Morgunblaðið - 30.11.1982, Blaðsíða 23

Morgunblaðið - 30.11.1982, Blaðsíða 23
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 30. NÓVEMBER 1982 27 . Ljósm.: RAX. Pannig var víóa umhorfs eftir að óveðrinu slotaði á sunnudagskvöld: langar raðir af kyrrstæðum og oft yfirgefnum bílum, en færðin þó tiltölulega góð um leið og birti til. „Hérna biðu um 300 manns átta og hálfa klukkustund, í kolniðamyrkri og hriplekri flugstöðinni,“ sagði Grétar ennfremur. „Hér var fólk af ýmsu þjóðerni, íslendingar, Bretar, Banda- ríkjamenn og fleiri, og er ekki hægt að segja að aðbúnaðurinn hér hafí verið góð landkynning fyrir okkur. Skammhlaup varð í spennustöð hér skammt frá, hugsanlega vegna eldingar, og því varð allt rafmagns- laust. Neyðarljós, sem fara sjálf- krafa í gang er rafmagnið fer af, kviknuðu þó, en þau eru alltof fá og loga auk þess aðeins í tvær klukku- stundir. Þegar þau voru útbrunnin var því ekki um annað að ræða en að ná í kerti, og voru þau sótt niður í Keflavík, þótt ekki gengi of vel að ná í þau, enda verslanir ekki opnar síðdegis á sunnudögum. Hér var allt reynt, sem í okkar valdi stóð, til að gera fólkinu biðina sem léttbærasta. Ekki var hægt að hita mat eða kaffi innan flugstöðv- arinnar vegna rafmagnsleysisins, en hluti farþeganna fór út í flugvél- arnar og fékk þar hressingu. Hér var svo boðið upp á gosdrykki og samlokur. — Það versta var að þeg- ar tók að hlána er leið á kvöldið, tók byggingin að leka svo um munaði. Leki gerði vart við sig mjög víða, og á einum stað var hann svo mikill, að það var líkt og staðið væri í steypi- baði. Þá sprakk ofn í Fríhöfninni þegar verst lét, og flæddi um allt. Hafi nokkur talið að flugstöðin væri fær um að gegna hlutverki sínu, og hafi einhverjir haldið að þetta væri ágætis hús, þá er sá misskilningur vonandi úr sögunni. Allt fór þetta þó vel að lokum og starfslið Flug- leiða gerði allt sem í þess valdi stóð til að gera fólki biðina léttbærari. Þessu lauk svo um klukkan hálf tvö aðfaranótt mánudags, er flugvél- arnar komust loks af stað, eftir átta og hálfs tíma bið,“ sagði Grétar að lokum. Flugvélar tepptar á Akui eyri og Höfn NOKKRAR tafír uröu á innanlands- flugi vegna illviörisins á sunnudaginn, aö sögn Sæmundar Guövinssonar fréttafulltrúa Flugleiöa, sem Morgun- blaðið ræddi við í gær. Framan af degi var flug með eðlilegum hætti, sagöi Sæ- mundur, en síðdegis féllu niður tvær ferðir til Eyja, ein til Akureyrar og önn- ur til Húsavíkur. Þá sagði Sæmundur að flugvél, sem var á leiðinni frá Akureyri til Reykjavíkur, hafi orðið að snúa við og lenda aftur á Akureyri, og önnur vél komst ekki frá Höfn í Hornafirði. í gær, mánudag, var flug aftur með eðlilegum hætti, nema hvað ekki var flogið til Vestfjarða. Vegir færir í Árnessýslu „ÞETTA var töluverður hvellur, veðr- ið skall snöggt á en gekk líka fíjótt yfír,“ sagði Jón Guðmundsson, yfír- lögregluþjónn á Selfossi, er Morgun- blaðið aflaði frétta hjá honum af óveðrinu. „Bílar tepptust á Sandskeiði," sagði Jón, „og margir óku útaf, og skaflar mynduðust við þá bíla sem stöðvast höfðu. Engin slys urðu hins vegar á fólki og litlar eignaskemmd- ir hygg ég, og í dag er orðið fært á öllum vegum í Árnessýslu. Það, sem einkum var að í óveðrinu var að fólk var ekki nægilega vel búið, og svo er óþolinmæðin oft mikil þegar tafir verða. En í óveðri sem þessu er það nú einu sinni svo, að það er þolin- mæðin sem gildir, það þarf bara að bíða eftir því að veðrið gangi yfir.