Morgunblaðið - 11.03.1982, Blaðsíða 48
Sími á ritstjórn og skrifstofu:
10-100
Síminn á afgreiðslunni er
83033
FIMMTUDAGUR II. MARZ 1982
Svavar Gcstsson setur reglur um skipulagsmál á Suðurnesjum:
„Hræddur um að regl-
urnar séu markleysa“
Félagsmálaráðherra Svavar
(iestsson hefur sett reglur fyrir sam-
vinnunefnd um skipulagsmál á Suð-
urnesjum. í nefndinni skulu sitja
fulltrúar sveitarstjórna Keflavíkur,
Njarðvíkur, Hafnahrepps, Miðnes-
hrepps, (ierðahrepps og varnarmála-
deildar utanríkisráðuneytisins.
Nefndín á að vinna að samræmingu
og endurskoðun á skipulagi þess
svæðis, sem tekur yfir þessi sveitar
félög og flugvallarsvæðið, athafna-
svæði varnarliðsins. l>egar Morgun-
hlaðið leitaði álits Olafs Jóhannes-
sonar, utanríkisráðherra, á þessum
nýju reglum í gær, sagðist hann
hræddur um, að þær væru mark-
— segir Ölafur
Jóhannesson
leysa. Morgunblaðið ræddi einnig
við fulltrúa í skipulagsstjórn ríkisins
og mátti af þeim samtölum ráða, að
stjórnin hefði ekki gert tillögur um
þessar reglur félagsmálaráðherra.
Reglurnar munu koma til um-
ræðu á ríkisstjórnarfundi í dag. Þar
ætlar utanríkisráðherra að gera
grein fyrir samningi varnarmála-
deildar utanríkisráðuneytisins við
bæjarstjórn Keflavíkur um leigu á
13 hektara landi á Hólmsbergi
vegna fyrirhugaðrar olíustöðvar
varnarliðsins við Helguvík. Auk
þess mun utanríkisráðherra gera
grein fyrir sjónarmiðum utanríkis-
ráðuneytisins vegna kvartana frá
Njarðvík út af hávaða frá orrustu-
þotum, sem nota Keflavíkurflugvöll.
Vilja Njarðvíkingar flytja flugskýli
þotnanna, en varnarmáladeild telur,
að það ráði ekki úrslitum um hávaða
af flugi véla um völlinn, hvar skýlin
eru, heldur hitt, að orrustuþotur
hagi ferðum sínum eftir vindátt eins
og aðrar flugvélar.
Mikil fundarhöld hafa verið í
þingflokki Alþýðubandalagsins und-
anfarið, jafnvel langt fram á kvöld,
og hafa sveitarstjórnamenn flokks-
ins af Suðurnesjum setið þá. Með
þeim reglum, sem Svavar Gestsson
gaf út og dagsettar eru mánudaginn
8. mars en sendar voru til aðila í
gær, er lögð niður samvinnunefnd
um skipulagsmál Keflavíkur, Njarð-
víkur og Keflavíkurflugvallar, sem
starfað hefur síðan 1978 og á upp-
runa sinn að rekja til samskonar
nefndar, sem stofnuð var með reglu-
gerð frá 1968. Fundur var haldinn í
þessari samvinnunefnd í gær með
þátttöku fulltrúa frá Keflavík,
Njarðvík og varnarmáladeild en
formaður hennar er Aðalsteinn
Júlíusson, vita- og hafnarmála-
stjóri, skipaður af Skipulagsstjórn
rikisins.
Sjá nánar í miðopnu.
Abyrgðartryggingar
bifreiða:
Mælt með
81,2%
hækkun
milli ára
TRYGGINGAEFTIRLIT ríkisins
hefur að tilmadum tryggingaráó-
herra gefið umsögn sína um hækk-
anabeiðni tryggingarfélaganna á
ábyrgðartryggingum bifreiða.
Tryggingafélögin fóru fram á
83,2% hækkun á milli ára, en
Tryggingaeftirlitið mælir með að
félögin fái 81,2% hækkun frá 1.
marz 1981 til 1. marz 1982, þ.e.
