Morgunblaðið - 11.03.1982, Qupperneq 32
32
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 11. MARZ 1982
Bridgehátíð ’82:
Erlendu þátttakendumir
ekki af verri endanum
Bridge
Guðmundur Páll Arnarson
Á morgun, fostudaginn 12. marz,
hcfst á Hótel Loftleiðum Bridgehá-
tíð 1982: þ.e. annars vegar afmæl-
ismót Bridgefélags Reyjavíkur
(1942—82), sem er 36 para baro-
meter tvímenningur; og hins vegar
stórmót Klugleiða, sem er sveita-
keppni með þátttöku 6 sveita. Sex
erlend pör taka þátt í þessum mót-
um: Alan Sontag — Peter Weichsel,
Kon Kubin — Mike Becker frá
Bandaríkjunum; Leif Eric Stabell
— Tor Helncss, Harald Nordby —
Jon Aaby frá Noregi; og lrving
Rose — Rob Sheehan, Willie Coyle
— Barnet Shenkin frá Bretlandi.
í tvímenningskeppninni verða
spiluð 105 spil, 3 spil á milli para.
Verðlaunin eru rausnarleg:
1. verðlaun 1.500$
2. verðlaun 1.000$
3. verðlaun 750$
4. verðlaun 500$
5. verðlaun 250$
Keppnisstjóri tvímenningsins
verður Vilhjálmur Sigurðsson.
I sveitakeppninni spila 3 ís-
lenskar sveitir auk erlendu gest-
anna. Islensku sveitirnar eru
sveit Sævars Þorbjörnssonar,
Karls Sigurhjartarsonar og Arn-
ar Arnþórssonar. Stjórn BR
„valdi“ að velja ekki íslensku lið-
in, heidur láta úrslit úr síðustu
mótum ráða. Þannig skyldu sig-
urvegarar aðalsveitakeppni BR
komast í mótið (Sævar Þor-
björnsson), og tvær efstu sveit-
irnar úr undankeppni Reykja-
víkurmótsins (Karl Sigurhjart-
arson og Örn Arnþórsson).
Ýmsir hafa látið í ljós óánægju
með þessa valsaðferð stjórnar-
innar. Þeim hefur fundist að
stjórnin ætti einfaldlega að velja
eftir bestu samvisku þær þrjár
sveitir sem hún teldi bestar.
Hvað sem því líður þá held ég að
valið hafi tekist vel.
Sveitirnar koma til með að
spila 20 spila leiki, einfalda um-
ferð. Það verða spiluð sömu spil í
öllum leikjum hverrar umferðar.
Flugleiðir gefa efstu sveitinni
veglegan verðlaunagrip, en auk
þess fá tvær efstu sveitirnar pen-
ingaverðlaun; 1200$ í fyrstu verð-
laun, en 800$ í önnur.
Keppnisstjóri í sveitakeppninni
verður Agnar Jörgensen.
Aðstandendur þessa móts hafa
lagt mikið kapp á að skapa góða
aðstöðu fyrir áhorfendur. Hvert
spil, bæði í tvímenningnum og
sveitakeppninni, hefur verið vél-
ritað á glæru og verður sýnt á
tjaldi í sýningarsalnum. Auk þess
verður sjónvörpum komið fyrir
inni í sýningarsalnum og verður
sjónvarpað frá einu borði í spila-
salnum. Áhorfendur geta því virt
fyrir sér samtímis spilið á tjald-
inu og spilamennskuna í heitasta
pyttinum í spilasalnum. Upp-
tokuvélinni verður komið fyrir í
loftinu þannig að sjónarhornið
veður beint niður á borðið. Það
verður því auðvelt að fylgjast
með öllu sem gerist á borðinu,
bæði sögnum (sagnmiðar) og úr-
spili.
Auðvitað geta áhorfendur einn-
ig horft á inni í sjálfum spilasaln-
um, en flakk á milli sýningarsals
og spilasals verður ekki leyft
nema á milli umferða.