“ Keflavíkurvegurinn: Fjöldi bíla fauk út af veginum ÁSTANDIÐ varð einna verst á Kefla- víkurveginum milli Hafnarfjarðar og Kefíavíkur í óveðrinu á sunnudaginn. Þar fauk fjöldi bíla útaf veginum, og illstætt var úti við, fyrir fólk úr bílun- um og þá sem komnir voru til aðstoð- ar. Nokkrir árekstrar uröu einnig, en þó ekki meiðsl á fólki, svo vitað sé. Lögreglan í Hafnarfírði og í Keflavík hafði samvinnu um björgunarstarfíð, með góðri aðstoð björgunarsveita úr Keflavík, Njarðvík og Hafnarfirði. Talsverð umferð var um Reykja- nesbrautina er óveðrið skall á, en dró síðan úr henni. Margt manna vildi ekki hlíta ráðleggingum um að fara ekki af stað, og var gripið til þess ráðs að loka veginum beggja vegna, við Hafnarfjörð og Keflavík. Lögreglumenn í Keflavík, sem Morgunblaðið ræddi við í gær sögðu þetta vera eitt versta veður, sem þeir myndu eftir á Reykjanesbraut- inni, þar hefði allt hjálpast að í senn: Rok og skafrenningur og síðan mikil rigning og fljúgandi hálka. Hér var allt reynt, sem í okkar valdi stóð, til að gera fólkinu biðina sem léttbærasta. Ekki var hægt að hita mat eða kaffi innan flugstöðv- arinnar vegna rafmagnsleysisins, en hluti farþeganna fór út í flugvél- arnar og fékk þar hressingu. Hér var svo boðið upp á gosdrykki og samlokur. — Það versta var að þeg- ar tók að hlána er leið á kvöldið, tók byggingin að leka svo um munaði. Leki gerði vart við sig mjög víða, og á einum stað var hann svo mikill, að það var líkt og staðið væri í steypi- baði. Þá sprakk ofn í Fríhöfninni þegar verst lét, og flæddi um allt. Hafi nokkur talið að flugstöðin væri fær um að gegna hlutverki sínu, og hafi einhverjir haldið að þetta væri ágætis hús, þá er sá misskilningur vonandi úr sögunni. Allt fór þetta þó vel að lokum og starfslið Flug- leiða gerði allt sem í þess valdi stóð til að gera fólki biðina léttbærari. Þessu lauk svo um klukkan hálf tvö aðfaranótt mánudags, er flugvél- arnar komust loks af stað, eftir átta og hálfs tíma bið,“ sagði Grétar að lokum. Mikill veðurhamur í Hval- firði og undir Hafnarfjalli: Þrír bílar fuku út af veginum MARGT manna lenti í erfíðleikum undir Hafnarfjalli og í Hvalfirði í óveðrinu, þar sem þrír bílar fuku út af veginum og nokkrir lentu í árekstrum. Samkvæmt upplýsingum lögreglunnar í Borgarnesi varð ófærð þó aldrei mik- il, þannig að um leiö og veðrinu slot- aði var greiðfært um fíesta vegi. Fólk beið í Olíustöðinni, í Botnsskála og á Ferstiklu meðan veðrið gekk yfir, en það var milli klukkan 17 og 21, lauk því jafnskjótt og það skall á. Veðurhæð var mikil og blindbylur, og orsakaði það bæði bílvelturnar og árekstrana. Ekki er vitað um meiðsl á fólki, og bílarnir sem fuku skemmdust lítið. Mest skemmdist fólksbifreið, sem ekið var framan á rútubifreið. Um leið og hún hafði rekist á hana, kom önnur bifreið aðvífandi og ók aftan á fólksbifreiðina, sem þannig klemmdist milli tveggja bila. Bjarni E. Sigurðsson skipstjóri. breitt um störf sveitarstjóra og