Morgunblaðið - 11.03.1982, Síða 47
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 11. MARZ 1982
47
Leikmenn Fram þoldu
ekki spennuna og töpuðu
• I'orborgur Aðalsteinsson, Víking, skoraði 11 mörk gegn KA í gærkvöldi.
FH Á enn von um efsta sætið í 1.
deild í handknttaleik eftir að hafa
sigrað Fram 23—21 suður í Hafnar
firði í gærkvöldi. Sá sigur var bæði
ósannfærandi og frekar ósanngjarn
því Framarar voru nær allan leikinn
bæði yfir í mörkum og ívið betra
liðið á vellinum. FH flaut hins vegar
ADALFUNDUR knattspyrnudeildar
FH verður haldinn í Víðistaðaskóla
16. febrúar kl. 21.00.
Bikarkeppni KKÍ:
Stórleikur í Haga-
skólanum í kvöld
STÓRLEIKUR er í kvöld í bikar
keppni KKÍ. í Hagaskólanum mæt-
ast þá KR og nýbakaðir íslands-
meistarar Njarðvíkur í undanúrslit-
um og hefst leikurinn klukkan
20.00. IVIá búast við hörkuleik, því
hiklaust má búast við því að Suður
nesjamennirnir hafi hug á að vinna
tvöfalt sé þess nokkur kostur.
KR-liðið hefur hins vegar leikið afar
vel síðustu mánuðina, verið á mikilli
sigurgöngu og meðal þeirra liða sem
tapað hafa fyrir Vesturbæjarliðinu er
einmitt lið UMFN.
23-21
algerlega á einstaklingsframtaki
eins manns, Kristjáns Arasonar.
Staðan í hálfieik var 12—11 fyrir
Fram.
Gangur leiksins var í stuttu
máli sá, að Fram byrjaði betur,
FH skoraði aðeins eitt mark
fyrstu tíu mínútur leiksins og
Fram komst í 4—1. Var frammi-
staða FH þessar upphafsmínútur
afar léleg. En liðið tók sig heldur
á, samt hafði Fram forystu allan
fyrri hálfleikinn, utan hvað jafnt
var er staðan var 11—11 rétt fyrir
hlé. Fram hélt síðan forystunni
allt þar til að 12 mínútur voru til
leiksloka, en þá komst FH þremur
mörkum yfir eftir þrjú hraðaupp-
hlaup, voru FH-ingar þó einum
færri um þær mundir. Framarar
minnkuðu muninn tvisvar niður í
eitt mark eftir þetta, en herslu-
muninn vantaði. Þá gerðu ýmsir
leikmenn liðsins sig seka um eig-
ingirni og taugabresti. Það má því
segja að Framarar hafi verið
betra liðið allt þar til að mest
reyndi á, þá hljóp allt í baklás.
Kristján Arason var eini maður
Kalott-þátttaka ákveðin
STJORN Frjálsíþróttasambands ís-
lands ákvað á fundi sínum á þriðju-
dagskvöld að fslendingar taki þátt í
Kalott-keppninni í sumar. í sam-
bandi við Kalott-þátttökuna, og
vegna annarra fjárfrekra umsvifa
FRÍ í sumar, er hafin kröftug fjáröfl-
unarherferð af hálfu sambandsins.
Beinn kostnaður við þátttöku í
kcppninni er áætlaður röskar 200
þúsund krónur, og þörf frjálsíþrótta-
hreyfingarinnar á fjárstuðningi því
mikil.
Kalott-keppnin fer fram að
þessu sinni í bænum Arvidsjur í
norðurhluta Svíþjóðar í júlílok. ís-
lendingar hafa tekið þátt í keppn-
inni frá 1972, að árunum 1973 og
1981 undanskildum, er FRÍ treysti
sér ekki til að senda sveit til
keppninnar af fjárhagsástæðum.
Auk íslendinga taka þátt í keppn-
inni lið frá norðurhlutum Noregs,
Svíþjóðar og Finnlands, þ.e.
íþróttamenn sem búsettir eru
norðan 64 gráðu.
Til að nýta ferðalagið til Sví-
þjóðar sem bezt, hefur FRÍ ákveð-
ið að reyna koma sem flestum liðs-
mönnum í Kalott-liðinu á nokkur
mót við þeirra hæfi á Norðurlönd-
unum eftir keppnina, en um skipu-
lag þeirra mála verður haft náið
samstarf við félög þau sem koma
til með að eiga keppendur í Arv-
idsjur.
FH sem eitthvað kvað að í leik
þessum, alger yfirburðamaður á
vellinum. Gunnlaugur markvörð-
ur var þokkalegur og Sveinn Bragi
læddi inn dýrmætum mörkum.
Hjá Fram var það Sigurður
markvörður Þórarinsson sem bar
af, Hermann Björnsson og Björn
Eiríksson stóðu einnig vel fyrir
sínu.
Mörk FH: Kristján Arason 10
(3v), Sveinn Bragason 5 (3v), Hans
Guðmundsson 3, Valgarður Val-
garðsson, Sæmundur Stefánsson,
Guðmundur Magnússon og Finnur
Árnason eitt hver.