Erlendu þátttakendurnir á
Bridgehátíðinni eru svo sannar-
lega ekki af verri endanum. Son-
tag og Weichsel eru eitt af fræg-
ari pörum Bandaríkjamanna, nú-
verandi Dallas ásar og margfald-
ir meistarar á stórmótum i
Bandaríkjunum og tvímenn-
ingsmótum út um allan heim. Það
voru þeir — ásamt Ron Rubin,
sem þá spilaði við Matt Grano-
vetter — sem sigruðu Lancia
sveitina árið 1975 (Belladonna,
Garozzo, Forquet, Sharif) og
hlutu að launum 5 Lancia bifreið-
ir.
Sontag hefur skrifað tvær
bridgebækur: The Bridge Bum og
l'ower Precision. Fyrri bókin er
eins konar sjálfsævisaga. Sontag
er atvinnumaður í bridge og hann
lýsir lífi sínu sem slíkur. Seinni
bókin er kröftug útfærsla á Pre-
cision kerfinu sem hann og
Weichesel hafa þróað, en auk
þess fléttar hann saman við
greinagerðina fyrir kerfinu lýs-
ingu á mesta peningamóti Banda-
ríkjamanna: Cavendish Calcutta.
Það mót unnu Sontag og Weichs-
el tvö ár í röð, og í bókinni lýsir
Sontag seinna mótinu sem þeir
unnu.
Sontag er býsna skemmtilegur
höfundur, kannski aðallega vegna
þess hvað hann er opinskár og
drýldinn. Hann er alveg pottþétt-
ur á því að Power Precision sé
„besta kerfi á jörðu hér“, og gerir
sér lítið far um að dylja þá sann-
færingu sína. Og því skyldi hann
gera það? I síðasta kafla bókar-
innar segir frá lokaumferðunum í
Calcutta mótinu, og öruggum
sigri Péturs og Alans. Einn af
þátttakendum mótsins var
kvikmyndaleikarinn kunni Omar
Sharif. Ómar er höfðingi í sér, og
þegar úrslitin liggja fyrir gengur
hann til strákana og segir: „Jæja
drengir, nú drífum við okkur út á
lífið." Seint um .nóttina, í ein-
hverjum næturklúbbnum, getur
Ómar ekki lengur setið á sér og
spyr: „Hvernig stendur eignin-
lega á því að þið eruð svona góðir,
piltar?" Rjóðir og sælir, í sætri
sigur- og kampavínsvímu svöruðu
piltarnir tveir einum hálsi: „Það
er kerfið."
Hérna er fallegt spil sem Son-
tag spilaði í fyrra sinnið sem þeir
félagar unnu Cavendish Calcutta
mótið:
Norður
s Á6
h 1032
18743
I G1053
Vestur Austur
s G843 s K109
h 5 h G%
t ÁK52 t G1096
1 Á964 1 D72
Suður
s D752
h ÁKD874
t D
I K8
Vestur Nordur Austur Sudur
I tígull l’ass 2 títflar 4 hjörtu
1*188 1’a.SS 1*888
Sontag fékk út tígulás og meiri
tígul. En gefum honum orðið: „Ég
sá af sögnum að spaðinn var 4—3
með fjórlitnum í vestur. Ef aust-
ur hefði átt 4 eða 5 spaða hefði
hann sagt 1 spaða við 1 tígli, og ef
vestur ætti fimmlit hefði hann
væntanlega opnað á spaða.
Ég gerði mér grein fyrir því að
ef vestur ætti í spaðanum væri
hæpið að spilið ynnist. Ég þyrfti
að trompa tvo spaða og sennilega
gæti austur yfirtrompað blindan.
Þess vegna ákvað ég að spila
austur upp á spaðakóng. En ég
varð að fara varlega. Það var ekk-
ert allt of mikið um innkomur í
blindan og einhverntíma yrði ég
Rob Sheehan
að spila laufinu. Ég var reyndar
ákveðinn í að hleypa laufgosan-
um, þar eð vestur hafði opnað í
spilinu.