þau verkefni sem verið væri að glíma við og framundan væru, og tóku nem- endurnir vel undir og spurðu margs. „Þetta var mjög lærdómsríkt fyrir mig, ég hef aldrei setið í sæti kennarans áður,“ sagði Stefán. „Það var margt sem kom þeim á óvart, sumt vissu þau ekki um, en þau sýndu þessum málum mikinn áhuga," sagði Stefán. í spjalli við hóp foreldra frammi á kennarastofunni kom fram að þeir höfðu haft gaman af. Þeir kváðust hafa óttast að nemendurnir myndu ekki láta að stjórn, höfðu vantreyst sjálfum sér og búist við að nemend- urnir myndu bara hlæja að þeim, eins og einn „kennaranna" komst að orði. „Við viljum fleiri daga af þessu tagi. Tilbreytingin er góð og við höf- um fengið góða fræðslu um ýmislegt það sem er að gerast hér í kringum okkur," sögðu þrír piltar úr áttunda bekk, þeir Bjarki Grétarsson, Erl- Guðmundur Bjarni Baldursson „varaskóiastjóri“ vísar nemendum inn í sínar réttu stofur. Stefán Garðarsson sveitarstjóri svarar fyrirspurnum nemenda, sem spurðu hann spjörunum úr um ýmislegt það sem ofarlega er á baugi hjá sveitarstjórninni. Bjarki Grétarsson, Erlingur Sigurjónsson og Brynjar Guðmundsson voru ánægðir með framlag foreldranna og vildu að oftar yrði farið út á þessa braut. ingur Sigurjónsson og Brynjar Guð- mundsson. Þeir félagar sögðu að fjallað hefði verið fyrst og fremst um gagnlega hluti, og einnig hefði sveitarstjórinn sett þá inn í málefni byggðarlagsins. „Þetta hefur verið óskaplega gaman. Krakkarnir hafa verið indælir og virðast taka vel eftir. Það kemur okkur mest á óvart hversu stilltir þeir eru og áhugasamir, hér virðist góður agi,“ sagði Guðmund- ur Bjarni Baldursson „varaskóla- stjóri". Bæði Guðmundur og Bjarni skólastjóri sögðu gott samstarf milli foreldrafélagsins og skólans. Félagið, sem væri þriggja ára, hefði m.a. lagt skólanum til innréttingar á ganga, borð og bekki og einnig bólstraða stóla í kennslustofum, og þannig reynt að gera umhverfið allt heimilislegra. í Grunnskóla Þorlákshafnar eru 236 nemendur í 11 bekkjardeildum. í fyrsta skipti eru börn úr Ölfusi keyrð í skólann, nemendur sem hingað til hafa stundað nám í Hveragerði. Kennarar við skólann eru 13, þar af níu í fullu starfi. Ibúa- fjölgun er stöðug í Þorlákshöfn og húsnæði skólans því of lítið, en úr því verður bætt og hefjast fram- kvæmdir við stækkun húsnæðisins í vor. í samtölum við foreldra og Bjarna skólastjóra kom í ljós viss kvíði meðal þeirra vegna aðstöðu Námsgagnastofnunar. Þeir sögðu að af almannafé fengi stofnunin sem svaraði 370 krónum á hvern nem- enda í grunnskólum landsins, en þegar rekstrarkostnaður og laun væru dregin frá, væru eftir 150 krónur á nemanda til sjálfra námsgagnanna. „Það þurfa allir að leggjast á eitt til að auka veg stofn- unarinnar. Skólarnir þurfa aðstoð og þrýsting frá foreldrum og að- standendum nemenda til að koma þessum málum farsællega í höfn,“ sagði Bjarni E. Sigurðsson. Það var líf og fjör á göngum skól- ans þegar Morgunblaðsmenn kvöddu, enda verið að hringja í tíma, og tilhlökkunin leyndi sér ekki hjá nemendunum, bæði þeim eldri sem yngri. Það voru allir ánægðir með sinn hlut, skólastjórinn, nem- endurnir, og ekki sízt foreldrarnir.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.