Morgunblaðið - 11.03.1982, Qupperneq 44
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 11. MARZ 1982
,, Mann er hsemdur cxb j?er "
Ast er...
Uz
... aðfara í kerfi þeg-
ar hann kyssir þig.
TM Río U.S. Pat Off.-aM rlflhts reserved
•1M2 Lo® Angetm Tknas Syndlcate
l>ið ættuð að sjá hvað hann Snúlli
hcfur gert sniðuga teikningu af
þessu hú.si og komið fyrir tveim
íbúðum!
Kkki gretta sig framan í ’ann lang-
afa!
HÖGNI HREKKVÍSI
IssiSSS I
Einar Gíslason skrifar:
Til viðkomandi yfírvalda
Velvakandi góður.
Vildu birta eftirfarandi línur
fyrir mig í dálkum þínum.
I morgun 9. mars kom hér að
kirkju Fíladelfíusafnaðarins mér
ókunnur maður. Hafði hann ekki
fyrir að kynna sig og því síður út-
sendara sína.
Hann hafði eina fyrirspurn,
hvort ekki væri þvottahús í sölum
hússins. Krafði ég hann svars við
hverjir væru að senda hann og bað
ég hann sem háttvísan mann um
Kæri Velvakandi
Hér eru örfáar athugasemdir við
grein Finnboga Marinóssonar í
Mbl. 3ja mars sl. um Tom Robinson
Band.
1. Ég mótmæli þvi að Tom
Robinson hafi fengið meiri umfjöll-
un hérlendis en aðrar nýbylgju-
grúppur. Tom Robinson Band er
t.d. aldrei spilað í útvarpinu. Það
hafa aðeins birst 2 smágreinar um
TRB í dagblöðunum. Einu sinni
kom viðtal við Tom Robinson í
poppblaðinu „Halló" og nýlega var
stórgóð grein um hann í Vikunni.
Berum þetta saman við umfjöllun-
arflóðið um Human League, Shak-
in’ Stevens, Adam & Ants o.fl.
Gleymum því ekki að brezku blöðin
útnefndu TRB beztu nýbylgju-
hljómsveit ársins 1977. Þeir áttu
bezta lag þess árs, voru bjartasta
von rokksins og allt það. Sem dæmi
um stöðu TRB má geta þess að Tom
Robinson var 5 sinnum á forsíðu
Melody Maker 1978.
að kynna sig og störf sín. Bauð ég
honum að leita í kirkjunni, með
því að ganga í hring um hana og
kanna þetta sjálfur.
Fór hann þá undan í flæmingi
og ók brott í bifreið sinni. Þar sem
þetta kemur fyrir 2—3 sinnum ár
hvert, að menn á fullu kaupi, eru
sendir út til slíkra starfa, þá vek
ég athygli á þessu. Jafnframt spyr
ég hvort ekki sé eitthvað þarfara
við skattpiningarfé almennings að
gjöra, en að kosta slíka atvinnu-
bótavinnu?
2. Það er rangt að lögin í „I Shall
be Releaved", „Martin“ og „Glad to
be Gay“ hafi ekki komið út á ann-
arri stórri plötu en nýja „snilldar-
verkinu" „The Rest of the Best“.
Þessi lög voru öll á bandarísku út-
gáfunni af „Power in the Dark-
ness“. Sú útgáfa fékkst lengi vel í
Karnabæ.
Að öðru leyti var grein Finnboga
Marinóssonar góð og ég þakka vel
fyrir hana. Um leið hvet ég ís-
lenzka rokkunnendur til að kynna
sér plötuna „The Rest of the Best“.
Hún er ein sú bezta á markaðnum,
enda eru á henni lög eftir Bob Dyl-
an, Peter Gabriel, Elton John o.fl.
Þá má geta þess að trommuleikar-
inn Preston Heyman var í íslenzku
hljómsveitunum Stuðmönnum og
Hvítárbakkabandinu fyrir nokkr-
um árum.
Með fyrirfram þökk fyrir birting-
una
Björn Magnússon
Meðan Hátún 2 var í byggingu,
sem unnið var af fátækum og fá-
mennum söfnuði, en undir fram-
úrskarandi elju og dugnaði Ás-
mundar Eiríkssonar forstöðu-
manns, þá voru innréttuð tvö her-
bergi og þau leigð út, til tekjuöfl-
unar. Fyrir þvottahús. Fyrir
meira en hálfum öðrum áratug, þá
var flutt úr húsinu, með þessa
starfsemi, fyrirtækið lagt niður og
eigendur þess sumir hverjir horfn-
ir af þessum heimi.
Þrátt fyrir það hafa skattyfir-
völd ráð á að kosta slík vinnu-
brögð, sem að framan greinir.
Vinsamlegast hættið þessu.
Virðingarfyilst,
Kinar J. Gíslason forstöðumaður.
Fjölhæfnis-
skip?!
Mig langar að vekja at-
hygli þína á því Velvakandi
góður, að þið á Morgunblað-
inu virðist hafa dottið ofaní
stofnanamálspyttinn, sem nú
er þó öllu heldur orðinn að
heljar kviksyndi. í frétt í
Mbl. á þriðjudaginn má lesa
fyrirsögn á frétt um nýtt
flutningaskip íslenska versl-
unarskipaflotans. Þar er tal-
að um að keypt hafi verið
fjölhæfniskip. Notað er
hreint orðskrípi yfir jafn ein-
falt heiti og vöruflutninga-
skip. Þetta hljóta að vera
áhrif stofnanamálsins, sem
stöðugt er að sækja á og eyði-
leggja málsmekk fólks. Ég
hefi verið lesandi Mbl. í mörg
ár. Ég mun fyrirgefa mistök-
in í þetta skipti, gegn því að
Mbl. strengi þess heit að
berjast með hnúum og hnef-
um gegn þeim vágesti í mál-
inu, sem stofnanamálið er.
Jón á Klapparstígnum
„The Rest of the Best“ - Tom Robinson Band:
Athugasemdir við grein
Finnboga Marínóssonar