Alan Truscott skrifaði í The
Times: „Að þessu athuguðu fann
Sontag lykilspilamennskuna,
hann spilaði smáum spaða frá
báðum höndum!"
Nú hafði ég fullt vald á spilinu.
Vörnin spilaði trompi til baka,
sem ég tók heima, tók spaðaás og
hleypti laufgosanum. Vestur fékk
á ásinn og spilaði tígli sem ég
trompaði, trompaði spaða (kóng-
urinn féll), dró trompin og lagði
upp.“
Norðmennirnir sem hingað
koma mynda kjarna norska
landsliðsins. Þeir spiluðu t.d. allir
á Evrópumótinu í Birmingham í
sumar og höfnuðu í 4. sæti eftir
að hafa leitt mótið lengi vel. Þeir
eiga allir að baki ýmis frægðar-
verk, Stabell er t.d. margfaldur
Norðurlandameistari, bæði í
unglingaflokki og opnum flokki.
Stabell skrifaði athyglisverða
grein í afmælisrit norska bridge-
sambandsins. Hann gerir þar að
umtalsefni einn þátt keppnis-
bridge sem spilarar hugsa yfir-
leitt lítið um: hvernig menn eigi
að haga sér í keppni og fyrir
keppni til að stuðla að því að þeir
geri örugglega sitt besta. Hann
hefur ýmsar ráðleggingar þar að
lútandi.
Eitt af því sem keppnisspilarar
uppgötva fljótt er hvað það getur
verið ótrúlega slítandi að spila í
keppni. Þreytan stafar ekki endi-
lega af því að svo mikil orka fari
í að hugsa; það er fyrst og fremst
streitan og spennan sem lýja
menn. Og eftir því sem þreytan
og streitan er meiri verður sífellt
erfiðara að einbeita sér. Þess
vegna segir Stabell: Æfðu þig í að
slappa af fyrir keppni, en ekki
Irving Rose
síst í hita leiksins. Annað sem
Stabell telur mikilvægt er að vera
síétandi eða réttara sagt nart-
andi við bridgeborðið. Blóðsykur
upp í heilann og hann vinnur bet-
ur!
Ekki svo að skilja að menn eigi
að belgja sig út og halda kviðnum
alltaf vel fullum. Alls ekki! Orkan
á að fara í að hugsa, ekki að
melta. Hann segir skemmtiléga
sögu frá árinu 1973, þegar hann
og sveitarfélagar hans, þá 18 ára
gamlir, kepptu fyrst á Noregs-
meistaramótinu. Þeim hafði
vegnað vel og voru komnir með
talsverða sigurmöguleika þegar
þeir mættu meisturum fyrra árs.
Allt gekk að óskum í fyrri hálf-
leik, þeir höfðu 15 IMPA forskot.
Andstæðingar þeirra virtust ekk-
ert fúlir yfir því að vera undir;
þvert á móti voru þeir svo vin-
gjarn'egir að bjóða strákunum í
mat á glæsilegum veitingastað.
Þar hvöttu þeir piltana óspart til
að panta allar þær kræsingar
sem þá lysti. Sem strákarnir auð-
vitað gerðu. T-beins steikur og
buff á línuna, súpa á undan og ís
á eftir. Vitaskuld voru Stabell og
félagar himinlifandi yfir örlæti
andstæðinga sinna, en fannst
skrítið að þeir sjálfir skyldu ekki
panta sér annað en létta græn-
metissúpu! En þeir um það.
Seinni hálfleiknum tapaði sveit
Stabell með yfir 50 IMPum. Síðan
hafa þeir látið grænmetissúpuna
duga fyrir leiki.
Fleira bendir Stabell á. T.d.
hvernig spilarar eigi að bregðast
við þegar illa gengur. Hann ráð-
leggur mönnum að taka sér hlé
eftir „vondu spilin", fara á kló-
settið, kaupa kók, eða eitthvað í
þá áttina. Það er mikið til í þessu.
