Morgunblaðið - 11.03.1982, Page 36
36
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 11. MARZ 1982
I
+
Elskulegur eiginmaöur minn,
GEORGE WILLSEY, Grovaland — Florida,
lést 6. marz. Alica Schmidt Willsey
Móöir okkar, + FRÍDEL BJARNASON
frá Siglufirði,
lést í Landakotsspítala 9. mars.
Börnin.
+
ÚLFHILDUR HANNESDÓTTIR,
Smidshúsum, Eyrarbakka,
lést á Hrafnistu í Reykjavík þann 4. mars. Útförin fer fram frá
Eyrarbakkakirkju, laugardaginn 13. mars kl. 13.30.
Vandamenn.
+
Dóttir mín,
HÓLMFRÍÐUR MARÍA KRISTINSDÓTTIR,
Breiðvangi 14, HafnarfirAi,
veröur jarösungin frá Þjóökirkjunni í Hafnarfiröi i dag. fimmtudag
11. mars kl. 2.
Fyrir hönd vandamanna Guftný Björgvínsdóttir,
Björgvin Sveinsson,
Hólmfríftur Vigfúsdóttir.
+
Utför eiginmanns mins, fööur, fósturfööur, afa og bróöur,
SVEINS STEFÁNSSONAR,
Unufelli 48, Reykjavík,
fer fram frá Bústaöakirkju, föstudaginn 12. mars kl. 15.
Blóm vinsamlega afþökkuö. Þeim sem vilja minnast hans er bent á
líknarstofnanir.
Fyrir hönd aöstandenda,
Guðrún Karlsdóttir.
+
Minningarathöfn um eiginmann minn,
KRISTJÁN K. VÍKINGSSON
laskni,
sem fórst i Vestmannaeyjum 21. janúar sl., fer fram í Neskirkju,
laugardaginn 13. mars kl. 11.
Þeim sem vilja minnast hins látna er vinsamlegast bent á líknar-
stofnanir.
Elfa Gísladóttir.
+
Eiginmaöur minn, faðir okkar, tengdafaöir og afi,
BALDUR KRISTINSSON
vélvirki,
Glæsibæ 3,
veröur jarösunginn frá Dómkirkjunni, föstudaginn 12. mars kl.
10.30.
Viktoría Hólm Gunnarsdóttir,
Gunnar Baldursson,
íris Baldursdóttir,
Erna Baldursdóttir,
Birna Baldursdóttir,
Rut Baldursdóttir,
Eva Baldursdóttir,
og barnabörn.
Ingigerftur Gunnarsdóttir,
örn Hafsteinsson,
Sméri Baldursson,
+
Þakka auösýnda samúö viö andlát og útför bróöur míns,
JÓNS STURLAUGSSONAR,
Skúlagötu 58.
Þórftur Sturlaugsson.
+
Hjartanlega þökkum viö öllum þeim sem auösýndu okkur samúö
og vinarhug við andlát og útför móöur okkar, tengdamóöur, ömmu
og langömmu,
SIGRÚNAR BENEDIKTSDÓTTUR,
áður til heimilis aö Laufásvegi 45 B, Reykjavík.
Jón Veturliftason, María Eyjólfsdóttir,
Halldór Á. Gunnarsson,
Elí Gunnarsson,
Jóhanna Gunnarsdóttir,
Steinþór M. Gunnarsson, Eva Magnúsdóttir,
Veturliöi Gunnarsson,
Guðbjartur Guðmundsson, Elísa Björk Magnúsdóttir,
Benedikt Gunnarsson, Ásdís Oskarsdóttir,
Gunnar Kr. Gunnarsson, Jónína Guðbjörg Sigurgeirsdóttir,
barnabörn og bamabarnabörn.
Kristinn Ólafsson frá
Kiðafelli - Minning
Fæddur 2. nóvember 1905. metin að verðleikum, því hann var
Dáinn 20. febrúar 1982. afburða verkmaður.
Kristinn Ólafsson var fæddur
að Kiðafelli í Kjós 2. nóvember
1905, sonur hjónanna Ólafs
Ólafssonar Andréssonar í Eilífs-
dal ok Ingibjargar Jónsdóttur frá
Ríp í Hegranesi Magnússonar.