30% hækkun nú, en félögin hafa
áður fengið 39,2% á nýtryggingar
og breyttar.
Tryggingaeftirlitið sendi
tryggingaráðherra, Svavari
Gestssyni, þessa niðurstöðu í
byrjun vikunnar, og samkvæmt
heimildum Mbl. hefur trygg-
ingafélögunum verið gefið vil-
yrði fyrir því að þau fái hækk-
unina fyrir helgina, en endan-
legt ákvörðunarvald um hversu
miklar þær verða er í höndum
ráðherra.
Þá hefur Tryggingaeftirlitið
lagt til að hámark vátrygg-
ingafjárhæða verði hækkað, á
venjulegum bifreiðum úr 2,7
millj. kr. í 3,8 millj. og bifreiðum
með 10 farþega og fleiri úr 5,4
millj. kr. í 7,6 millj. kr. Þá er
einnig búist við að sjálfsábyrgð
ábyrgðartrygginga hækki, en
hún hefur v'erið 360 kr. á allar
tegundir bifreiða. Akvæði þessi
er að finna í umferðarlögum en
þau tilheyra dómsmálaráðu-
neytinu.
Ljósm. Mbl. Kmilía.
Sambandsskip á Bandaríkjasiglingu:
Skaftafellið stjórnlaust í
5 sólarhringa í fárviðri
Hefur rekið 190 sjómílur undan vestanbrimi og stormi
Snjóleikur
sem SkaftafelliA hefur rekið er sama
vegalengd og er milli íslands og
Grænlands, örlítið styttra en milli fs-
lands og Færeyja og ámóta og hálfa
leið milli íslands og Skotlands. Ekki
var talið ráðlegt þegar búið var að afla
varahluta að fljúga með þá að skipinu
og henda þeim í sjóinn þar sem talið
var ólíklegt að unnt væri að ná þeim
um borð í stórsjó sem er á svæðinu.
„Það er snarbrjálað veður hér,
10—12 vindstig og mikill sjór, en þó
að skipið flatreki fer það tiltölulega
vel miðað við aðstæður, og brýtur vel
sjóina sem dynja á því,“ sagði Jón
Kristinsson, skipstjóri á flutn-
ingaskipinu Skaftafelli, í talstöðv-
arsamtali við Morgunblaðið í gær-
kvöldi, en Skaftafellið var þá á reki
um 550 sjómílur suðvestur af íslandi
á Bandaríkjaleið og hefur skipið ver-
ið vélarvana síðan sl. laugardag. Það
var bilun í drifi fyrir eldsneytisdælu
aðalvélar sem olli vandanum og síð-
an á laugardag hafa vélstjórar
skipsins unnið nær sleytulaust að
því að smíða þá hluti sem biluðu og
hafa þeir gert það í samráði við
tæknimenn Sambandsins í Reykja-
vík um talstöðvarfjarskipti.
„Það eru 17 menn um borð hér og
þetta er búið að vera helvíti vont
veður allan tímann, enda rekið um
190 mílur undan sjó og vindi,“ sagði
Jón skipstjóri, en hann kvað skipið,
sem er 1600 tonn, vera með fullfermi
af fiski og fuilt af gámum á þilfari.
Yfirvélstjóri er Björn Björnsson.
„En við vonum að þessu vandamáli
fari að Ijúka, því við reiknum með að
geta prufukeyrt í nótt með þeirri
bráðabirgðaviðgerð sem unnið hefur
verið að hér um borð,“ sagði Jón
skipstjóri í talstöövarsamtalinu.
Omar Jóhannsson hjá Skipadeild
Sambandsins sagði í samtali við
Morgunblaðið í gærkvöldi að Jökul-
fellið hefði lagt upp frá íslandi á
miðvikudagsmorgun og var það látið
bíða einn sólarhring fyrir utan
Keflavík á Ameríkuleið sinni eftir
varahlutum sem sérstök flugvél sótti
til Þýskalands aðfaranótt miðviku-
dags og varð að fá sérstakt flug-
taksleyfi fyrir vélina aftur í loftið
eftir lokun flugvallarins. Kom vélin
hingað kl. 7 í gærmorgun. Jökulfellið
siglir áleiðis til Skaftafeilsins með
varahlutina.
