrirspurn um framkvæmd
orkumálakafla stjórnarsáttmálans
var á dagskrá sl. þriðjudag, ákvarð-
anir Hitaveitu Reykjavíkur og Kaf-
magnsveitu Reykjavíkur um gjald-
skrárhækkanir. Að sögn iðnaðarráð-
herra hefði þessi mál borið á góma á
ríkisstjórnarfundi þann dag og „vil
ég leyfa mér að spyrja, hver hafi
orðið niðurstaða þess máls, og hvert
er viðhorf ráðherrans í málinu, sem
er gífurlega mikilvægt fyrir þessi
mikilvægu fyrirtæki Reykjavíkur
borgar?“
Hjörleifur Guttormsson, iðnað-
arráðherra, vitnaði til samþykkt-
ar ríkisstjórnarinnar, þess efnis,
að sveitarstjórnir hafi heimild til
að breyta gjaldskrám fyrirtækja
sinna, sem nemur hækkun bygg-
ingarvísitölu, án sérstaks leyfis
frá ríkisvaldinu. „Þetta stefnumið
er ekki það gamalt,“ sagði hann,
„og það er að því unnið, að átta sig
á, hvernig rétt sé að útfæra það,
m.a. þá viðmiðun við byggingar-
vísitölu, sem þarna er að vikið, frá
hvaða tíma reiknað skuli."
Síðar sagði ráðherra: „Ég tel
eðlilegt að það sé reynt að verða
við sanngjörnum óskum þessa
veitufyrirtækis (HR) í áföngum og
á þetta mál og óskir, sem fram eru
komnar til ráðuneytisins verður
litið með hliðsjón af því. Hinsveg-
ar get ég ekki fallizt á það viðhorf,
að verksvið stjórnvalda, í þessu
tilviki iðnaðarráðuneytis, sé það
eitt, að stimpla fram komnar óskir
frá viðkomandi sveitarfélagi eða
veitufyrirtæki ... í þessu sam-
bandi getur ekki falizt það eitt, að
segja já og amen við öllu sem fram
kemur. Það verður að sjálfsögðu
að leggja mat á þær óskir, sem
fram eru bornar."
Skattlagning fannfergis:
Söluskattur á snjómokst-
ur verði endurgreiddur
í Hannes Baldvins-
j son (Abl) mælti sl.
j miðvikudag fyrir
j frumvarpi til
j breytinga á sölu-
I skattslögum, þess
j efnis, að fjár-
málaráðherra
I skuli heimilt að
endurgreiða söluskatt af kostnaði
sveitarfélaga við snjómokstur.
Hannes sagði þjóðfélagsþegna
eiga að standa jafna gagnvart lög-
um, söluskattslögum sem öðrum,
en hér bæri svo við að skatturinn
kæmi einkum niður á þeim sveit-
arfélögum, sem kosta þyrftu mikl-
um fjármunum til að halda gatna-
kerfi sínu opnu vegna fannfergis,
dag eftir dag og mánuð eftir mán-
uð. Skattlagning slíkra kostnað-
arsamra kringumstæðna væri
vart við hæfi.
• Páll Pétursson (F) taldi betur
hafa farið á því og verið sigur-
stranglegra, að fjármálaráðherra
hefði sjálfur flutt þetta frumvarp
en ekki varamaður hans. Málið
væri gott, sagði Páll, en ekki geri
ég það að stjórnarslitamáli, ef
fjármálaráðherra verður fastheld-
inn á skattlagningu snjókomunn-
ar.
• Tryggvi Gunnarsson (S) tók
sterklega undir með Hannesi
Baldvinssyni (Abl) og sagði illt í
efni þegar forsjármenn sveitarfé-
laga þyrftu að velta vöngum yfir
því, hvort láta eigi byggðarlag
fenna i kaf, vegna óheyrilegrar
skattlagningar á sjálfsagðri þjón-
ustu, þ.e. snjóruðningi. Hinsvegar
skil ég ekki Pál Pétursson, sem
talar með málinu, en gefur þó í
skyn, að atkvæði hans falli gegn
því.
