Morgunblaðið - 11.03.1982, Side 31
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 11. MARZ 1982
31
Halldór Björnsson:
Erum sammála
um að hvika
ekki frá sam-
ræmingunni
FYRSTI fundur samninganefndar
starfsfólks í ríkisverksmiðjunum og
vinnumálanefndar ríkisins var hald-
inn undir stjórn Guðmundar Vignis
Jósefssonar, vararíkissáttasemjara, í
gær. Annar fundur hefur verið
boðaður klukkan 15 á morgun. Við-
ræður um samninga starfsfólks í
þessum verksmiðjum, Sementsverk-
smiðjunni, Aburðarverksmiðjunni
og Kísiliðjunni, hafa ekki áður farið
fram hjá embætti sáttasemjara.
Aðalkrafa starfsfólksins er sú,
að samningar í ríkisverksmiðjun-
um verði samræmdir við það sem
er í Járnblendiverksmiðjunni að
Grundartanga. Að sögn Halldórs
Björnssonar, varaformanns Dags-
brúnar, sem situr í samninga-
nefnd verkalýðsfélaga í verk-
smiðjunum, eru helztu kröfurnar
varðandi orlofsuppbót, fram-
leiðslubónus, starfsaldur og ýmis
fleiri samræmingaratriði.
Halldór sagði, að ekki væri gerð
bein krafa um kaupliðinn, heldur
væru talsmenn félaganna sam-
mála og samstiga um að hvika
ekki frá kröfunni um samræm-
ingu og teldu það beztu kjarabót-
ina. Vinnumálanefnd ríkisins hef-
ur boðið ASI-samkomulagið, en
verkalýðsfélögin hafa hafnað því
og sagði Halldór, að menn teldu
það hliðarspor og vildu halda
áfram að ræða samræminguna
þar sem frá var horfið við gerð
síðustu samninga. „Við látum
reyna á það fram yfir helgi hvort
samningar takast eða hvort við
þurfum að athuga okkar gang
varðandi aðgerðir," sagði Halldór
Björnsson.
Helguvíkurmálið:
Hreppsnefnd
Gerðahrepps
mótmælir
málsmeðferð
lltanríkisráðherra var í gærmorg-
un afhent orðsending frá hrepps-
nefnd Gerðahrepps vegna málsmeð-
ferðar í svonefndu Helguvikurmáli.
Samkvæmt heimildum Mbl. telur
hreppsnefnd Gerðahrepps að varn-
armáladeild utanríkisráðuneytisins
hafi sniðgengið hreppsnefnd Gerða-
hrepps í því máli.
/ Hreppsnefndin samþykkti að
'fjalla ekki um mál þetta við fjöl-
miðla, en eftir því sem Mbl. kemst
næst mun hreppsnefndin óska
skýringa á ákveðnum hlutum og
væntir viðræðna vegna hluta
þeirra samningsdraga sem bæjar-
stjórn Keflavíkur samþykkti á
sínum fundi í fyrrakvöld. Ekki er í
orðsendingu hreppsnefndarinnar
um að ræða neins konar andstöðu
við fyrirhugaðar framkvæmdir í
Helguvík.
Týndi laun-
um sínum
UNG stólka, sem vinnur við að bera
út Morgunblaðið og innheimta sam-
hliða skólagöngu sinni, varð fyrir því
óláni í gærdag að týna rauðu veski
með innheimtulaununum sínum, 491
kr. Hún býður þeim fundarlaun, sem
kemur veskinu með laununum til
skila.
Unga stúlkan náði í innheimtu-
launin sín niður á afgreiðslu Mbl.
í gær og hélt síðan með móður
sinni upp Laugaveginn. Hún var
síðast með veskið í höndunum að
Laugavegi 2, en uppgötvaði að hún
hafði týnt því, er hún var komin á
móts við verzlunina Fálkann. Auk
peninganna er greiðslukvittun upp
á 491 kr. í veskinu. Stúlkan er í
síma 14283, einnig má hafa sam-
band við afgreiðslu Mbl.
Ármúla 11. Sími 91-83860.
Fæst í apótekum, helstu snyrtivöruverslunum og
flestum stórmörkuöum.
Heildsölubirgöir: Friörik Björnsson,
Pósthólf 9133—129 Rvík. Sími 77311.
Svedbergs’
baöinnréttingar
Með alþjóðlega viðurkenningu
í janúar 1982 hlutu Svedbergs baöinnréttingar al-
þjóölega viöurkenningu fyrir góöa hönnun og gæöi.
Svedbergs baöinnréttingar eru til í yfir 100 mismun-
andi einingum. Skápar, speglar, handlaugar og
baöherbergisáhöld. Einingunum má raöa saman eftir
þörfum hvers og eins. Fáanlegir í furu, bæsuöúm ask
og hvitlakkaöar. Lítiö viö, eöa skrifið og fáiö
litmyndabækling.
(S) Nýborg?
O Armúla 23 — Seml 86755
Útsölustaðir:
Gler og málning, Akranesi,
Raftækni, Akureyri,
Jón Fr. Einarsson, Bolungarvík,
Miðstöðin, Vestmannaeyjum.
Umboðsmenn óskast á öörum stööum.