Mörk Fram: Dagur Jónasson 6
(4v), Hannes Leifsson 6, Björgvin
Björgvinsson, Björn Eiríksson,
Hermann Björnsson og Egill Jó-
hannesson 2 hver.
Víti í súginn: Sigurður varði tvö,
Haraldur varði eitt og Hannes
skaut í stöng er munaði einu
marki og hálf þriðja minúta eftir.
— gg
• Þrír af frægustu leikmönnum Harlem Globetrotters virða fyrir sér mynd
af Geysi í Haukadal. Þetta eru þeir Geese Ausbie, „Baby Face“ Paige (sem
er litlu styttri en Pétur Guðmundsson) og Lionel Garrett.
Sunderland sigraði
Southampton 2-0
IIRSLIT í ensku knattspyrnunni í
gærkvöldi urðu þessi:
1. deild:
Leeds — Manchester City 0—1
Kunderland — Kouthampton 2—0
2. deild:
Derby — Khrewsbury 1—1
3. deild:
Exeter — Fulham
Lincoln — Doncaster
Reading — BrLstol City
Úrslit í Kkotlandi:
Úrvalsdeild:
Aberdeen — Hibernian
Dundee llnited — Dundee
Kt. Mirren — Rangers
1—0
5—0
3—1
3—1
1—1
2—3
Algjörir yfirburðir
Vikinga gegn KA
VÍKINGAR voru í litlum vandræð-
um með að sigra afar slakt lið KA í
1. deild í gærkvöldi með 27 mörkum
egn 15. Ktaðan í hálfleik var 15—6.
heildina var leikur liðanna slakur.
Mótspyrna KA var of lítil til þess að
Víkingsliðið þyrfti eitthvað að beita
sér að ráði. Leikmenn tóku lífinu
með ró og í síðari hálfleiknum fengu
ungu mennirnir í Víkingsliðinu að
spreyta sig.
Framan af fyrri hálfleik voru
Víkingar að æfa ný leikkerfi sem
gengu misvel. Og þegar 15 mínút-
ur voru liðnar af leiknum var
staðan aðeins 5—3. En þá fóru
Víkingar að leika léttar og þá var
ekki að sökum að spyrja.
I síðari hálfleiknum var lengst
af um einstefnu að ræða. Mesti
«-,»27-15
munur á liðunum var þá þrettán
mörk, 25—12. Oft á tíðum brá
fyrir bráðfallegum leikfléttum hjá
leikmönnum Víkings sem sýndu
að þeir eiga ýmislegt í pokahorn-
inu. Víkingsliðið var jafnt þrátt
fyrir að Þorbergur Aðalsteinsson
væri markhæstur með 11 mörk.
Hjá KA áttu þeir Erlingur Krist-
jánsson og Friðjón Jónsson bestan
leik.
I stuttu máli: Islandsmótið 1.
deild Laugardalshöll. Víkingur —
KA 27-15(15-6).
Mörk Víkings: Þorbergur Aðal-
steinsson 11, 1 v., Óskar Þor-
steinsson 4, 2 v., Steinar Birgisson
4, Ólafur Jónsson 3, Páll Björg-
vinsson 2, Guðmundur Guð-
mundsson 2, Heimir Karlsson 1.
Mörk KA: Erlingur Kristjáns-
son 5, 1 v., Friðjón Jónsson 6, 1 v.,
Þorleifur Ananíasson, Guðmund-
ur Guðmundsson, Magnús Birgis-
son og Sigurður Sigurðsson 1
mark hver.
Varin víti: Ellert Vigfússon Vík-
ingi varði tvö víti, á 45. og 60. mín-
útu. Magnús Gauti KA varði víti á
8. mínútu.
Brottrekstur: Sigurði Gunnars-
syni Víkingi var vísað af velli í 2
mín.
ÞR
ísland er 100. landið sem
Harlem Globetrotters
heimsækja á 56 árum
ÞEGAR hið heimsfræga körfuknatt-
leikssýningarlið Harlem Globetrott-
ers keppir tvívegis hér á landi dag-
ana 19. og 20. aprfl næstkomandi
setur þetta frábæra lið nýtt met. ís-
land er nefnilega 100. landið sem
Globetrotters, sýna snilli sína í á 56
ára ferli sínum. Leikir Globetrotters
fara fram í Laugardalshöllinni og
eru mótherjarnir að venju Washing-
ton Generals, sem hafa ferðast með
HG árum saman.
Nafnið „Globetrotters" er sann-
arlega réttnefni, því þeir félagar
hafa á ferðum sínum lagt að baki
vegalengd sem nemur 120 ferðum
umhverfis hnöttinn. Fyrsti leikur
liðsins var í smábæ í Illinois árið
1927. Síðan hefur liðið leikið
15.000 leiki og trekkt að meira en
eina milljón áhorfenda. Ótaldar
eru svo þær milljónir sem séð hafa
snilli þessara pilta í sjónvarpi. Ár-
ið 1950 sló HG eitt af metum sín-
um, en þá léku þeir sýningarleik í
Berlín. 75.000 áhorfendur voru
viðstaddir.
HG er að hefja keppnisferðalag
um Evrópu og er ísland fyrsti við-
komustaðurinn. Á þessu ári mun
liðið sýna í öllum heimsálfum ver-
aldar að Suðurskautinu undan-
skildu. —gg-