Morgunblaðið - 11.03.1982, Qupperneq 46
46
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 11. MARZ 1982
Getraunasíða Morgunblaðsins 1X2 — 1X2 — 1X2
Spá 27. viku
Getraunaspá 27. leikviku
Spáin í síðustu viku stóðst alveg bterilega. Tveir af þremur fóstuni leikjum
voru réttir (auðvitað var það Liverpool-leikurinn sem klikkaði), og allar
tvítryggingar voru réttar. Kerfi mánaðarins hefði því getað gefið hæst 11
rétta. Toppnum er þó engan veginn náð og ætlunin er að gera enn betur í
þessari viku.
1. ARSENAL — IPSWICH 2 (1 X 2)
Arsneal er enn við sama heygarðshornið eins og 0:0 jafnteflið um
helgina sýnir. Eg hef trú á að leikni og ímyndunarafl Ipswich-spilar-
anna dugi til að brjóta niður Arsenal-múrinn á Highbury, velli sem
Ipswich hefur oft gengið vel á. Ég spái þeim því sigri, en vegna óstöðug-
leika þeirra að undanförnu læt ég þrítryggingu fylgja. Ipswich vann í
haust 2:1.
2. ASTON VILLA — WOLVES 1 (1 2)
Villa hefur ekki tapað leik síðan Saunders kvaddi. Heldur er ólíklegt
að fyrsta tapið komi hér í þessum leik gegn nágrönnunum og botnliðinu
frá Wolverhampton. Ég er þó ekki alveg sannfærður og eitthvað segir
mér að hér sé gott efni í óvænt úrslit. Ég spái þó heimasigri en tvítryggi
með útisigri. Villa vann í haust 3:0.
3. BIRMINGHAM — STOKE 1
Birmingham voru óheppnir að tapa gegn Manch. Utd. um helgina en
lukkan fylgir sjaldan botnliðunum. Ég hef trú á að hér vinni þeir annan
sigur sinn á árinu gegn Stoke, sem átti ekki minnsta möguleika gegn
Swansea um helgina. Stoke vann fyrri leikinn 1:0.
4. EVERTON — MIDDLESBRO 1
Everton tapaði illa í Ipswich á laugardag. Hér hrista þeir þó af sér
slenið og ná vissulega að knýja fram sigur gegn dæmdu fallliði Middles-
bro. Það verður þó ekki eins auðvelt og halda mætti, en það hefst fyrir
rest. Evertón vann fyrri leikinn 2:0.
5. NOTTH. FOREST — MANCH. CITY 2 (1 X 2)
Manchester City hefur ekki tekið stig í Nottingham síðan Forest vann
sig upp í 1. deildina árið 1977. Ég ætla að spá að nú verði breyting á því,
enda verður City að vinna ef þeir ætla að vera áfram með í toppbarátt-
unni. Trevor Francis verður sínum fyrri félögum skeinuhættur. Fyrri
leikur var dautt markalaust jafntefli.
6. SOUTHAMPTON — WBA 1 (1 X)
Southampton hefur unnið sex leiki í röð á heimavelli. Þeir töpuðu
dýrmætum stigum í Notthingham um helgina, svo að enn einn heimasig-
urinn er nauðsyn, ef þeir ætla að halda toppsætinu. Albion gæti þó
auðveldlega komið á óvart eins og oft fyrr, svo að ég tvítryggi heimasig-
ur með jafntefli. Fyrri leik lauk 1:1.
7. SUNDERLAND — LEEDS 1 (1 X 2)
Sunderland hefur unnið 1 heimasigur til þessa og Leeds 1 útisigur.
Sunderland fær ekki betra tækifæri til að bæta stöðu sína, enda geta
þeir kvatt 1. deildina ef þeir nota það ekki. Heimasigur, gegn betri
samvisku, en í staðinn er ég viðbúinn öllu. Leeds vann í haust 1:0.
8. SWANSEA — COVENTRY 1
Swansea hefur nú leikið 7 leiki í röð án taps og hirt í þeim 19 stig. Geri
aðrir betur. Coventry er nú komið í bullandi fallhættu, og ég sé ekki að
þeir eigi nokkurn möguleika gegn liðinu frá Vetch Field. Heimasigur.
Coventry vann heima 1:0.
