Morgunblaðið - 15.05.1982, Page 37

Morgunblaðið - 15.05.1982, Page 37
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 15. MAÍ1982 37 Minning: Steinunn Halldórs- dóttir - Hellu Fædd 10. desember 1920. Dáin 6. maí 1982. Steinunn Halldórsdóttir var fædd á Skíðbakka í Austur Land- eyjum 10. desember 1920, dóttir hjónanna Guðrúnar Nikulásdótt- ur og Halldórs Þorsteinssonar, bónda þar. Hún ólst upp í for- eldrahúsum ásamt systkinum sín- um, Sesselju, Elínu, Lilju og Kjartani. Innan við tvítugt fór Steina að fara að heiman til vinnu, hluta úr ári, til skiftis við systur sínar, fyrst í vistum, bæði í Reykjavík og Vestmannaeyjum. Einn vetur stundaði hún nám í Héraðsskólan- um á Laugarvatni. Síðan lá leiðin að Hellu þar sem hún starfaði lengst af á sauma- stofu, fyrst við herrafatasaum, síðan í Vinnufatagerð Suðurlands og nú síðast á Saumastofu Rud- olfs, þegar heilsan leyfði. Á Hellu kynntist Steina eigin- manni sínum, Bjarnhéðni Þor- steinssyni bifreiðastjóra og gengu þau í hjónaband 24. maí 1947. Þau hafa alla tíð búið á Hellu. Sonur þeirra er Halldór Svavar raf- virkjameistari. Hann er kvæntur Jóhönnu Jensen og eiga þau þrjú börn; Katrínu Jónu, Steinunni Birnu og ívar Örn. Steina var rólynd og dul og flík- aði ekki tilfinningum sínum. Hún átti við vanheilsu að stríða mörg undanfarin ár, en það mótlæti bar hún æðrulaust og án þess að kvarta. Allar bernskuminningar sem ég á um Steinu frænku mína eru á einhvern hátt tengdar ánægju og gleði, eins og t.d. fyrstu jólin sem ég man, þegar hún og systir hennar komu heim í jólafrí og gáfu mér stóra dúkku og síma sem gat hringt. Ég gleymi heldur ekki þegar Steina og fleira frænd- fólk gáfu mér reiðhjól í afmælis- gjöf þegar ég varð ellefu ára. Það voru ekki allar stelpur, sem áttu hjól í þá daga. Eða allar orlofs- ferðirnar, sem ég fór á hverju vori út að Hellu, frá því ég var smá- krakki og fram yfir fermingu. Og síðast en ekki síst man ég veturinn 1959, þegar ég dvaldi á heimili Steinu og Bjarnhéðins, frá ára- mótum og fram á vor. Þar fæddist elsti sonur minn og mikið passaði hún Steina okkur þá vel og vildi allt fyrir okkur gera. Því miður er ég hrædd um að mér hafi láðst að þakka þetta allt og miklu fleira, eins og vert hefði verið meðan tími var til. Eftirlifandi eiginmanni hennar, syni þeirra og hans fjölskyldu, votta ég innilega samúð. Á skiln- aðarstundu þakka ég Steinu sam- fylgdina og allt gott gert mér og mínum til handa, og bið henni blessunar Guðs. Rúna Hermann Jósepsson Fæddur 12. ágúst 1906 Dáinn 9. maí 1982 Vernharð, en hann gekk undir því nafni, andaðist á fjórðungs- sjúkrahúsinu ísafirði 9. maí sl. Hann var fæddur að Atlastöðum í Fljótavík á Hornströndum 12. ág- úst 1906, sonur hjónanna Margrét- ar Guðnadóttur og Jóseps Her- mannssonar sem áttu og bjuggu á hálfri jörðinni. Vernharð ólst upp að þeirrar tíðar hætti, við störf til sjós og lands. Þáttaskil urðu í lífi Vernharðs, er hann giftist eftirlif- andi konu sinni, Þórunni Maríu Friðriksdóttur frá Látrum í Aðal- vík, 27. nóvember 1929. Þórunn María er dugmikil myndarkona og stóð við hlið manns síns í blíðu og stríðu, því oft var erfitt uppdrátt- ar á Hornströndum á búskaparár- um þeirra. Þeim hjónum varð 8 barna auðið, en þau urðu fyrir þeirri þungu sorg að missa þrjú barna sinna innan við sjö ára ald- ur. Þórunn María átti dóttur áður en hún giftist Vernharði og gekk Vernharð - Minning hann henni í föðurstað. Börn þeirra hjóna sem upp komust, hafa erft í ríkum mæli dugnað og mannkosti foreldra sinna. Þau Þórunn María og Hermann Vernharð byrjuðu búskap sinn að Atlastöðum í sambýli við föður Vernharðs, sem þá var orðinn ekkjumaður. Þar bjuggu þau í nokkur ár, en fluttust þá til Tungu í sömu vík og bjuggu þar næstu 10 árin, en síðasta árið sem þau áttu heima í Fljótavík, voru þau að Skjaldarbreiðu. 