Foreldrar Kristins voru gefin
saman í hjónaband þann 14. nóv-
ember 1902 að Saurbæ á Kjalar-
nesi í einu mesta fárviðri, sem
elstu menn mundu. Nokkrum mín-
útum eftir að fólk var gengið úr
kirkju, fauk kirkjan og fór heil-
hring í loftinu, en kom að lokum
rétt niður, skammt frá grunnin-
um. Þrátt fyrir svo stormasama
byrjun, varð hjónaband þeirra
Kiðafellshjóna hið ástsælasta og
varð þeim sex barna auðið. Krist-
inn var næstelstur systkina sinna.
Hann ólst upp að Kiðafelli við öll
algeng sveitastörf og þótti
snemma lagtækur við allt það,
sem hann tók sér fyrir hendur.
Upp úr fermingu fór hann í vega-
vinnu á sumrin til Jónasar í
Stardal og var hjá honum flest
sumur, þar til foreldrar hans
seldu Sigurbirni Þorkelssyni
kaupmanni í Vísi Kiðafellið og
fluttu til Reykjavíkur árið 1938.
Fljótlega tók þó Kristinn aftur
upp þráðinn hjá Vegagerðinni, því
þegar í stríðsbyrjun hóf hann
störf hjá Áhaldahúsi Vegagerðar-
innar og nú sem fastur starfsmað-
ur. Viðgerðir á tækjum stofnunar-
innar urðu aðalstarf Kristins. Ailt
er laut að vélum lék í höndum
hans. Var hann oft sendur út á
land, ýmist með skipum, flugvél-
um eða á viðgerðarbíl þeim hinum
mikla, sem Vegagerðin keypti af
varnarliðinu, sá var átta hjóla
trukkur með sérinnréttingu til
viðgerða. Kristinn hafði séð mikið
af landinu í þessum ferðum,
kynnst mörgu fólki og hafði frá
mörgu að segja. Aldrei mun ég
gleyma frásögn hans, þegar hann
gisti í fjósbaðstofunni í Skaftárdal
á sjöunda áratugnum, líklegast
með síðustu mönnum, sem þar
gistu. Kristni líkaði vel hjá Vega-
gerðinni og þar voru verk hans
Hinn 29. maí 1943 steig Kristinn
sitt mesta gæfuspor, er hann
kvæntist Lilju Össurardóttur
Thoroddsen frá Patreksfirði.
Hjónaband þeirra varð mjög far-
sælt. Kristinn var frábærlega um-
b.Vggjusamur heimilisfaðir, sí-
vinnandi að heill fjölskyldunnar
og hamingju. Lilja, hin mikilhæfa
húsmóðir, reyndist honum hinn
ágætasti lífsförunautur og þá
best, er mest á reyndi.
Þau Lilja og Kristinn eignuðust
tvö börn saman, Össur stoðtækja-
smið, kvæntan Björgu Rafnar
lækni, en þau dvelja í Stokkhólmi
og Ingibjörgu, gifta Snorra Gunn-
arssyni, vélstjóra, þau eru búsett í
Esbjerg. Lilja hafði átt dóttur áð-
ur en hún giftist Kristni. Hún
heitir Hrafnhildur og er gift
Helga Guðmundssyni deildar-
stjóra í Landsbanka Islands.
Kristinn gekk Hrafnhildi í föður
stað og reyndist hann hinn besti
faðir. Lilja starfaði hjá foreldrum
mínum er ég var barn og var æ
síðan heimilisvinur hjá fjölskyld-
unni. Þegar hún hafði stofnað
heimili urðu fyrstu kynni okkar
Kristins. Kristinn var dulur mað-
ur og því seintekinn í fyrstu.
Tók það mig alllangan tíma að
kynnast honum, en eins og oft vill
verða um slíka menn, urðu kynni
okkar þeim mun betri, sem þau
höfðu tekið lengri tíma. Þegar þau
hjón höfðu reist sér myndarlegt
raðhús að Laugalæk hér í borg,
varð ég um skeið tíður gestur á
heimili þeirra. Fann ég þá fljótt,
að Kristinn var gæddur ríku skop-
skyni og var óspart gert að gamni
sínu á hinu hlýlega heimili þeirra
hjóna. Fyrir röskum tveim ára-
tugum tók að bera á alvarlegum
veikindum hjá Kristni. Gekk hann
undir margar og strangar aðgerð-
ir á þessum tíma, en hann gafst
aldrei upp. Hann barðist hetju-
legri baráttu við sjúkdóma sína og
má segja að staðið var meðan
stætt var. Vann hann lengi vel
fullan vinnudag hjá Vegagerðinni,
þótt sárþjáður væri, en síðan hálf-
an daginn, þegar halla tók undan
fæti. Þegar hann fann sjálfur, að
þrekið til vinnu var þrotið, óskaði
hann sjálfur að hætta störfum ár-
ið 1972.