• Karvel Pálmason (A) tók í sama
streng, hér væri sanngirnis- og
réttlætismál á ferð, sem jafnvel
Páll Pétursson viðurkenndi, þó
hann, eins og framsóknarmenn í
þessu stjórnarsamstarfi, hengi sig
aftan í ráðherra Alþýðubanda-
lagsins.
• Olafur 1». Þórðarson (F) ítrekaði,
að sterkara hefði verið, ef ráð-
herra hefði flutt málið, en varla
félli ríkisstjórnin á málatilbúnað
varamanns hans.
• Páll Pétursson (F) sté enn í stól
og sagði hér réttlátt og gott mál á
ferð. Framsóknarmenn hefðu
margoft þurft að hafa vit fyrir
fjármálaráðherra í hinum stærri
málunum en þeir muni þó naum-
ast láta svo sverfa til stáls í hinum
smærri, að hann fari að leita sér
að stjórnarslitaefnum.
• Tryggvi Gunnarsson (S) svaraði
Páli þessum orðum: Fór í verra
nú. Nú skildi ég ekkert hjá þing-
flokksformanninum!
• Hannes Baldvinsson þakkaði
góðar undirtektir og sló á efa-
semdir Páls Péturssonar um mik-
ilvægi málsins í augum fjármála-
ráðherra.
Nettóskattahækkun 104 m.kr.:
2% sjúkratryggingargjald
á gjaldstofn útsvars
Fjárhags- og viðskiptanefnd efri
deildar Alþingis hefur skilað áliti
um framlengingu 2% sjúkratrygg-
ingargjalds á gjaldstofn útsvara, þ.e.
þann hluta gjaldstofns sem er um-
fram kr. 101.250. Gjald þetta á að
gefa ríkissjóði tæpar 50 milljónir
króna 1982. Stjórnarsinnar mæla
með samþykkt frumvarpsins, en
stjórnarandstæðingar gegn.
I nefndaráliti Lárusar Jónsson-
ar og Eyjólfs Konráðs Jónssonar,
þingmanna Sjálfstæðisflokks,
kemur eftirfarandi fram:
• 1) Skattvísitala sem og fjárlög
1982 vóru miðuð við 50% tekju-
hækkun milli áranna 1980 og .1981,
en tekjur 1981 koma til skattlagn-
ingar 1982. Líkur benda hinsvegar
til að tekjubreytingin verði a.m.k.
52—53%, að mati Þjóðhagsstofn-
unar, sem þýðir, að tekjuskatts-
1
álagning í ár verður verulega
þyngri en fjárlög gera ráð fyrir.
• 2) Mjög varlega áætlað verður
álagning tekju- og eignarskatta og
sjúkratryggingargjalds, af þessum
sökum, 50—55 m.kr. meiri en
áætlað er í fjárlögum, sem jafn-
gildir á innheimtugrunni a.m.k.
45—50 m.kr.
• 3) Lækkun launaskatts, lækk-
un stimpilgjalda og tollalækkun,
sem verður í ár, rýrir tekjur ríkis-
sjóðs um samtals 72 m.kr. Hins-
vegar vegur ráðgerð skattþynging
miklu meira: a) hækkun tekju- og
eignaskatts og sjúkratrygg-
ingargjalds 45 m.kr, b) nýtt toll-
afgreiðslugjald 54 m.kr., c) sölu-
skattur á þetta nýja gjald gefur 19
m.kr., d) gjald á sælgæti og kex 8
m.kr., e) skattur á banka og spari-
sjóði 50 m.kr. — eða samtals 176
m.kr., þ.e. nettóskattahækkanir
nema 104 m.kr.
Með hliðsjón af þessu leggja
þeir Lárus og Eyjólfur til að frum-
varpið verði fellt.
Sjúkratryggingargjaldið var
samþykkt eftir aðra umræðu í
deildinni með 10 atkvæðum gegn
8.