16. júní 1946 var mikill saknað- ar dagur í lífi okkar sem áttum heima í Fljótavík. Þann dag urð- um við öll að yfirgefa okkar heimabyggð og fluttumst flest til Hnífsdals. Þar bjuggu þau hjón síðan og áttu alla tið heima á Brekku. Vernharð stundaði sjó og búskap jöfnum höndum, enda var hann bóndi af lífi og sál, enda var bústofn hans mjög myndarlegur og vel hirtur alla tíð. Mikill skyld- leiki er með mér og börnum Þór- unnar Maríu og Vernharðs, þar sem Vernharð var föðurbróðir minn, en Þórunn María er móð- ursystir mín. Elsku Mæja frænka, um leið og ég sendi þér og fjölskyldunni inni- legar samúðarkveðjur, bið ég guð að blessa ykkur í nútíð og framtíð. 23. Davíðssálmur er kveðja mín að lokum til Venna frænda. Hann hvíli í friði. Guðjón Finndal Finnbogason Karl Jónasson Hofsósi - Minning í dag verður til moldar borinn á Hofsósi Karl Jónasson sjómaður sem lést af slysförum aðfaranótt 8. maí í Grundarfjarðarhöfn. Ég, sem þessar línur rita, er ekki vanur að skrifa um látna menn og kannski hefði Karli vini mínum ekkert verið um það, því honum var það ekki gjarnt að vekja athygli á sér en kynnin af honum hafa festst mjög í huga mínum. Hans líf var ekki alltaf dans á rósum eins og mætti orða það. Karl var fæddur á bænum Bæj- arklettum á Höfðaströnd 26. febrúar 1922, foreldrar hans voru Jónas Jónasson og Þorbjörg Jónsdóttir. Karl var elstur 6 systkina, er Karl var 11 ára fórst faðir hans með trillubáti. 18 ára gamall fór Karl á vertíð á Hnífsdal og eftir það stundaði hann sjóinn til dauðadags. Karl var sjómaður í orðsins merkingu og kunni þar best við sig. Hann var einn þeirra manna sem Bakk- us konungur setti stundum fótinn fyrir en stóð þó yfirleitt aftur upp til sinna sjómennskustarfa og stóð sig þá vel, var kunnáttumaður að meðhöndla fisk og veiðarfæri og hugsaði meira um starfið heldur en hvort þetta handtakið stæði í kjarasamningunum. Ég er sannfærður um að þegar Karl komst yfir móðuna miklu hafi þar verið tekið vel á móti honum eins og öllum góðum mönnum og að honum líði vel. Ég þakka Karli okkar kynni. Ég votta aðstandendum hans samúð mína. Guð veri með þeim. Lárus Guðmundsson Víta vinnubrögð Ragnars Arnalds DAGANA 10. og 11. maí 1982 hélt Starfsmannafélag ríkis- stofnana ráðstefnu með tækni- mönnum félagsins um stefnu- mörkun þess í samnings- og kjaramálum. Ráðstefnuna sóttu um 80 manns og voru flutt 14 framsöguerindi um ýmis mál er varða starf og starfsumhverfi launamanna. I lok ráðstefnunnar voru fjölmargar ábendingar og ályktanir samþykktar til stjórnar, auk ályktunar um kjaramál er hér fer á eftir og samþykkt var einróma: „Fundur tæknimanna SFR haldinn 10. og 11. maí 1982 vít- ir vinnubrögð fjármálaráð- herra. Hann undirritaði samn- ing við BSRB 11. desember sl. með ákvæði um að launakjör ríkisstarfsmanna yrðu sam- ræmd því, sem greitt er fyrir sambærileg störf. í stað þess að standa við samninginn, bauð hann innan við 1% launahækkun þegar saman- burðartölur sýndu almennt 15—30% launamun." EF ÞAÐ ER FRÉTT- NÆMT ÞÁ ER ÞAÐ í MORGUNBLAÐENU Moldarsala Okkar árlega moldarsala verður helgina 15.—16. maí. Allur ágóöi rennur til Hjúkrunarheimilis aldraöra, Kópavogi. Pantiö í símum 42058 — 17118 — 44731. Lionsklúbburinn Muninn, Kópavogi. vantar þ«3 gódan bíl ? notaóur - en í algjörum sérfbkki Til sölu þessi glæsilegi Alfa Romeo Alfetta árg. 1978. Einn eigandi, nýtt lakk, endurriðvarinn, útvarp, seg- ulband og vélin er heil 140 hestöfl. Ath.: Opiö í dag frá 1—5. JÖFUR hf Nýbýlavegi 2 - Kópavogi - Sími 42600 RÆÐUM BORGARMÁLIN Frambjóðendur Sjálfstæöisflokksins í borgarstjórn- arkosningunum 22. maí vilja opiö stjórnmálastarf, sem byggist á sterkum tengslum kjósenda og kjör- inna fulltrúa þeirra. Þess vegna erum viö tilbúin til aö hitta ykkur aö máli og skiptast á skoöunum til dæmis í heimahúsum, á vinnustööum eöa hjá félögum og klúbbum. Síminn okkar er 82900 eöa 82963 — hafiö samband

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.