9. WEST HAM — NOTTS COUNTY 1 (1 X)
West Ham gengur enn erfiðlega að finna sigurriþmann, þrátt fyrir
góðan sigur gegn Ipswich í síðustu viku. County halar jafnt og þétt inn
stigin, nú síðast með jafnteflinu gegn Southampton, toppliðinu. Þeir eru
nú úr allri fallhættu. Ég spái West Ham sigri en tvítryggi með jafntefli.
Fyrri leik lauk 1:1.
10. LEICESTER — QPR 2 (1 X 2)
Leicester verður með hugann við bikarinn á næstunni og var sigur
þeirra gegn Shrewsbury einstaklega glæsiiegur. Ég ætla því að spá
Rangers sigri þar sem þeir þurfa á stigunum að halda, ef 1. deildar-sætið
á að vera áfram í sigti. Þrítrygging fylgir með í kaupbæti. Rangers vann
heima 2:0.
11. NORWICH — WATFORD X (X 2)
Norwich hefur staðið sig með ágætum heima, en hvort það dugir gegn
liði Elton Johns er annað mál. 1. deildar-sætið er að 'verða hreint
formsatriði fyrir Watford, sem hefur spilað mjög sannfærandi að und-
anförnu. Aðalspáin er jafntefli en tvítryggt með útisigri. Watford vann
heima 3:0.
12. OLDHAM — SHEFFIELD WED. 1 (1 2)
Bæði liðin berjast hatrammlega um 3. sætið í 2. deild á eftir Luton og
Watford. Oldham hefur verið mjög torsigrað á heimavelli og ég ætla að
spá þeim sigri en tvítryggi með útisigri, þar sem Wednesday hefur unnið
ólíkiegustu liðá útivelli. Þeir unnu fyrri leikinn 2:1.
LSG
SPARXKERFIg: RW 4-5-192
KerflO er fyllt át i 12 gula aeeia
4 leiklr em þrítryggeir, 5 leikir eru trítryggBlr og 3 eru faatlr.
7,3< lfRur á 12, 67« lfkur á 11, en annara 1Q réttir.
TRYOOINOARTAPLA
RM 4-5-192
Vinnlngur Pjeidl Líkur
12 l_i 10 ffVlrta %
2 af 27 7,4
6 af 27 22,2
12 af 27 44,5
1 af 27 3,7
6 af 27 22,2
Petta kerfi er einnig hentugt tll aB atakka meS 1 eSa 2 at»rS-
fr»eilegun tTÍtryggingua.
Birgir Guðjónsson
Birgir eykur enn við for
skot sitt og fer nú að
verða útséð um það að
hann hreppi annað efstu
sætanna. í síðustu viku bætti hann
við sig 13 stigum. Kins og hinir vitr
ingarnir hafði hann tvo fasta leiki
rétta en auk þess voru sjö aðrir leik-
ir réttir.
Þorlákur Björnsson
Þorlákur stóð við fyrir
heit sitt að skjóta Herði
ref fyrir rass. Hann hafði
alls átta leiki rétta, sem
gáfu honum tólf stig. Þó má hann
hafa sig allan við ef hann ætlar að
komast áfram í keppninni því þeir
Hörður og Ari eru ekki langt á eftir.
38
© The Football Leagua © ihe Football League Lelklr 13. marz 1982
K K
1 X 2 1 X 2
1 Arsenal - Ipswich 1 Arsenal - Ipswlch /
2 Aston Villa - Wolves 2 Aston Vllla - Wolves /
3 Blrmingham - Stoke T , 3 Birmingham - Stoke | 7)
4 Everton - Middlesbro ka 5 4 Everton - Middlesbro 7
5 Nott'm F. - Man. City 5 Nott'm F. - Man. City
BASouthampton - W.B.A. 1 6 Southampton - W.B.A. z 1
7 Sunderland - Leeds X- 7 Sunderland - Leeds X
8 Swansea - Coventry I 8 Swansea - Coventry 7
9 West Ham - Notts Co. X 9 West Ham - Notts Co. 7
10 Leicester - O.P.R. .. 1 10 Leicester - Q.P.R. . X
11 Norwich - Watford .. 2 11 Norwlch - Watford . . z
12 Oldham - Sheff. Wed. Xi f2 Oldham - Sheff. Wed.
Höröur Sófusson
Dirfska Harðar var full
mikil í síðustu viku. í spá
hans var ekkert jafntefli
en skiptingin varð ósköp
venjuleg eða 5—4—3. Hann hafði
því aðeins fimm rétta leiki, þar af
tvo fasta svo stigin urðu alls níu. En
Hörður á enn góða möguleika á að
komast áfram og hyggur á fyrsta
sætið.