Þrír af þeim fjórum Bretum
sem spila á Bridgehátíðinni komu
hingað til lands með breska
landsliðinu 1972 á 30 ára afmæli
BR. Það eru þeir Rose, Sheehan
og Coyle. Allir þessir þrír eru
margreyndir landsliðsmenn; og
Rose og Sheehan voru í breska
liðinu sem hafnaði í 2. sæti á EM
í sumar og spiluðu því á HM í
New York í haust. Sheehan þykir
góður tæknimaður, nákvæmur og
öruggur. Rose er hins vegar fræg-
ur fyrir frjótt ímyndunarafl og
dirfsku, eins og eftirfarandi spil
vitnar um. Það er frá landsliðs-
keppni Breta sem haldin var fyrir
Evrópumótið siðasta.
Norður gefur, A—V á hættu.
Norður
s 64
h 42
t 52
I ÁDG9742
Austur
sG7
h KG9853
t G8
I K106
Suður
s10853
h 6
t KD109743
15
Sheehan í norður vakti á 3
laufum. Austur sagði pass. Hvað
hefðir þú sagt á suðurspilin? Þrjá
tígla? Fimm tígla, kannski?
Rose sagði 5 lauf! Vestur dobl-
aði auðvitað, Sheehan passaði og
austur sagði 5 hjörtu. En ekki
fannst Rose nóg að gert og sagði 6
lauf!! Vestur þóttist þá viss um að
makker sinn ætti í mesta lagi eitt
lauf og lét sig hafa það að fara í 6
hjörtu.
Gegn 6 hjörtum spilaði Shee-
han út laufás og — meira laufi.
Það var þessu spili að þakka að
Sheehan og Rose komust áfram í
baráttuni unt landsliðssæti!
Það er full ástæða til að hvetja
bridgeáhugafólk til að koma á
Loftleiðir og fylgjast með þessum
einstæða bridgeviðburði. Ef vel
tekst til núna verður slík hátíð
vonandi haldin árlega framvegis.
Flugleiðir hafa a.m.k. áhuga á
því, og það er meiningin að kalla
mótið Loftleiðir Cup út á við.
Dagskrá bridgehátíðarinnar
verður þannig:
Köstudagur 12. marz:
Kl. 16.00 Afmælismót BR sett.
Að lokinni setningar-
athöfn hefst spila-
mennska og er fyrir-
hugað að spila til mið-
nættis með matarhléi
milli kl. 19 og 20, alls 17
umferðir.
I.augardagur 13. marz:
Kl. 10.00 Afmælismóti BR haldið
áfram og er áformað að
því ljúki um kl. 18.30.
Matarhlé verður milli
kl. 12 og 13.
Kl. 20.30 Afmælishóf BR. Það
hefst með borðhaldi en
á eftir verður dansað til
kl. tvö. Verðlaun fyrir
afmælismótið verða af-
hent.
Sunnudagur 14. marz:
Kl. 13.15 Stórmót Flugleiða sett,
en að setningu lokinni
hefst mótið og verða
spilaðar tvær umferðir
til kl. 19.
Kl. 20.30 Stórmót Flugleiða, ein
umferð.
Mánudagur 15. marz:
Kl. 16.00 Stórmót Flugleiða, ein
umferð.
Kl. 20.00 Síðasta umferð.
Kl. 22.45 .Verðlaunaafhending
fyrir stórmót Flugleiða;
hátíðinni slitið.
Norska liðið sem kemur á Bridgehátíðina. Fullorðni maðurinn á miðri myndinni er Rarik Halle, einn af
frægustu spilurum Norðmanna hér áður fyrr og margreyndur landsliðsmaður. Annars eni frá vinstri talið: Jon
Aaby, Tor Helness, Harald Nordby og Leif Eric Stabell.
Vestur
s ÁKD92
h ÁD109
t Á6
183