Lilja hefur einnig átt við mikil
veikindi að stríða og hefur gengið
undir margar skurðaðgerðir við
kölkun í mjöðm, en hún stóð samt
ávallt eins og klettur við hlið
manns síns, þar til yfir lauk.
Gerð var skurðaðgerð á Kristni
átta dögum fyrir andlát hans, en
það var hjartað sem gaf sig að
lokum.
Nú þegar Kristinn vinur minn
heldur til ljóssins landa, meira að
starfa Guðs um geim, þá óska ég
honum góðrar heimkomu, því þar
bíða vinir í varpa, sem von er á
gesti.
Ekkju hans Lilju og fjölskyld-
unni sendum við hjónin okkar
innilegustu samúðarkveðjur.
Blessuð sé minning Kristins
Ólafssonar.
Leifur Sveinsson
Hólmfríður Maria
Kristinsdóttir - Minning
Fædd 11. júlí 1975.
Dáin 1. mars 1982.
Við viljum með nokkrum orðum
minnast frænku okkar, Hólmfríð-
ar Maríu Kristinsdóttur, sem lést
eftir hjartaaðgerð á sjúkrahúsi í
Lundúnum aðeins 6 ára að aldri.
Hólmfríður var frá fæðingu
haldin þeim sjúkdómi, sem að lok-
um varð ekki ráðið við. Hún ólst
upp hjá móður sinni, Guðnýju
Birting
afmœlis- og
minningar-
greina
ATHYGLI skal vakin á því, að
afmælis- og minningargreinar
verða að berast blaðinu með góð-
um fyrirvara. Þannig verður
grein, sem birtast á í miðviku-
dagsblaði, að berast í síðasta lagi
fyrir hádegi á mánudag og hlið-
stætt með greinar aðra daga.
Greinar mega ekki vera í sendi-
bréfsformi. Þess skal einnig get-
ið, af marggefnu tilefni. að frum-
ort Ijóð um hinn látna eru ekki
birt á minningarorðasíðum
Morgunblaðsins. Ilandrit þurfa
að vera vélrituð og með góðu
línubili.
Björgvinsdóttur. Fyrstu árin
bjuggu þau mæðgin hjá afa og
ömmu, þeim Hólmfríði Vigfús-
dóttur og Björgvini Sveinssyni.
Ömmu og afa var Hólmfríður
einkar hjartfólgin og hún var sól-
argeislinn á heimilinu.
Enda þótt samveran hafi verið
stutt skilur hún mikið eftir. Hjá
móður, Berglindi litlu systur, afa
og ömmu og í frændsystkinahópn-
um ríkir nú mikill söknuður þegar
Fríða litla er nú ekki lengur meðal
okkar. Fram til síðustu stundar
var vonast eftir að Fríða litla
fengi fullan bata og var allt reynt
til bjargar.
Móður, litlu systur, afa og
Fæddur 4. desember 1898
Dáinn 2. marz 1982
Mig langar með örfáum orðum
að þakka Kristvin Guðmundssyni
fyrir allt það sem hann hefur fyrir
miggert. Mér lítilli stúlku, fannst
svo sjálfsagt að bæta honum í afa-
hópinn, er hann kvæntist ömmu-
systur minni. Og alltaf reyndist
hann mér sem bezti afi, og þá sér-
staklega er þau tóku mig og bróð-
ömmu vottum við einlæga samúð
og biðjum góðan Guð að blessa
þau og styrkja í þeirra sorg.
Fjölskyldan Miðvangi 23.
ur minn inn á sitt heimili, Gunn-
arsbraut 34 Rvík, er foreldrar
okkar fluttust út á land. Og varð
ég umhyggju þeirra beggja að-
njótandi í átta ár. Og mun ég búa
að því, svo lengi sem ég lifi.
Elsku Sigga ömmusystir. Guð
styrki þig.
„Far þú í friúi,
friöur jjuös þig blesNÍ
hafúu þökk fyrir allt og allt."
(V. Briem.)
Rut.
Kristvin Guðmunds-
son fyrrv. húsasmíða-
meistari - Minning