Ari Gunnarsson
Ari í Holunni er orðinn
svo hvekktur á slæmu
gengi í keppninni til
þessa að hann hefur jafn-
vel í hyggju að hvfla sig á getraunum
um hríð. Þó hann hafi aðeins hlotið
10 stig fyrir síðustu viku þykir okkur
ólíklegt annað en kúnnar og að-
déndur hvetji hann til dáða, og
áframhaldandi þátttöku.
29
25
© The Football League
K K
1 X 2 i X 2
1 Arsenal - Ipswich X 1 Arsenal - Ipswich T
2 Aston Villa - Wolves 2 Aston Villa - Wolves z
3 Birmlngham - Stoke 3 Birmingham - Stoke (L
4 Everton - Middlesbro 4 Everton - Middlesbro f
5 Nott'm F. - Man. City 5 Nott'm F. - Man. City X
6 Southampton - W.B.A. / 6 Southampton - W.B.A. i
7 Sunderland - Leeds X 7 Sunderland - Leeds l ■
8 Swansea - Coventry / 8 Swansea - Coventry <L
9 West Ham - Notts Co. / 9 West Ham - Notts Co., X
10 Leicester - O.P.R. .. X 10 Leicester - Q.P.R. . .1
11 Norwlch - Watford .. 2 11 Norwlch - Watford . ,| /
12 Oldham - Sheff. Wed. K 12 Oldham - Sheff. WedJ l
Útfylling
kerfisins
Kerfi mánaðins:
RM 4-5192
Kerfið sem miðað verður við í
spám fyrir leiki í marsmánuði er
minnkað kerfi með stærðfræðilegum
hálftryggingum. Það fyllist út á tólf
gula seðla á eftirfarandi hátt:
1) Veldu þrjá fasta leiki og settu
viðkomandi merki hvers leiks
(1,X eða 2) á alla seðlana.
2) Veldu fjóra leiki sem þú vilt
þrítryggja. Færðu þann fyrsta
þeirra inn eins og leik nr. 1 í
töflunni, sama hvaða númer
hann kann að hafa á seðlinum
þínum. Annar þrítryggði leik-
urinn fyllist út eins og nr. 2 í
töflunni og hinir tveir eins og
leikir nr. 3 og 4.
3) Þá eru eftir fimm leikir sem þú
ætlar að tvítryggja. Þú velur
fyrst þau tvö merki sem þú ætl-
ar að setja við hvern leik. Þann
fyrsta þeirra færirðu inn eins
og leik nr. 5 í töflunni. Hafirðu
valið 1 og 2 skiptirðu X-inu út
og setur 2 í staðinn. Ef þú velur
X og 2 þá 2 inn þar sem 1 er í
töflunni. Fjórir síðustu leikirn-
ir eru tvimerktir, þ.e. merkin
sem þú velur (IX, 12 eða X2)
færast bæði inn við þessa fjóra
leiki.
Eins og tekið var fram hér að
ofan er þetta svokallað RM-kerfi.
Þrítryggðu leikirnir og fyrsti
tvítryggði leikurinn eru R-hlutinn
(„redúseraður" eða minnkaður).
Fjórir síðustu tvítryggðu leikirnir
eru M-hlutinn („matermatískir"
eða stærðfræðilegir).
Við bendum tippurum á að
vanda valið milli „R“ og „M“ leikja
því móðurkerfið er 2592 raðir.
KR-ingar
hafa selt yfir
milljón radir
MIKIL aukning hefur orðið í sölu
getraunaseðla í vetur. í 25. leikviku
varð knattspyrnudeild KR fyrst allra
félaga til að rjúfa milljón raða múr
inn. Þetta hefur ekki gerst áður í
sögu getrauna hérlendis. Til marks
um aukninguna má nefna aðsíðast-
liðið ár seldu þeir liðlega 800 þús.
raðir en enn eru eftir níu leikvikur
af þessu keppnistímabili.
Fékk 12 rétta
á kerfi
mánaðarins
Nýja kerfið RM 4-5-192 sannaði
strax ágæti sitt í síðustu viku. Okkur
er kunnugt um a.m.k. einn tippara
sem fékk 12 rétta á kerfið. Sá heitir
Jón ólafsson, fyrrum leikmaður með
KR.