SKAFTAFELL, eitt af flutningaskip-
um Sambandsins, hefur verið stjórn-
laust á reki síðan sl. laugardag, djúpt á
hafinu milli íslands og Bandaríkjanna
og hefur skipið rekið 190 sjómflur
undan fárviðri af vestan, en þó að
skipið hafi oltið mikið þar sem það
rekur flatt fyrir vestanbriminu þá hef-
ur það tekið sjóina vel á sig að sögn
Jóns Kristinssonar, skipstjóra, þegar
við ræddum við hann í talstöð í gær
kvöldi, en þá voru 10—12 vindstig á
slóðum Skaftafellsins. Vegalengdin
Skaftafell
Utflutningur á hertum
þorskhausum:
Sex tonn
árið 1975
6.811 tonn
í fyrra
GÍFURLEG aukning hefur orðið í
útflutningi á hertum þorskhausum
til Nígeríu síðustu ár. Árið 1975
seldu Islendingar 6 tonn af hausum
til Nígeríu, árið 1977 voru seld þang-
að 427 tonn, 1412 tonn árið 1979 og
í fyrra voru flutt þangað 6.811 tonn
af hertum þorskhausum. IJtflutning-
urinn hefur aukizt jafnt og þétt eins
og sést á þessum tölum, en nú eru
talsverðar birgðir í Nígeríu. IJtflutn-
ingsverðmæti þess magns af haus-
um, sem selt var til Nígeríu í fyrra
nam rösklega 81 milljón eða rúm-
lega 8 milljörðum g.kr.
Þau sex tonn af hausum, sem
seld voru til Nígeríu árið 1975,
voru flutt út á vegum Skreiðar-
samlagsins. Bragi Eiríksson fram-
kvæmdastjóri þess sagði í gær, að
áður hefðu fiskverkendur unnið
hausana í mjöl ef þeir hefðu þá
verið nýttir á annað borð. Tekjur
hefðu vart verið meiri en fyrir
kostnaði, þannig að herzlan og út-
flutningurinn til Nígeríu hefði
verið fundið fé fyrir framleiðend-
ur. Hins vegar sagði Bragi, að þess
yrði að gæta að kæfa ekki mark-
aðinn með útflutningi á hausum,
sem þá gæti komið niður á skreið-
arútflutningi. Kvað hann nauð-
synlegt að koma á góðri stjórn og
samvinnu yfirvalda í Nígeríu, ís-
lendinga og Norðmanna um þessi
mál. Þó þyrfti fyrst af öilu að
skipuleggja sölumálin hér heima.
Ef litið er á tölur um skreiðar-
útflutning kemur í Ijós, að á síð-
asta ári voru flutt út 18.985 tonn
af skreið til Nígeríu að útflutn-
ingsverðmæti 812,7 milljónir. Ár-
in 1971 til 1977 voru flutt út 1100
til 3.450 tonn á ári. Árið 1978
seldu íslendingar 6.899 tonn af
skreið til Nígeríu, 3.280 tonn árið
1979, 12.625 tonn árið 1980 og í
fyrra nam útflutningurinn 18.985
tonnum.
Viðræður ASÍ og
VSÍ að hefjast
STÓRA samninganefnd Alþýðu-
sambands íslands hefur verið boðuð
til fundar á morgun klukkan 14.
I samningunum, sem undirrit-
aðir voru í nóvember og gilda til
15. maí næstkomandi, er kveðið á
um, að samningaviðræður skuli
teknar upp eigi síðar en 15. marz,
þ.e. næsta mánudag. Halldór
Björnsson, varaformaður Dags-
brúnar, sagði í gær, að í fyrra-
haust hefði verið gengið frá kröfu-
gerð sambandsins, en viðræðum
aðila um hana hefði verið frestað
með skammtímasamningi. Frá
sínum bæjardyrum væri ekki
spurningin núna að leggja línurn-
ar fyrir komandi samningavið-
ræður, heldur að taka upp þráðinn
þar sem frá var horfið.