Morgunblaðið - 11.03.1982, Síða 40
4 0 MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 11. MARZ 1982
Damen i bilen med briller og gevær
Erlendar
bækur
Jóhanna Kristjónsdóttir
Ég man ekki til að hafa lesið áður
bók eftir Sebastien Japrisot. Það
litla sem ég veit um hann er að hann
hefur skrifað þrjár bækur aðrar eða
fjórar og hann er franskur.
Þessi bók, Damen i bilen með
briller og gevær, sem ég las á
dönsku, þýðingu gerði Bibba J. Jen-
sen, er verulega sniðug, hún er vel
skrifuð og hún er góður þriller.
Aðalpersónan í bókinni er Dany.
Hún er ritari, falleg og dálítið nær-
sýn. Einn góðan veðurdag keyrir hún
yfirmann sinn og konu hans út á
flugvöll í Thunderbirdinum þeirra
og ákveður síðan að fá bílinn „lánað-
an“ og gera sér dagamun og skreppa
til Suður-Frakklands. Þar með er
martröðin hafin. Hún nemur staðar
á bensínstöð og skreppur inn að þvo
sér um hendurnar. Þá er ráðist á
hana og brotin á henni höndin. Og
siðan heldur ótrúleg atburðarás
áfram: hvert sem hún fer virðast all-
ir hafa séð hana kvöldinu áður ...
það getur illa komið heim og saman,
þá var hún sem sé að vinna af kappi
til að yfirmaður hennar kæmist í frí-
ið sitt samkvæmt áætlun.
Á vegi hennar verða undarlegir
aöilar og það er ekki laust við að
Dany sé orðin meira en lítið hrædd
þegar þessi ruglingur virðist ekki
ætla að taka neinn endi — og allt í
einu hefur einhver komið fyrir líki í
farangursgeymslunni.
Höfundur skiptir bókinni niður í
nokkra kafla, Damen, Brillerne,
Geværet, og ég verð að segja að mér
fannst höfundi takast mætavel upp
þegar að því kom að þurfti að láta öll
þessi ósköp af ruglingi ganga upp. Sá
þáttur bókarinnar er sannfærandi
og ágætlega úr garði gerður, svo að
lesandinn leggur bókina frá sér, al-
veg sáttur við niðurstöðurnar.
SKEMMTIATRIÐI:
Fljúgandi frá Túnis koma 2 ekta arabískar dansmeyjar og 3
hljómlistamenn til aö skemmta Úrvalsfólki.
Matseðill:
„SHIS KEBAB“
Lambakjöt á teini,
með maís, hrís-
grjónum, belgbaun-
um, karrysósu og
saladi.
Verð kr. 170.-.
Miðasala og
borðapantanir
fyrir matargesti í
Broadway fimmtu-
dag og föstudag
kl. 16—18.
Hmn frægi gitarleikari Paul
Weeden spilar ásamt úrvali ís-
lenzkra hljómlistarmanna. Paul
Weeden hefur spilaö með mörg-
um heimsfrægum stjörnum s.s.
Count Basie og Duke Ellington.
H
R
Dansí 60 ár
Bezta ísl. dansatriði fyrr og síöar.
FERÐAKYNNING
Feröaáætlun Úrvals 1982 — stutt kynning
Kvikmynd frá Túnis o.fl. (á neöstabar)
Myndir frá gististöðum á Mallorka og Ibiza.
Haukur Morthens og Árni Elfar fara
á kostum.
TAKK FYRIR SÍÐAST
Viö hvetjum gamla feröa-
félaga aö fjölmenna og
taka meö sér gesti
BINGÓ
Allir gestir fá Bingóspjald (kostar
ekkert). Vinningar 3 Úrvalssólar-
landaferöir.
Þaö veröa kyndlar fyrir utan og
hlýjar móttökur.
Þaö veröur Úrvals-stemmning
meö Úrvals-fólki á Úrvals-staö.
Starfsfólk og nokkrir umboðsmenn Úrvals verða á
staðnum þannig að skrifstofan verður lokuð til kl. 10.00 á
mánudagsmorgun.
Hin vinsæla herralína frá Rochas
Hin vinsæla
Jeanlouis.
dömulína Parfums
MACASSAR
ROCHAS
18.30 verður húsið opnað
19.00 hefst borðhald (vinsamlega komiö stundvíslega)
Dömur og herrar fá litla gjöf og hressingu.
Kynnir kvöldsins:
Magnús
Kristjánsson.
FERÐAKYNNING
16. marz Hnífsdal
17. marz Vestmannaeyjar
18. marz Hollywood
FERDASKRIFSTOFAN
URVAL^LEr
URVÖLL SIMI28900
VID AUSTURVÖLL SIMI26900
ViRIII QRVAIS EARÞECI